Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Síða 6
6
LAUGÁRDAGUR 4. FEBRÚAR 1995
Stuttar fréttir
Uflönd
ÁgreirtinguriESB
MikUl ágreiningur er innan
ESB um hversu mikifr fé á aö
leggja til þróunaraöstoðar.
Walesa i vanda
Lech Walesa
Póllandsforseti
á í mesta brasi
viö Pawlak for-
sætisráðherra
sem harðneitar
aö verða við
kröfum hans
um að fara frá,
ella veröi þingið leyst upp.
Maita tilbúin
Forseti Möltu segir að land sitt
sé töbmö til aö ganga í ESB.
SkaðabæturiBjugn
Fimm mönnum, sem voru
grunaðir um misnotkun á böm-
um í Bjugn í Noregi, hafa verið
dæmdar skaöabætur.
Nýrráðherra
Paavo Rantanen hefur verið
skipaöur utanríkisráðherra
Finnlands í stað Heikkis Haavist-
os sem hætti vegna heilsubrests.
ViijaræðaAlsír
Frakkar vilja að ESB boði til
friöarráöstefnu um Alsír.
NATOíaustri
Leiðtogar NATO skoðuðu nýjar
hersveitir bandalagsins í austur-
hluta Þýskalands í gær.
Santer mildari
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmdastjóraar ESB, hefur
mildaö andstöðu sína viö kvóta á
amerískt sjónvarpsefhi.
Sjómaöursýknaður
Rússneskur sjómaður var
sýknaður af ákæru um aö myröa
fimm skipsfélaga sfna á þýsku
skipi i Noröursjó.
Bretar haf na fangalausn
Breska stiórnin neitar aö fylgja
írum og sleppa IRA-Fóngum.
HurdmeðESB
Douglas
Hurd, utanrík-
isráöherra
Bretlands,
blandaði sér í
deilur innan
íhaldsflokksins
um ágæti Evr-
ópusambands-
ins og sagöi að þörf væri á að
Bretar væru þar virkir félagar.
Rússumeralvegsama
Rússar skeyta því engu þótt
Samtökin um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu fordæmi herför-
ina til Tsjetsjeníu.
Ritzau, Reuter
Vaxtahækkanir erlendis:
Hlutabréf
hækkuðu
Vaxtahækkanir í Bandaríkjunum
og Bretlandi í vikunni höföu þau
áhrif í helstu kauphöllum heims aö
hlutabréfaverð hækkaði. Þannig
hækkaði FT-SE 100 vísitalan í Lon-
don um 1,5% á tveimur dögum. í
gærmorgun var talan komin í 3034
stig. Dow Jones í Wall Street var
sömuleiðis að hækka. Fjörutíu millj-
arða dollara stuðningur Bandaríkja-
manna við Mexíkómenn haföi líka
sín áhrif á kauphallimar.
Vegna nýársfagnaðar í Kína hefur
kauphöllin í Hong Kong verið lokuð
frá því á mánudag. Á gamlársdegi
þeirra Kínveija var Hang Seng vísi-
talan á uppleið.
Bensínverð í Rotterdam hefur lítið
breystenþólækkaðörlítið. Reuter
Clinton íhugaði að bjóða sig fram tll forseta árið 1988:
Kvennafar batt
enda á framboð
Bill Clinton hætti við að bjóða sig
fram til forseta í Bandaríkjunum árið
1988 vegna kvennafars en hann var
þá ríkisstjóri í Arkansas. Nánasti
samverkamaður hans þar, Betsey
Wright, bað hann aö hlífa Hillary og
dótturinni Chelsea við öllu uppi-
standinu sem af kynni að hljótast.
Þessar upplýsingar koma fram í
nýrri bók um Bandaríkjaforseta,
„First in His Class“, eftir David Mar-
aniss, blaðamann við Washington
Post, sem kemur út eftir nokkra
daga.
Betsey Wright var starfsmanna-
stjóri Clintons í Arkansas og í bók-
inni segir hún frá því að hún hafi
tekið saman lista með nöfnum þeirra
kvenna sem hana grunaði að Clinton
hefði átt vingott við. Þau fóru síðan
saman yfir listann til að reyna að
átta sig á hver kvennanna væri líkleg
til að kjafta frá.
í bókinni kemur einnig fram að
Clinton Bandaríkjaforseti enn i
sviösljósinu vegna kvennamála.
Símamynd Reuter
Wright hafi verið sannfærð um að
menn innan ríkislögreglunnar í Ark-
ansas sköffuðu Clinton konur sem
væru til í tuskið og að hann gerði
slíkt hið sama fyrir þá.
Clinton hefur staðfastlega neitað
að hafa beitt lögreglumönnum fyrir
sig í kvennaleit en líklegt er talið að
orð Wright í bókinni muni verða til
þess að menn dragi tryggð Clintons
við konu sína í efa eina ferðina enn.
