Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995
33
Skák
Euro-Disney mótið í París:
Jón Viktor bestur f slendinga
Fjögur íslensk ungmenni tóku þátt
í Evrópumótinu í atskák sem fram
fór í Disney-skemmtigarðinum í Par-
ís skömmu fyrir jólin. Þetta er í ann-
að sinn sem keppnin er haldin en hún
hefur vakið mikla athygli. Teílt er í
flokkum pilta og stúlkna, 13-14 ára
og 12 ára og yngri. Alls voru kepp-
endur 138 frá 38 þjóðum - framtíðar-
skákmenn Evrópu.
Hér heima var haldið veglegt úr-
tökumót um farseðla á mótið, enda
er eftirsótt að komast í tæri við
fremstu skákmenn Evrópu í þessum
aldursílokkum, auk þess sem
skemmtigarðurinn sjálfur hefur efa-
lítið sitt aðdráttarafl. Forráðamenn
mótsins hafa reynt að gera það sem
glæsilegast úr garöi, m.a. með því að
bjóða heimsmeistaranum Anatoly
Karpov sem sérstökum heiðursgesti.
Karpov afhenti verðlaun og tefldi
fjöltefli í sjónvarpi við sigurvegarana
í flokkunum fjórum.
íslensku keppendurnir voru Jón
Viktor Gunnarsson og Berta Ellerts-
dóttir í flokkum 13-14 ára og Davíð
Kjartansson og Ingibjörg Edda Birg-
isdóttir í flokkum 12 ára og yngri.
Tefldar voru níu umferðir eftir
Monrad-kerfi, 30 mínútna umhugs-
unartími á skák og stóð mótið í tvo
daga.
Petroffs-vörn.
1. e4 e5 2. Rf3 RfB 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. d3 Rf6 6. Bg5 Be7 7. Rc3 0 0
8. Dd2 d5 9. Be2 c5 10. 0 0 0 Rc6 11.
h3 Be612. Kbl d413. BxfB Bxf614. Re4
14. - Bxa2 + ! 15. Kxa2 Rb4+ 16. Kbl
Da5 17. Rxf6+ gxf6 18. Df4 Hfe8 19.
Dg4+ Kh8 20. Rh4 Da2+ 21. Kcl Da4
22. Kd2 Dxc2+ 23. Kel Rxd3+ 24. Kfl
Dxdl +!
- Og hvítur gafst upp. Mát í næsta
leik.
Hvítt: Jón Viktor Gunnarsson
Svart: Cvitanic (Slóveníu)
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5.
Be3 Db6 6. Dd2 Bd7 7. f4 Hc8 8. Rf3 f6
Disney-skemmtigarðurinn i París þar sem 130 ungmenni frá 38 þjóðum
tefldu um Evrópumeistaratitla í atskák, þeirra á meðal fjórir íslendingar.
Rennum yfir úrslit í flokkunum en
þessi nöfn munu trúlega mörg hver
koma síðar við sögu í skákdálkum:
Drengjaflokkur, 13-14 ára:
1. De Vreugt (Hollandi) 7,5 v.
2. Vajda (Rúmeníu) 7 v.
3. Kundin (ísrael)6,5 v.
Drengjaflokkur, 12 ára óg yngri:
1. Bacrot (Frakklandi) 7,5 v.
2. Sebenik (Slóveníu) 7 v.
3. Aronjan (Armeníu) 6,5 v.
Stúlknaflokkur, 13-14 ára:
1. Sheldon (Englandi) 8 v.
2. Reisnjétse (Lettlandi) 7,5 v.
3. Jilemnicka (Tékklandi) 6 v.
Stúlknaflokkur, 12 ára og yngri:
1. Ismaílova (Aserbaídsjan) 7,5 v.
2. Kaula (Lettlandi) 7 v.
3. Pahtz (Þýskalandi)7 v.
Jón Viktor náði bestum árangri
íslendinganna, hlaut 5 v. af 9 og varð
jafn átta öðrum keppendum í 10.
sæti en hreppti 13. sæti á stigum.
