Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1995, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 1995
,9
Tveggja ára „friðartímabili“ ítölsku mafíunnar virðist lokið:
Dauðavélin er
komin á fullt
Selveiðarkljúfa
norskuríkis-
sfjórnina
Norska ríkisstjórnin er nú klof-
in vegna afstöðunnar til þess
hvort heimila beri veiöar á sel-
kópum að nýju. Utanríkisráð-
herrann vill ekki leyía veiðarnar
en sjávarútvegsráðherrann og
umhverfisráðherrann eru þeim
fylgjandi.
Andstæðingar selveiða óttast
neikvæöa umíjöllun um Noreg
og viöskiptabann í kjölfarið svo
og að ferðamenn hætti að sækja
landiö heim.
Þeir sem veiðamar stunda eru
aftur á móti ekki í nokkmm vafa
um að nytja eigi selastofninn.
Hann sé bæði endurnýjanleg auð-
lind og valdi þar að auki miklum
skaða á fiskistofnum.
Raymond Barre
býðursigekki
fram til forseta
Raymond
Barre, fyrrum
forsætisráð
herra Frakk-
lands. tilkynnti
í gær að hann
ætlaði ekki að
bjóða sig fram í
forsetakosning-
unum sem fram fara í landinu í
lok næsta mánaðar og í maí.
„Þar sem ekkí virðast vera að-
stæður til að fylgja eftir þeirri
stefnu sem ég tel nauðsynlega
fyrir Frakkland hef ég ákveðið
að bjóða mig ekki fram,“ sagöi
Barre sem nú er orðinn 70 ára.
Barre, sem er markaðshyggju-
maður, var forsætisráðherra á
árunum 1976 til 1981.
Talið er að ákvörðun Barres
verði vatn á myllu framboðs
Edouards Balladurs forsætisráð-
herra sem hefur átt mjög undir
högg að sækja að undanfórnu og
nýtur nú minni vinsælda en sam-
flokksxnaður hans, Jacques
Chirac, borgarstjóri Parísar.
Íslensktfrí-
merkjasafnfyrir
milljónir
Gísli Kiistjánsson, DV, Ósló:
Margverðlaunað íslenskt frí-
merkjasafh verður selt á uppboði
í Malmö í Svíþjóð í lok mánaöar-
ins. Sænskir sérfræðingar meta
safnið hátt og segja að fyrsta boð
verði aldrei undir einni milljón
íslenskra króna. Reiknað er með
mun hærra endanlegu verði.
Frímerkjasérfræðingur Dagens
Nyheter segir t.d. að verðmæt-
ustu merkin í safninu séu ein
igildi einnar milljónar íslenskra
króna. Mörg verðmæt frímerki
og söfn verða á uppboðinu sem
haldið verður þann 24. mars.
NTB, Reuter
Rannsóknarlögreglumenn á Ítalíu
segja „dauðavél" mafíunnar aftur
komna á fullt skrið eftir fjögur morð
á jafnmörgum klukkutímum í gær.
Síðastliðin tvö ár hefur frekar lítið
farið fyrir ógnarverkum mafiunnar.
Taliö er víst að mafían sé ábyrg
fyrir níu morðum frá 25. febrúar sl.
og fram til dagsins í dag. Öll hafa
morðin verið framin á Sikiley, sex í
höfuðborg eyjunnar, Palermo. Óttast
menn nú að morðunum eigi eftir að
fjölga á næstu dögum því greinilegt
sé að einhvers konar uppgjör sé í
gangi. Af þeim niu sem hafa fallið
eru tvö skyldmenni manna sem hafa
veitt lögreglunni upplýsingar um
starfsemi mafíunnar. Einn þessara
manna hefur nú misst 36 skyldmenni
síðan 1984 þegar hann gaf lögregl-
unni fyrst upplýsingar.
„Jafnvel þótt allt sé gert til að
tryggja öryggi ibúanna með miklum
lögregluaðgerðum líkist miðborgin
villta vestrinu," segir aðstoðarsak-
sóknarinn í Palermo.
Moröin í gær þykja bera öll merki
mafíumoröa. Frændi mafíuforingjaá
Sikiley var myrtur í miðborg Pal-
ermo í gær er tveir menn á mótor-
hjóli skutu hann niður og brunuðu
svo í burt á mikilli ferö. Kúlurnai-
voru ekki sparaðar. í hinu tilfelhnu
voru þrír menn drepnir er þeir komu
út af bar. Morðingjarnir keyrðu fram
hjá á bíl og skutu án afláts. Bæði til-
fellin þykja „klassísk“ mafíumorð.
