Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjóri: PALL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)563 2700
FAX: Auglýsingar: (91 )563 2727 - aðrar deildir: (91)563 2999
GRÆN NUMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF.
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk.
Verð i lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk.
Þeir vildu ekki jöfnun
Stjórnmálaflokkarnir hafa svikizt um aö jafna atkvæö-
isrétt þjóðarinnar, þrátt fyrir digurbarkalegar yfirlýsing-
ar talsmanna þeirra í haust, er ungliðahreyfmgar þeirra
tóku sig saman um að heimta efndir á gömlum og endur-
teknum loforðum um verulegar úrbætur fyrir kosningar.
Jöfnun atkvæðisréttar er sparimál, sem stjórnmála-
menn flagga með, þegar þeir telja sig þurfa á hátíðlegri
hræsni að halda. Þeir meina hins vegar ekkert með því,
svo sem dæmin sanna. Það gildir nokkum veginn jafnt
um alla þingflokka og þingmenn allra kjördæma.
Sem dæmi um markleysu málflutnings póhtíkusa um
jöfnun atkvæðisréttar er, að þingmannsefni Framsóknar-
flokksins í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi telja sér
opinberlega til tekna að styðja jöfnun atkvæðisréttar,
þótt máhð hafi alltaf verið eitur í beinum flokksins.
Frambjóðandi, er velur sér Framsóknarflokkinn sem
vettvang, er um leið að samþykkja annað helzta baráttu-
mál flokksins um áratugi, vamarstríð hans gegn jöfnun
atkvæðisréttar. Hitt baráttumáhð er að skattleggja Reyk-
víkinga og Reyknesinga um milljarða upp í landbúnað.
Að vísu hafa aðrir stjómmálaflokkar í auknum mæh
komið sér fyrir á sagnfræðhegum málefnagrunni Fram-
sóknarflokksins. Sjálfstæðisflokkinn má raunar telja
stærsta framsóknarflokk þjóðarinnar um þessar mundir.
Það hefur komið fram í stóm og smáu í vetur.
Fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins stjómaði að-
gerðaleysi þingflokka í vetur í undirbúningi breytinga á
kosningalögum. Honum var fahð það veigamikla hlut-
verk að sjá um, að ekkert yrði úr jöfnun atkvæðisréttar
að þessu sinni. Hann er dæmigerður framsóknarmaður.
Hvenær sem hagsmunamál neytenda koma til kasta
Alþingis stendur þingflokkur sjálfstæðismanna nánast
hefll og órofmn gegn hagsmunum neytenda. Flokkurinn
leggur til dæmis tfl sem landbúnaðarráðherra þann þing-
mann, sem mest allra er andvígur neytendum.
í jólaösinni á þingi í vetur sá Sjálfstæðisflokkurinn
um, að forræði innflutningstolla á matvöm yrði hjá land-
búnaðarráðherra. Þá var einmitt vitað, að hann ætlaði
að setja 300-800% toll á innflutt matvæh, þegar innflutn-
ingsbann félh niður vegna gerðra fjölþjóðasamninga.
Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn stóðu
raunar engan veginn einir að þessu máh. Ofbeldið gegn
neytendum naut stuðnings allra þingmanna allra flokka.
Sérhagsmunimir ráða ferð allra flokka á sviði neytenda-
mála jafnt sem á sviði jöfnunar atkvæðisréttar.
Framsóknarmenn allra þingflokka eiga auðvelt með
að sannfæra sjálfa sig um, að ýmis raunveruleg ljón séu
á veginum í góðri viðleitni þeirra við að jafna atkvæðis-
réttinn. Nú síðast virðast þeir hafa tahð sér trú um, að
ekki væri tími tfl að breyta kosningalögunum með sóma.
Staðreyndin er hins vegar allt önnur. Ekkert bannar,
að Alþingi sitji fram að kosningadegi. Ekkert bannar
heldur, að Alþingi starfi, þótt þing Norðurlandaráðs sé
á sama tíma. Slíkt hefur raunar komið fyrir og olh engum
truflunum á, að veizluskandinavisminn hefði sinn gang.
