Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1995, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995 41 Meiming Hraði og kraftur Þaö er einkennileg tilfinning að sitja á leiksýningu og skilja ekki orö af því sem sagt er, hvað þá að ætla sér þá dul að fara að skrifa um þá lífsreynslu. Og þó. Sýning stúdentaleikhússins í Helsinki og hljómsveit- arinnar Pylsu Balkanskaga er nefnilega engin venjuieg hefðbundin leiksýning heldur byggist mikið upp á hreyfingu, dansi, söng og leikjum. Hraði og kraftur einkenna dansatriðin sem grund- vaRast á annarri hefð en við eigum helst að venjast. Höfundamir nota austur-evrópska alþýðudansa sem grunn aö mörgum atriðanna og eldfjörug tónlistin ein- kennist af þeirri kennd að hver dagur og hver dans sé hinn síðasti. Frásagnarefnið í sýningunni virðist í fyrstu vera okkur fjarlægt en þar segir frá bændauppreisn í Úkra- ínu um 1920. Ungur anarkisti, Nestor Makhno, er í forystuhlutverki og hann dreymir um betra líf fyrir bænduma. Engin fóm er of stór ef það markmið næst. Inn í söguþráðinn fléttast frásagnir af átökum bylt- ingarmanna sem takast á innbyrðis og koma þar ýmis þekkt nöfn við sögu. Byltingin étur bömin sín í þessari frásögn og áhorf- andinn skynjar vel örvæntingu þeirra sem sjá hugsjón- ir sínar verða að engu. Framsetningin er í aðra rönd- ina kómísk og sum atriðin sprenghlægileg þó aö fjallað sé um dauðans alvarlega hluti. Hreyfingar í dansinum em stórar og grófar og mik- ill slagkraftur í flutningnum. Þrek leikendanna var með ólíkindum í mörgum, löngum og hröðum atriðum og samhæfingin mjög góð. Textinn byggist aö verulegu leyti á lestri ljóða eftir þekkta höfunda og pólitískum ræðum sem fluttar em af miklum eldmóði. Stíllinn á sýningunni, leikmáti og Leiklist Auður Eydal uppsetning einstakra atriða minnir á verk annarra leikstjóra sem hingað hafa komið að undanfomu frá Finnlandi og nálægum löndum þó að hver sýning sé auðvitað einstök. Svipbrigöi leikendanna, áherslur i flutningi og vel að merkja ítarlegur skýringartexti hjálpuðu mállaus- um áhorfendum til að skynja það sem sagt var og kvöldstundin í leikhúsi Frú Emilíu var mjög eftir- minnileg. Finnskur gestaleikur i leikhúsi Frú Emilíu: MAKHNOVITSHINA Höfundur og leikstjóri: Esa Kirkkopelto Leiksvið og búningar: Katariina Kirjavainen Tónlist: Marko Rantanen Danshöfundar: Minna Leino, Irene Aho Lýsing: Janne Björklöf, Keijo Kaakinen Hollt og gott í Sjónvarpinu: Paprikur og hvítar baunir Sjónvarpið hefur hafið sýningu á nýstárlegum matreiðsluþáttum sem heita Hollt og gott og em þeir á dag- skrá á þriðjudögum kl. 19.00 og endur- sýndir á sunnudögum kl. 16.45. Það er Sigmar B. Hauksson sem hefur umsjón með þáttunum en matreiðslumenn em Leifur Kolbeinsson og Ómar Strange. í næsta þætti, sem verður á þriðjudags- kvöld, verður boðið upp á fylltar pa- prikur og ofnbakaðar hvítar baunir með eplum og koma hér uppskriftimar að þeim réttum. Hollar og góðar paprikur 2 rauðar paprikur 4 vel þroskaðir tómatar 2 hvítlauksrif 8 ansjósur pipar úr kvöm 4 tsk. ólífuolía (extra virgin) Skerið paprikurnar eftir endilöngu og hreinsið fræ og kjarna úr þeim. Afhýðiö tómatana og grófsaxið þá niður. Skerið hvítlauksrifin í þunnar sneiöar og ansjósurnar í bita. Setjið tómatana í paprikuhelmingana og svo hvítlauk, ansjósur og um 1 tsk. af ólífuolíu í hvern paprikuhelming. Kryddið með svörtum pipar úr kvöm. Paprikurnar em svo bakaðar í 150 gráða heitum ofni í 45 minútur. Sigmar B. Hauksson ásamt Leifi Kolbeinssyni matreiðslumanni og Val- gerði Hildibrandsdóttur næringarráðgjafa. Ofnbakaðar hvítar baunir með eplum 225 g hvítar baunir 2 græn epli Zi msk. púðursykur Zi tsk. kanill 1 msk. rauðvínsedik 2 msk. smjör salt Sjóðið baunirnar, geymið soðið. Skræhð eplin og skerið í geira. Blandið vel saman baunum, epla- geirunum, púðursykri, kanil, víned- iki og smjöri. Þetta er sett í eldfast fat. Hellið 1 dl af baunasoðinu yfir réttinn og bakið hann svo í 175 gráöa heitum ofni í 35 til 40 mínútur. Ef rétturinn verður of þurr á meðan hann er í ofninum er aðeins meira af baunasoði hellt yfir hann. UrsHtakeppnln í handbottanum Byrjunarlið - markaskor - markvarsla (Víti ekki talin meö í markaskori) Ásgaröi mánudag 27.2 kl. 20 KA-húsi miövikud. 1.3. kl. 20 ? Ásgaröl föstudag 3.3. kl. 20 Konráö 75 Ingvar 222 Skúli 64 Jón 28 '- --- ' 'í'-' 'Hsv-" \ i Siguröur 93 Magnús 92 FIIlppov 113 Stíarnan Alfreö 31 Erlingur 30 Patrekur 117 Valdimar 82 Leó 22 Sigmar 287 Valur 47 DV Hlaðvarpinn HL4DVARPMÍ - aðalfundur Aðalfundur Vesturgötu 3 hf„ Hlaðvarpinn, verður haldinn mánudagskvöldið 6. mars. kl. 20 að Vesturgötu 3, bak- húsi, 1. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin UPPBOÐ Eftirtalið lausafé verður boðið upp að Hlíðarvegi 29, Kópavogi, laugardag- inn 4. mars 1995 kl. 13.30. Rafknúið afgreiðsluborð með færibandi, LEVIN kjötafgreiðsluborð (2 m að lengd), djúpfrystir og tveir ölkæliskápar frá Frostverkl. Greiðsla við hamarshögg. Ávísanir aðeins teknar gildar með samþykki gjald- kera. SÝSLUMAÐURINN i KÖPAV0GI Framsóknarflokkurinn í Reykjavík ræsir formlega kosningavélarnar meb hátíb í bæ!! í dag, laugardag, 25. febrúar í bækistöb okkar ab Hvefisgötu 33, kl. 15.00 Fólk í fyrírrúmi Finnur Ingólfsson Ólafur Ö. Haraldsson Amþrú&ur Karlsdóttir Vigdfs Hauksdóttir Þurí&ur Jónsdóttir Ingibjörg Davf&sdóttir Fjölbreytt dagskrá verbur ásamt veitingum. Meðal gesta verða: Halldór Ásgrímsson og allir frambjóbendur flokksins í Reykjavík. Laddi og Eiríkur Fjalar munu skemmta ungum og eldri. Silja Abalsteinsdóttir rithöfundur les úr bók sinni. Hljómsveitin Skárr'en ekkert, leikur fyrir gesti. Allir velkomnir Sérstakt barnahorn og margt fleira. Kosninganefiidin HVERFISGATA 33

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.