Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1995, Qupperneq 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1995
Fréttir
Þorgeir vill ekki vera Þorgeirsson
Málf arsfasistar höfðu
af mér kosningaréttinn
- segir Þorgeir Þorgeirson sem kaus ekki og er enn upp á kant við kerfið
„Nafn mitt hefur verið ritskoðað.
Ég tel mig eiga rétt á að tjá hugsun
mína með því hvernig ég rita nafnið
mitt. Nafnið er hins vegar ritskoðað
og það líð ég ekki,“ segir Þorgeir
Þorgeirson rithöfundur sem enn á
ný er kominn upp á kant við kerfið
því hann neitar að skrifa fóðumafn
sitt í eignarfalli, Þorgeirsson, eins og
talið er rétt samkvæmt íslenskri
málhefð. Frá árinu 1985 hefur hann
kosið að rita föðumafn sitt Þorgeir-
son. Hann hefur tilkynnt þjóðskrá
að þannig skrifi hann föðurnafnið en
því fæst ekki breytt í þjóðskránni
vegna þess að það samræmist ekki
íslenskri inálhefð að mati manna-
Þorgeir Þorgeirson rithöfundur.
nafnanefndar. Árið 1990, ári áöur en
mannanafnalögin tóku gildi, haföi
Þorgeir hins vegar fengið vegabréf
hjá lögreglustjóra. Þar er hann skrif-
aður Þorgeirson.
Þegar Þorgeir mætti á kjörstað í
nýafstöðnum alþingiskosningum var
enginn Þorgeirson á kjörskránni, en
það nafn mátti þó greinilega lesa í
löglegu vegabréfi sem hann framvís-
aði til að fá atkvæðaseðil. í kjör-
skránni var bara að finna Þorgeirs-
son og það sætti Þorgeir sig ekki við
og kaus því ekki. Aðstoðarstúlka
bauð honum að strika bara yfir ann-
að s-ið en það þáði Þorgeir ekki enda
segir hann það ólöglegt að breyta
kjörskránni. „Þessir málfarsfasistar
höfðu af mér kosningaréttinn því ég
framvísaði löglegu vegabréfi með
mínu rétta nafhi.“
Þorgeir segir að mannanafnalögin
frá 1991 séu brot á stjómarskránni
og brot á Mannréttindasáttmála Evr-
ópu. Það hafi hann látið hlutlausa
aðila skoða. í lögunum sé ákvæði um
að nota skuh eignarfall í föðurnafni.
„í mínu tilfelli varðar það lífsskoðun
mína hvort ég nota eignarfall eða
stofnsamsetningu. Þessir öfgamenn
í mannanafnanefnd virðast hafa al-
gert einræöisvald um túlkun í þess-
um málum. Þetta er svona svipað og
hjá Khomeini á sínum tíma,“ segir
Þorgeir.
Þorgeir hefur vísað málinu til um-
boðsmanns Alþingis en máhð hefur
enn ekki fengið afgreiðslu þar.
- Af hverju viltu frekar skrifa föður-
nafnið þitt með einu essi?
„Ég tel að eignarfallið sé arfur frá
tímum þrælahalds þegar ein persóna
átti aðra. Ég vil breyta því en vil hins
vegar ekki eyðileggja nafnaheföina.
Þetta er rétt málfræði. Ég geri þetta
vegna sannfæringar minnar. Það er
óleyfileg niðurlæging aö neita mér
um þetta."
-Ari
Tannför sönnun í árásarmáli
- konan heyrði bein brotna er maðurinn sló höfði hennar ítrekað í jörðina
37 ára Reykvíkingur, Kristinn
Styrmisson, hefur verið dæmdur í 2
ára fangelsi fyrir tilraun til nauðgun-
ar og stórfellda líkamsárás við
Rauðavatn aðfaranótt sunnudagsins
10. júlí síðastliðins. Hann var jafn-
framt dæmdur til að greiöa fórnar-
lambinu 700 þúsund krónur í skaða-
bætur.
Vitni í málinu, íbúi í Seláshverfi,
kvaöst hafa séð umrædda konu koma
skríðandi yfir götuna við Rauðavatn
umrædda nótt. Þegar haft var tal af
henni sagði hún að kunningi manns-
ins síns heföi ráðist á sig og nauðgað
sér. Lögregla flutti hana á slysadeild.
