Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Qupperneq 41
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
45
Siv í 1. sæti
lnnut sem kveúur ttt)
Styðjum Siv FriðleifscLóttur í
1. sæti í prófkjöri Framsóknar-
manna í Reykjaneskjördæmi
10. des n.k.
Stuðningsmenn
Tryggjum öflugri konu
1. sæti listans.
Kosningaskrífstofa að Nýbýlavegi 14 Kópavogi.
Sími 644690 & 644691 • Fax 644692.
Opið frá kl. 9.00-22.00 alla daga.
Björgvin Vilmundarson bankastjóri.
stjórarnir. Taliö berst að útibússtjóra
í stóru íbúðarhverfi í Reykjavík.
Hann var tengdasonur manns, sem
eitt sinn gegndi lykilhlutverki í ís-
lenskum stjórnmálum, og þótti hafa
stíl svartra sauða af háum stigum,
nokkuð svallsamur, söguglaður og
talsverður sláttur á honum.
„Frændi minn, sem framieiddi vél-
búnaö til útflutnings, nokkuð skap-
stór, einkum þegar hann er fullur eða
timbraður, sem er því miður alltof
oft, kærði þennan útibússtjóra fyrir
aðaibankastjórunum," segir Nóri.
„Þá hafði næstráðandi í útibúinu
fyrst narrað starfsmann hans, að
honum fjarstöddum, til aö senda úti-
bússtjóranum viskíkassa í jólagjöf
með því að draga kaup á viðskipta-
víxlum úr hófi fram. Þegar átti að
nota sömu bolabrögö til að kría út
ferðastyrk í sumarfríið með fjöl-
skylduna varð frændi minn alveg
óður, enda hittist svo á að hann hafði
verið að ríða út meö hrikalegum
gleðimönnum, einhveijum mestu
hagyrðingimum úr stjómarráðinu,
allan daginn á undan og fram á nótt.“
„Og í hvem klagaði frændi?" spyr
ég
„Hann gekk á fund tveggja banka-
stjóra, þess sem sér um kratana og
þess sem þá sá um Kolkrabbann en
er nú hættur,“ segir Nóri. „Það þótti
víst ekki taka því að hafa banka-
stjóra SÍS viðstaddan.“
„Hvernig tóku þessir dánumenn
klögumálinu?" spyr ég.
„Með sömu stillingu og öðru,“ segir
Nóri. „Þeir tóku enga efnislega af-
stöðu til málsins en létu undirsáta
sinn, einhvern lúðulaka á tvöfoldum
ráðherralaunum, hringja j frænda
daginn eftir og gefa honum fyrir-
mæh um að flytja öli sín viðskipti
úr útibúinu og niður í aðalbanka."
Veigar í stað lána
„Þekkirðu fleiri dæmi um umsvif
þessa útibússtjóra?" spyr ég.
„Kunningjakona dóttur afgreiðslu-
stúlku sem lengi vann hjá mömmu
Óútfylltirvíxlar
Þá mun enn vera tiltölulega algengt
samkvæmt upplýsingum frá Neyt-
endasamtökunum að bankar hafi í
fórum sínum óútfyllta tryggingar-
víxla fyrir greiðslukortaviðskiptum
með uppáskrift frá ábyrgöarmanni,
kunningja eða ættingja korthafans,
og bankinn skrifi inn á þá, ef svo ber
undir og allt fer í óefni, margfalt
hærri upphæð en heimild korthafa
nemur þó að nú á síðustu tímum sé
miklu auðveldara að fylgjast með
úttekt hvers og eins en áður var.
„Svo mikið veit ég þó að ég hafi
ekki klárað lögfræðina að óútfylltur
víxiU er enginn rááll,“ segi ég.
„Háttsettur maður í íslenska
stjórnkerfmu varð öskureiður við
íslandsbanka þegar hann var kraf-
inn um þóknun fyrir að taka út pen-
inga af eigin gjaldeyrisreikningi,"
segir Nóri. „Svo komst hann að því
að allir bankarnir taka sömu þóknun
fyrir slíkar úttekti, 1,5%. Maðurinn
kallaði þetta þjófnað og kvartaöi
meöal annars viö Neytendasamtökin
sem höfðu reyndar hálfu ári fyrr
hreyft mótmælum við sams konar
gjaldtökum við bankaeftirht Seðla-
bankans. En bankamir skjóta sér þá
á bak við þá hahærislegu og hlálegu
skýringu aö 1,5% þóknunin sé ekki
fyrir úttekt af gjaldeyrisreikningi
heldur fyrir afgreiöslu á erlendum
seðlum."
