Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1995, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1995
5
dv___________________________Fréttir
Áhrifamenn yfirgefa Þjóðvaka:
Kemur mér
verulega
áóvart
- segir Jóhanna Sigurðardóttir, leiðtogi Þjóðvaka
Þjóðvaki, stjórnmálahreyfmgin
sem Jóhanna Sigurðardóttir er að
stofna, hefur misst tvo af dyggum
stuðningsmönnum Jóhönnu, þau
Þorlák Helgason og Ástu B. Þor-
steinsdóttur.
Ásta sagði í samtali við DV fyrir
skömmu að eftir að hún hefði hugsað
sig betur um hefði hún ákveðið að
snúa aftur í Alþýðuflokkinn. Þorlák-
ur Helgason, annar oddvita Jafnað-
armannafélags íslands, segir í blaða-
viðtali í gær að hann sé hættur í
undirbúningi að stofnun og framboði
Þjóðvaka. Hann segir starfið allt of
þröngt. Hann hafi viljað leita samein-
ingar félagshyggjuaflanna en orðið
undir. DV hefur heimildir fyrir því
að fleiri séu óánægðir með hve fáir
ráði miklu í hreyfmgunni.
„Þetta kemur mér verulega á óvart.
Þorlákur hefur ekki orðað neina
óánægju og ekkert rætt um þessi mál
við mig. Hann hefur tekið þátt í mál-
efnaundirbúningi og verið í helstu
nefndum sem hafa unnið að stofnun
þessarar hreyfingar. Þess vegna
kemur þetta mér á óvart enda enginn
málefnaágreiningur verið,“ sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir, leiötogi Þjóð-
vaka, um mál Þorláks.
- Hvað segir þú um gagnrýni hans
og fleiri þjóðvakamanna um að allt
starf í samtökunum sé þröngt, of fáir
taki of miklar ákvaröanir?
„Þetta er bara rangt. Það hafa ver-
ið skipaðar nefndir bæði varðandi
málefni og ýmsan undirbúning. Það
eru því fjölmargir sem koma að
þessu starfi. í framboðsmálum eru
það kjördæmin sjálf sem ráða ferð-
inni. Þar eru starfandi nefndir sem
eru að skoða þau mál, auk þess sem
félagsmönnum Þjóðvaka er gefinn
kostur á að tilnefna fólk sem þeir
vilja sjá á listunum. Það er því eins
lýðræðislega að þessu staðið og frek-
ast er unnt,“ sagði Jóhanna.
Ásta B. Þorsteinsdóttir hélt fræga
ræðu á kynningarfundi Þjóðvaka á
Hótel íslandi í fyrra. Þá var talað um
að Jóhanna hefði unnið stóran vinn-
ing að fá hana með sér. Nú er hún
hætt við. „Hún var með okkur í upp-
hafi en ákvað svo að draga sig í hlé
án þess að nokkur ágreiningur væri
uppi, hvorki um framboðsmál né
málefni," sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir.
Þjóövaki:
Framboðslistar
ekki kynntir á
landsfundinum
Landsfundur Þjóðvaka, hreyfingu
Jóhönnu Sigurðardóttur, verður
haldinn um helgina á Hótel Sögu. Því
hefur verið lýst yfir, og komið fram
í fréttum, að framboðslistar Þjóð-
vaka eða alla vega þrjú efstu nöfn á
hverjum lista yrðu birt á landsfund-
inum. Nú er ljóst að svo verður ekki.
Katrín Theodórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Þjóðvaka, vildi ekki
kannast við að þetta hefði staðið til.
Þorlákur Helgason, sem unnið hefur
frá upphafi að stofnun Þjóðvaka, en
er nýhættur þátttöku þar, staðfesti
hins vegar að þetta hefði átt að gera.
Katrín sagði að stofna ætti deild í
hverju kjördæmi sem annist Upp-
stillingu á lista og önnur málefni
Þjóðvaka í kjördæminu. Hvergi er
búið að stofna slíkar deildir nema í
Norðurlandskjördæmi eystra. Rætt
var um í upphafi að þessar deildir
ættu allar að vera komnar til þegar
landsfundurinn yrði haldinn.
Það er því ljóst að ýmislegt gengur
ekki jafn hratt fyrir sig hjá Þjóðvaka
og til stóð í upphafi.
Kvöldverðartilboð 27/1-2/2
*
Rjómabætt sjófangssúpa
með karrírjóma
*
Smjörsteiktur skötuselur
með rækjum og tómatchilisósu
eða
Pönnusteikt grísahryggjarsteik
með blaðlauk, vínþrúgum og grænpiparsósu
*
Blandaður heimalagaður ís
með ferskum ávöxtum
Kr. 1.950
Opið i hádeginu mánud.-föstud.
Opið á kvöldin miðvikud.-sunnud.
Auglýsingarnúmer 3502
Laugavegi 178, s. 889967
Tröllvaxinn vinningur framundan!
Þrefaldur fyrsti vinningur á laugardag.
MERKISMENN