Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 Á toppnum Topplag íslenska listans er lag Nirvana, About a Girl, fjórða skiptið í röð og hefur verið alls 7 vikur á íslenska listanum. Upp- tökumar á laginu eru af plötu þeirra, Unplugged in New York, þegar Kurt Cobain var enn á lífi. Nýtt Hæsta nýja lagið er með banda- rísku þungarokkshljómsveitinni Guns N’Roses og heitir því sérkennilega nafni, Sympathy For The Devil. Þeir félagamir era líklegir til stórafreka með þetta lag því það kemst alla leið í 7. sætið á sinni fyrstu viku á listanum. Hástökkið Hástökk vikunnar er íslenskt lag að þessu sinni. Það er lagið Blikandi stjömur sem sungið er af Margréti Vilhjálmsdóttur. Það lag var í 22. sæti listans síðast þegar hann birtist en situr nú í 6. sæti og á næsta öragglega eftir að komast ofar á listanum. Snoop enn í klandri Ekkert lát virðist ætla að verða á öllu því klandri sem stór- rapparinn Snoop Doggy Dog er svo laginn að koma sér í. Skömmu fyrir jól var vinurinn handtekinn eina ferðina enn, að þessu sinni fyrir að vera með eiturlyf í fórum sínum og bætist þetta við langan syndalista rapp- arans sem bíður réttarhalda vegna morðákæra. Fljúgandi furðuhlutur Dave Grohl og Krist Novoselic, liðsmenn Nirvana sálugu sem situr á toppi íslenska listans hér við hliðina, eru með áform á prjónunum um nýja hljómsveit. Það var Grohl sem tók af skariö með stofnun nýrrar hljómsveitar og fyrsti maður sem hann bauð starf var Novoselic. Ekki er vitað hverjir aðrir verða í nýju hljóm- sveitinni en hún hefur hlotið nalhið Foo Fighters sem ku vera amerískt slanguryrði yfír fljúg- andi fúrðuhluti. Mamma eða amma? Gail Zappa, ekkja Franks heit- ins Zappa, er komin í málaferli við gamla félaga Zappa sem léku með honum á árum áður í Mothers of Invention. Þeir hafa verið að troða upp að undanfömu undir nafninu The Grand- mothers og sums staöar hafa þeir auglýst sig sem The Grand- mothers of Invention. Ekkjan telur þetta örgustu ósvífni og óleyfilega og ómerkilega tilraun til að hagnast á nafni Franks sáluga. -SþS- I BOÐI COCA-COLA Á BYLGJIJNNI í DAG KL. 16.00 Ss SlÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKURÁ LISTANUM - TOPP 4® 1 1 1 7 -Á TOPPNUM- ABOUT A GIRL NIRVANA (2) 2 5 5 ODE TO MY FAMILY CRANBERRIES CD 3 6 7 LÖG UNGA FÓLKSINS UNUN 4 4 3 7 TOMORROW SPOON 5 5 5 5 STREETS OF LONDON SINEAD O'CONNOR CD 6 22 3 - HÁSTÖKK VIKUNNAR ••• BLIKANDI STJÖRNUR MARGRÉT VILHJÁLMSDÓTTIR Ct) 7 5 •••NÝTTÁUSTA- SYMPHATHY FOR THE DEVIL GUNS N'ROSES 8 8 4 6 HERE COMES THE HOTSTEPPER INI KAMOZE 9 9 7 8 GIRL. YOU'LL BE A WOMAN SOON URGE OVERKILL (íð) 10 - 2 BETTER MAN PEARL JAM QD 11 25 4 TAKE A BOW MADONNA 12 12 11 6 GOODNIGHT GIRL WET WET WET 13 13 13 . 7 WILD ONES SUADE (14) 14 - 2 ÁST I VIÐLÖGUM UNUN 15 15 8 5 IT'S MY LIFE GIGABYTE <J6) 16 31 3 SAKLAUS S.S.SÓL 17 17 9 5 SUMAR KONUR BUBBI QD 18 21 5 BRING IT ON HOME URBAN COOKIE COLLECTIVE <3D 19 - 2 WHATEVER OASIS 20 20 17 4 WE HAVE ALL THE TIME IN THE WORLD LOUIS ARMSTRONG 21 21 10 7 GOTT MÁL TWEETY (22) 22 24 5 ANOTHER DAY WHIGFIELD dD 23 - 2 LITTLE BITTY PRETTY ONE HUEY LEWIS & THE NEWS 24 24 12 4 LÍÐUR AÐ JÓLUM STEFÁN HILMARSSON (25) 25 27 6 ON BENDED KNEE BOYS II MEN 26 26 28 3 THIS IS YOUR NIGHT HEAVIE D. 8. THE NEWS 27 27 14 4 ALL I WANT FOR CHRISTMAS IS YOU MARIAH CAREY dD 28 40 3 STAY ANOTH ER DAY EAST 17 29 29 