Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Qupperneq 42
46
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
Bridge
HappamótBridgesambands íslands:
Sigurður B. og
Gylfi unnu EM-ferð
Bridgesamband íslands efndi til
fjáröflunarmóts um sl. helgi vegna
kaupanna á nýju glæsilegu húsi við
Þönglabakka 1. Vegleg verðlaun voru
í boði, m.a. ferö á Evrópumeistara-
mót í tvímenningskeppni sem haldið
verður í nk. marsmánuði í Róm. Þar
að auki voru aörir ferðavinningar,
happavinningar o.fl. Sérstök verð-
laun voru til yngri spilara, kvenna,
para og eldri spilara.
Keppnin hófst með Mitchell-und-
ankeppni 58 para og komust 16 þeirra
í úrslitákeppni á sunnudaginn sem
var Barometer-keppni. Gylfi Bald-
ursson og Sigurður B. Þorsteinsson
unnu undankeppnina örugglega og
enduðu síðan sem sigurvegarar í
Barometer-keppninni. Hlutu þeir að
launum farmiða og þáttökugjald á
Evrópumeistaramót í tvímennings-
keppninni í Róm. í öðru sæti urðu
Kristján Blöndal og Stefán Guðjohn-
sen, en verðlaunin voru helgarferð
til Dublin með Samvinnuferöum-
Landsýn. í þriðja sæti urðu Haukur
Ingason og Hallgrímur Hallgrímsson
sem hlutu ferð innanlands með Flug-
leiðum. Fjórða sætið skipuðu fyrr-
verandi heimsmeistarar, Guðmund-
ur Páll Arnarson og Þorlákur Jóns-
son, og fimmtu urðu feðgarnir Jón
Sigurbjörnsson og Birkir Jónsson frá
Siglufirði.
I flokki yngri spilara Sigurður
Steinar Jónsson frá Siglufirði og
Magnús Magnússon frá Akureyri.
Þeir hlutu að launum ferð með Flug-
leiðum á mót yngri spilara í Hollandi
í byijun janúar. í flokki eldri spilara
urðu hlutskarpastir Símon Símonar-
son og Björn Theodórsson. Verðlaun
þeirra voru innanlandsferð með
Flugleiðum. í kvennaflokki urðu
hlutskarpastar Dröfn Guömunds-
dóttir og Guðlaug Jónsdóttir. Þær
hlutu að launum ferð með Fluleiðum
á Schiphol-mótið í Hollandi næst vor.
Og í paraflokki urðu tvo pör jöfn,
Guðrún Jóhannesdóttir og Björgvin
Már Kristinsson - Ólöf Þorsteins-
dóttir og Sveinn R. Eiríksson. Svenni
dró hærra spil og þau hlutu að laun-
um ferö með Samvinnuferðum að
verðmæti kr. 30.000.
Við skulum skoða eitt athyglisvert
spil frá Barometer-keppninni.
N/allir
♦ DG4
V KD92
♦ ÁKG
* 1052
V 6
♦ D65
+ KDG1043
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Þar sem Sigurður B. og Gylfi sátu n-s og
Stefán Guðjohnsen og Kristján Blöndal
a-v, gengu sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
llauf pass lhjarta 21auf
2hjörtu pass 2grönd pass
31auf pass 41auf pass
4hjörtu pass 6 hjörtu pass
pass pass
Eitt lauf var 16+ , eitt hjarta
fimm+ hjörtu og pósitíft, tvö hjörtu
spurðu um hjartalitinn, tvö grönd
sýndu ásinn fimmta, þrjú lauf
spuröu lauffyrirstöðu og fjögur lauf
sýndu fyrstu fyrirstöðu. Gylfa var
vorkunn að lyfta í sex enda þekktur
að öðru en að undirsegja á spil sín.
Spilið liggur eins og hjá guði en
innákoma vesturs setti strik í reikn-
inginn. Gylfi ákvað aö spila vestur
upp á spaðakóng og úrspiliö þróaðist
hratt og örugglega. Kristján kom út
með laufakóng, sem Gylfi drap strax
með ás. Hann tók síðan hjartahjón,
tígulás, hjartaás og svínaði tígulgosa.
Þá kom tígulás og hjörtun og tíglarn-
ir teknir. Kristján hafði kastað
tveimur spöðum og þremur laufum.
Gylfi spilaði sig nú út á laufi en þeg-
ar Kristján átti sexlit í laufi var spil-
ið einn niður. Óheppni! Ef til vill því
Kristján átti í það minnsta fyrir sinni
sögn.
En ef til vill yfirsást Gylfa þriðja
leiðin. Hann drepur laufkónginn,
tekur tvisvar tromp og svínar tígli.
Síðan tekur hann ás og kóng í tígli.
Nú er þriðja trompi spilað, tígultía
sér um laufasjöiö og Kristjáni er spil-
að inn á lauf. Hann verður að spila
frá spaðakóng, eöa í tvöfalda eyðu.
keppni BSI
Laugardaginn 17. desember
verður haldin í Þönglabakka 1
alvöru hraösveitakeppni, þ.e.a.s.
3 spil á 10 mínútum. Keppnin
stendur írá klukkan 13-17 og
keppnisgjald aðeins 500 krónur á
spilara. Spiluð verða forgefin spil
og reynt verður að fá fyrirtæki
til þess að gefa verðlaun. Skrán-
ing er hjá BSÍ í síma 5879360.
Bridgefélag SÁÁ
Þriðjudaginn 6. desember var
spilaður eíns kvölds tölvureikn-
aður Mitchell tvímenningur.
Spiluð voru forgefln spil. Sextán
pör spiluðu 7 umferðir með 4 spil-
um milli para. Bestum árangri í
NS náðu:
1. Jón Stefansson-Sveinn Sigurgeirs-
son 186
2, Hjálmar Hjálmarsson-Sigmundur
Hjálmarsson 185
- og hæsta skorið í AV:
1. Birgir Ólafsson-Sturla Snæbjörns-
son 190
2. Nicolai Þorsteinsson-Björn
Bjömsson 187
2. Yngví Sighvatsson-Jón Hilmar
Hilmarsson 187
Þriðjudaginn 13. desember verð-
ur spilaður eins kvölds tölvu-
reiknaður Mitchell og 20. des-
ember verður klykkt út með jóla-
sveinaeinmenningi.
^★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★^ »»»★*★★*★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★»^
Nú geturðu yljað þér við þennan
skemmtilega rafmagns-arinofn,
sem er 1150 W og cjefur frá sér
notalegan yl, auk hlýlegrar birtu.
Hann er með tveimur hitastilling-
um, rofa fyrir sjálfvirkan 70°
snúning og er alveq hljóðlaus.
Einnig er öryggisrofi, þannig að ef
ofninn hallar of mikið eða dettur,
slekkur hann sjálfkrafa á sér. Tilval-
inn heima eða í sumarbústaðnum.
WMM
RAÐGREIÐSLUR
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA TIL ALLT AO 24 MÁNAÐA ImunIlán
TIL ALLT
AÐ 30
MÁNAÐA
jöiatilboö aðeins
14.990,
SKIPHOLTI
SIMI 91-29800