Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1995, Blaðsíða 42
50
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1995
Afmæli
Aðalbjörg Jóhannsdóttir
Aðalbjörg Jóhannsdóttir, Hólavegi
5, Dalvík, er áttræð í dag.
Starfsferill
Aðalbjörg er fædd í Sogni á Dalvik
en fluttist á þriðja ári með foreldr-
um sínum í Yngra-Sognhúsið í fjör-
unni. Hún gekk í bama- og ungl-
ingaskóla á Dalvík, varð gagnfræð-
ingur frá Menntaskólanum á Akur-
eyri og fór síðan í Húsmæðraskól-
ann á Laugalandi í Eyjafirði.
Aðalbjörg vann nokkuð við ljós-
böð og handavinnukennslu við
Barnaskólann á Dalvík og jafnframt
við þau störf sem til féllu í venjulegu
sjávarplássi á þeim tíma. Lengst af
vann hún þó við afgreiðslustörf í
vefnaðardeild ÚKE á Dalvík, eða í
nærri25ár.
Fjölskylda
Systkini Aðalbjargar: Baldvin
Gunnlaugur, f. 23.9.1901 á Ytra-
Hvarfi í Svarfaðardal, d. 24.7.1975,
útibússtjóri ÚKE á Dalvík, var
kvæntur Stefaníu Jónsdóttur, f. 5.4.
1912 á Hóh á Upsaströnd, d. 15.5.
1979, og eignuðust þau tvo syni,
Guðjón, f. 1933, d. 1971, viðskipta-
fraeðing, hann eignaöist þrjú börn,
og Örn, f. 1935, d. 1991, verkfræðing,
hann eignaðist fimm börn; Jórunn,
f. 8.8.1906, d. 1990, húsmóðir á Dal-
vík, starfsmaður KEA á Akureyri
og Dalvík, var gift Tryggva Jóns-
syni, f. 3.11.1906 á Hóli á Upsa-
strönd, d. 1991, lengst af frystihús-
stjóra á Dalvík, þau eignuðust tvö
böm, Kristínu Hólmfríði, f. 1936,
skólastjóra, hún á þrjú böm, og Jó-
hann, f. 1938, flugstjóra, hann á fjóra
syni. Þá ólu Jóhann og Guðlaug,
foreldrar Aðalbjargar, upp Rann-
veigu Stefánsdóttur, f. 1902, d. 1993,
en hún var gift Stefáni Baldvini
Hallgrimssyni, f. 1897, d. 1968, skrif-
stofustjóra á Dalvík, kjörsonur
þeirra er Gunnar Stefánsson, bók-
menntafræðingur, kvæntur Gerði
Steinþórsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Aðalbjargar: Jóhann
Jóhannsson, f. 16.11.1875, d. 11.10.
1945, kaupmaður, útgerðarmaöur og
bóndi í Sogni 1 Dalvík, og Guðlaug
Baldvinsdóttir ljósmóöir, f. 11.2.
1875, d. 13.9.1964.
Ætt
Jóhann var sonur Jóhanns,
hreppstjóra og b. í Ytra-Hvarfi í
Svarfaðardal, Jónssonar, yngra b. í
Ytra-Hvarfi, Þórðarsonar eldri, b. í
Hnjúki í Skíðadal, Jónssonar.
Móðir Jóns yngri var Sigríður
Guðmundsdóttir. Móðir Jóhanns
hreppstjóra var Þóra Sigurðardótt-
ir, b. á Þverá í Skíðadal, Hallgríms-
sonar, og Ragnhildar Jónsdóttur.
Móðir Jóhanns í Sogni var Sólveig
Jónsdóttir, b í Dæli, Sigurössonar,
b. í Steindyrum, Sigurðssonar.
Móðir Jóns í Dæli var Sigríður
Höskuldsdóttir. Móðir Sólveigar var
Oddný Sigfúsdóttir, b. á Þorleifs-
stöðum, Sigfússonar, og Guðrúnar
Ólafsdóttur.