Þar kom í Ijós að hún var með mikla
áverka - tvær sprungur í höfuðkúpu,
glóðarauga báðum megin auk áverka
í andliti, mar á úthmum og á baki
og flís hafði brotnað úr beini í ökla.
Fyrir dómi sagði konan að hún
hefði farið í bíltúr með manninum
um kvöldið að Rauðavatni. Maður-
inn hefði lagst ofan á sig en hún beð-
iö hann um að hætta. Síðan heföi
hann sest á maga hennar, haldið
höndum niðri og slegið hana í andlit-
ið og þá slegið höfði hennar ítrekað
í jörðina - hún sagðist hafa heyrt
bein í höfði sér brotna. Þá hefði hann
tekið um háls og hár hennar og sagt:
„ef þú liggur ekki kyrr, drep ég þig“.
Eftir þetta sagðist konan hafa slegið
til mannsins og sparkað og hún taldi
sig jafnframt hafa bitið manninn á
a.m.k. tveimur stöðum. Hún sagði
hann hafa komið fram vilja sínum.
Maðurinn neitaði að hafa ekið með
konunni að Rauðavatni og sagði
áverkana, sem tannlæknir staðfesti
að væru mjög líklega tannfór eftir
konuna, ýmist eftir að hann heföi
brennt sig á púströri eða rekið sig
utan í trjágreinar eða fall.
Þar sem ekki fundust fullnægjandi
sýni úr manninum á konunni sem
bentu til að um samfarir hefði verið
að ræða var ekki talið sannaö að
hann hefði komið fram vilja sínum.
Hins vegar var hann sakfelldur fyrir
tilraun til nauðgunar með hliðsjón
af áverkum á konunni og áverkun-
um á honum sjálfum, m.a. tannför-
um konunnar. Dómurinn sakfelldi
hann einnig fyrir stórfellda líkams-
árás. Konan fór fram á eina milljón
króna í skaðabætur en dómurinn
dæmdi manninn til að greiða henni
700 þúsund krónur.
Kristinn hefur hlotið 27 refsidóma
fyrir ýmis brot, aðallega skjalafals,
þjófnað, fjársvik og ölvunarakstur.
Refsingin taldist hæfileg 2 ára fang-
elsi en 16 daga gæsluvarðhald, sem
hann sætti vegna nauðgunarmáls-
ins, kemur til frádráttar.
-Ótt
Lögreglan handtók 16 manns
og feerði á lögreglustöðina eftir
háreysti íyrir utan hús við Lang-
holtsveg í Reykjavík snemma á
laugardagsmorgun.
Samkvæmi hafði verið í húsinu
um nóttina og haföi hópur fólks
safnast saman fyrir utan ibúðina
um hálfátta á laugardagsmorgun
í trássi við vilja húsráðanda. Lög-
regla var samstundis kvödd á
staðinn og ákvað að færa fólkiö í
fangaklefa.
Meðan lögreglan var að störf-
um náöi einn gestanna táragas-
brúsa af lögreglumanni og
sprautaði úr honum á tvo lög-
reglumenn og einn hinna handte-
knu.. Mönnunum varð ekki
meint af en fóru þó á slysadeild.
-GHS
Tíðindalaus stjórnarmyndun
Helstu fréttir sjónvarps og útvarps
yfir páskahátíðina voru þær að
segja frá því að ekkert væri að
frétta af stjórnarmyndun. Það var
ekki nema von. Veslings frétta-
mennimir héldu, eins og þjóðin
öll, að Alþýðuflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn stæðu í stjórnar-
myndunarviðræðum. Það héldu
kratarnir líka og Jón Baldvin sinnti
kínverska utanríkisráðherranum í
góðri trú um hann væri áfram ut-
anríkisráðherra. Og allir sögðu að
stjómarmyndunarviðræður heföu
farið vel af stað og menn væru að
ræða málin og ekkert var því til
fyrirstöðu að Sjálfstæðisflokkur og
Alþýðuílokkur héldu stjórnarsam-
starfinu áfram og gætu sameigin-
lega tekið á móti kínverskum utan-
ríkisráðherrum næstu fjögur árin.
