Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1995, Qupperneq 28
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1995
„Með þessu framtaki viljum við
koma til móts við þann áhuga sem
við finnum meðal fólks á göngu-
skíðaíþróttinni," sagði Friðrik Ein-
arsson, framkvæmdstjóri Skíðasam-
bands Islands, í samtali við Trimms-
íðuna.
Skíðasambandiö ætlar í dag, 28.
janúar, og á morgun, 29. janúar, að
gangast fyrir ókeypis kennslu og
kynningu á gönguskíðum fyrir al-
menning. Kennslan fer þannig fram
að þeir sem áhuga hafa á að nýta sér
þetta mæta viö stúkuna við Laugar-
dalsvöllinn en þar hafa Skíðasam-
bandsmenn fengið inni. Kennt verð-
ur í fjórum hrinum og hefst sú fyrsta
klukkan 11.00 og síðan klukkan 13.00,
Friðrik Einarsson, framkvæmda-
stjóri Skíðasambands íslands.
DV-mynd Sveinn
15.00 og 17.00. Dagskrá og tímasetn-
ingar eru eins báða dagana. Hver
kennslustund hefst á því að fulltrúar
frá Skátabúðinni, Útilífi og Fálkan-
um kynna fyrir þátttakendum nauð-
synlegan gönguskíðabúnað. Farið
verður í gegnum það helsta í sam-
bandi viö áburð og notkun hans,
klæðnað og fleiri undirstöðuatriði
sem tengjast göngu á skíðum og með-
ferð á búnaðinum. Leiðbeint verður
um val á búnaði og þarna geta ein-
hverjir, sem ekki eiga nauðsynlegan
búnað, fengið lánað það sem upp á
vantar, bæði skíði, skó og stafi.
Þegar búið er að fara gegnum und-
irstöðuatriðin er lagt af staö á skíð-
unum og stefnt eftir troðinni braut
inn í Laugardal undir leiðsögn þjálf-
ara. Að sögn Friðriks er stefnt að því
að hver leiðbeinandi sé ekki með
Skíðagöngufólk á Miklafúni. Miklatúnið er einn fjölmargra staða innan borgarmarkanna sem henta vel til skíða-
göngu.
fleiri en 10 með sér í hóp svo að hver göngugarpar sem verið hafa í
og einn geti fengið persónulega til-
sögn.
Toppfólk leiðbeinir
„Þarna verða þaulvanir skíöa-
fremstu röð. Það nægir að nefna nöfn
eins og Auði Ebenesardóttur, Sigur-
geir Svavarsson, Baldur Hermanns-
son og marga fleiri. Það er reynsla
okkar að flestir ná tiltölulega fljótt
valdi á grunnatriðum skíðagöngu og
leiðbeiningar af þessu tagi gera fólki
kleift að nýta skíðin. Við byrjum á
jafnsléttu en prófum svo að fara í
brekku og renna okkur svolítið. Síð-
an göngum við léttan hring og reikn-
um meö að hver hópur fái að minnsta
kosti klukkutíma. Okkur sýnist að
Helstu skíðagönguleiðir
innan borgarmarkanna
Reykvíkingar eiga margra kosta
völ þegar lánið leikur við þá og nátt-
úran setur niður nægan snjó til þess
að göngufæri sé fyrir skíði hér á lág-
lendinu. Miklatúnið nýtur stöðugra
vinsælda enda miðsvæöis, slétt og
þægilegt. Hringurinn á Miklatúninu,
sem yfirleitt er troðinn strax og fær-
ið leyfir, er rétt um einn kílómetri.
Göngustígamir í Laugardal eru oft
ágætir til skíðagöngu og stundum er
troöin sérstök skíðabraut. Þar er
hægt að ganga um 3,5 kílómetra
hring eftir stígum á nær sléttu landi.
Öskjuhlíðin býður upp á brattari
brekkur fyrir þá sem vilja taka meira
á því þar eru stígarnir ekki alltaf
ruddir en sé nægur snjór er um-
hverfið skemmtilegt.
Elliðaárdalurinn er mjög skemmti-
legur og tengist Fossvogi með
göngum undir Breiöholtsbraut.
Hægt er að renna sér á skemmtileg-
um skógarstígum á eyjunni milh
kvislanna eða fara stóran hring (ca
6 km) frá hitaveifustokknum neðst
og alla leið upp að Árbæjarlaug.
Fossvogurinn er sléttur og þægilegur
og þar er nú kominn breiður og finn
stígur sem er góður fyrir gönguskíði.
Strax og snjóalög aukast er auðvelt
að róla um allan dalinn fram og til
baka eftir því sem nefið vísar og út-
haldið leyfir. Upp úr Elliðaárdal er
auðvelt að ganga eftir stíg sunnan
við ána upp í Vatnsendahæð og eftir
veginum áleiðis upp að Vatnsenda
er greið leið að stinga sér inn á stíg-
ana í Heiðmörkinni. Heiðmörkin er
sannarlega paradís skíðagöngu-
manna. Ágætt er að leggja bílnum
við Elliðavatnsbæinn eða hinum
megin skammt frá Vífilsstöðum og
ganga um víðlenda mörkina. Þar sem
trjágróður er einhver fýkur snjór síð-
ur í burtu og er oft hægt að finna
göngufæri þar þó ekki virðist nægur
snjór annars staðar.
