Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Síða 33
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994 33 Ýmsir láta sér ekki nægja venjulegt jólaföndur á mannamótum á aðvent- unni. Steffens Mikið úrval af falleg- um fatnaði í stærð- um 128-173 cm Peysa 2.480,- Pils 2.480,- Vesti 3.995,- 10% staðgreiðsluafsl. Með sam- viskubit eftir • r -rauðglóandi símalínurhjá alnæmisráðgjöfum Símalínurnar hjá alnæmisráðgjöf- um í Danmörku eru rauðglóandi um þessar mundir. Þeir sem hringja iðr- ast hliðarspora á jólaglöggskvöldi með vinnufélögunum, að því er greint er frá í danska blaðinu Politik- en. Fólk vill fá að vita hverjar smit- hættumar eru og vill fá ráðleggingar um hvort það eigi að láta kanna hvort það hafi smitast af alnæmi. Að sögn eins ráðgjafans þróast samtölin þó oft þannig að þau minna á samtöl kaþólikka í skriftastól og prests. „Við erum ekki með neina upp- skrift að því hvernig þeir karlar sem leita til okkar eigi að haga sér, það er hvort þeir eigi að segja konum sínum frá framhjáhaldinu og hvort þeir eigi að fara í alnæmispróf. Við aðstoöum þá hins vegar við að líta á málið skýrum augum svo að þeir geti tekið ákvörðun sem er rétt fyrir þá,“ segir ráðgjafinn Jargen Haar Kristensen í Kaupmannahöfn. í nóvember, desember og fram í janúar hringja tvöfalt fleiri til al- næmisráðgjafanna en venjulega. Þetta er munstur sem endurtekur sig frá ári til árs. Ráðgjafamir em ekki í vafa um aö þau hundrað samtöl sem þeir fá á dag séu vegna þess að fólk lætur sér ekki nægja venjulegt jóla- fóndur á þeim mörgu mannamótum sem haldin em á þessum árstíma. Ráðgjafinn Pavl Madsen á Fjóni segir einnig aðra ástæðu til hringing- anna núna. „Á jólum beinist athyghn að fjölskyldunni og ef menn hafa lengi þjáðst af samviskubiti vegna framhjáhalds vilja þeir létta á hjarta sínu.“ Danskur sálfræðingur, sem hefur sérhæft sig í skilnaðarmálum, segir að það sé augljóst samhengi milh skilnaða og jólahátíðarinnar. Sál- fræðingurinn, Morten Nissen, lítur meira á hin heföbundnu jól sem byrði en hátíð. „Það nægir að horfa á fólk úti á götunum. Það verður stressaðra og stressaðra og það htur alls ekki út fyrir að það sé skemmthegt að ganga um bæinn og kaupa jólagjafir," segir hann. Fjölskylduboðin geta einnig endað með gráti og gnístran tanna. Boðin reyna stundum mjög á diplómatíska hæíileika okkar. Það er oft hætta á sprengingu þegar menn ylja sér með jólabrennivíninu. Það er best að forð- ast umræðuefni sem geta valdið sprengingu." Morten Nissen segir um að gera að æsa sig ekki þegar maður hlustar á einhvem foðurbróðurinn eða ömmu- bróðurinn segja sama leiöinlega brandarann níundu jóhn í röð. „Þá er best að fara á snyrtinguna og telja upp að hundrað." HEIJVIILISINS - Á GÓÐU VFRÐl • Nicam Stereo hljómgæöi • íslenskt textavarp • Super Planar myndlampi • og margt fleira... ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS 69.800 STGR. SjÓNVUtPSIVIIÐSTÖÐIN SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI68 90 90 • OPIÐ LAUG. 10-16 - SUN. 13-16 19 Biómálfurinn býður þér í heillandi ævintýraheim jólaskrauts, blóma, skreytinga, smágjafa og fallegra antikhúsgagna. Líttu inn! Heitur epladrykkur í anda blómálfa hlýjar þér og hressir. Vesturgata 4, sími 562 2707. OPIÐ: mán-fim 10-21, fös-lau 10-22 og sun 11-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.