29 5 SEVENTEEN LET LOOSE (30) 30 - 2 THINK TWICE CELINE DION 31 31 19 3 ON HOLY NIGHT MARIAH CAREY 32 32 - 2 SWEETEST DAY VANESSA WILLIAMS 33 33 15 5 DEVOTION BONG (34) 34 - 2 HIBERNACULUM MIKE OLDFIELD 35 35 16 6 LUKAS, WITH THE LID OFF LUKAS (36) 36 - 2 HOLD ME, THRILL ME, KISS ME GLORIA ESTEFAN 37 37 18 9 HIGHER & HIGHER JET BLACK JOE 38 38 23 11 ZOMBIE CRANBERRIES 39 39 - 2 DON'T DON'T TELL ME NO SOPHIE B. HAWKINS (5) 40 - 2 YOU NEVER LOVE THE SAME WAY TWICE ROZALLA Kynnir: Jón Axel Ólafsson Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn erniðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmd af markaðsdeild DVi hverri viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 18 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af gengi laga á erlendum vinsældalistum og spilun þeirra á íslenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 16.00 sama dag. Listinn er birtur, að hluta, I textavarpi-MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur þátt í vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem errekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard. Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhiidur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backmann og Jóhann Garðar Olafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson vkijÍP Meiri bíótónlist frá U2 U2 drengirnir eru famir að hugsa sér til hreyfings á nýju ári en ekkert hefur þó verið ákveðið um plötuútgáfú á því herrans ári 1995. Þeir félagarnir hittust í hljóðveri á dögunum ásamt Brian Eno og rúlluðu nokkrum lögum inn á band. Þau ku hins vegar ætluð til notkunar í kvikmynd en eftir góða frammi- stöðu U2 manna í myndinni In The Name Of The Father hafa margir kvikmyndamógúlar bor- ið víumar í írsku stjömumar. 4Non Blondes fyrir bí Ein af stórsveitum ársins 1993 var bandaríska rokksveitin 4 Non Blondes sem margir töldu þá eina björtustu vonina í rokkinu. Nú virðist sem sveitin muni aldrei verða meira en björt von því fregnir frá Bandaríkjunum herma að söngkonan Linda Perry hafi yfirgefið félaga sína í fússi. Hljómsveitin var komin vel á veg með upptökur á annarri plötu sinni þegar Perry sagðist ekki nenna þessu lengur og fór. Þeim sem eftir eru í hljómsveitinni leist ekki á að halda áfram, t.d. imdir.nafninu 3 Non Blondes, og telst þvi saga 4 Non Blondes öll. Efnileg listakona Góðgerðaruppboð á ýmsum hlutum úr eigu poppara era al- geng og meira að segja er vinsælt að bjóða upp bijóstahöld frægra söngkvenna. Eitt uppboð af þessu tagi var haldið á dögunum. Þar voru engin brjóstahöld á boð- stólum en hins vegar fór mynd eftir Jordan nokkra Bono á 1.000 pund eða um hundrað þúsimd kall. Þetta er ágætisverð fyrir mynd eftir óþekkta listakonu en sú sem um ræðir er dóttir Bonos í U2 og er aðeins 5 ára! StórstjÖrnu- þjóðlög írsku þjóðlagahetjumar í The Chieftains, sem starfað hafa samfleytt í 30 ár, era aldeilis ekki á því að láta deigan síga og era nú með 32. plötuna í smíðum. Hún á að innihalda gömul írsk þjóðlög og til að gera þetta allt sem best úr garði hafa Chieftains kallað til nokkra valinkunna aðstoðarmenn. Þar era á ferðinni ýmsir þokkalega vel kynntir tónlistarmenn og konur, svo sem Sting, Mick Jagger, Marianne Faithfúl, Ry Cooder, Van Morri- son og Mark Knopfler. -SþS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.