Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Page 8
8 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995 Vísnaþáttur________ Ó hve margur yrði Páll Jónsson Árdal fæddist 1. fe- brúar 1857 á Helgastöðum í Eyja- firði. Ungur lærði hann silfursmíð. Páll var gagnfræðingur frá Möðru- völlum 1882 og sama ár gerðist hann bamakennari og stundaði kennslu nær samfellt í 44 ár. Páll settist að á Akureyri 1883 og bjó þar ávallt síöan. Kenndi hann við barnaskólann þar og veitti honum forstöðu á ámnum 1884-1901. Páll stundaði einnig blaðaútgáfu og rak um skeið ritfangaverslun. Á árun- um 1898-1917 hafði hann að aðal- starfi vegaverkstjórn í Eyjafirði og Þingeyjarþingi og var hann síðan til 1920 bæjarverkstjóri á Akureyri. Páll gaf út um æfi sín þrjár ljóðabækur og nokkur leikrit og eftir hans daga komu og fleiri á þrykk. Hér í upphafi er vísa ein er Páll kveður til Snata nokkurs og hefur honum tekist að kenna pilti sitthvað. Gott væri nú ef einungis rakkar hefðu ósið þennan: Nú hef ég snotrað Snata minn og snilldarlega vanið. Hafði lengi hundskjaftinn hann til skammar þanið. Ekki er þessi kveðja Páls amaleg er svo hljóðar: Hvar sem áttu um æfi spor öll þín verði saga; leikur einn við ljós og vor langa og fagra daga. Þessi áskorun Páls er íhugunar- verð okkur heybrókum og rolum til hvatningar: Kærðu þig um hættur hót, horfi fylgdu réttu, stýrðu þungum straumi í mót stefndu að marki settu. „Enginn veit sína æfina fyrr en öll er,“ segir stefiö foma. Eitthvað áþekkur er boðskapur næstu vísu Páls. Svo kveður hann: Víða liggja vegamót, víða leiðir skilja, oft eru kjara skifti skjót skifti logns og bylja. Aldrei er það svo aö ekki hilli und- ir ljósglætu hjá manni mitt í kóf- inu, þrátt fyrir ofsóknir greiðslu- kortareikninga og hvers kyns óár- an nú um þessar mundir: Þeim sem lífsins þunga ber þyrnum stráða vegi, verður ljúft að leika sér litla stund úr degi. Ekki veitti æskulýðnum í dag af að vinna þjóðfélaginu gagn, í stað þess að slæpast um torg og ástunda miður kristilegt athæfi. Þar gæti þegnskyldan unnið gagn. En þegar þegnskyldan var til umræðu rétt um aldamótin var mikil andstaða mót henni. Páll bóndi lá ekki á sæll skoðum sinni um þegnskylduna er hann kvað árið 1903 vísu þessa: Ó, hve margur yrði sæll og elska myndi land sitt heitt, mætti hann vera í mánuð þræll og moka skít fyrir ekki neitt. Hvað er oss móðum og hryggum meiri líkn en þegar degi hallar og myrkrið breiðist yfir lendur. Páll kveður svo: Vísnaþáttur Valdimar Tómasson Aftan stundin unaðsblíð allra mýktu sárin, lægðu hjartans storm.og stríð, strjúk af augum tárin. í næstu vísu mælir Páll fyrir munn Hjálmars Hugumstóra og kveður svo: Brynja er sundruð, sjónin þver, sextán undir blæða mér; sárt mér hneit í hjartastað hert í eitri Tyrfingsblað. Vísu þessa kveður Páli um sköllótt- an mann: Þú lést af skalla skafa og skininn kolhnn berðu enn, svo ekki skyldu hendur hafa í hári þínu guð né menn. Hætt er við að öll sú kyrrð er Páll frá greinir myndi firra margan borgarbúann sem upp er fæddur við ys torga og símalandi froðu fjölmiðla. Vísa Páls hljóðar svo: Aht er kyrrt og allt er hljótt, engin bára kvikar; yfir fríðri foldar nótt fagur máni blikar. Að lokum er hér áskorun : Þó að virðing þín sé létt, þrjóti heilsa og auður, reyndu að halda höfði rétt