Guðlaug, móðir Aðalbjargar, var
dóttir Baldvins Gunnlaugs, útvegs-
bónda á Böggvisstöðum við Dalvík,
Þorvaldssonar, útvegsbónda á
Krossum, ættfoður Krossaættarinn-
ar, Gunnlaugssonar, b. á Hellu, Þor-
valdssonar.
Móðir Þorvalds á Krossum var
Þóra Jónsdóttir, ríka á Krossum.
Móðir Baldvins á Böggvisstöðum
var Snjólaug Baldvinsdóttir, prests
á Upsum á Upsaströnd, Þorsteins-
sonar, og Filippiu Erlendsdóttur.
Móðir Guðlaugar var Þóra Sigurð-
ardóttir, útvegsbónda á Böggvis-
stöðum, Jónssonar, b. í Ytra-Holti
og i Kálfskinni á Árskógsströnd,
Jónssonar.
Aðalbjörg Jóhannsdóttir.
Móðir Þóm var Sigríður Gunn-
laugsdóttir, b. á Hellu, Þovaldsson-
ar, og Þóru Jónsdóttur, ríka á Kross-
um. Þóra og Baldvin, eiginmaður
hennar, voru systkinabörn.
Aðalbjörg tekur á móti gestum á
afmælisdaginn á heimili Kristínar
Hólmfríðar og sambýhsmanns
hennar, Björns Árnasonar, að
Klettahrauni 1 í Hafnarfirði.
Hjörtur Hjartarson
Hjörtur Hjartarson bóndi, Stíflu,
V-Landeyjum, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Hjörtur er fæddur í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lærði útvarps-
virkjun hjá Radíóvinnustofu Ólafs
Jónssonar hf. og stundaði fjarnám
við National Technical Schools,
L.A. í Kaliforníu. Hjörtur, sem hef-
ur meistararéttindi í útvarpsvirkj-
un og rafeindavirkjun, hefur sótt
námskeið bæði heima og erlendis
í sjónvarpstækni, rökrásarfræð-
um, siglingartækjum o.fl.
Hjörtur starfaöi hjá Radíóvinnu-
stofu Ólafs Jónssonar hf. nokkur
ár, átti og rak Rafeindaþjónustuna
hf. ásamt Jóni M. Richardssyni og
þjónustaði siglingartæki og hefur
verið bóndi að Stíflu í V-Landeyjum
frá 1981. Samhliða búskapnum hef-
ur hann veriö stundakennari í tvo
vetur viö Gunnskólann á Hvol-
svelh og kennt við Farskóla Suður-
lands, Tölvuskóla Reykjavíkur og
á ýmsum námskeiðum. Hann hefur
enn fremur skrifað hugbúnað fyrir
tölvur undanfarin ár.
Hjörtur sat í stjórn Félag ísl. út-
varpsvirkja 1969-75, Meistarafélagi
útvarpsvirkja 1977-81, sveinsprófa-
nefnd útvarpsvirkja 1975-81, yfir-
prófdómari i fjögur ár viö Iönskól-
ann í Reykjavík, form. Ræktunar-
sambands Landeyja 1985-91, form.
Nautgripafélags V-Landeyja-
hrepps, form. Ungmennafélagsins
Njáls 1988, form. Félags kúabænda
á Suðurlandi 1991-94, Ax korn-
ræktarfélagi frá 1988, Búnaðarfé-
lags V-Landeyjahrepps frá 1994 og
tekið þátt í stjórnarstörfum Lands-
sambands kúabænda frá 1990 auk
fiölda annarra trúnaðarstarfa.
Hjörtur bjó í Reykjavík til 1976, á
Seltjarnarnesi til 1981 og í V-Land-
eyjum frá þeim tíma.
Fjölskylda
Hjörtur kvæntist 29.3.1969 Stein-
unni S. Káradóttur, f. 2.5.1949,
bónda. Foreldrar hennar: Kári Sig-
urjónsson, leigubílstjóri, og Helga
Pálsdóttir, húsmóðir.
Synir Hjartar og Steinunnar:
Rúnar Ingi, f. 18.7.1969, tölvari;
Einar Már, f. 4.3.1973, háskóla-
nemi; Guðbjörg Helga, f. 7.9.1978,
nemi.
Bræður Hjartar: Hafliði, f. 2.5.