Það hentaði hins vegar þjóðarleiðtogunum að telja
verkalýðsrekendum trú um, að þingstörfum yrði að ljúka
í þessari viku. Þeim var talin trú um, að þeir mundu
missa af hlut ríkisins í sáttinni, ef Alþingi fengi ekki
tækifæri tfl að afgreiða máhð strax í þessari viku.
í vetur hefur sézt í ýmsum málum, að blekkingar og
sjálfsblekkingar eru homsteinn stjómmálanna. Jöfnun
atkvæðisréttar er fómarlamb þess andrúmslofts.
• Jónas Kristjánsson
Bandarískar njósnir
vopn í viðureign
franskra gaullista
Leyniþjónustur sem óöu í íjár-
veitingum til njósna og undirróð-
urs á árum kalda stríðsins reyna
eftir föngum að veija tilverurétt
sinn í breyttum heimi. Fyrir
nokkrum misserum varð opinber
álitsgerð frá bandarísku leyniþjón-
ustunni CIA, þar sem leidd voru
rök fyrir því að hún hefði áfram
verulegu hlutverki að gegna, en nú
vegna iðnaðarnjósna í baráttu iðn-
veldanna um heimsmarkaöshlut-
deild.
Nýjustu fréttir frá París sýna að
þeir CIA-menn hafa ekki látið sitja
við orðin tóm í þessu efni. Frönsk
stjómvöld hafa óskað heimkvaön-
ingar fimm CIA-njósnara, þar af
fjögurra sem áttu að dyljast undir
starfsheitum í sendiráði Banda-
ríkjanna í höfuðborg Frakklands.
Þeir hafa verið staðnir að tilraun-
um til að njósna um frönsk stjórn-
mál og iðnaðarleyndarmál, einkum
í fjarskiptatækni. Reyndi hópurinn
að bera fé á starfsmenn í frönskum
ráöuneytum. í hópnum sem Frakk-
ar vísa á dyr er yfirforingi allrar
CIA-starfsemi í Frakklandi, svo og
staðgengill hans.
Málið varð uppskátt með þeim
hætti að virtasta blað Frakklands,
Le Monde, birti um það frásögn
sem bersýnilega var byggð á trún-
aöarskjölum úr franska stjórnkerf-
inu. Sú ráðabreytni hefur nú í senn
valdiö ýfingum milh stjórna
Bandaríkjanna og Frakklands og
magnað heiftina í átökum tveggja
flokksbræðra úr forystuflokki
frönsku ríkisstjómarinnar fyrir
forsetakosningarnar í vor.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur lýst það ótilhlýðilegt í sam-
skiptum bandamannaríkja að láta
slíkt mál verða fréttnæmt áður en
ríkisstjómir hafa leitt það til lykta.
Alain Juppé, utanríkisráðherra
Frakklands, hefur krafist rann
sóknar á hvemig skjölum frá
Erlend tídindi
Magnús Torfi Óiafsson
frönskum gagnnjósnum var komið
á framfæri við Le Monde.
Juppé er meðal þeirra í flokki
gaullista sem styðja forsetafram-
boð flokksforingjans, Jacques
Chiracs, borgarstjóra Parísar. Eng-
inn gengur að því gruflandi að
kröfu hans um rannsókn er beint
að Charles Pasqua innanríkisráð-
herra, öflugasta stuðningsmanni
forsetaframboðs Edouards Balla-
durs forsætisráðherra.
Stofnanir sem undir Pasqua
heyra komu. upp um bandarísku
njósnarana, og uppljóstmn þess
ýtti umsvifalaust til hliðar fréttum
af hneykslismálum sem varða inn-
anríkisráðherrann og höfðu virst
líkleg til að gera framboöi forsætis-
ráðherrans mikla skráveifu. Ekki
fer-leynt að Pasqua gerir sér von
urn að veröa valinn forsætisráð-
herra sigri Balladur í forsetakosn-
ingunum.
I fyrra komst skriður á dóms-
rannsókn á ólöglegu fjárstreymi til
gaullistaflokksins og framámanna
í honum frá byggingarfyrirtækjum
sem hlutu lóðaúthlutanir í París
og nágrenni. Ráðherra og fyrrum
hægri hönd Chiracs í ráðhúsi Par-
ísar varð að segja af sér vegna
málsins í nóvember.