hnígei fyrr en dauður. Áskrifendur DV fá 10% aukaafslátt af AUGLYSINGAR wvww Þverholti 11 -105 Reykjavik Sími 563 2700 - Bréfasimi 563 2727 Græni síminn: 99-6272 (fyrir landsbyggðina) OPIÐ: Virka daga ki. 9-22 Laugardaga kl. 9-14 Sunnudaga kl. 16-22 Athugiö! Smáauglýsingar i helgarblað DV verða að berast fyrir kl. 17 á föstudögum. Matgæöingur vikuimar DV Góöir síldarréttir „Neysla íslendinga á síld og síld- arafurðum hefur ekki verið mikil, ólíkt frændþjóðum okkar. Þetta er einkennilegt vegna þess að í gegn- um árin höfum við verið mjög stór í útflutningi á saltaöri síld og sum árin jafnvel langstærstir í heimin- um,“ segir Ingvar Ágústsson, líf- efnafræðingur og matgæðingur vikunnar. Skorað var á Ingvar að koma með leiðbeiningar um síld og það ætlar hann að gera enda fáir sem þekkja síldina betur. Ing- var starfar hjá Síldarútvegsnefnd. „Ég hef heyrt fólk kvarta yfir að erfitt sé að nálgast saltsíld sem er hráefni til niðurlagningar eða mar- ineringar. Það er sennilega rétt en þó bjóða nokkrar fiskbúðir á höfuö- borgarsvæðinu upp á saltaða síld að staðaldri þótt hún sé sjaldgæf í stórmörkuðunum. Þar er hins veg- ar gott úrval af alls kyns thbúnum síldarréttum," segir Ingvar en hann segist sjálfur vera mikið fyrir síld. „Ég hef mjög gaman af að prófa nýjar uppskriftir að síldarréttum og jafnvel að búa til nýjar. Það er því kannski heppilegt að ég hef ein- mitt atvinnu af þessari fisktegund. Síldin er framandi fyrir marga en þaö er ekki erfítt að matbúa úr henni þótt passa verði að hún hafi ekki þránað en hún er viökvæm fyrir því,“ sagði Ingvar en mikiö er hringt í Síldarútvegsnefnd og beðið um ráðleggingar um síld. „Við höfum ekki haft aðstöðu til að selja fólki síld en höfum þó reynt að sjá til þess að einhverjar fisk- búðir séu með hana á boðstólum. Ég held ekki að neinn fiskur sé matreiddur á jafn margvíslegan hátt og síldin. Mörgum fellur vel í geö súrsætt bragð af marineraðri síld, aðrir Ingvar Ágústsson, lífefnafræöing ur og matgæðingur vikunnar. vilja e.t.v. mildara bragð þar sem bragðeinkenni fisksins njóta sín betur. Einnig má matreiða sfidina þannig að ýmis krydd eða bragð- efni, s.s. karrí og sinnep, séu ráð- andi,“ segir Ingvar enn fremur og gefur lesendum hér tvær uppskrift- ir að saltaðri síld en með auknum áhuga á jólaborðum og þorrablót- um hefur áhugi á síldarréttum einnig aukist. „Nauðsynlegt er að útvatna flök- in fyrst en smekksatriði er hversu mikið er útvatnað. Til dæmis má útvatna flökin yfir nótt. Þau eru þá lögð i vatn eða blöndu af vatni og súrmjólk þannig að vel fljóti yf- ir. Flökin eru síðan skoluö í vatni fyrir niðurlagningu. Marineruð síld 6 útvötnuð flök af sykursaltaðri síld 1-2 laukar Lögur 1-1,5 dl sykur 2 dl borðedik 5-8 piparkom 1 dl vatn 2-3 lárviðarlauf Lögurinn er hitaður þangað til sykurinn bráönar og síðan kældur aftur. Einn til tveir laukar eru skomir í sneiðar og raðað ásamt flökunum (heilum eða í bitum) í ílát. Leginum er heht á þannig að fljóti yfir. Síldin er tfibúin til notkunar eftir 2 sólarhringa. Borða má hana beint eða nota í aðra rétti, s.s. salöt. Sinnepssíld 6 útvötnuð flök af saltsíld Lögur Zi htri vatn 1 dl edik 14 dl sykur Sósa 2 dl sinnep 4 msk. sykur 2 msk. vínedik 4 msk. mataroha 'h dl fínmalað dfil Lögurinn er blandaður og honum hellt yfir