Keppendur í flokki 13-14 ára pilta
voru 38 talsins. Ingibjörg Edda og
Davíð hlutu 4 v. í sínum flokkum og
urðu jöfn öörum í 21. og 22. sæti.
Berta hlaut 2,5 v. og deildi 23. sæti.
Athygli vakti að enska stúlkan
Sheldon hélt auðveldlega jafntefli
gegn Karpov í sjónvarpsfjöltefli hans
þótt hún stýrði svörtu mönnunum.
Karpov vann aftur á móti hina sigur-
vegarana þijá.
Rennum sem snöggvast yfir tvær
bráðsmellnar skákir Jóns Viktors frá
mótinu þar sem hann hristir laglegar
leikfléttur fram úr erminni.
Hvítt: Fontain^(Frakklandi)
Svart: Jón Viktor Gunnarsson '
9. Be2 cxd4 10. cxd4 Bb4 11. Rc3 fxe5
12. fxe5 Rge7 13. 0-0 0-0 14. Khl Rf5
15. Bf2 a616. g4 Rh617. h3 Re718. Rg5
Rg6 19. Bd3 Be8 20. Be3 Rf7
21. Rxh7! Kxh7 22. Bxg6+ Kg8
Ef 22. - Kxg6 23. Dd3 mát!
23. Bc2 Bb5 24. Hf3 Rh8 25. Hg3 Dd8
26. g5 g6 27. h4 Hc7 28. Kg2 Hcfl 29.
h5 Hg7 30. Hhl Be8 31. hxg6 Bxg6 32.
Hgh3 Rfl 33. Bxg6 Hxg6 34. Dc2
- Og svartur gaf.
Frá Taflfélagi
Kópavogs
Tafltélag Kópavogs stendur fyrir
öflugri skákstarfsemi í vetur í hús-
næði félagsins að Hamraborg 5, 3.
hæð.
Á þriöjudögum kl. 17-18.30 eru
barna- og unglingaæfingar þar sem
boðið er upp á ókeypis æfingar fyrir
Skák
Jón L. Árnason
stráka jafnt sem stelpur. Veitt eru
ýmiss konar verðlaun, s.s. fyrir besta
mætingu, bestan árangur og mestar
framfarir.
Skákþing barna og unglinga verður
þriðjudagana 24. og 31. janúar og
hraðskákmót Kópavogs í sama ald-
ursflokki þriðudaginn 14. febrúar.
Sveitakeppni Grunnskóla Kópavogs
fer fram þriðjudaginn 28. febrúar og
rétt fyrir páska verður páskaeggja-
mótiö sem hefur frá upphafi þess
verið vinsælasta mótið á hverju vori.
Skákæfmgar fyrir fullorðna veröa
með hefðbundnu sniði á miövikudög-
um kl. 20 og sunnudögum kl. 14. Auk
þess verður sú nýbreytni tekin upp
aö hafa 15 mínútna skákæfmgar á
fimmtudögum kl. 20.
Skákþing Kópavogs hefst sunnu-
daginn 5. febrúar kl. 14 og er fram
haldið næstu þriöjudaga og fimmtu-
daga. Tefldar verða 7 umferðir eftir
Monrad-kerfi, Fyrstu verðlaun verða
25 þúsund kr. og líklegt er að sigur-
vegarinn öðlist rétt til þátttöku í
áskorendaflokki á Skákþingi íslands
um páskana. Hraðskákmót Kópa-
vogs verður haidið sunnudaginn 26.
febrúar kl. 14, tefldar 5 mínútna
skákir og glæsileg verðlaun í boöi
fyrir þrjú efstu sætin.
Heimasmiðjan Kringlunni flytur
í Húsasmiðjuna Skútuvogi 16.
í tilefni þess verður hreinsað
til í Heimasmiðjunni.
Aður
13.537 kr.
3.200 kr.
3.760 kr.
1.199 kr,
2.990 kr.
Verðdæmi ~---------
Ryksuga
Kaffívél
Gufustraujárn
Glasasett
Núna
9.990 kr
2.450 kr
2.950 kr
899 kr
1.245 kr
Hárblásari
afsláttur á öllum vörum verslunarinnar,
KRINGLUNNI
Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn.