Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1995, Side 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1995
Fréttir
Herraskór
Teg. 2694
Svart og brúnt
nubuk-leður
St. 39-46
Stolinn bfLl kom í leitimar ári eftir þjófnað:
Evans
svart rúskinn
St. 35-46
Kr. 2.990
Dakar
svart nubuk-
leður
St. 35-46
Kr. 3.495
Teg. 7218
Brúnt og
svart leður
St. 36-41
Kr. 5.510
Kr. 4.990
Glæsiskórinn
Glæsibæ, s. 812966
Póstsendum samdægurs
Skipt um verksmiðju
númer og bíllinn í sprautun
fyrrum eigandi haíði stolið bílnum
„Bíllinn hafði verið tekinn allur í
sundur og skipt um verksmiðjunúm-
er á honum. Það var maður sem var
að undirbúa að sprauta hann fyrir
austan fjall og hann veitti því at-
hygli að litanúmerið á bílnum stóðst
ekki og jafnframt fannst honum
verksmiðjunúmerinu undarlega
komiö fyrir,“ segir Ólafur Gunnars-
son, eigandi Lancer-bifreiðar sem
stolið var 1. maí 1994.
Bíll Ólafs fannst nýlega þegar mað-
ur sem var að vinna við bílinn veitti
því athygh sem fyrr er nefnt. Maður-
inn hringdi í Bifreiðaeftirlitið og fékk
upplýsingar um verksmiðjunúmerið
á bílnum. í ljós kom að það átti við
bíl sem hafði verið afskráður og enn
fremur fékk hann upplýsingar um
að bíl sömu tegundar hefði verið stol-
ið. Hafði hann samband við Rann-
sóknarlögreglu ríkisins, sem fór með
rannsókn málsins, og fékk grun sinn
staðfestan.
Ólafur grunaði alltaf fyrri eiganda
bílsins um þjófnaðinn, en hann hafði
nýverið keypt hann, og nú fyrir
skömmu fékk hann grun sinn stað-
festan. Hafði fyrrum eigandi stohð
bílnum við fjórða mann enda hafði
hann allan tímann lykil að bílnum.
Ólafur hefur nú fengið bílinn í sínar
hendur.
Guðmundur Guðmundsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins, sagði í sam-
tali við DV að hér væri ekki um
skipulagða glæpastarfsemi að ræða.
Hann mundi eftir öðru svipuðu til-
viki fyrir um hálfu ári og því væri
hér um tvö einangruð dæmi að ræða.
-PP
Olafur Gunnarsson við bílinn i gær. Eins og sjá má
er búið að búa hann undir sprautun. Á innfelldu mynd-
inni má sjá bílinn eins og hann leit út áður en honum
var stolið. DV-mynd ÞÖK
Sýslumaður neitaði sjúklingi um að kjósa innandyra á Borgarspítala:
Vildu flytja 75 ára lungnasjúkl
ing á milli húsa í hjólastól
Asta Steingrímsdóttir, á Borgar-
spítalanum. DV-mynd GVA
Séra Birgir Ásgeirsson:
Mjög
undrandi
„Ég er satt að segja mjög undrandi
á þessu. Mér finnst það undarlegt
fyrirkomulag að sjúkhngar skuli
ekki geta kosið fram á síðasta dag,“
segir séra Birgir Ásgeirsson, prestur
á Borgarspítalanum, vegna utan-
kjörstaðakosningar á spítalanum
sem stóð aðeins í einn dag; átta dög-
um fyrir kjördag.
-rt
treysti sér ekki og fékk ekki að kjósa
„Eg vildi svo sannarlega kjósa og
mér finnst þetta vera mikil skerðing
á mannréttindum. Ég veiktist eftir
að kjörstofunni hér á spítalanum var
lokað og átti því enga möguleika að
kjósa annars staðar en á spítalan-
um,“ segir Ásta Steingrímsdóttir, 75
ára gömul, sem hggur á Borgarspít-
alanum með lungnabólgu.
Ásta var lögð inn á spítalann
þriðjudaginn fyrir kosningar og ósk-
aði þá eftir því aö fá að kjósa þar
innandyra. Þrátt fyrir aö það gengi
maður undir manns hönd til að koma
því í kring fékk hún ekki að kjósa á
spítalanum. Á kosningadaginn var
henni boðið upp á hjólastól og að hún
yrði flutt í kjördeild úti í bæ.
„Ég er með lungnabólgu og rúm-
lega 38 stiga hita og ég treysti mér
ekki til þess að fara á milli húsa. Ég
var afskaplega óánægð með þetta en
mér er svo sem sama núna,“ segir
hún.
Sjúkhngum á Borgarspítalanum
var getlnn kostur á að kjósa á spítal-
anum þar til á fóstudeginum, viku
fyrir kosningar, þá var kjördeildinni
lokað.
„Þegar ákveðið var aö leggja mig
inn á þriðjudaginn í síðustu viku
sagði ég við heimilislækninn, meira
í gamni en í alvöru, að nú ætti ég
eftir að kjósa en það hlyti að vera
hægt að gera það á spítalanum. Það
var svo ekki hægt og ég veit um flelri
hérna sem lentu í því sama og fengu
ekki að kjósa. Það er greinilega ekki
gert ráð fyrir að fólk veikist í vik-
unni fyrir kosningar,“ segir Ásta.
Ekki tókst að ná í neinn sem máhð
snerti hjá Sýslumannsembættinu í
Reykjavík, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir. Hjá embættinu vísaði hver á
annan. -rt
er nú notaður við vinnu á svæðinu þar
sem fiotkviin, sem Akureyrarbær hefur keypt frá Litháen, verður, á athafnasvæði Slippstöðvarinnar Odda.
Geysilega miklu jarðefni verður ekið í burtu og á myndinni má í baksýn sjá sanddæluskipið Perlu sem vinnur
við dýpkun aðsiglingarinnar að flotkviarsvæðinu. DV-mynd gk
I SUMARBUSTAÐINN
GASOFNAR
Innrauður gasofn með þremur
hitaflötum og -stillingum.
Eldsneyti: Propan-flöskugas
Varmaorka: 1500/3000/4500 W
Gaseyðsla: 120-350 gr./kl'st.
Ytri mál: H=44 D=39 B=72 cm.
Frábært verð
1 3.990,- staðgr.
EINNIG RAFMAGNSÞILOFNAR
Á AFAR HAGSTÆÐU VERÐI.
ipomx
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420