Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 Dagur í lífi Ágústu Johnson hjá Stúdíói Ágústu og Hrafns: Viðskiptavinimir tilbúnir að takast á við áramótaheitin Ég vaknaöi klukkan níu þennan mánudagsmorgun þrátt fyrir að íjögurra mánaöa gamall sonur minn heföi haldiö mér vakandi til klukkan þrjú um nóttina. Ég fór strax fram úr því ég þurfti að hringja nokkur símtöl. Ég þurfti aö afgreiða nokkur ófrágengin mál varðandi breytingar í stúdíóinu sem við höfðum verið að leggja síð- ustu hönd á um helgina. Ég settist svo smástund fyrir framan tölvuna og notaði tímann til að vinna svolítið meðan börnin sváfu enn. Fljótlega vaknaði svo dóttir mín, þriggja ára, og þá hóf- ust morgunverkin. Fitumæling í beinni útsendingu Mér tókst að ljúka hluta þeirra áður en ég átti að gera fitumælingu klukkan hálftólf í beinni útsend- ingu á FM í tilefni af sérstakri heilsuviku. Hrafn eiginmaður minn tók rösklega við stjórn á börnum og búi á meðan. Ég var svo komin heim aftur um klukkan tólf og klæddi þá börnin og fjölskyldan kom sér út úr húsi. Anna Ýr, dóttir okkar, fór á leik- skólann eins og venjulega klukkan eitt og viö hjónin fórum i vinnuna. Rafn Franklín, sonurinn, fer með og ég set hann út í vagn þar sem hann sefur fyrir utan stúdíóið á meðan mamman vinnur. Aðalvertið líkams- ræktarstöðvanna Það var sérstaklega annasamt í vinnunni þar sem nú er aðalvertíð líkamsræktarstöðvanna að hefjast. Tíminn flaug frá mér eins og svo oft áður þegar mikið er að gera en dagurinn nýttist þokkalega, fór að mestu í skipulagningu á námskeið- Ágústa Johnson, eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Stúdíó Agústu og Hrafns, hefur i nógu að snúast nú þegar aðalvertíð líkamsræktarstöðvanna erhafin. DV-mynd ÞÖK um sem nú eru að hefjast. Sonurinn vaknaði seinni part dags og þá var vinnufriðurinn úti þar til amman kom og sótti hann. Ég fór þá að huga að fræðslu og kynningarfundinum sem viö höld- um á átta vikna fresti á fitu- brennslunámskeiðum stúdíósins. Tilbúnarað takast á við áramótaheitin Fundurinn, sem haldinn var á Hótel íslandi, hófst klukkan hálf- átta um kvöldið og þar var fullur salur af konum, tilbúnum að takast á við áramótaheitin. Ég ræddi við þær góöa stund og um klukkan níu komst ég til að sækja börnin sem höfðu verið í gæslu hjá ömmu sinni. Ég settist aðeins niður í for- eldrahúsum en blessuð bömin þurftu aö fara í háttinn svo mér var varla tfl setunnar boöiö og dreif okkur þrjú heim og kom börnunum í ró. Ég settist svo aftur við tölvuna og kláraði nokkur verkefni. Hrafn kom heim um tiuleytið og eldaði pasta handa okkur og við notuðum það sem eftir var kvöldsins til að ræða og skipuleggja ýmis mál úr vinnunni á milli þess sem ég sinnti syninum litla. Viö fórum seint að sofa sem má segja að sé daglegt brauð á okkar heimili. Finnur þú fimm breytingar? 292 Jú, jú, hún átti von á þér. Hún hljóp út um bakdyrnar fyrir tíu mínútum. Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir tvö hundruð og nítugustu get- raun reyndust vera: 1. Hrönn Kristinsdóttir, 2. Ásgeir örn Loftsson, Nónvörðu 12, Lönguhlið 13, 230 Keflavík. 105 Reykjavík. Myndirnar tvær virðast við f>Tstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atrið- um veriö breytt. Finnir þú þessi fimtn at- riði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt naíni þinu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöíh sigurvegaranna. 1. verðlaun: Grundig útvarpsklukka að verðmæti 4.860 krónur frá Sjónvarpsmiðstöðinni hf. 2. verðlaun: Fimm Úrvalsbækur. Bækumar sem eru í verðlaun heita: Þú ert spæjarinn, Síminn, Á ystu nöf, i helgreipum haturs og Lygi þagnarinnar. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagiö með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 292 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.