1939, framkvæmdastjóri, maki Jón-
ína Sigurðardóttir, þau eru búsett
í Garðabæ og eiga tvo syni; Ingólf-
ur, f. 7.9.1942, hæstaréttaríögmað-
ur, maki Lára Björnsdóttir, þau eru
búsett í Reykjavík og eiga þrjú
börn; Gunnar Ingi, f. 26.2.1953, fiár-
málastjóri, maki Ragnheiður
Torfadóttir, þau eru búsett í Mos-
fehsbæ og eiga þrjú börn.
Foreldrar Hjartar: Hjörtur Haf-
liðason, f. 13.7.1913, húsasmíða-
meistari, og Guðbjörg Hólmfríður
Einarsdóttir, f. 8.12.1916, húsmóð-
ir, þau eru búsett í Reykjavík.
Hjörtur er að heiman.
Sigurður I. Ingólfsson
Sigurður Ingi Ingólfsson netagerð-
armeistari, Höfðavegi 18, Vest-
mannaeyjum, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sigurður Ingi er fæddur í Vest-
mannaeyjum og ólst þar upp en var
í sveit í Vaðlavík við Eskifiörð í átta
sumur og einn vetur. Hann lauk
sveinsprófi í netagerð oger meistari
í faginu.
Sigurður Ingi hefur lengst af unn-
ið við netagerð en síðustu átta árin
hefur hann verið í útgerð ásamt því
að reka heildsölu með útgeröarvör-
ur.
Sigurður Ingi sat um tíma í stjórn
Knattspyrnufélagsins Týs í Vest-
mannaeyjum og var um tíma for-
maöur knattspyrnuráðs íþrótta-
bandalags Vestmannaeyja. Hann
var sæmdur gullmerki Knatt-
spymufélagsins Týs fyrir störf inn-
anfélagsins.
Sigurður Ingi hefur ávallt buið í
Vestmannaeyjum að undanskildu
einu og hálfu ári, 1973-74, vegna eld-
gossins á Heimaey en þá bjó hann í
Hafnarfirði.
Fjölskylda
Siguröur Ingi kvæntist 8.5.1966
Jónu Berg Andrésdóttur, f. 5.1.1947,
húsmóður og skrifstofustjóra, en
hún vinnur við útgerðina og heild-
söluna með manrn sínum. Foreldrar
hennar: Andrés Magnússon, fyrrv.
verkstjóri í Hvalstöðinni í Hvalfirði,
og Svava Jónsdóttir, húsmóðir og
fyrrv. bakari í Hvalstöðinni í Hval-
firði, þau eru búsett í Reykjavík.
Börn Sigurðar Inga og Jónu Berg:
Andrea Inga, f. 30.9.1965, húsmóðir
í Vestmannaeyjum, maki Guð-
mundur Ágústsson sjómaður, börn
þeirra eru Sigurður Ingi Vilhjálms-
son, f. 15.12.1983, Ása Guðrún Guð-
mundsdóttir, f. 13.1.1990, ogÁsdís
Ósk Guðmundsdóttir, f. 9.6.1993;
Tryggvi Rúnar, f. 18.4.1971, sjómað-
ur í Vestmannaeyjum; Guðni Stein-
ar, f. 26.7.1979.
Systur Sigurðar Inga: Hugrún
Hlin, f. 25.8.1948, bankastarfsmaður
í Kópavogi, hún á þrjú börn; Kristín
Hrönn, f. 23.10.1960, snyrtifræðing-
ur og húsmóðir í Danmörku, maki
Pierre R. Schwartz, þau eiga þrjú
börn; Elfa Dröfn, f. 28.9.1962, hjúkr-
unarfræðingur í Mosfellsbæ, maki
Páll Magnússon, þau eiga eitt barn;
Harpa Fold, f. 28.9.1962, fiskmats-
maður í Reykjavík, hún á eitt barn.
Hálfsystur Sigurðar Inga, samfeðra:
Jóhanna Ingólfsdóttir, maki Sveinn
Sigmundsson, þau eru búsett í
Reykjavík og eiga þrjú böm; Kornel-
ía Ingólfsdóttir, maki Þór Helgason,
þau em búsett í Keflavík og eiga tvö
böm; Amalía Ingólfsdóttir, maki
Leif Bryde, þau era búsett í Hafnar-
firði og eiga þrjú börn.