Bankarnir kærðir
Bankaeftirlitið segir_í bréfi sem við
höfum ljósrit af að bankarnir hafi
almenna heimhd th að ákvarða
gjaldskrár, enda sé ekki um samráð
að ræða, sbr. 52. gr. laga nr. 43/1993
um viðskiptabanka. Bankaeftirlitið
tekur þó fram að það hafi ritað bönk-
um og sparisjóðum bréf 14. septemb-
er 1993 og bent á að þessar stofnanir
kynnu að verða fyrir endur-
greiðslukröfum af þeim sökum að
hafa látið undir höfuð leggjast að
kynna viðskiptavinum sínum, eink-
um þó þeim sem hefðu stofnaö inn-
lenda gjaldeyrisreikninga áður en
ákvörðun var tekin um gjaldtökuna.
„Neytendasamtökin em sífellt að
kæra bankana fyrir samráð á ýmsum
sviðum,“ segir Nóri. „En bankarnir
harðneita til dæmis að hafa borið sig
saman um taxtann á þessu úttektar-
gjald sem er ekki úttektargjald held-
ur seðlaafgreiðslugjald. Þeir bera það
á borð fyrir fólk án þess að blikna
að það sé tilviljun að gjaldið er 1,5%
í öllum viðskiptabönkum og spari-
sjóðum á íslandi."
Svallsamur
útibússtjóri
Við ræðum um breytinguna sem
orðið hafi á afgreiöslu bankanna á
síðari árum eftir að fyrirtæki leggja
lánsumsóknir sínar gjaman fyrir
hagdeUdir og aðeins fáir útvaldir sjá
nokkurn tíma framan í aðalbanka-
stjórana. Einstakhngar eiga gjaman
við útibússtjórana sem eru misjafnir
eins og aðrir menn, til dæmis banka-
Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri.
en er nú alveg komin út úr heiminum
blessunin, móðirin auðvitað, ekki
dóttirin, þekkir konu sem er gift
manni sem rekur veitingahús langt
austur í óæðri enda bæjarins, þar
sem stútungskarlar og kerlingar ku
rotta sig saman á síðkvöldum, eins
og það er nú huggulegt eöa hitt þó
heldur," segir Nóri. „Hún var gest-
komandi hjá veitingamanninum þeg-
ar hann var að bera sig upp við frúna
út af þeim ótíðindum að þessi útibús-
stjóri þarna austur frá ætlaði að fara
að ferma eina ferðina enn. Hann
tönnlaðist á því og lamdi með hnef-
anum á lær sér: Ætlar helvítiö að
fara að ferma aftur! Hvert þó í heit-
asta! Henni skyldist að veitinga-
manninum væri ætlað að standa
straum af veisluhöldum í hvert sinn
sem afkomendur þessara stórmenna
væru tekin inn í samfélag kristinna
manna.“
„Urðu ekki margir til að kæra
þennan mann?“ spyr ég.
„Jú, ég býst við því,“ segir Nóri.
„En þetta er frekar sjarmerandi ná-
ungi og gat vist verið býsna snar að
kaupa viðskiptavíxlana þegar sá
gálhnn var á honum. Ég frétti að
þegar kaupmenn eða aðrir spurðu
hann, svona viö fyrstu viðkynningu,
hvort það væri ekki hægt að endur-
gjalda honum greiðviknina þá hefðu
þeir alltaf fengið sama svarið: Skottið
er opið. Þá stóð bíllinn alltaf fyrir
utan bankann með skottið ólæst. Mér
skUst að hann hafi verið orðinn hálf-
siginn að aftan undan gjöfunum."
Kominn í sérdeildina
„Og starfar útibússtjórinn þarna
enn með opið skottið?" spyr ég.
„Nei, hann var tekinn og færöur
niður í aðalbanka þegar hann varð
uppvís að því að lána nákomnum
fjölskyldumeðlimum veölaust vegna
brasks í kjölfar gjaldþrots byggingar-
félagsins Óss,“ segir Nóri. „Þar var
hann kominn út á hálan ís því að
margir höfðu athugasemdir við það
mál aUt, ekki síst þegar Iðnlánasjóö-
ur var farinn að reka fyrirtæki í sam-
keppni við einhverja voldugustu að-
Ua landsins."