Reuter
Dollarinn aldrei
veríð lægri
gagnvartjeninu
Gengi dollarans hélt áfram að falla
í gær. Staða hans gagnvart japönsku
jeni hefur ekki veriö jafn slæm frá
lokum heimsstyrjaldarinnar síðari
og einnig féll dollarinn gagnvart
þýsku marki, þrátt fyrir tilraunir
seðlabanka um heim allan til að
styrkja hann fyrir helgi.
Seðlabankar keyptu hins vegar
ekki dollara í gær til að styrkja hann
þar sem tilraunir þeirra fyrir helgi
mistókust. Eitt af því sem hefur þrýst
gengi dollarans niður, að sögn gjald-
eyrissala, er vaxandi trú þeirra á því
að bandaríski seðlabankinn muni
sætta sig við einhverja verðbólgu.
Reuter
Boutros-Ghalital-
arumvonáfé-
lagsmálaráð-
stefnuSÞ
Félagsmálaráðstefna Sameinuðu
þjóðanna var sett í Kaupmannahöfn
í gær og í opnunarræðu sinni sagði
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri SÞ, að væntanlegur
leiðtogafundur gæti leitt til nýrrar
alþjóðlegrar félagsmálasamþykktar
og orðið til aö auka von bæði þjóða
og einstaklinga.
„Menn verða að muna að 1,3 millj-
arðar manna búa við algjöra fátækt
og að 1,5 milljarðar manna hafa ekki
aðgang að lágmarks heilsugæslu,“
sagði Boutros-Ghali og lagði áherslu
á að konur yrðu mest fyrir barðinu
á fátæktinni.
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, var kjörinn
forseti ráðstefnunnar. Hann sagði í
ræðu sinni að lykilorð samkomunn-
arværisamstaða. Ritzau
Tiskuhúsin keppast þessa dagana við að sýna okkur haust- og vetrartisk-
una 1995 og segja sérfræðingar að þar sé marga fallega flíkina að sjá.
Ekki eru stúlkurnar sem sýna þær siðri, eins og hún Claudia okkar Schif-
fer, ofurfyrirsæta frá Þýskalandi, sem hér er i glæsilegum kvöldkjól frá
Erreuno. Símamynd Reuter
Fyrstir með leyfi samkvæmt
íslenskum lögum sem bifreiðasala
Erum langflottastir!
BÍLASALA GARÐARS
sími 611010
Bílamiðlun hf.
Útlönd
Tobinhétarað
takaESB-skipá
grálúðuveiðum
Brian Tobin,
sjávarútvegs-
ráðherra
Kanada, hótaði
því í gær að
fískiskip Evr-
ópusambands-
ins yrðu tekin
ogfærðtilhafn-
ar ef þau hætta ekki grálúðuveið-
um utan lögsögu Kanada.
Kanadamenn og Evrópusam-
bandið deila um grálúðukvótann
og hefur ESB lagt fram formleg
mótmæli við skertum kvóta sín-
um. ESB fær 3700 tonn en veiddi
50 þúsund tonn í fyrra.
„Ég get fullvissað ykkur um að
írá og með þriðjudeginum mun
Kanada stööva þessar ólöglegu
veiðar. Það gæti að sjálfsögöu
þýtt að skip yrðu færð til hafn-
ar,“ sagöi Tobin á fundi með
fréttamönnum í gær.
Reuter
9. leikvika 5. mars 1995
Nr. Lelkur:
Röðin
1. Sampdoria - Roma 1 --
2. Inter - Juventus -X -
3. Lazio - Fiorentina 1 - -
4. Torino - Parma --2
5. Cagliari - Bari 1 - -
6. Padova - Napoli 1 - -
7. Foggia - Cremonese --2
8. Brescia - Milan --2
9. Fid.Andria - Vicenza -X -
10. Salernitan - Cesena 1 --
11. Acireale - Ancona -X -
12. Ascoli - Palermo 1--
13. Verona - Cosenza --2
Heildarvinningsupphæð:
16 mffjyiónlr
Nr. Lelkur: Röðin
Nr. Lelkur:________________Rööln
1. Liverpool - Newcastle 1 - -
2. Notth For. - Tottenham -X -
3. Aston V. - Blackburn - -2
4. Leeds - Sheff. Wed --2
5. Wimbledon - QPR --2
6. Norwich - Man. City -X -
7. Man. Utd. - Ipswich 1 - -
8. Leicester - Everton -X -
9. Southamptn - Coventry -X -
10. Reading - Watford 1 - -
11. Barnsley - Oldham --2
12. Luton - Millwall -X -
13. Stoke-Derby -X-
Heildarvinningsupphæð:
117 mllljónlr
13 réttir^t.KWtcf.jii kr.
12 réttir
ÆSllcr.
11 réttirj
10 réttir I
5.360
1.300
kr.
kr.