Siguröur Ingi Ingólfsson.
Foreldrar Sigurðar Inga: Ingólfur
Theódórsson, f. 10.11.1912 á Siglu-
firði, netagerðarmeistari, látinn, og
Sigríður I. Sigurðardóttir, f. 14.4.
1925, frá Skuld í Vestmannaeyjum,
húsmóðir og rekur gistiheimili í
Vestmannaeyjum.
Ætt
Ingólfur var sonur Theódórs Páls-
sonar, skipstjóra og útvegsbónda,
og Guðrúnar Ólafsdóttur.
Sigríður er dóttir Sigurðar Odds-
sonar, skipstjóra og útvegsbónda,
og Ingunnar Jónasardóttur.
Sigurður Ingi er að heiman.
80 ára
Sigríður Þórðardóttir,
Vogatungu 95a, Kópavogi.
hreppi.
Húneraðheiman.
Guðbj örn Ingvarsson,
Garðbraut 92, Garði.
75 ára
50ára
Valdimar Lárusson, leikari og
fyrrv. lögreglumaður,
Hamraborg 26, Kópavogi.
Hanneraðheiman.
Margrét Sigurðardóttir,
Grenimel 39, Reykjavik.
Guðrún Finnbogadóttir,
Ferjubakka 16, Reykjavík.
ara
Líney Gunnarsdóttir,
Iðavöllum 2, Húsavík.
Jón Magnússonjórnsmiður,
Álfheimum34,
Reykjavík,
Eiginkona
hanser Guð-
rún Hjaltalín
Jónsdóttir.
Þau era að
heiman.
Oddrún Kristófersdóttir,
Víðiteigi 16, Mosfellsbæ.
Esther Ólafsdóttir,
Austurströnd 12, Seltjarnarnesi.
Þuríður Guðmundsdóttir,
Sunnufiöt 1, Garðabæ.
Margrét Jóna Guðjónsdóttir,
Móaflöt 17, Garðabæ.
Sigríður Sigurðardóttir,
yöllum, Ölfushreppi.
Ástríður Johnsen,
Vestursiðu 30, Akureyri.
Daníel Jónsson,
Melgerði 3, Húsavík.
Sigurbjörn Björnsson,
Spítalav. sjúkrahúsi, Akureyri.
40ára
Vilborg Friðj ónsdóttir,
ArnarvatniIII, Skútustaðahreppi.
Sigurður J ón Arnbj örnsson,
Suðurgötu 32, Sandgerði.
Heiðrún Aðalsteinsdóttir,
Kjalarlandi 20, Reykjavík.
Guðlaug Jörgina Ólafsdóttir,
Ólafsvegi49, Olafsfiröi.
EinarTorfason,
Haga 2, Homafiarðarbæ.
Trausti Bragason,
Kögurseli 6, Reykjavík.
Steinunn Karlsdóttir,
Sigfús Gunnlaugur Emil Skúla- Aðalgötu 21, Keflavík.
son, Sígríður Sveina Helgadóttir,
Æsufelli 2, Reykjavík. Keldulandi5,Reykjavík.
Hann er að heiman. Guðmundur Guðmundsson,
Þórunn Jónsdóttir, Norðurtúni 24, Bessastaðahreppi.
Vestur-Sámsstööum I, Fljótshlíðar-
Andlát
Bella Aðalheiður Vestfjörð. Petrea Vestfjörð.
Mæðgurnar Bella Aðalheiður
Vestfiörð, f. 15.3.1955, og Petrea
Vestfiörð, f. 21.3.1982, sem áttu
heima að Túngötu 7 í Súðavík, lét-
ust í snjóflóðinu í Súðavík, mánu-
daginnl6.janúarsl.
Móðir Bellu er Ragna Aðalsteins-
dóttir, bóndi á Laugabóli í Laugadal
í Ögursókn.
Útför Bellu og Petreu verður gerð
frá Ögurkirkju í dag, laugardaginn
28.janúar,kl. 14.00.