Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1994, Page 50
54
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1994
Nýtt og breytt símanúmer
29000
Bílasalan Borgartúni
Borgartúni 1b, græna húsið.
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA! ^ujIrwr
w* ææ '■
{g, T '6ií' ■
Birna Steingrímsdóttir með handunnu jólakortin sín sem vakið hafa mikla athygli.
DV-mynd ÞÖK
Handunnin
jólakort sem
vekja athygli
Jólakortin hennar Birnu Stein-
grímsdóttuí- þykja listaverk enda
konan sjálf listakona. Bima er graf-
ískur hönnuður og myndskreytir. Á
þessum árstíma er þaö kortagerð
sem hún fæst aðallega við.
Samhýlismaður Bimu, Finnur
Hinriksson, er járnsmiður og saman
hafa þau unnið innréttingar í versl-
anir. Þau hanna saman og hann
smíðar. í fyrra settu þau á laggirnar
verslun þar sem þau seldu eigin verk
og ýmsar gjafavörar. Þau hafa nú
hætt verslunarrekstrinum.
„Finnur var í venjulegri járn-
smíðavinnu þegar við kynntumst.
Ég var auglýsingateiknari og mynd-
skreytir. Ég fór síðan að teikna fyrir
hann og hann smíðaði svo eftir teikn-
ingunum. Núna höfum við verið að
hanna ýmsa smíðajámshluti saman
eins og til dæmis kertastjaka og svo
höfum við sett upp skraut fyrir versl-
anir.“
Að sögn Birnu er eiginlega ekkert
jólakortanna hennar eins. Hún notar
karton í kortin og límir ýmsar gerðir
af pappír utan um, eins og til dæmis
gjafapappír og bókbandspappír. Hún
málar svo myndir á kortin með
vatnsht'um. Bima skrautritar í kort-
in eftir pöntun og segir það innifalið
í verðinu. Hún hefur einnig teiknaö
myndir af afmælisbörnum í afmæhs-
kort.
Birna fæst ekki bara við jólakorta-
gerð í desember því hún hefur einnig
tekið að sér að pakka inn gjöfum.
Fallegir jólapakkar gleðja alltaf aug-
að og hefur bókaverslunin Mál og
menning ákveðið að nýta sér hæfi-
leika Birnu. Mun hún sitja í verslun-
inni um helgar í desember og pakka
inn fyrir þá sem þess óska. Birna er
einnig aö undirbúa sýningu í Þorp-
inu í Borgarkringlunni þar sem hún
ætlar að hengja upp myndir sem hún
hefur málað af mörgum kirkjum
landsins.
Halldóra Björnsdóttir leikkona:
...ég fylgist
eð Tímanum
hin hliðin á málunum
Sími 63 16 00