Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Page 32
36 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 Trimm íþróttafélag kvenna: Einhverjum fmnst kannski stungin tólg í fyrirsögninni hér að ofan en þetta háfleyga markmið er að finna í 2. grein laga íþróttafélags kvenna sem stofnað var 7. október 1934 og lifir góðu lífi enn þrátt fyrir ýmsa tímans tískustrauma og sviptingar. Ekki aðeins er félagið sprellifandi og meðalaldur félagskvenna mun lægri en aldur félagsins sjálfs gefur til kynna heldur hefur fjöldi félaga margfaldast á nýliðnu afmæhsári en þá fjölgaði félagskonum um ríflega 300%. í téðri 2. grein félagslaga kemur fram að því markmiði sínu að efla hreysti, heilbrigði og fegurð ís- lenskra kvenna hyggst félagið ná með því að iðka fimleika, sund og aðrar íþróttir, svo sem knattleiki, hlaup, skíða- og skautaferðir, fjall- göngur o.s.frv. Trimmsíðan hitti þær Guðbjörgu Pétursdóttur, formann íþróttafélags kvenna frá 1985, og Jórunni Rothen- borg gjaldkera og spurði þær hvernig þetta sextuga félag starfaði. „Starfið snýst talsvert í kringum skíðaskálann Laugarhól sem félagið á í Skálafelli og var reistur árin 1936-38. Þar rúmast um 30 manns í gistingu í kojum. Þetta er eina eign félagsins og af sjálfu leiðir að mikil orka hefur farið í að halda honum við og gera nauðsynlegar endurbæt- ur. Skáhnn er nú í mjög góðu ásig- komulagi, með rafmagnskyndingu og rennandi vatni,“ segja þær stöll- ur. Skálinn hefur lengst af verið til afnota fyrir félagskonur og áhang- endur þeirra en síðustu ár hefur hann verið leigður þeim sem vilja. Lyklavörður sér um útleigu og það er Fríður Guðmundsdóttir sem hefur það embætti með höndum. Fríður hefur starfað með félaginu frá stofnun þess og var formaður í 35 ár, frá 1950-1985. Síminn hjá Fríði er 16048. Leikfimi, blak oggöngur Auk þessa hefur íþróttafélag kvenna í fimmtán ár haldið úti leik- fimitímum í Austurbæjarskólanum. Þar er leikfimi, fimleikar og blak fyr- ir félagskonur. Tveir blakhópar starfa en einn leikfimihópur. Þar er einnig að hefjast barnastarf á vegum félagsins í samstarfi við Austurbæj- arskólann. Þeir sem hafa áhuga á að komast í leikfimihópana eða komast í sam- Guðbjörg Pétursdóttir, formaður íþróttafélags kvenna, og Jórunn Rothenborg gjaldkeri, tilbúnar með gönguskiðin. DV-mynd Sveinn band við félagið þar sem seinni hluti vetrarstarfs er að hefjast fá nánari upplýsingar hjá Guðbjörgu í síma 666736. Auk þessa hefur íþróttafélag kvenna starfrækt gönguhóp sem hef- ur hist reglulega undanfarin ár í Ell- iöaárdal á laugardögum, klukkan 11, og stikað um dahnn undir stjórn Þrúðar Pálsdóttur. Hópurinn hittist jafnan við félagsheimili Rafveitunn- ar. Guðbjörg og Jórunn segja að til standi að breyta þessu í vetur og í stað þess að ganga í Elliðaárdalnum verði hist við Laugarhól í Skálafelli á laugardögum í vetur þegar veður leyfir og gengið saman á skíðum. Það eru allir velkomnir í gönguhópinn, hvort sem gengið er á fótum eða skíð- um. íþróttafélag kvenna hefur alltaf lagt mikla áherslu á gönguskíðaiðk- un og mikill hluti starfsins farið fram á vetuma í Skálafelli. í