Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995 37 dv___________________________________________________________________Menning Ragnheiður Jónsdóttir, menningarverðlaunahafi DV í myndlist: Vendipunktur í París Auk menningarverðlauna DV hefur Ragnheiður Jónsdóttir myndlistarkona hlotið sex alþjóðleg verðlaun. DV-mynd Brynjar Gauti „Þetta er alveg óskaplega skemmti- legt og óvænt. Þaö hvarflaði ekki aö mér aö ég fengi þessi verðlaun," seg- ir Ragnheiður Jónsdóttir sem hlýtur Menningarverðlaun DV fyrir mynd- hst. Ragnheiður fær viðurkenning- una fyrir viðarkolateikningar sínar sem hún sýndi að Kjarvalsstöðum á síðasta ári. Þekktust er Ragnheiður annars fyrir grafíkmyndir sem henni þykir gott að hvíla sig frá af og til. „Maður er alveg hundinn af stærð grafík- mynda. Það er ekki hægt að hafa þær mjög stórar og mig langaði líka að hvíla mig svolítið og fara í annað efni. Ég geri grafík' í málm og nota saltpét- urssýru. Þetta er mikil nákvæmnis- vinna og það verður að gera hlutina rétt. Annars er maður kannski búinn að eyðileggja allt. Ef maður er að teikna strokar maður út með einu handbragði j)að sem maður er ekki sáttur við. Eg var eingöngu í grafík til 1988 ef frá eru skilin nokkur ár þegar ég var að mála. Það var skömmu eftir að ég lauk námi.“ í námi með fimm syni Námið hóf Ragnheiður í Myndlista- skólanum í Reykjavík 1959 og var þar til 1961. Síðan var hún eitt ár á Glyptotekinu í Kaupmannahöfn. Þegar hún kom heim starfaði hún eitt ár hjá Gliti og skreytti keramik. Síðan tóku við fleiri námskeið í Myndlistaskólanum. Hún byrjaði í graflk í Myndlista- og handíðaskól- anum á árunum 1968 til 1970. Að sögn Ragnheiðar sótti hún skóla á kvöldin því hún hafði nóg að gera við að sinna fimm sonum á daginn. Sumarið 1970 brá hún sér til París- ar til að nema hjá Hayter í Atelier 17 sem var frægur myndlistarmaður. „Hann hafði fundið eigin aöferö við að setja lit í graök. Þetta form höfð- aði svo sterkt til mín að þama varð vendipunktur hjá mér. Ég komst þama í kynni við það sem var að gerast á alþjóðlegum vettvangi og frétti af ýmsum ráðgerðum sýning- um. Ári seinna sendi ég verk á sýn- ingu í Suður-Frakklandi. Eftir það fékk ég alltaf boð um að senda verk á alþjóðlegar grafíksýningar." Sex alþjóðleg verðlaun Fjórum ámm seinna hlaut Ragn- heiöur fyrstu alþjóðlegu verölaunin af þeim sex sem hún hefur fengið. „Ég fékk viðurkenningu í Póllandi en frétti reyndar ekki af henni fyrr en tíu árum seinna. Það var 1984. Þá átti að sýna verk þeirra sem lilotið höfðu verðlaun síðustu tíu árin.“ Auk viðurkenningarinnar í Pól- landi hefur Ragnheiður í tvígang hlotið viðurkenningu fyrir grafík- myndir á stórum alþjóðlegum sýn- ingum í Þýskalandi og Noregi og einu sinni á Spáni. Síðustu viðurkenning- una hlaut hún 1989. Verk eftir Ragn- heiði em í opinberri eigu víða í Evr- ópu. „Þetta hefur verið mjög hvefj- ~ andi og sérstaklega af því að viður- kenningarnar hafa komið á svo löngu tímabili." Margir myndlistar- menn í ættinni Aðspurð hvort hún sé komin af listafólki segir Ragnheiður marga myndlistarmenn vera í Tungufells- ætt sem hún er af. „Ég get nefnt Ein- ar Jónsson, Jóhann Briem, Mugg, Hörð Ágústsson, Flóka, Eirík Smith og Nínu Tryggvadóttur. Afi minn og Ásgrímur Jónsson voru systrasyn- ir.“ Einn sona Ragnheiðar, Jón Ósk- ar, er einnig þekktur myndlistar- maður. Ragnheiður segir það hafa verið erfíðara fyrir listamenn að selja verk að undanfórnu en áður. Það þýði þó ekkert annað en halda áfram að vinna og safna verkum fyrir sýning- ar. Núna er Ragnheiður að undirbúa opnun sýningar á Akureyri í næstu viku. Á fyrstu árum Grafíkfélagsins á íslandi voru um tíu manns í félag- inu. Nú eru félagsmenn á milh 40 og 50. Það eru margir sem slást um at- hygjina. „Þaö er alltaf að koma nýtt fólk sem er vel menntað. Við eigum marga góða listamenn en deyfðin í þjóðfé- laginu kemur niður á þeim. Það er sárt að fólk skuh ekki fá möguleika þegar það er búið að mennta sig í mörg ár í dýrum skólum." Caput-hópurinn, menningarverðlaunahafi DV í tónlist: Viðurkenning til ný- sköpunar í tónlist Samstarf Caput-hópsins við innlend og erlend tónskáld hefur stuðlað að tiiurð fjölda nýrra tónverka. Guðni Franzson og Kolbeinn Bjarnason, stofnendur Caput-hópsins. DV-mynd Brynjar Gauti „Við lítum á þetta