Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Page 8
8
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
Vísnaþáttiir__
Stefán
Vagnsson
Stefán Vagnsson fæddist að Mið-
húsum í Blönduhlíð í Skagafirði 25.
maí 1889. Stefán missti fóður sinn
er hann var 9 ára að aldri og ólst
upp á vegum móður sinnar sem var
kona vel dugandi. Vorið 1910 lýkur
hann prófi frá gagnfræðaskólanum
á Akureyri með góðum vitnis-
burði. Á árunum 1920-1922 bjó
hann á Flugumýri og Sólheimum í
Blönduhlíð. Síðan kaupir hann
Hjaltastaði og er bóndi þar 1922-
1941. Þá fluttist hann til Sauðár-
króks og var búsettur þar til ævi-
loka. Hafði hann þar margvíslegan
starfa og má þar nefna bama-
kennslu á vetrum og verkstjórn hjá
Síldarverksmiðjum ríkisins 1943-
1946. Árið 1947 varð hann bókhald-
ari Mjólkursamlags Skagfirðinga
og gegndi því starfi þar til yfir lauk,
en hann andaðist í nóvember 1963.
Hér í upphafi er vísa um fák einn
hraustan:
Þykir heldur harðsnúinn,
hræðist keldu ei neina.
Þegar kveldar klárinn minn
kveikir eld við steina.
Eitthvað hefur andleysið lagst á
meistara Stefán er hann kveður
svo:
Dvína óðarefnin góð,
önd í hljóði stynur.
Aldrei bjóða þyrði eg þjóð
þessi ljóðin, vinur.
Eitthvert sinn barst Stefáni
bónda pakki sem hann áleit að
væri frá Áfengisversluninni en í
umbúðunum reyndist vera brodd-
ur sem sendur var framan úr sveit
og til átti aö taka daginn eftir. Kvað
þá Stefán:
Illa fór ég út úr því,
að mér nomir sóttu,
er brennivínið breyttist í
brodd, á einni nóttu.
í heimsókn hjá góðvini sínum, er
líkast til hefur verið ljóðelskur og
kunnað að meta ljúfar veigar,
kveður Stefán:
Svalan teygum sopann vér,
sáttir í veigum góðum.
Ólund feig er inni hér
yfir fleygum ljóðum.
Árið 1960 kemur út bókin Marína
eftir séra Jón Thorarensen. Vísu
þessa sendir Stefán með bókinni:
Vert er að hlúa að velsæmi,
von og trú það gefur.
En þú skalt snúa að þessari
þegar frúin sefur.
Næsta vísa hefur trúlega veriö
kveðin eftir glaum mikinn og gleði:
Heim ég vendi vinum frá,
þó vínið brennda ei flýi.
En hvenær lendi ég aftur á
öðru eins kennderíi?
Ekki veit ég í hvaða héraði Stefán
bóndi kvað vísu þessa en fróðlegt
væri að vita það:
Hér er „þurrt“ og heldur kalt,
horfin burtu þíða.
Hér er smurt af heimsku allt.
Hér eru durtar víða.
Víst er það að gott er að geta varp-
að frá sér lítt merku og léttvægu
dægurþrasi, hvort heldur menn
halla sér þá að veigum eða öðram
hlutum af æðra tagi. Svo kveður
Stefán:
Hverfur vandi, vaknar grín.
Vinmál standa í skorðum.
,Jfér á andinn óðul sín“
og ekta landi á borðum.
Er fréttist aö bóndi nokkur hefði
átt barn með tveim konum og var
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
þá farinn að reskjast kvað Stefán:
Hlaðinn gigt sem drjúgum dró
dug og kjark úr honum,
þetta gat sá gamli þó
gert meö fjósverkonum.
Hér er ein sumarvisa eftir Stefán
bónda:
Daginn langan heitt mér hlær
Hlíðar-fangið góða.
Töðuangan, bh'ður blær
berst um vanga rjóða.
Einnig skal hér tilfærð ein vetrar-
vísa bóndans:
Skerðast fong og fenntur bær
fógnuð öngum vekur.
Upp að dröngum sýður sær,
sogin löngu tekur.
Hjónabandiö er mikil stofnun og
má þar vænta átaka eins og eðlilegt
er í hveiju stórfyrirtæki. Hafa
samningaviðræður borið árangur í
tilfelh Stefáns bónda er hann kveð-
ur svo:
Stældu þrátt við strit og baks,
stundum átti að ghma,
en urðum sátt af erjum dags
eftir háttatíma.
Sumarið 1957, þegar bömin fóru
í sveitina, hefur orðið hljótt á bæn-
um. Svo kveður Stefán:
Nú er hljóður bamlaus bær;
á brott em htlu hjúin.
