Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995 Á köldum klaka frumsýnd á föstudag: Börðumst við myrk- urogbijálaðveður - segir Ari Kristinsson sem var búinn sérstökum óveðurstækjum til að mynda í snjó, byl og frosti „Þessi mynd var í rauninni það erfiðasta sem hægt er að gera í kvikmyndatökum. Flestar íslensk- ar kvikmyndir hafa verið teknar á sumrin og þá eru engin vandamál enda bjart allan sólarhringinn. Við byrjuðum aö taka þessa mynd 10. janúar á síðasta ári og þá var dags- birtan tveir og hálfur til þrír tímar. Okkur langaði að gera vetrarmynd, þaö var viss ögrun. Ég hafði einu sinni gert vetrarmynd með Þráni Bertelssyni, Skammdegi, og mér fannst ég hafa lært af henni. Ég útvegaði því tæki sem hægt var að nota í hvernig veðri sem var og ætlaði að nýta þessa örfáu tíma á dag til að mynda en þetta reyndist síðan miklu erfiðara en maður bjóst við,“ segir Ari Kristinsson kvikmyndatökumaöur í viðtali við helgarblað DV. Nýjasta kvikmynd hans og Friðriks Þórs Friðrikssonar, Á köldum klaka, verður frumsýnd 10. febrúar. Ari seg- ir að myndin hafi verið sitt erfiðasta verkefhi og hefur hann þó víðtæka reynslu því hann á að minnsta kosti níu bíómyndir að baki. „Þessi mynd var unnin við verstu hugsanlegar aöstæður. Öll erlend tryggingarfélög, sem leitað var til, neituöu að tryggja myndina þar sem hún yrði unnin á þessum árs- tíma,“ segir Ari ennfremur. Hafði gert tónlistar- myndband á íslandi Á köldum klaka var tekin víða um landið, m.a. á Snæfellsnesi, í Bláfjöllum og við Kleifarvatn en einnig var farið að Jökulsárlóni. „Þetta var mjög erfitt fyrir jap- anska leikarann. Hann hafði komið hingað einu sinni áður og þá gerð- um við tónlistarmyndband með honum í frekar leiðinlegu veðri. Hann var meö sex öðrum Japönum og þeim fannst mjög spennandi ævintýri að koma hingað. Vegna þeirrar reynslu var hann alveg til- búinn að koma aftur en hann var orðinn mjög þreyttur í lokin enda búinn að vera hér í sjö vikur og þurfti að rífa sig upp eldsnemma á hveijum morgni í myrkri og brjál- uðu veðri," segir Ari. Á köldum klaka eða Cold Fever er íslensk mynd en meirihluti fjár- magns kemur erlendis frá því myndin var seld fyrirfram. Aöal- leikari myndarinnar, Masatoshi Nagase, er frægur japanskur leik- ari og rokkstjarna. Aðrir aðalleik- arar myndarinnar eru Fischer Ste- vens og leikkonan Lilly Taylor fer með eitt af örfáum kvenhlutverk- um í myndinni. íslenskir leikarar eru einnig nokkrir en með stærsta hlutverkið fer Gísh Halldórsson. „Börn náttúrunnar gengu vel í Tokyo og fengu yfir eitt hundraö þúsund áhorfendur í kvikmynda- húsi,“ útskýrir Ari. „Japanir hafa verið að markaðssetja Bíódaga að undanfömu og virðast ætla að gera það á mjög skipulagðan hátt. Lang- mest hafa þeir þó lagt í þessa nýju mynd, Á köldum klaka, vegna þess að í henni er japanskur leikari og hluti hennar gerist í Tokyo," segir Ari ennfremur. Sönn saga Hugmyndin af þessari kvikmynd kviknaði um það leyti þegar mynd Þó að kvikmyndin Á köldum klaka sé að stórum hluta tekin fyr- ir útlent fé mun hún ekki verða frumsýnd t.d. í Japan fyrr en eftir — eitt ár. Japanir munu fyrst sýna Bíódaga áður en þeir fara að mark- aðssetja þessa. „Þeir vinna mjög vel í öllum kynningarmálum. Þeir unnu til dæmis markvisst í heilt ár að því að kynna Börn náttúr- unnar áður en hún var frumsýnd." Á erlendum tungu- málum Þrátt fyrir að kvikmyndin Á köldum klaka sé íslensk er hún á nokkrum tungumálum, í henni er töluð enska, japanska og íslenska og verður hún því textuð. „Við höfðum áhyggjur af því að myndin væri að hluta til á ensku en eftir að sýnt var úr henni í kvikmynda- þættinum í Sjónvarpinu hurfu þær því við fengum mjög góð viðbrögð við þvi sýnishorm." Ari fór í fyrsta skipti til Tokyo þegar upptökurnar fóru fram þar. „Við vorum þar í tólf daga og tók- um tíu mínútna efni í kvikmynd- ina. Það var skemmtileg upplifun að koma þangað. Annars er þessi mynd öll mjög sérstök og hefur í raun algjörlega sinn stíl. Við sýnd- um nokkmm útlendingum hana um daginn og það var á hreinu að hún kom á óvart.