Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 21 Heilsa Þingmenn latir Össur tekur á öllu sínu við framkvæmd kviðæfinganna og fær dyggan stuðning frá Magnúsi Scheving, íþrótta- manni ársins. FIKT í DAG-FÍKN A MORGUN TÓBAKSVARNANEFND • Innritun á námskeið fypir bypjendur og lengra komna • Mopgunnámskeið - bapnagæsla á staðnum • Símap: 564 4050 & 564 4051 Dalsmáni 9-11 Kópavogi - við að hreyfa sig, segir Össur Skarphéðinsson „Ég er ekki vanur aö gera magaæf- I ingar, hvað þá á skrifborðinu, en til skamms tíma var ég fimm sinnum í viku í líkamsrækt hjá Gústa i Kjör- & garði. Bæði til þess að reyna að minnka á mér bumbuna og til þess að vera svolítið sterkari," sagði Óss- | ur Skarphéðinsson umhverfisráð- herra en Magnús Scheving, íþrótta- maður ársins, kom við í ráöuneytinu í vikunni og fékk Össur til að gera magaæfmgar uppi á skrifborði í til- efni heilsuvikunnar. Heldur þú að þingmenn geri al- mennt mikið af kviðæfmgum og þess háttar æfingum? „Sumir þeirra held ég að haldi sér í bærulegu formi. Það eru náttúrlega fyrst og fremst þeir sem vilja vera spengilegir og „sexí“ í útliti eins og Hjörleifur Guttormsson og Ólafur Ragnar Grímsson. Svo eru aðrir sem þurfa að gera það vegna þess að þeir vinna mikið, menn eins og Halldór Ásgrímsson. Svo eru það bollurnar, menn eins og ég, jafnvei vinur minn Einar K. Guðflnnsson, þingmaður Vestfirðinga, sem geta átt það til að bæta framan á sig. Við vorum þrír saman nær dagiega í æfmgum hjá Gústa Agnars, ég, Einar K. Guðfmns og Tómas Ingi Olrich. Tómas bar af okkur. Hann var 10-15 árum eldri en við en miklu sterkari og vaxinn eins og fimleikamaður. Hefur komið til tals að stofna skokkhóp meðal alþingismanna? „Það er alltof lítið um að þingmenn hreyfi sig. Þeir tala oft um að þeir æth aö fara í líkamsrækt og að þeir æth í æfingar en það er alltof htiö um það. Davíð Oddsson er að komast á þennan sama aldur og ég þar sem menn þurfa að pæla í þessum hlut- um. Hann hefur tekið sér tak. Hann hefur nokkrum sinnum farið í megr- un en ahtaf mistekist þangað til núna. Nú er hann aftur orðinn eins og gamli stórsjarmurinn sem hann var í MR. Almennt eru menn að tala um þetta í þinginu en láta ekki verða af því. Heldur þú að það myndi mælast vel fyrir á þinginu ef Salóme tæki nokkr- ar teygjur með þingmönnum fyrir fundi? „Ef ég á að vera hreinskilinn þá myndi þetta mælast herfilega fyrir en menn hlýða ahtaf forsetanum. Ef hægt er að telja hana á það þá mun ekki standa á okkur. Rannsóknir í Svíþjóð: Gerikomplex eykur starfs- þrekog bætir úthald Rannsóknir vísindamanna víða um heim hafa leitt í ljós að geri- komplex eykur andlegt og líkamlegt starfsþrek. Ástæður þess eru marg- þættar en meðal annars sýndu próf- anir á toppþjálfuðum íþróttamönn- um að súrefnisnýting frumnanna eykst með inntöku gerikomplex og önnur prófun sýndi að prófarkales- arar, sem fengu gerikomplex, afköst- uðu 12% meira og yfirsást 51% færri vihur en viðmiðunarhópur sem fékk lyfleysu. Öll þau virku efni sem gerikomplex inniheldur stuðla að viðhaldi heil- brigðs líkama og þar af leiðandi meiri lífskrafti og auknu viðnámi gegn hvers konar álagi. Daglegur skammtur af gerikomplex með staðl- aða ginsengþykkningu G-115 sér lík- amanum fyrir virkum lífrænum efn- um og eykur þannig starfshæfni hans og líkamlegt og andlegt þrek. Prófun sem gerð var við Karol- inska spítalann á hópi starfsmanna LM Ericssons gáfu eftirfarandi nið- urstöðu eftir 8 vikna neyslu á geri- komplex: Við hámarksálag á þrek- hjóh er hjartsláttur hægari, minni mjólkursýra í blóöi (minni þreyta) og lægri áreynsluþröskuldur. Við upphaf rannsóknarinnar hafði sá hópur sem fékk gerikomplex-hylkin sama þrek og sá sem fékk lyfleysu- hylkin en eftir meðhöndlun var þrekið meira en hjá samanburðar- hópnum. Þessar niðurstöður benda th að neysla gerikomplex auki starfs- þrek og úthald við líkamlega áreynslu. NýirNike-skór: Minnkahættuá ökklameiðslum Síðan Nike hóf framleiðslu á skóm með loftpúða (Nike air) árið 1979 hefur átt sér stað stöðug þró- un í gerð þeirra. Núna er komin enn ein kynslóð af loftpúða sem heitir Air Max 2 og er haim aö finna í þremur línum frá Nike, hlaupaskóm, körfuboltaskóm og „cross training". Sú tækninýjung er i nýja loftpúðanum aö honum er skipt I tvo hluta. Ytri loftpúð- inn er með 25 punda þrýstingi (psi) og innri með 5 (psi). Með þessari hönnum hefur Nike tekist að sameina i einum skó mýkt, stöðugleika og léttustu fjöörun sem völ er á. Ytri loftpúðinn er, eins og áður sagði, meö 25 pund- um (psi) sem gefur skónum meiri stöðugleika og minnkar hættu á ökklameiðslum. Innri loftpúðinn er raeð 5 (psi) sem gefur skónum mesta mögulega dempun sem völ er á og um leið minnkar álagið á ahan líkamann þegar hlaupið er. Skórnir frá Nike, sem eru með þessari nýjung, eru Air Max 2 hlaupaskór, Air Max CB körfu- boltaskór og Air Trainir Max, al- hhða æfingaskór.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.