Enga kossa afi fær,
enda er ’ann fúll og snúinn.
Áskrifendur DV fá
10% aukaafslátt af
smáauglýsingum
# vwww
AUGLYSINGAR
Þverholti 11 -105 Reykjavik
Sími 563 2700 - Bréfasími 563 2727
Græni síminn: 99-6272
(fyrir landsbyggðina)
OPIÐ:
Virka daga kl. 9-22
Laugardaga kl. 9-14
Sunnudaga kl. 16-22
Athugið!
Smáauglýsingar í helgarblað
DV verða að berast fyrir
kl. 17 á föstudögum.
Matgæðingur vikunnar
Steinbítur
- með nektarínum
„Mig langar að bjóða upp á fisk-
rétt en ég elda oft fisk. Að vísu nota
ég aldrei uppskrifiir, aðeins þumal-
puttaregluna og svo er einnig nú.
Þennan rétt bjó ég til þegar við buö-
um gestum í mat í tilefni af fertugs-
afmæh eiginmannsins," segir Sus-
anne Christensen, myndhöggvari
og matgæðingur vikunnar.
Susanne, sem er dönsk, hefur
búið hér á landi sl. flögur ár. „Ég
hef mjög gaman af að búa til mat
og þá eitthvað nýtt og spennandi.
Það fer svohtið eftir hvað er til í
ísskápnum hverju sinni hvaða rétt-
ur verður til en þegar fólk biður
mig um uppskriftir man ég þær
yfirleitt ekki,“ segir Susanne. Hún
segist nota krydd eftir því í hvernig
skapi hún sé. Susanne ætlar að
bjóða upp á steinbít með nektarín-
um, engiferi og sítrónusafa sem
hún segir að hafi veriö mjög vin-
sæh réttur þegar gesti hefur boriö
að garði. „Það er ágætt aö hafa fisk-
inn svolítið feitan," segir hún og
hér kemur þá uppskriftin.
Það sem þarf fyrir fjóra:
8 sneiðar steinbítur
4 nektarínur (vel þroskaðar)
engifer
sítrónusafi
ólífuolía
grænmetissoð
Best er að velja feitan fisk. Sneið-
arnar eru lagðar í eldfast mót sem
smurt hefur verið með ólífuolíu.
Nektarínurnar eru skornar til
Susanne Christensen.
DV-mynd Brynjar Gauti
helminga og steinninn tekinn úr.
Helmingarnir eru lagðir ofan á
fiskinn en holan eftir steininn er
látin snúa upp. Þá er ólífuolíu, sítr-
ónusafa og rifinni engiferrót hrært
saman og síöan penslað ofan í nekt-
arínumar. Þá er um 2 dl af græn-
metissoði hellt yfir þannig að fljóti
hálfan sentímetra upp á fiskinn.
Síðan er hann settur í ofn og bakað-
ur við 200 gráður í hálfa klukku-
stund. Gott er að hafa álpappír yfir
fyrstu tuttugu mínúturnar svo að
nektarínurnar mýkist.
Með þessu eru hafðar sætar kart-
öflur sem eru soðnar eins og venju-
legar kartöflur. Ef þær eru stórar
getur ein dugað fyrir aht að fjóra
ef aðeins minni þá er hálf á mann.
Jógúrtsósa
2 dósir hrein jógúrt
pipar
grænmetissalt
piparrót (tilbúin í pökkum)
Um það bh 1 tsk. af piparrót, salt
og pipar hrært saman við hreina
jógúrtina og úr verður mjög góð
sósa. Ef fólk vill hafa sósuna sterk-
ari þá er sett meira af piparrótinni.
Þá er gott að hafa gufusoðið
spergilkál og sítrónusafi er kreist-
ur yfir. Með því að setja sítrónus-
afa yfir kálið verður það bragð-
betra.
Fyrir þá sem ekki vhja sætar
kartöflur er hægt að sjóða banka-
bygg eða hrísgijón en þá er önnur
sósa notuð. Það er tvær hreinar
jógúrt og í þær eru sett þijú press-
uö hvítlauksrif og hálf agúrka sem
hefur verið skræld og rifin út í.
Einnig kemur sósa af fiskinum sem
gott er að nota út á fiskinn áður
en hann er borinn á borð. „Ég bý
einnig gjarnan til tómatasalat með
finthökkuðum lauk, ólífum og feta-
osti. Ofan á set ég síðan ólífuolíu
blandaða sítrónusafa.