En svo kom allt í einu í ljós í
gærdag að þessar stjómarmyndun-
arviðræður voru plat. Þær vora
alls ekki þær stjórnarmyndunar-
viðræður sem menn héldu aö færa
fram. Þaö voru allt aðrar sljómar-
myndunarviðræður sem áttu sér
stað, sem sé milli sjálfstæöismanna
og framsóknar, og þaö vora alvöru-
viðræðurnar sem fóru fram hjá
fjölmiðlum og fréttamönnum sem
höföu tekið feil á stjómarmyndun-
arviðræðum.
Þetta gátu menn auðvitað sagt sér
strax. Sjálfstæðisflokkurinn púkk-
ar ekki upp á flokka sem tapa og
Framsóknarflokkur púkkar ekki
upp á flokka sem era í stjórnarand-
stöðu. Framsóknarflokkurinn
hafði að vísu lofað að reyna að
mynda vinstri stjórn eftir kosning-
ar, en það var bara loforð og vinstri
flokkamir gátu sagt sér það strax
að Framsókn fer ekki að mynda
stjórn með vinstri flokkum þegar
hún getur myndað stjóm með
íhaldinu.
Hvers vegna ætti Sjálfstæðis-
flokkurinn að fara í stjórn með
krötum sem eru búnir að vera til
vandræða í heilt kjörtímabil og
vilja bara nota Sjálfstæðisflokkinn
til að halda áfram að skandalísera
í ríkisstjórn? Og hvers vegna ætti
Framsóknarflokkurinn að fara í
stjórn með Ólafi Ragnari og Jó-
hönnu og Jóni Baldvin þegar þessir
flokkar era allir ólmir í að komast
í stjóm með Davíð? Af hveiju ætti
Framsókn ekki að vilja fara í stjórn
með Davíð úr því hinir vilja fara í
stjórn með Davíð?
Þetta er heldur ekki spuming um
það hver vilji fara í stjóm með
Davíð heldur hvem Davíð vill taka
í stjórn með sér. Davíð vill ekki
kratana og hann vill ekki komm-
ana og Jóhanna vill ekki Davíð og
þegar Davíö kýs að starfa með
Framsókn, hví skyldi þá Framsókn
ekki vilja starfa með Davið?
Þetta er í rauninni eina stjórnin
sem hægt er að mynda hér með
góðu móti. Það gátu kjósendur sagt
sér sjálfir og í rauninni óþarfi að
halda kosningar til að flnna það
út að íhald og framsókn eru
stærstu flokkarnir og þeir eru þeir
einu sem geta myndað tveggja
flokka stjórn án þess að vera stöð-
ugt að rugla með minni flokka sem
era árangurslaust búnir að reyna
að vera nógu stórir til að starfa
með íhaldinu.
Davíð vill Halldór og Halldór vill
Davíð og þetta verður pottþétt
stjórn sem heldur öllu til haga,
hvort heldur það er kvótinn eða
landbúnaðarframleiðslan, og það
verður ekkert múður með Evrópu-
samband og það verður ekkert sem
hróflar við öruggum meirihluta
þessarar rikisstjórnar langt fram á
næstu öld.
Og það er ekki vegna þess að
þessir tveir flokkar séu að taka sér
völdin. Það var þjóðin og kjósendur
sem færðu flokkunum sigurinn og
atkvæðin og völdin á silfurfati af
því þjóðin vill aö þeir Davíð og
Halldór gangi í eina sæng. Þeir
hafa holdafarið til þess, þeir hafa
vinsældirnar til þess og þeir hafa
alla hina flokkana á móti sér til
þess að þetta takist. Satt að segja
er Dagfari alveg hissa á því að eng-
um skyldi hafa dottiö þetta fyrr í
hug.
Stjórnarmyndun Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar er svo sjálf-
sagt mál að þaö þóttu ekki fréttir
um hátíðarnar. Það er í rauninn
engin frétt að þeir sem mynda ekki
stjórn skuli hafa talað saman um
að mynda stjóm meðan Davíð var
að tala við Framsókn um að mynda
stjórn. Það gerðist ekkert um pásk-
ana í stjórnarmyndunarviðræðum
nema það smáræði eitt og sér að
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur ákváðu að mynda stjóm.
Það tók því varla að minnast á það.
Dagfari