“ Ari Kristinsson við upptökur í Blá- fjöllum en með honum eru fyrsti og annar aðstoðarmaður, Halldór Gunnarsson og Kristófer Péturs- son. Fischer Stevens og rokkstjarna Japans, Masatoshi Nagase, sem fara með aðalhlutverkin í kvik- myndinni Á köldum klaka. þurfti íslenska kvikmyndasam- steypan, sem Friðrik Þór rekur, að leigja frá útlöndum sérstök óveð- urstæki svo að hægt væri að ráðast í myndatökuna. Kvikmyndatöku- maðurinn gat ekki í þessu tilviki snúið sér undan veðri eða leitað skjóls þvi allt átti að sjást. „Ég býst viö að allir þeir sem unnu við þessa -mynd hafl verið orðnir svolítið þreyttir því viö ókum þrettán þús- und kílómetra á tveimur mánuðum til að leita að tökustöðum. Það var aldrei hægt að treysta á veörið. Stundum vorum við búnir að taka fyrri part af atriði, lögðumst síðan til svefns og ætluðum aö halda áfram næsta morgun en þá var all- ur snjór farinn. Við urðum því að elta veðrið. Núna þegar myndin viröist hafa heppnast þá getur mað- ur hlegið að þessu,“ heldur Ari áfram. Djöflaeyja í undir- búningi Þó mikið sé að gera hjá íslensku kvikmyndasamsteypunni þessa dagana vegna frumsýningarinnar á myndinni Á köldum klaka er margt annaö einnig að gerast. Þeg- ar er hafinn undirbúningur fyrir upptökur á kvikmyndinni Djöfla- eyjunni sem tekin verður upp í sumar. „Það veröur heljarmikiö verkefni," segir Ari og bætir við • að það verði líka allt öðruvísi. „Djöflaeyjan verður tekin upp í nágrenni Reykjavíkur í ágúst og september en við erum að leita að stað til að byggja braggahverfi. Auk þess erum við meðframleið- endur í fimm íslenskum kvik- myndum, þ.e. Einkalífi Alexanders sem Þráinn Bertelsson er að gera, Benjamín dúfu sem Gísli Snær ger- ir, Tárum úr steini sem Hilmar Oddsson gerir, Draumadisum sem Ásdís Thoroddsen er með og Blossa sem Júlíus Kemp er með.“ Ástæða þess að íslenska kvik- myndasamsteypan er með í öllum þessum myndum er sú að fyrirtæk- iö hefur keypt mikið af tækjum og byggt upp aðstöðu sem áður þurfti að leigja frá útlöndum. „Það er búið að setja upp aðstöðu fyrir alla eftirvinnslu, t.d. á hljóði og mynd. Áður hefðu ungir kvikmyndagerð- armenn þurft að taka dýr lán til að kaupa þessa þjónustu utan- landsfrá. Núna fá þeir þessa þjón- ustu hér og um leiö nýtast tæki sem keypt hafa verið. íslenska kvik- myndasamsteypan leggur fram tæki gegn ákveðnum hluta af ágóða myndarinnar," útskýrir Ari Krist- insson en segja má að íslenska kvikmyndasamsteypan sé orðin fyrsta íslenska kvikmyndaveriö. Ari Kristinsson kvikmyndatökumaður komst aldeilis i hann krappan þegar hann var við upptökur á kvikmynd- inni Á köldum klaka i janúar á sl. ári en veðrið var mjög slæmt og erfið skilyrði til kvikmyndatöku. OV-mynd Brynjar Gauti Við upptökur á Bíódögum i Skagafirði 1992. Frumstæðar aðstæður við upptökur á Nýju lífi Þráins Bertelssonar en auk hans og Ara er Jón Hermannsson hljóðupptökumaður á myndinni. Friðriks Þórs, Böm náttúrunncu-, var tilnefnd til óskarsverðlauna. Tökutíminn réðst síðan af því hvemig tíma japanska leikarans var háttað. Handritið er samið af Friðriki Þór og Jim Stark en mynd- in er byggð á sönnum atburðum. „Myndin fjallar um slys sem gerð- ist fyrir nokkram áram þegar nokkrir Japanar fórast hér á landi. Sex árum síðar komu síðan ættingj- ar þessa fólks hingað til að halda minningarathöfn til að sálir þeirra látnu kæmust frá slysstaðnum. Að- alpersóna myndarinnar er að koma hingað í sömu erindagjörðum. En fjallað er um feröalag hennar á þennan stað þar sem slysið varð.“ Flottútkoma Ari segist vera ánægöur með út- komuna á myndinni. Atriðin, sem tekin voru í vonda veðrinu, skila sér fullkomlega. „Það verður mikil gleði þegar allt er tilbúið til fram- sýningar vegna þess hversu erfitt þetta var. Myndavélin, sem ég not- aði, var í rauninni útbúin eins og viö væram að taka neðansjávar. Ef það komst einn dropi inn í hana missti maður hálftíma af þessari dýrmætu en stuttu dagsbirtu. Að standa í þessu dag eftir dag var hálfgert brjálæði. En þetta skilar sér flott og svona veður er ekki til í nokkurri einustu mynd sem gerö hefur verið. í HoUywoodmyndum er vonda veðrið bara búiö til fyrir hvert atriði. Þar þurfa menn ekki að kvikmynda í snjó, byl og frosti," segir Ari ennfremur. Sérstök óveðurstæki Fyrir myndina Á köldum klaka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.