Á stígunum milli hávaxinna greni-
trjáa norðan og austan við Norska
bústaðinn, sem margir kannast við,
er auðvelt að ímynda sér að maður
sér kominn djúpt inn í erlendan
Svartaskóg. Finnist mönnum þetta
ekki nóg má auðvitað benda á skíða-
svæðin í Bláíjöllum og Skálafelli þar
sem jafnan eru troðnar brautir séu
skíðasvæðin á annað borð opin.
Menn deila hart um hvort svæðið sé
betra og einfaldast er að fara á báða
staðina og dæmi svo hver fyrir sig.
Brautin í Bláfjöllum er ekki eins
mishæöótt og sú í Skálafelli en auð-
velt er að beina för sinni úr Bláfjöll-
um suður í Grindaskörð, að Þríhnúk-
um, meðfram Kóngsfelli eða eitthvað
annaö um víðáttuna. Það sama má
segja um Skálafellið. Sá sem ekki
vill vera í troðinni braut hefur víð-
lendar heiðar til þess að velja um og
getur farið þangaö sem hugurinn
girnist og þoliö leyfir. Gönguskíða-
maðurinn er algjörlega frjáls eins og
fuglinn fljúgandi og er ekki upp á
neinar biðraðir eða stólalyftur kom-
inn við að stunda sína íþrótt.
Laugardalurinn sé mjög skemmtilegt
göngusvæði og hægt að fara ýmsar
krókaleiöir um garðana þar.“ Leið-
beinendumir munu fylgjast með sín-
um nemendum allan hringinn og
svara fyrirspurnum og kenna fólki
að hrinda í framkvæmd ýmsum
tækniatriðum. Að lokinni skíðaferð
verður boðið upp á heitan kakóbolla
á leiðarenda og það er heildverslunin
Katla sem býður kakóið. Ef allt fer
að vonum verður kannski klein-
ustúfur með kakóbollanum. Kakó-
bolli er ómissandi að lokinni skíða-
ferð og gaman að bera saman bækur
sínar við aðra þátttakendur að lok-
inni kennslu. „Við viljum sannfæra
fólk um að gönguskíði eru auðveld
og ódýr iþrótt sem hægt er að stunda
nær hvar sem er svo framarlega sem
snjór er undir skíðin. Það þarf ekki
Umsjón
Páll Ásgeir Ásgeirsson
sérstakan klæðnað. Sá sem er vanur
að skokka fer í sinum venjulega
trimmgalla á skíðin. Jafnvel alveg
óvanur göngumaður er fljótur að ná
valdi á því að geta notað skíðin."
Aukin samvinna
Skíðasambandið er, að sögn Frið-
riks, með það í undirbúningi að auka
samvinnu viö þau íþróttafélög sem
helst leggja áherslu á gönguskíði en
það eru Skíðafélag Reykjavíkur,
íþróttafélag kvenna og íþróttafélagiö
Hrönn og vonast er til að fulltrúar
þessara félaga verði á staðnum og
kynni sín félög. Fari svo að snjóleysi
komi í veg fyrir að kennslan geti far-
ið fram í Laugardal verður kennt í
Bláfjöllum bæði laugardag og sunnu-
dag og munu þátttakendur safnast
saman við skála Breiðabliks í Blá-
fjöllum en tímasetningar haldast
óbreyttar. „Ég vonast til að sjá sem
allra flesta," sagði Friðrik að lokum.
Varið ykk-
ur í um-
ferðinni
Það eru ekki allir í aðstöðu til
þess að hlaupa á gangstígum eða
á vemduðum svæðum og neyðast
til þess aö hlaupa úti í umferðinni
sem er ávallt varasamt.
Umferöarreglur hlauparans
eru eftirfarandi:
Ekki reikna með að bílstjórinn
sjái þig.
Gerðu alltaf ráð fyrir því að
hann fari yfir á rauðu, aki fyrir
þig eða yfirleitt aö hiö versta í
hverri stöðu gerist.
Hlauptu á móti umferðinni ef
þú getur ekki hlaupið á gangstétt.
Þegar þú ert að hlaupa í vegöxl-
inni á móti umferðinni hafðu þá
alltaf vara á þér gagnvart umferð
sem kemur úr gagnstæðri átt.
Mundu að vera ávallt með end-
urskinsborða um leið og birtu
tekur að bregða og reyndu að
klæðast litskrúöugum fatnaði til
þess að vekja athygli bílstjór-
anna.
Haltu ró þinni þó gusurnar
gangi yfir þig úr pollunum og ein-
hver aki næstum yfir tærnar á
þér á umferöarljósum.
Trimm________________________________pv
Skíðasamband íslands:
Ókeypis skíðakennsla
- fyrir almenning