flökin. Þetta er látið standa í ísskáp í eina klst. Að því búnu eru flökin skorin í bita og þeim raðað í skál eða krukku. Efnum í sósuna er blandað saman og hrært vel í. Að lokum er sósunni hellt yfir síldina. Geymist í kæli í einn sólarhring fyrir neyslu. Ingvar ætlar að skora á Eddu Sverrisdóttur kaupmann að vera næsti matgæðingur. „Hún er góður kokkur og hefur gaman af allri til- raunastarfsemi í eldhúsinu." Hinhhðin Gaman að setja upp tískusýningu - segir Filippía Elísdóttir hönnuður Filippía Ingibjörg Ehsdóttir er að læra fataiðn í Iðnskólanum í Reykjavík á næstsíðustu önn. Hún hefur þegar skapað sér nafn sem hönnuður og hefur haldið tvær vel heppnaðar sýningar, í fyrrasumar í húsnæði Kolaportsins og í nóv- ember í Perlunni. Fihppía segist stefna á að fara til útlanda í fram- tíðinni og starfa þar enda sé mark- aðurinn á íslandi bæði lítill og erf- iður. Það er Ffiippía sem sýnir hina hhðina að þessu sinni: Fullt nafn: Fihppía Ingibjörg Elís- dóttir. Fæðingardagur og ár: 14. júh 1969. Maki: Alex McColhn. Börn: Elís, 4ra ára. Bifreið: Engin. Starf: Nemandi í Iðnskólanum í Reykjavik. Laun: Mjög htfi. Áhugamál: Fatnaður, bókmenntir og hstir. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Ég spfia aldrei í happdrætt- um. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Mér finnst mjög skemmtilegt að seija upp tískusýningu þó hún standi bara yfir í 20 mínútur. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Mér finnst voðalega leiðin- legt hvað íslendingar tala illa hver um annan. Uppáhaldsmatur: Alex er alveg sér- fræðingur í að búa til mat og mér Filippía Ingibjörg Elísdóttir hönn- uður. DV-mynd GVA finnst hann allur góður. Við borð- um einungis grænmetisfæöi en indversku grænmetisréttimir hans eru frábærir. Uppáhaldsdrykkur: Það er rauð- vínið Mouton Cadet, árgerð 1982. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Magnús Scheving. Uppáhaldstímarit: Breska Vogue. Hver erfallegasti karl sem þú hefur séð fyrir utan maka? Gary Oldman. Ertu hlynnt eða andvig ríkisstjórn- inni? Ég er ekkert sérstaklega hlynnt því ástandi sem hefur verið hér á landi en býst þó við að ahar ríkisstjómir séu óvinsælar þegar kjörtímabih er að ljúka. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Ég hefði helst viljað hitta Byron lávarð. Uppáhaldsleikari: Gary Oldman. Uppáhaldsleikkona: Ingrid Berg- man. Uppáhaldssöngvari: Enginn sér- stakur. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn sérstakur. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Tinni. Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég horfi lítið á sjónvarp. Uppáhaldsmatsölustaður: Mar- haba. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ég er aö lesa bækur Önnu Rice. Hver útvarpsrásanna fmnst þér best? Mér finnst þetta aht sama tóbakið og þreytandi tfi lengdar að hlusta á þessar stöðvar. Uppáhaldsútvarpsmaður: Enginn. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður? Katrín Pálsdóttir. Uppáhaldsskemmtistaður: Skuggabarinn. Uppáhaldsféíag i íþróttum? ís- lenska skylmingafélagið. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Mig langar að fara tfi útlanda, vinna þar og ferðast. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Ég hugsa að ég verði í London í sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.