sem viður- kenningu th nýsköpunar í tónhst. Markmið Caput-hópsins hefur ver- ið að skila því til fólks að nútíma- tónlist sé áheyrileg en ekki bara hávaði eins og margir hafa haldið. Við gleðjumst fyrir hönd allra aðha og okkur finnst þetta mikill heið- ur,“ segja tónlistarmennirnir Guðni Franzson og Kolbeinn Bjarnason. Þeir eru stofnendur Caput-hópsins sem hlýtur menn- ingarverðlaun DV fyrir tónhst. „Caput var formlega stofnað 1987 en þá undir nafninu Nýi músíkhóp- urinn. Við settumst niður á veit- ingastað í gamla bænum og spjöh- uðum um heima og geima. Báðir höfðum viö verið að þreifa okkur áfram í nýju músíkinni. Okkur fannst að þörf væri á samstilltum hópi sem sinnti eingöngu nýjum verkum," segja þeir Guðni og Kol- beinn. „Það fjölgaði svo smátt og smátt í hópnum og núna eru tónhstar- mennimir rúmlega tuttugu. Þetta var í fyrstu fólk sem var að læra á svipuðum tíma og hittist í jólafríum og sumarfríum og á öðrum tímum þegar færi gafst og æfði prógrömm. Framan af voru konsertamir þrír th fjórir á ári. Við hittumst einnig oft erlendis. Það var stundum auð- veldara þegar margir voru þar,“ bæta þeir við. Forvitnilegt nafn Nafnið á hópnum vekur forvitni. „Caput er latneskt orð og þýðir höfuð. Það hefur einnig verið notað um það sem stendur upp úr og það sem er farið á hausinn. Orðið er líka notað í tónfræði. Þetta er nafn sem enginn gleymir og sérstaklega ekki í samhenginu að fara á haus- inn. En stundum hefur nafnið þvælst fyrir okkur og þá sérstak- lega þegar við höfum verið að biðja peningamenn um styrki. Það er eins og það fari af stað einhver neikvæður sálrænn prósess þegar þeir heyra orðið,“ útskýrir Kol- beinn. Árið 1989 lék hópurinn verk eftir ítalska tónskáldið Piedro Borra- dori á tónleikum. Hann heyrði upp- töku af verkinu og hreifst mjög. Borradori fékk leyfi th að gefa upp- tökuna út á geislaplötu og upp frá því jókst samstarf Caput-hópsins við ítölsk tónskáld. Um hefur verið að ræða bæði upptökur og tónleika- hald. Samstarfiö við skandinavísk tónskáld hefur einnig aukist mikið. „Þaö má kannski segja að þetta hafí byggst svolítið mikið í kring- um okkar kynslóð af tónskáldum. Þegar menn hittast á árlegum mót- um fyrir ung tónskáld og flytjendur myndast alls konar persónuleg tengsl sem haldast,“ tekur Guðni fram. Ólaunað starf Starfið í hópnum er ekki launað heldur hefur hópurinn fengið styrki öðru hveiju sem hafa staðið undir kostnaði. „Auðvitað dreymir okkur um aö hægt verði að hafa eitthvert lifibrauð af þessu. Hingað th hefur maður reynt að gera eins vel og unnt hefur verið en ekki getað sinnt þessu í fuhu starfi," segir Guðni. Kolbeinn bætir því við að báðir séu þeir tónlistarkennarar jafn- fram því sem þeir séu að reyna að vera einleikarar, eins og hann orð- ar það. „Það þýðir 4 til 6 klukku- stunda æfingar á dag. Og svo taka við æfingar með Caput-hópnum. Það er helst undir miðnætti sem við Guðni getum th dæmis hist til að ræða nauðsynleg málefni." Þeir leggja áherslu á að Caput- hópurinn sé samstillt afl margra aðha sem vhja skapa grundvöh fyr- ir flutning á nýrri tónhst. Freta og prumpa út í loftið „Tónskáld geta náttúrlega skrif- að verk sín endalaust á pappír en ef enginn er th að flytja þau sóma- samlega verður ekki mikið úr þeim. í lok níunda áratugarins var komin brennandi þörf fyrir vand- aðri flutning á nýrri tónhst. Það verður svo hvetjandi fyrir tón- skáldin að heyra sín verk þokka- lega vel flutt. Sú míta að nútíma- músík sé bara einhver skarkali og óhljóð er að hverfa í dag og ég held að það sé ekki síst fyrir thstihi vandaðs flutnings. Maður kemst ekki upp með það í dag að vera að þykjast spha nútímatónlist og bara freta og prumpa út í loftið,“ segir Guðni. Núna er hópurinn að vinna að plötu fyrir Tónverkamiðstöðina með íslenskum verkum og fyrr í vetur var hópurinn á ferðalagi víða um Evrópu. Viðbrögðin voru frá- bær og í kíölfarið fylgdu 'beiðnir um ýmsar upptökur. í mars heldur hópurinn í tónleikaferð th Spánar og væntanlega verður farið th Dan- merkur síðar í vor. Þeir Guðni og Kolbeinn segja í raun marga hugmyndasmiði á bak við Caput-hópinn. Hópurinn leiti th tónskálda eftir hugmyndum um verk og samsetningu á prógrömm- um. Þannig mætist kraftar bæði tónskálda og flytjenda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.