„Og hvaða starf hefur þessi maður
með höndum núna?“ spyr ég.
„Hann er á göngudeildinni,“ segir
hann.
„Hvað er nú það?“ spyr ég.
„Sérstök deUd í aðalbankanum fyr-
ir þá sem hafa verið teknir úr um-
ferð,“ segir Nóri. „Þessir menn halda
fuUum launum og eru fengin sérstök
verkefni að dunda við. Mér er sagt
að göngudeUdarsjúklingarnir hafi
flestir eða allir skrifstofur á sömu
hæð og bankastjórarnir og séu það
fólk sem þeir háu herrar hafi helst
samgang við síðan þeir hættu að
hleypa almenningi inn tU sín.“
„ÆtU þetta sé þá ekki dýrasta
göngudeildin í landinu?" segi ég.
Viö skeggræðum um hvort það
hafi orðið tU góðs eða Uls að banka-
stjórarnir hættu að taka sjálfir á
móti hveijum manni, háum og lág-
um, sem falaðist eftir láni.
Misjafnir
bankastjórar
„Jónas Haralz sagði að það væri
Stefán Pálsson bankastjóri.
fáránlegt að bankastjórar Lands-
bankans væru að eyða tíma sínum í
að semja um tíu þúsund króna víxUl-
án handa einstaklingum," segir Nóri.
„En fyrirrennari hans, Pétur Bene-
diktsson, sagði aftur á móti við mig
að þetta væri einhver mikilvægasti
þátturinn í starfi bankastjórans,"
segi ég. „Ég hugsa að honum hafi
fundist að það mundi gera hverjum
bankastjóra gott að sjá stöku sinnum
framan í venjulegt fólk og heyra það
greina með eigin orðum frá högum
sínum og þörfum."
„Já, Pétur Ben hafði bæði höfuðið
í lagi og hjartað á réttum stað,“ segir
Nóri. „Það er nú meiri blessunin
þegar hægt er að leggja mál sín und-
ir slíka menn. En því miður eru þeir
ekki á hveiju strái, allra síst nú upp
á síðkastið."
„Æth eina mannúðarvonin sé ekki
hjá sparisjóðunum," segi ég.
„Já, guði sé lof fyrir sparisjóðina,"
segir Nóri.
(Ath: Millifyrirsagnir eru blaðsins)
SEFUR ÞÚ ILLA?
VAKNARÐU ÞREYTT(UR) Á MORGNANA?
ERTU MEÐ LÉLEGA RÚMDÝNU?
VAKNARÐU MEÐ BAKVERK?
ER DÝNAN OF HÖRÐ?
LÆKNAR HAFA RAÐLAGT BAKSJUKLINGUM AÐ NOTA EGGJABAKKADÝNU SEM
YFIRDÝNU. SJÚKRAHÚS OG HEILSUGÆSLUR NOTA ÞÆR VEGNA ÞESS AÐ ÞÆR
LOFTA VEL UNDIR LÍKAMANN. DÝNAN AÐLAGAST BF.TUR LÍKAMANUM OG ÞÚ
NÆRÐ MEIRI HVÍLD. VIÐ BJÓÐUM UPP Á ÓDÝRAR HEILSUDÝNUR SEM
HACKVÆMA LAUSN Á ÞÍNUM VANDA.
iNNBÚ
SNIÐUM EFTIR MALI.
P Vatnsnesvegi 15 - Keflavík - sími 92-14490
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
Laust lyfsöluleyfi
sem forseti íslands veitir.
Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi á Patreksfirði (Pat-
reks Apótek).
Fráfarandi lyfsali gerir kröfu til þess, í samræmi við
11. gr. laga um lyfjadreifmgu nr. 76/1982 og bráða-
birgðalög nr. 112/1994 um breytingu á lyQalögum nr.
93/1994, að viðtakandi lyfsöluleyfishafi kaupi vöru-
birgðir, búnað og innréttingar lyíjabúðarinnar. Enn-
fremur kaupi viðtakandi leyfishafi húseign þá er lyíja-
búðin ásamt íbúð fráfarandi lyfsala er í.
Væntanlegur lyfsali skal hefja rekstur frá og með 1.
mars 1995.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfja-
fræðimenntun og lyfjafræðistörf, skal senda ráðuneyt-
inu fyrir 1. janúar 1994.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
6. desember 1994