Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1995, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1995
35
Hvítlaukur
og vampírur
Nökkvi læknir hefur ávallt verið
mikill áhugamaður um blóðsugu-
eða vampírufræði. Þessar áhuga-
verðu verur eru oftast eldri flagar-
ar af aðalsættum eða ung glæsi-
menni sem sjúga blóð úr saklaus-
um yngismeyjum. Bitið er sárs-
aukalaust en kraftar ungu stúlk-
unnar þverra hratt og verður hún
á banastundinni sjálf að vampíru.
Þessi umskipti tengjast oft kynferð-
islegri fullnægingu fórnarlambs-
ins. Með bitinu tryggir vampíran
sér ævilangan trúnað og undirgefni
stúlkunnar og kemur sér smám
saman upp kvennabúri af hressum
kvenvampírum. Þetta áhugamál
flettir þannig ofan af innstu draum-
um og fýsnum Nökkva læknis.
Orðið vampíra er komið úr serb-
nesku, tyrknesku, ungversku eða
litháísku sem sýnir útbreiðsiu
þessara skemmtilegu blóðtöku-
manna. Ungur las Nökkvi frásagn-
ir um Drakúla greifa eftir Bram
Stoker sem kalla má konung vamp-
íranna. Hann fylgdist spenntur
með greifanum í Hafnarbíói í túlk-
un Christophers heitins Lee og hef-
ur sofið órólega síðan. Síðustu daga
hafa vampírur enn flogið inn í
kvikmyndahús með myndinni
Álæknavaktiimi
Óttar
Guðmundsson
læknir
Samtal við vampíru og hrætt við-
kvæmar sálir í nánasta umhverfi
Nökkva. Margir hafa spurt hann
hvaða ráð dygðu gegn þessum
vampírum. Ahyggjufullur faðir
innti hann eftir þessu í beinni út-
sendingu á útvarpsstöð: „Hvað á
venjuleg reykvísk smámey að gera
til að vernda sig fyrir biti vampír-
unnar?"
Vampíruvarnir
Bram Stoker svarar sjálfur þess-
ari spurningu í bók sinni um Drak-
úla greifa. Þegar samferðamönnum
Jónatans Harkers (söguhetja bók-
arinnar=góður gæi) skildist að
hann væri á leið til hallar Drakúla
greifa hengdu þeir um háls hans
digran kross og gáfu honum hvít-
lauk til varnar óvættinni. Annars
staðar kemur fram aö tækist
mönnum að deyða vampíru skyldi
reka flein gegnum hjarta, skera af
henni höfuð og fylla munn af hvít-
lauk. Þessi bragðgóöi laukur
gegndi því mikilvægu hlutverki í
vampíruvömum.
En laukurinn gerir meira en
verja fólk gegn vondum blóösug-
um. Egyptar hinir fornu lýstu
fyrstir hollustu hans á ævagömlum
papýrushandritum. íþróttamenná
fyrstu ólympíuleikunum notuðu
laukinn til að bæta árangur sinn.
Hvítlaukurinn var talinn bakteríu-
drepandi enda báru herlæknar í
ótal styrjöldum laukinn með sér í
litlum pokum til að smyija með sár
og koma þannig í veg fyrir vondar
sýkingar. Albert Schweitzer notaði
hvítlauk til að meðhöndla ýmsar
magasýkingar í Afríku og gera við
orgelið sitt. Menn hafa sýnt fram á
Margir hafa spurt Nökkva lækni hvaða ráð dygðu við vampírum,
að laukurinn dugar vel á kyndeyfð
og geðlægð og flestalla kvilla
mannlegrar tilveru. Hann lækkar
kólesterol og þríglyceríða í blóði
og hindrar samloðun blóðflaganna
og kemur í veg fyrir blóötappa.
Hvítlaukurinn inniheldur steinefni
og snefilefni, svo sem magnesíum,
járn, kopar, sink, selen, kalk, kal-
ium, germanium og kvikasilfurs-
sambönd auk íjölda vítamína. Al-
vörulæknar, eins og Nökkvi læknir
kallar sjálfan sig, eru því á einu
máli um nytsemi þessa merkilega
lauks þrátt fyrir þann óhugnað sem
slær að mörgum viðkvæmum sál-
um sakir lyktar af lauk.
Hvað um
vampírurnar?
Nökkvi læknir er stórneytandi
hvítlauks. Hann hefur tröllatrú á
lækningamætti hans gegn öllum
kvillum (sérstaklega getuleysi) og
verndarkrafti gegn vampírum. Þaö
síðasttalda hefur þó verið lítiö
rannsakað. Nýlega birtu þó norskir
læknar rannsóknir (Tidskr. Nor.
