Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1995, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1995
23
............................................................................................................................................|
David Hasselhoff ásamt konu sinni, Pamelu, og dætrunum tveimur, Taylor Ann, fjögurra ára, og Hayley, tveggja ára.
Strandverðir:
Vinsælasti sjónvarps-
myndaflokkur í heimi
David Hasselhoff hefur gert
Strandveröi að vinsælasta sjón-
varpsmyndaflokki í heimi. Þegar um
600 milljónir kínverskra áhorfenda
bættust viö þykir aðstandendum
þáttanna óhætt að fullyrða að um
milljarður manns í 142 löndum horfi
á myndaflokkinn.
Myndaflokkurinn byrjaði hjá
bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC
fyrir fimm árum. Eftir fyrstu þátta-
röðina var flokkurinn lagður í bleyti.
David Hasselhoff lét það ekki á sig
fá og ásamt þremur af upphaflegum
framleiðendum tókst honum að afla
fjár til að geta myndað nýja þáttaröð
en með minni tilkostnaði.
Hann auglýsti myndaflokkinn vel
um heiminn en gekk ekki vei í
heimalandinu, Ameríku. Þar var það
skoðun almennings að um væri að
ræða þætti sem byðu upp á lítið
meira en góða afsökun til að horfa á
þrýstin brjóst og nær bera bossa.
Þættirnir væru sem sé varla neitt
annað en kroppasýning.
David segir álit manna hafa breyst.
Nú hafi myndaflokkurinn unnið sér
virðingu almennings í Bandaríkjun-
Strandvörðurinn David er oröinn 42
ára.
um vegna umfjöllunar um ýmsar sið-
ferðislegar spurningar, vegna fallegs
umhverfis og rómantikurinnar sem
ríkir í þáttunum. David fullyrðir aö
áhorfendur séu ánægðir meö að
áhersla skuh lögð á hraöa atburðarás
en ofbeldi sleppt.
Eiginkona Davids er Pamela Bach
sem eitt sinn lék í Strandvörðum og
það var einmitt við töku á mynda-
flokknum sem þau kynntust. Þegar
David var nýlega spurður að því í
blaðaviðtali hvað konunni hans
þætti um það að hann væri nær lið-
langan daginn umkringdur þrýstn-
um og ungum kvenkroppum sagði
hann að hún hti á vinnustað hans
sem skrifstofu. Hún komi líka þang-
að flestalla daga.
Hasselhoff segir að bráðlega geti
áhorfendur séð Paul McCartney
hlaupa eftir strönd Kaliforníu leið-
andi Lindu konu sína. „Ég trúði því
ekki þegar þau sögðu að þau vildu
vera með í myndaflokknum. Ég hef
aðeins beðið tvo aðila um eiginhand-
aráritun á ævinni, Cary Grant og
Paul. Við Paul vorum einu sinni í
sama partíi og ég gat ekki farið án
þess að tala við hann. Yfirleitt geng
ég ekki að fólki og kynni mig þar sem
það getur orðið til þess að mynd
manns af viðkomandi breytist til
hins verra. Það hefur komið fyrir
mig. Ég ætla að ekki aö segja hverjir
það voru. Jæja. Það voru Steven Se-
agal og Mickey Rourke."
David sagði hins vegar Paul og
Lindu hafa verið yndisleg. Og það
hafi einnig Díana prinsessa verið.
David og Díana hittust í sambandi
við góðgeröarsamkomu fyrir tveim-
ur árum. „Það fyrsta sem hún sagði
við mig vár að ég liti vel út í fotum
og ég svaraði sömuleiðis." Díana er
sögð hafa roðnaö svohtið og Pamela,
kona Davids, oröiö enn rauðari.
Núna er í undirbúningi mynda-
flokkur sem tengist Strandvörðum. í
þessum myndaflokki fer David úr
sundskýlunni og klæðist Armaniföt-
um. Tökur eru þegar hafnar. Mynda-
flokkurinn Strandverðir heldur samt
áfram og David heldur áfram að
reyna að fá frægt fólk th að koma
fram í honum.
Díana prinsessa er sögð hafa gaman af myndaflokknum Strandverðir. Hún
hitti David og Pamelu á góðgerðarsamkomu fyrir tveimur árum.
____________________Sviðsljós
Björk skapar tískuna
Þessar myndir rákumst við
á i norska tímaritinu
Hjemmet en þar segir að hin
islenska poppstjarna Björk
Guðmundsdóttir hafi skapað
nýja tísku með sérkennilegri
hárgreiðslu sinni. Meðal
annarra hetur poppdúettinn
Shampoo tekið upp þessa
skemmtilegu greiðslu.
Frægasti klipparinn
Maðurinn sem Naomi Campbell,
Linda Evangelista, Kate Moss, Ma-
donna, Díana prinsessa og fleiri
frægar konur hringja í þegar þær
vilja vera vel greiddar heitir Sam
McKnight. Hann er Skoti sem hefur
verið búsettur í New York síðustu
15 árin. En hann er stöðugt á ferða-
lagi til að khppa og greiða þotuliöinu
í París, London, Mílanó og New York.
Sam varð frægur þegar það varð aht
í einu í lagi að vera öðruvísi um hárið.
Hann hefur starfað fyrir Vogue og önn-
Hárgreiðslumeistarinn Sam
McKnight.
ur tískublöð og tískusýningar.
Sam segir áð sig hafi eitt sinn
dreymt um að opna eigin hár-
greiðslustofu en hafi komist að þeirri
niöurstöðu að það yrði hundleiðin-
legt. Þá hefði hann farið á mis við
þá sérstöku tilfinningu sem hann fær
þegar hann sér til dæmis fjölda síðna
í helstu tískublöðunum með hár-
greiðslum sem hann hefur gert.
Hann kveöst einnig myndu sakna
spennunnar sem er að tjaldabaki á
tískusýningum.
farið höndum um hár hennar.
Þetta er hún, fyrirsætan Lauren Balles, 22ja ára, sem hefur stolið hjarta
leikarans Richard Gere, 45 ára, frá Cindy Crawford. Hún er að verða mjög
vinsæl fyrirsæta og hefur orðið enn frægari þegar upp komst um ástarsam-
band hennar og leikarans.