Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Page 37
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
41
Einstæð fimm bama móðir:
Hárlakk - Froður - Gel
VÍUÍJ
iEaES3‘
Gæði ágóðu
verði -
Fæst í næstu
verslun
llétur
turisön
kr. 109.900,-
Guðrún Haraldsdóttir er ósátt við félagslega ibúðakerfið. DV-mynd GVA
fullum gangi
Brautarholti & Kringlunni
innbyggðir
hátalarar,
íslenskt textavarp
og fullkomin
fjarstýring.
Félagslega kerf-
ið hafnar mér
- segir Guðrún Haraldsdóttir sem fær ekki félagslega íbúð þrátt fyrir ítrekaðar umsóknir
„Eg hef alltaf viljað vera sjálfstæð
og reynt allt til að halda mínu eigin
húsnæði. í þessari baráttu hef ég
staðið frá árinu 1987 þegar ég skildi
og oft höfum við ekki átt ofan í okkur
mat. Strákarnir mínir hafa stundum
þurft að láta þykkan hafragraut
nægja í allar máltíðir. Þetta hefur þó
einhvern veginn gengið. Nú er þó svo
komið að ég get ekki meira og mér
finnst ákaflega súrt að ég eigi ekki
kost á íbúð í félagslega kerfinu," seg-
ir Guðrún Haraldsdóttir, fimm barna
einstæð móðir, sem hefur barist við
hiö félagslega kerfl árum saman án
árangurs. Þau svör sem hún hefur
fengið eru þau að hún eigi of mikið
til að eiga rétt á félagslegri íbúð.
„Með miklum spamaði og aðhalds-
semi tókst mér að kaupa mér íbúð á
sínum tíma í Keflavík. Ég skil ekki
hvernig ég hef komist í gegnum þetta
en í raun hef ég braskað með íbúðir.
Ég hef keypt og selt með góðum ár-
angri. Eldri strákarnir mínir eru
búnir að skipta sjö sinnum um skóla
á þessum tíma og ég get ekki boðið
þeim upp á meira. Þeim gengur illa
að eignast fasta vini og þetta rótleysi
fer illa með þá,“ segir Guðrún.
Hún býr núna í tveggja herbergja
kjallaraíbúð í vesturbænum í
Reykjavík en þá íbúð fékk hún í
skiptum fyrir íbúð sem hún seldi í
Garðabæ. Hún hafði reynt að kaupa
félagslega íbúð þar en fékk ekki. „Eg
er búin að reyna að komast inn í fé-
lagslega kerfið á Suðurnesjum, í
Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík.
Mér er alls staðar hafnað."
Erfiðara að lifa
Mér finnst orðið miklu erfiðara að
lifa núna en fyrir ári. Bömin eldast
og þurfa meira að borða og allur
rekstur verður dýrari. Þó hafa strák-
arnir borið út blöð til að létta á mér
og hafa séð sjálfir um að klæða sig.
Síðan tannlæknakerfinu var breytt
hef ég ekki haft efni á að senda bömin
til tannlæknis. Tannlæknir sem ég tal-
aði við í sumar óskaði í tvigang eftir
að fá niðurfellingu á greiðslu fyrir mig
hjá Tryggingastofnun ríkisins en fékk
synjun. Hann gerði við það versta og
ég skulda honum það ennþá.“
Elsti sonur Guðrúnar fór til Noregs
í haust þar sem hann stundar
menntaskólanám. Hún taldi það vera
ódýrara en að hafa hann heima en
hún borgar 20 þúsund fyrir hann á
mánuði. „Ég hef ekki lengur efni á
að hafa hann þar svo hann verður
að koma heim um jólin. Mér sviður
það mjög því hann er ánægður þar.
Versta tilhugsun mín er sú að hafa
ekki efni á að mennta börnin min.
Ég hef alla tið verið metnaðargjöm
og barist af miklum krafti til að halda
mínu. Þess vegna finnst mér fáránlegt
að ég geti ekki fengið íbúð í félagslega
kerfinu því ég lít þannig á að lögum
samkvæmt eigi ég rétt á því.“
Lenti í
„ Sigtúnshópnum"
Guðrún segist finna mikinn mun á
hversu erfiðara sé að framfleyta íjöl-
skyldunni núna en fyrir einum eða
tveimur árum. „Mér finnst öll út-
gjöld hafa hækkað,“ segir hún. „Ef
ég kemst ekki í félagslega íbúð, þar
sem ég get búið börnunum mínum
ömggt húsnæði og hjálpað þeim með
námið, geri ég ráð fyrir að fara af
landinu. Ekki treysti ég mér út á
leigumarkaðinn," segir hún.
Guðrún segir að meðan hún var
gift hafi fjárhagserfiðleikarnir verið
að sliga þau. „Við byijuðum að fjár-
festa árið 1980 og lentum í þeim hópi
sem fór hvað verst út úr vaxta-
okrinu. Ég hef aldrei síðan getað veitt
mér eða börnunum neitt. Ég skulda
börnunum mínum jólagjafir, afmæl-
isgjafir og fermingargjafir. Þó hef ég
ekkert verið að kvarta heldur lifað
fyrir hvern dag í einu. Það eina sem
ég er ósátt við er að komast ekki inn
í félagslega kerfiö."
Myndgæði SONY
sjónvarpstækjanna er slíkur að oft
reynist erfitt að átta sig á því að
verið sé að horfa á sjónvarp.
Kynntu þér yfirburði SONY áður
en þú velur annað
SONY KVX 2903
29" NiCam Stereo,
HiBlack Trinitron
myndlampi,
2 x 20W