Lægeforen nr. 301994) sem þeir
gerðu til að kanna sannleiksgildi
þessarar gömlu þjóðsögu. Þeir
rannsökuðu áhrif lauksins á blóð-
igla og komust að raun um að blóð-
sugur létu alls ekki fælast af laukn-
um heldur drógust að honum sem
flugur að mykjuskán. Höfundarnir
töldu sig hafa sannað að hvítlauk-
urinn laöaði fremur að vampírur
en stuggaöi við þeim og því skyldu
menn draga úr notkun lauksins.
Vísindin höfðu afsannað alþýðu-
trúna.
Nökkvi læknir hefur þó oft farið
um vampírulönd en aldrei orðið
fyrir biti né heldur misdægurt.
Þetta þakkar hann stööugri neyslu
hvítlauks enda ráðleggur hann
sjúklingum sínum að borða hvít-
lauk í öll mál og láta fuss og svei
viðkvæmra sem vind um eyrun
þjóta. Á hinn bóginn ljóstruðu
Norðmennirnir upp gömlu leynd-
armáli Nökkva. Innst inni væri
hann til í að vera bitinn ljúflega af
kvenvampíru frá Transylvaníu en
þaðerönnursaga.
Áskrifendur DV fá
10% aukaafslátt af
smáauglýsingum
wwwv
Þverholti 11 -105 Reykjavík
Sími 563 2700 - Bréfasínri 563 2727
Græni síminn: 99-6272
(fyrir landsbyggðina)
OPIÐ:
Virka daga kl. 9-22
Laugardaga kl. 9-14
Sunnudaga kl. 16-22
Athugi&l
Smáauglýsingar í helgarblað
DV verða að berast fyrir
kl. 17 á föstudögum.
AUGLYSINGAR
Leiðbeiningar
við framtalsgerð
Verkakvennafélagið Framsókn gefur félögum sínum
kost á leiðbeiningum við gerð skattframtala með
sama hætti og undanfarin ár.
Þeir sem hug hafa á þjónustu þessari eru beðnir um
að hafa samband við skrifstofu Framsóknar og láta
skrá sig til viðtals eigi síðar en 3. febrúar 1995.
Ekki er unnt að taka við viðtalsbeiðnum eftir þann
tíma.
Verkakvennafélagið Framsókn
Skipholti 50 a
sími 5688930 og 5688931
Félag járniðnaðarmanna
Allsherjar atkvæðagreiðsla
Ákveðið er að viðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu við kjör
stjórnar og trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðarmanna fyrir
næsta starfsár.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins
skal skila til kjörstjórnar félagsins á skrifstofu þess að Suður-
landsbraut 30, Reykjavík, ásamt meðmælum a.m.k. 75 full-
gildra félagsmanna.
Tillögur skulu vera um-7 menn í stjórn félagsins og auk þess
um 21 mann I trúnaðarmannaráð félagsins og 7 varamenn
þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs rennur út kl. 17.00 fimmtudaginn 9. febrúar 1995.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
Vinningshafar fyrir verðlaunagetraun
Krakkaklúbbsins og Indiana Jones
Anna Lilja Gísladóttir, Drápuhlíð 45, 105 Reykjavík
Anna Björg Guðjónsdóttir, Teigagerði 17, 108 Reykjavík
Arnþór Pálsson, Víkurflöt 6, 340 Stykkishólmi
Bjargey Ingólfsdóttir, Vallargerði 22, 200 Kópavogi
Birgir J. Sigursteinsson, Álfatúni 35, 200 Kópavogi
Birgir Arngrímsson, Faxabraut 42, 230 Keflavík
Ellen Elmarsdóttir, írabakka 22, 109 Reykjavík
Elsa I. Egilsdóttir, Bústaðavegi 51, 108 Reykjavík
Friðrik Vestmann, Bylgjubyggð 67, 625 Ólafsfirði
Jóhannes Erlingsson, Túngötu 28, 820 Eyrarbakka
Jón Víglundsson, Hraunbæ 162, 110 Reykjavík
Lára Björg Gunnarsdóttir, Næfurási 17, 110 Reykjavík
Perla Sif Geirsdóttir, Eyrarholti 5, 220 Hafnarfirði
Pollý Hilmarsdóttir, Holtsbúð 43, 210 Garðabæ
Melkorka Rán Ólafsdóttir, Urðarvegi 47, 400 ísafirði
Sandra Sigurðardóttir, Fagrabergi 46, 220 Hafnarfirði
Sigurður B. Þorsteinsson, Garðarsvegi 26, 710 Seyðisfirði
Sigurjón Magnússon, Fjörugranda 14, 107 Reykjavík
Snjólaug A. Ómarsdóttir, Breiðvangi 11, 220 Hafnarfirði
Stefán Þór Ólafsson, Öldugötu 10, 621 Árskógshreppi
Þökkum öllum fyrir þátttökuna, vinningarnir
verða sendir í pósti til vinningshafa.
l/QSBí/j"
a