Fiskur á íslandi er ódýr en góð-
ur. Þessi réttur er mjög ódýr og
hefur þótt mjög góður. Hann er hka
einfaldur og þægilegur. Það er sér-
staklega gott að nota ávexti með
fiski,“ segir Susanne. Hún ætlar að
skora á vinkonu sína, Dísu Esra-
dóttur, sem hún segir að sé mjög
góður kokkur. „Þegar hún býður í
mat þá er hún oft með mat frá hin-
um ýmsum löndum eins og ung-
verska rétti eða búlgarska. Alltaf
eitthvað spennandi og gott.“
Hinhliðin
Kolfínna Baldvinsdóttir, nýr þáttagerðarmaður á Stöð 2:
Ræddi við Cindy Craw-
ford fyrir nýjan þátt
Kolfinna Baldvinsdóttir er að
fara af stað með nýjan sjónvarps-
þátt á Stöð 2 og hefur hann hlotið
nafnið Fiskur án reiðhjóls. „Þetta
verður hraöur þáttur meö margvís-
legu efni og víða komið við. Viö
munum í raun og veru fjalla um
konur þótt við fórum út fyrir þann
ramma," útskýrir Kolfinna. Hún
hefur heimsótt nokkrar stórborgir
fyrir þáttinn, London, París og New
York, og meðal annars rætt við
Cindy Crawford súpermódel og
Fay Weldon rithöfund. „Það var
mjög skemmthegt," segir hún.
Heiðar Jónsson mun sjá um tísku-
hhðina í þættinum en Kolfinna um
menningar- og kvenréttindahhö-
ina. Hún mun ekki einvör^ungu
heimsækja útlönd í þáttunum því
ætlunin er að heimsækja einnig
athafnakonur á íslandi. Kolfinna
hefur líthlega fengist við sjón-
varpsvinnu en hún var með jóla-
þátt á Stöð 2. Hún segir að þessi
vinna hafi komið óvænt en Kol-
finna er sagnfræðingur að mennt.
Það er Kolfinna sem sýnir hina
hhðina að þessu sinni:
Fullt nafn: Kolfinna Baldvinsdótt-
ir.
Fæðingardagur og ár: 6. október
1970.
Maki: Björn Jörundur Friðbjörns-
son.
Börn: Magdalena, 8 mánaða, og
Starkaður, 4ra ára.
Bifreið: Við eigum hræðilega bif-
reið, Subaru, árgerð ’83.
Starf: Dagskrárgerðarmaður á
Stöð 2 og blaðamaður á Veru.
Laun: Þau eru trúnaðarmál enda
er bannað að gefa þau upp.
Áhugamál: Ég hef ahtaf verið mik-
Kolfinna Baldvinsdóttir.
DV-mynd Brynjar Gauti
ið fyrir að lesa bækur en þegar
svona gluggaveður er langar mann
th að taka fram skíöin og gera eitt-
hvað heilsusamlegt.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Ég hef aldrei spilað með í
neinu slíku.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að ferðast á Qarlægar slóðir
en ég’fór t.d. til Kína sl. haust.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Taka th heima hjá mér.
Uppáhaldsmatur: Mexíkóskur
matur.
Uppáhaldsdrykkur: Kínverskt
brennivín sem heitir Moutai.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Magnús Scheving.
Uppáhaldstímarit: Vera.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Það er úr
mörgu að velja en æth ég segi ekki
afi minn, Hannibal Valdimarsson,
en hann þótti mjög sexí.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Margréti Thatcher.
Uppáhaldsleikari: Björn Jörundur
Friðbjörnsson.
Uppáhaldsleikkona: Aldís Bald-
vinsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Bjöm Jörund-
ur Friðbjömsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Ég
þoli ekki teiknimyndir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Það er
væntanlegur þáttur minn, Fiskur
án reiðhjóls, en fyrsti þátturinn
verður miðvikudaginn 8. mars.
Uppáhaldsmatsölustaður: Argent-
ína.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Ég er aö lesa She Came to Stay eft-
ir Simone de Beauvoir.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Gufan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Illugi
Jökulsson.
Hvort horfirþú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Eg horfi meira á Sjón-
varpið þar sem ég er ekki enn kom-
in með afruglara að Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Mörð-
ur og Hannes.
Uppáhaldsskemmtistaður: Kaffi-
barinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? KR.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Já, að eiga afgang þeg-
ar ég er búin að borga skuldirnar.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ef ég fæ sumarfrí og á afgang
af laununum langar mig að heim-
sækja Snæfríði systur mína til
Rómar, þar sem hún er búsett, og
fara í sumarhús hennar í Sperlonca
á Suður-Ítalíu en það er gamah
miðaldabær. Ef ég ætti meiri pen-
inga myndi mig langa til Indlands.