kringum páskana hyggst félagið koma á sér- stökum skíðagöngudegi fjölskyld- unnar í Skálafelli, væntanlega í sam- vinnu við hin félögin sem iðka skíða- íþróttir þar í brekkunum, en það em KR og Skíðafélagið Hrönn. „Við sjáum þetta fyrir okkur sem fjölskyldudag á gönguskíðum og ef næg þátttaka fæst verður boðið upp á tilsögn," segir Guðbjörg formaður. „Þetta er ekki endanlega ákveðið, kannski verða þetta tveir dagar með leiðsögn og fyrri daginn yrði lögð áhersla á tilsögn en létta keppni Umsjón Páll Ásgeir Ásgeirsson seinni daginn. Þetta verður nánar auglýst síðar.“ Uppákoma af þessu tagi hefur verið fastur liður í starfsemi félagsins um páska undanfarin ár. Það hefur stað- iö félaginu fyrir þrifum að engin lyfta er til staðar í nágrenni við skála fé- lagsins og nú verða, að sögn for- manns, allar áætlanir um skíðalyftu lagðar á hilluna. „Hér eftir verður þetta félag hreinræktað gönguskíða- félag,“ segir Guðbjörg. „Það er alveg ómögulegt fyrir fólk að fara upp í Skálafell og standa allan daginn í biðröð og komast kannski fjórar ferð- ir yfir daginn." Karlmenn eru styrktarmeðlimir Er hægt að segja að félagið byggist á markvissri feministahugsjón? „Já, það er þannig," segir formaöurinn ákveðinn á svip. „Tillaga um að opna félagið og gera það að blönduðu íþróttafélagi er borin upp á aðalfund- um með reglulegu millibih en hefur ekki enn fengið nægilegt brautar- gengi tíl þess að verða samþykkt. Auðvitað era karlamlr verðugir styrktarmeðlimir og án þeirra væri félagið sjálfsagt ekki til. En þeir fá ekki að vera félagar í því. Karlarnir hafa ákveðin áhrif innan þess.“ Er þetta ekki íhaldssamt félag? „Það hafa verið sveiflur í starfsemi félagins og undanfarið ár hefur verið ágæt þátttaka í því sem félagið býður upp á. Við kynntum félagið nokkuð innan íþróttahreyfingarinnar á þessu afmæhsári og félögum hefur í kjölfarið fjölgað um 300% svo við erum gífurlega bjartsýnar á framtíð- ina. Fyrir nokkrum ámm áttum við erfitt uppdráttar en þau mjúku gildi sem félagið stendur fyrir með áherslu á fjölskyldu, samvera og holla útivist frekar en keppni eiga hljómgrunn í hjörtum fólksins nú um stundir." Borgarljósin blasavið í Skálafelh eru frábærar göngu- brautir og fagurt landslag. Jórann og Guðbjörg fullyrða að þar sé jafnan veðursæha en í Bláfjöllum og útsýnið og umhverfið sé fegurra en þar. Þangað er kjörið fyrir fjölskylduna að stefna með gönguskíðin, börnin, hundinn og kakóbrúsann. „Það er ógleymanlega fagurt að gista í Laug- arhóh á vetrum, sitja í hlýjum skála í myrkrinu og horfa út um gluggann á borgarljósin sem blasa við með öllu sínu fjölmenni og ys og vera einn með kymðinni og snjónum." Lífið í tölum: 12,7 milljónir Bandaríkja- manna segjast vera græn- metisætur Tahð er að 1,6 inilljónir séu það í raun og veru. Breska göngukon- an Ffyona Campbell lauk göngu umhverfis jörðina í október 1994. Hún gekk um 36 þúsund kíló- metra og sleit 100 pörum af skóm á leiðinnL 64% fólks lesa á kló- settinu. 60% hlaupara hugsa um kynlif meðan þeir hlaupa. 