Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Page 48
52
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
Iþróttir
Ásta B. Gunnlaugsdóttir, fyrsta konan sem er útnefnd knattspymumaður ársins:
„Reyndu að koma
með eitthvað betra"
Ásta B. Gunnlaugsdóttir hélt að
einhver væri að gera at í sér þegar
Eggert Magnússon, formaður
Knattspyrnusambands islands,
hringdi í hana á dögunum og til-
kynnti henni að hún hefði verið
útnefnd „knattspyrnumaður árs-
ins“ af KSÍ.
„Ég hélt að þetta væri „djók“.
Eggert hringdi og óskaði mér til
hamingiu með að vera knatt-
spyrnumaður ársins. Ég spurði:
Hver er þetta? Hann svaraði: Þetta
er Eggert Magnússon, það var ver-
ið að velja þig knattspyrnumann
ársins. „Djókiö,“ svaraði ég,
reyndu aö koma með eitthvað
betra. En á meðan ég var aö tala
við hann rann upp fyrir mér að það
væri KSÍ-þing á næstunni og ég fór
að hlusta eftir því hvort þetta væri
virkilega Eggert!"
Þetta sagði Ásta B. Gunnlaugs-
dóttir þegar DV innti hana eftir
viöbrögðum hennar viö þeim tíð-
indum að hún væri fyrsta konan í
sögunni sem hlýtur þennan titil.
Ásta lagði í haust knattspyrnu-
skóna á hilluna eftir 20 ára feril og
því er óhætt að segja að hún endi
á glæsilegan hátt.
Hvernig tilfinning er það að verða
svona heiðurs aðnjótandi?
„Það kom mér rosalega á óvart,
ég var ekkert að hugsa um þetta
því maður sá alltaf fyrir sér ein-
hvem atvinnumann í þessari stöðu
og þá helst Amór Guðjohnsen. Síð-
an hefði maður haldið aö þetta félh
öðrum kvenmanni í skaut, til dæm-
is fyrirliða landshðsins eða leik-
manni ársins, en ég býst við því að
það sé ekki endilega verið að verð-
launa mig fyrir árið í ár, heldur
afrek liðinna ára. Maður ætti
kannski að hætta oftar!
Þetta hlýtur að vera talsverð við-
urkenning fyrir kvennafótboltann
enda hefur verið talað um KSI sem
mikið karlaveldi.
„Það er það vissulega og þetta
sýnir að þeir eru farnir að líta
kvennafótboltann öörum augum.
Okkar afrek háfa skilað sér og þessi
kosning sýnir að það hefur verið
tekið eftir þeim. Ég vil þó ekki segja
að það sé alfarið KSI sem hefur
dregið þetta upp því við þurftum
að sýna þennán árangur til að
vekja athygli á okkur og síðan hafa
blaðamenn komið þeim fréttum
áleiðis. Hvort sem þeim hjá KSÍ lík-
ar betur eða verr erum við komnar
fram á sjónarsviðið og það þýðir
ekkert að loka dymnum á okkur.
Almenningur vill fá að vita meira."
Áttu von á slæmum viðbrögðum
karla við þessu?
„Fyrst á eftir fór ég að hugsa:
Hvað gerist núna, verða þeir ekki
fúhr yfir því að við séum að taka
enn eitt frá þeim. En ég Ut ekki
þannig á það, við erum ekki í
neinni samkeppni við þá. Þetta er
ákveðin samvinna. Við getum ekki
borið Arnór Guðjohnsen og Ástu
B. saman, við verðum að taka mið
af afrekum einstaklingsins miðað
við andstæðingana, ekki bera sam-
an karl og konu heldur tvo ein-
staklinga.
Anna María Sveinsdóttir var á
dögunum útnefnd körfuknattleiks-
maður ársins og nú hefur þú fellt
annað karlavígi. Eruð þið að taka
völdin?
„Þessar útnefningar gefa kven-
þjóðinni almennt mikið gildi, að við
skulum í allri þessari baráttu vera
komnar á pappírana og það er ynd-
islegt að það skuU vera tvær
mömmur sem eru valdar. Við erum
vissulega að fella hvert karlaveldið
af öðru en við erum ekki að taka
neitt frá þeim. Við erum til og vilj-
um vera til. Það vantar í okkur að
gera kröfur, þaö kemur kannski
með þessu, og nú verða líka gerðar
kröfur til okkar," sagði Ásta B.
Gunnlaugsdóttir.
Asta B. Gunnlaugsdóttir er hætt að spila sjálf og ætlar I staðinn að fylgj-
ast með dætrunum, Hólmfríði og Grétu Mjöll, I fótboltanum.
DV-mynd Brynjar Gauti
Erlendir leikmenn í ensku úrvalsdeildinni í knattspymu eru orðnir 59 talsins:
Norðmenn fjölmennastir
Til skamms tíma var ekki mikið
um það að leikmenn utan Bretlands-
eyja freistuðu gæfunnar í ensku
knattspymunni. Helstu ástæður
voru takmarkaður áhugi ensku Uð-
anna, strangar reglur um erlenda
leikmenn og England þótti ekki fýsi-
legur kostur vegna knattspymunnar
sem þar var leikin og lágra launa
miðað við það sem gengur og gerist
í Evrópu.
í dag eru þessar forsendur hins
vegar mikið breyttar. Mun auðveld-
ara er en áður fyrir erlenda leikmenn
að fara til ensku félaganna eftir að
Englendingar urðu aðUar að Evrópu-
bandalaginu og í úrvalsdeildinni er
boðið upp á skemmtilegri knatt-
spyrnu og betri laun en áður.
Norðmenn og Danir
fjölmennastir
Nú leika 59 erlendir leikmenn í úr-
valsdeildinni og þeir koma frá 25
löndum og sex heimsálfum. Norður-
Frakkinn Eric Cantona er einn af
útlendingunum sem hafa sett svip
sinn á ensku knattspyrnuna síðustu
mlsserin.
landabúar eru áberandi, tíu Norð-
menn og sjö Danir leika í deUdinni,
og síðan koma sex Hollendingar.
í vetur hafa Júrgen KUnsmann og
IUe Dumitrescu hjá Tottenham og
þeir Andrei Kantsjelskis og Eric Can-
tona hjá Manchester United verið
einna mest áberandi enda þar frá-
bærir leikmenn á ferð. Einnig hafa
leikmenn á borö við Bryan Roy og
Lars Bohinen hjá Nottingham For-
est, PhiUppe Albert hjá Newcastle og
Stefan Schwarz hjá Arsenal reynst
sínum liðum góður styrkur, að
ógleymdum snjöUum erlendum
markvörðum á borð við Peter
Schmeichel hjá Manchester United,
Bruce Grobbelaar hjá Southampton,
Mark Bosnich hjá Aston Villa,
Dmitri Kharin hjá Chelsea og Pavel
Srnicek hjá Newcastle.
Hér tU hægri sést hvemig þessir
59 útlendingar skiptast eftir þjóðerni
og fyrir neðan hvernig þeir deilast á
liðin 22 í úrvalsdeUdinni, reyndar
aðeins á 19, því þrjú eru einungis
skipuð breskum leikmönnum.
Erlendir leikmenn í
ensku úrvalsdeildinni
2 Nígeríumenn, Kanadamenn,
Zimbabwebúar, Þjóöverjar,
S-Afríkubúar og Tékkar.
1 Belgi, Frakki, Búlgari,
Svisslendingur, Úkraínumaður, |
Rússi, Ghanabúi, Kýpurbúi,
i Úrúgvæi, ísraelsmaður,
Argentínumaöur og
Trínidad/Tobagóbúi.
DV