Síðan hefur málið þanist út og
beinist nú mjög að sams konar fjár-
málamisferli í útborginni Hauts-
de-Seine, þar sem Pasqua hefur
lengi ráöið lögum og lofum.
Upp úr sauö fyrir alvöru þegar
uppvíst varð að náinn bandamaður
Pasqua haföi gert tilraun til að gera
Eric Halperin rannsóknardómara
vanhæfan til að fara með málið
með því að bera fé á tengdafóður
hans. Reyndust lögregluyfirvöld
hafa verið í vitorði með flugu-
manninum og hafa beitt ólöglegum
símahlerunum til að afla sönnun-
argagna um hvemig honum gengi
ætlunarverk sitt.
Þegar dómari úrskurðaði hleran-
irnar ólögmætar brást Pasqua reið-
ur við og sakaði dómarann uiri að
reyna að binda hendur lögreglunn-
ar. Allt fór svo í háaloft í frönskum
fréttamiðlum þegar upp komst að
Balladur forsætisráðherra hafði
heimilað ólöglegar símahleranir
hjá Jean-Pierre Marechal, nánum
samstarfsmanni Chiracs.
Hátt settur lögregluforingi hefur
sagt af sér vegna málsins og dóm-
ari hefur úrskurðað að ólöglegum
upptökum á símtölum skuh eytt.
Markmið hlerananna virðist enn
og aftur hafa verið að spilla fyrir
rannsókninni á athæfi Pasqua og
manna hans í Hauts-de-Seine.
Öll hafa þessi tíðindi orðið til þess
að forusta Balladurs í könnunum
á fylgi forsetaframbjóðenda hefur
hrapað og Lionel Jospin, frambjóð-
andi sósíalista, náð af honum efsta
sæti. En á hðandi stund ber banda-
riska njósnamáhð hæst og ósýnt
hver eftirköst þeirra verða.
Jacques Chirac á framboðsfundi í Rúðuborg með Alain Juppé utanríkisráðherra sér á hægri hönd.
Símamynd Reuter
Skoðanir aimarra
Hefjum ekki selveiðar
„Alþjóða hafrannsóknaráðið hefur heimilað Norð-
mönnum að hefja á ný veiðar á selkópum. Ríkis-
stjórnin á ekki að nýta sér þá heimild ef hún vill
ekki vekja upp reiðiöldu meðal verndunarsinna.
Dýravinirnir hafa nú snúist gegn flutningi og með-
ferð á ahkálfum innan Evrópusambandsins og við
sjáum ekki eina einustu ástæðu til aö Noregur skeri
sambandið úr snörunni í því máli. Þá er viturlegra
og ódýrara að halda áfram að styrkja selveiöimenn
sem frá árinu 1989 hafa veitt fullorðinn sel sem eng-
inn vih.“ Úr forustugrein í Arbeiderbladet 22. febrúar.
Vond tillaga
„Newt Gingrich, forseti fulltrúadeildarinnar, sagð-
ist hafa það á tilfinningunni að Bih Clinton forseti
„ætlaði ekki að beijast hart“ gegn stjómarskrár-
ákvæði um hallalaus fjárlög aftur á þessu ári. Við
vonum að þaö sé ekki rétt. Breytingartíllagan er
hræðileg. Það yrði hrikaleg uppgjöf ef forsetinn tæki
þá ákvörðun að berjast ekki gegn ákvæðinu, og það
af mikilli hörku, og landinu væri mikhl ógreiði gerð-
ur.“ Úr forustugrein Washington Post 22. febrúar.
Vondir strákar
„Viðskiptaþvinganir SÞ þröngva írökum til að láta
gjöreyðingarvopn sín af hendi og fallast á eftirlit
með vopnaframleiðslu sinni. írakar hafa enn ekki
að fullu farið að banninu. Það er því sérstaklega
hryggilegt að tveir af bandamönnum Bandaríkjanna,
Tyrkland og Jórdanía, skuli hafa lagt írökum lið við
aö komast í kringum viðskiptabannið með því að
leyfa óhindraðan flutning á íraskri ohu yfir landa-
mæri sín.“
Úr forustugrein New York Times 22. febrúar.