Upplýsingar af þessu tagi koma
einnig fram í málshöfðun Paulu Jo-
nes á hendur Clinton en hún segir
að lögregluþjónar hafi farið með sig
á hótelherbergi þar sem Clinton var.
Paula Jones heldur því fram að Clin-
ton hafi síðan haft í frammi kynferð-
islega tilburði við sig.
í Hvíta húsinu vísuðu menn frá-
sögn bókarinnar á bug og sögðu að
þar væri ekki miklar fréttir að finna.
TT, Reuter
-
Antonio Rocha þurfti að hafa snör handtök til að bjarga lífi tveggja kanína sem hann á þegar áin Oise flæddi yfir
bakka sína norðvestan við París í gær. Símamynd Reuter
Þúsundir enn að heiman vegna flóða
Hollendingar á flótta undan verstu
flóðum þar í landi á þessari öld hófu
að snúa heim í gær en þúsundir
þurfa þó að halda sig fjarri heimilum
sínum yfir helgina til að yfirvöldum
gefist tími til að kanna ástand flóð-
vamargarða. Um 250 þúsund manns
þurftu að fara að heiman.
„Ég er mjög bitur. Þeir veröa að
byggja nýjan og stærri varnargarð,"
sagði Ret Pals, húsmóðir í litlu þorpi
í Limburg-héraöi, sem fékk að fara
heim í gær, og sagðist vilja fá flóð í
höfuðborginni og sjá þá viðbrögð rík-
isstjórnarinnar. Stjómvöld og græn-
ingjar hafa sætt harðri gagnrýni fyr-
ir að tefja vinnu við að styrkja flóöa-
varnirlandsins. Reuter
Evrópuráðið
hafnaraðild
Rússaaðsinni
Rússneski
þjóðernisöfga-
maöurinn
Vladimir Zhír-
ínovskí brást
ílla við þegar
Evrópuráöið í
Strasbourg
hafnaði aðild
Rússa að sinni á fmuntudag
vegna stríösrekstrar þeirra í
Tsjetsjeníu.
Evrópuráðið sagöi að ekki yrði
hægt að taka á aðildarumsókn
fyrr en friðsamleg lausn fyndist
á Tsjetsjeniu-málinu. Zhírinovskí
var í rússneskri þingnefnd sem
var gestur ráðsins og sagði hánn
að ekki væri til neitt Tsjetsjeníu-
vandamál heldur ætti miöstjórn-
arvaldið í vandræðum með bófa-
flokka.
Rússar sóttu um aðild að ráðinu
í maí 1992 en 10. janúar síðastlið-
ínn ákvað aðalþingnefnd Evrópu-
ráðsins aö leggja umsóknina til
hliðar að sinni. Átökin í Tsjetsje-
níu munu ekki koma í veg fyrir
aðild Rússa þótt síðar verði.
Konavillverða
biskupyfir
Grænlandi
Þrjátíu og níu ára gamall kven-
prestur, Sofie Petersen frá Iluliss-
at á Grænlandi, býður sig fram
til biskupskjörs sem fer fram í
landinu í lok mars.
Ekki hefur séra Sofie i huga að
gera umbætur á grænlensku
kirkjunni heldur ætlar hún að
styrkja hana og gera kristindóm-
inn sýniiegan í hvunndeginum.
Allt bendir til að mótframbjóð-
andi hennar verði Magnus Lars-
en, 64 ára gamall prófastur í Suð-
ur-Grænlandi. Hann gæti þó að-
eins setið í ár því opinberir starfs-
menn á Gænlandi fara allir á eft-
irlaun við 65 ára aldur.
Finnarsam-
þykkjaaðtaka
konuriherinn
Finnar hafa slegist í hópinn
með öðrum jafnréttíssinnuðum
Noröurlandaþjóðum og ætla að
leyfa konum aö ganga í herinn.
Finnska þingið samþykkti það i
vikunni.
Ekki verða konurnar þó kallað-
ar í herinn eins og karlarnir held-
ur mega áhugasamar sækja um
vist Þær veröa síðan vegnar og
metnar, m.a. sálfræðilega, ogþær
teknar sem standast öll próf.
í landvamaráðuneytínu
finnska eiga menn von á að 30
konursæki um að gegna herþjón-
ustu á þessu ári en þær verði
orðnar 300 á næsta ári.
Grænlendingar
hótaaðslita
sambandinu
Lars Emii Jo-
hansen, for-
maöur græn-
lensku heima-
stjórnarinnar,
fór fram á það
við danska for-
sætisráðherr-
ann í gær að
framiag danska rnasms ui uræn-
lands verði ekki minnkað.
Heimastjórnarformaðurinn
hefur hótað að draga Grænland
út úr ríkjasambandinu við Dan-
mörku verði áform um niöur-
skurð aö veruleika.
„Við krefjumst þess bara að
staöíð veröi við samninginn um
heimastjómina,“ segir Lars Emil
Johansen. Reuter, Ritzau