8% hlaupara hugsa úm hlaup meðan þeir stunda kynlíf. (Health). Að efla hreysti, heilbrigði og fegurð íslenskra kvenna Fossavatnsgangan á ísafiröi á sér 60 ára sögu og telst elsta fjöldaganga á skiðum á íslandi en gangan hófst árið 1935 að fram- kvæöi Ólafs Guðmundssonar í Vélsmiðjunni Þór. Ávallt hefur verið farin svipuð leið frá Fossa- vatni eða stutt þaðan, fyrir Engidal og Nónhorn, yfir Fehs- háls við Rembing, yfir Botns- heiði, á milh Búrfehs og Miðfehs í Gyltuskarð og þaðan yfir Mið- fellsháls og níður Seljalandsdal að Skíðheimum, alls um 20 kíló- metra. Árið 1939 varð frávik á þegar gangan var látin hefjast við Sjónarhæð við Seljalandsveg, rétt ofan við núverandi Framhalds- skóla Vestfjarða, og gengið inn í Engidal að Fossavatni og tíi baka aftur. Eftir þessa breytingu lá gangan niðri um 15 ára skeið en var endurvakin 1955. Framan af voru þátttakendur fáir en upp úr 1970 fór þeim að fjölga og flestir urðu þeir 1993 þegar alls 92 tóku þátt í göngunni. Þar af fóru 52 þátttakendur 20 kilómetra. Árið 1987 var fyrst boðið upp á „hálfa“ Fossavatnsgöngu og 1989 bættist þriðji möguleikínn við sem er 7 km leið „heím brúnir". Fossa- vatnsgangan er bæði hugsuð sem keppni og trimmganga en frá 1985 hefur hún verið hluti af íslands- göngumú sem þýðir að þar mæta th leiks flestir snörpustu göngu- menn Iandsins. Verðlaun eru veitt fyrir efstu þrjú sætin í öhum flokkum og allir þátttakendur fá jafhframt þátttökupening. Fossa- vatnsgangan verður gengin laug- ardaginn 30. apríl á þessu ári sem er sextugasta afmælisár göngunnar. Það er að vísu langt þangað th en ekki er ráð nema í tíma sé tekiö. Nú er rétt fyrir þá sem eru göngugarpar á skíðum í andanum að setja sér dásamlegt takmark og taka þátt í elstu al- menningsgöngu landsins á skíð- um á afmælisári. Fegurra um- hverfi er vandfundið og veðrið bregst aldrei. Þetta er ganga sem er sannarlega öllum samboðin. Metþátttaka var í gamlárs- hlaupi ÍR Þar hljóp margur hraðar en % > § « ■d § &'S <3 |I rir hægar. ora þungir og mörvaðir innan ef anna. Einn þeirra tir attíð jól- sagði við Trimmsíðuna að hc num hefði fundist hann hlaup hangikjötslæri í spott Hvað um það. Svona árinu. í árslok gera i með tvö i á cftir sér. á að Ijúka samvisku- samir trimmhundar i bókhald ársins en all sig aivarlega í skok dagbók yfir Það hv ípp hlaupa- ir sem taka kinu halda e langt er hlaupið eða skokka ð í hverri viku. í sömu bók skrá menn gjarnan aha aðra hre iyfmgu, s.s. líf og aðra líkamsþ jálfun sem setja allt heha ldai skemmtileg gröf og k ibið upp í ökur á árs- hyggju og nákvæmni ur, Góður meðalskok að baki ca 1200-1500 íæstárang- kari leggur kílómetra á ári sem er ríflega hringvegurinn um ísland. Eðalskokkarar eða haröjaxlar hlaupa hiklaust meira en 2000 kílómetra á ár um finnst ekkert til muogsum- iökumál að skokkari og hvenær er raaður hlaupari? Sumum fm nst að ekki sé nóg að hlaupa h menn að lifa líka. Þ; eldur þurfi ið alfínasta sem maðurgetur látið í skíðaferðum er ka ryðfríu stáli. Sá sem sjástgmeð kóbrúsi úr mætir með uppiíSkálafelleðaál inu í Bláfiöhunum þ; íeiðarhorn- ir sem ailir fá sér nesti verður umsvifalaust að athlægi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.