Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Side 15
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1995 15 Nýir menn í stólana Ný ríkisstjórn fylgir sumarkom- unni. Trúlegt er þó að menn hafl hlakkað meira til sumarsins en nýju ríkisstjórnarinnar. Því er þó ekki að leyna að því fylgir alltaf nokkur spenna að sjá nýja menn í ráðherraembættum. Framsókn tekur nú sæti krata í ríkisstjóm undir forsæti Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðismenn breyta litlu, skipta þó sennilega Ólafi G. Einars- syni út fyrir Björn Bjarnason. Framsóknarmenn koma á ný í stjómarráðið eftir íjögurra ára hlé. Ráðherrar flokksins verða væntan- lega, auk flokksformannsins, Guð- mundur Bjamason, .Finnur Ing- ólfsson, Ingibjörg Pálmadóttir og Páll Pétursson. Erfitt í landbúnaói Þaö sem mesta athygli vekur varðandi skiptingu ráðuneyta em sögusagnir um að hvorugur flokk- urinn hafi viljað landbúnaðarráðu- neytið. Það hefur verið í höndum Sjálfstæðisflokksins en líklegast má teljá að Framsóknarflokkurinn fái það í sinn hlut og Páll Pétursson verði landbúnaöarráðherra. Ástæður þess aö menn vilja ekki landbúnaðarmálin eru að sögn staöa sauðfjárbænda. Staða þeirra mun vera hrikaleg og nýr ráðherra kemst ekki hjá því að taka á vanda þeirra. Margir heföu kosið að fá nýtt blóð í landbúnaðarmálin, neytenda- vænan ráðherra, en ólíklegt verður aö teljast að bóndinn Páll Péturs- son á Höllustöðum sé það nýja blóð. Þar verður varla mikÚ breyting frá forverum í starfi, Halldóri Blöndal og Steingrími J. Sigfússyni. Þeir fengu báöir á sig nokkurn „fram- sóknarstimpil“ í embætti landbún- aðarráðherra. Meðan kratar og sjálfstæðismenn ræddu endurnýjun stjómarsam- starfsins eftir kosningar gantaðist Jón Baldvin með það að óskastarfið væri starf landbúnaðarráöherrans. Þaö fór fyrir brjóstið á mörgum. Víst má þó telja að þar hefðu kom- ið inn önnur og ný sjónarmið og brýnt er að taka á málefnum land- búnaðarins. Það hefur verið sýnt fram á það árum saman, jafnvel áratugum saman að skattgreiðend- ur greiða hérlenda landbúnaðar- stefnu dým verði. Fleiri vilja en Páll Þegar þetta er skrifað á fostudegi er þó ekki frágengið að Páll Péturs- son verði landbúnaðarráðherra. í Alþýðublaðinu í fyrradag gerir Guðni Ágústsson, þingmaður Framsóknarflokksins á Suður- landi, stífar kröfur um ráðherra- embætti í hinni nýju ríkisstjórn og nefnir meðal annars landbúnaðar- ráðuneytið. „Það eru ýmsir sem hafa það í huga að ég fái ráðherra- stól og ég held að það hljóti að geta orðið. Þaö væri gott að fá félags- máhn eða landbúnaðarmálin í sinn hlut,“ sagði Guðni í Alþýðublaðinu. Kratablaðinu leiðist ekki að senda vinum sínum í Framsóknarflokkn- um kveðjur og um leið að skapa nokkum óróa meðal þeirra þing- manna sem ganga með ráðherrann í maganum. I áðurnefndri frétt seg- ir m.a.: „Af samtölum við fram- sóknarmenn má hins vegar ráða að þeim óar við þeirri tphugsun að Páh verði ráðherra. „Ég veit svei mér ekki hvaða ráðuneyti það væri sem Páll Pétursson ætti að stýra. Það þýðir ekkert að setja hann í landbúnaðarráðuneytið því þar þarf virkilega að taka til hendi og grípa til ýmissa ráðstafana sem snerta bændur misvel. Þá er hætt viö að það félh ekki í kramið hjá neytendum að Páll færi með land- búnaðarmálin,“ sagði áhrifamaður í Framsóknarflokknum í samtah við blaðið. Annar tók svo til orða að það spfllti hinni nýju ímynd Framsóknarflokksins ef Páll á Höllustöðum yröi einn af ráðherr- um flokksins." Hin nýja ímynd Hin nýja ímynd Framsóknar- flokksins er brothætt. í nýafstöðn- um kosningum kom flokkurinn vel út í stóru þéttbýliskjördæmunum Reykjavík og Reykjanesi. Flokkur- inn bætti við sig manni í báðum kjördæmunum auk þess sem ung kona, Siv Friðleifsdóttir, leiddi í Reykjaneskjördæmi. Þá fór Ingi- björg Pálmadóttir fyrir Usta Fram- sóknarflokksins á Vesturlandi. Nýir menn bættust í þingflokk Framsóknarflokksins og flokknum Laugardagspistill Jónas Haraldsson fréttastjóri stýrir nýr formaður. Að þessu sam- anlögðu varð svipur Framsóknar- flokksins allur hressari. Fram- sóknarkonur gagnrýndu flokks- bræður sína harkalega fyrir nokkru og töldu að konur ættu erf- itt uppdráttar í flokknum. Sú staða hefur batnað verulega og á því græddi flokkurinn í þingkosning- unum. Alþýðublaðið, sem situr með sína menn í stjórnarandstöðu næsta kjörtímabil, sendir framsóknar- mönnum víðar kveðjur en í land- búnaðaramálunum. Það stefnir saman Siv, hinum nýja leiötoga á Reykjanesi, gegn fulltrúa gamla tímans í flokknum, Páli Péturs- syni. Blaðið talar um sterka kröfu um að Siv fái ráðherraembætti í stað Páls og enn vitnar blaðið í áhrifamann í Framsóknarflokkn- um: „Það er sterk krafa framsókn- armanna á Reykjanesi og raunar víöar að Siv Friðleifsdóttir fái ráð- herrastól. Fyrir utan það aö vera mjög hæf vann hún mikinn sigur í kosningunum og auk þess er okk- ur nauðsynlegt að halda þessari nýju ímynd flokksins á lofti.“ Haft er eftir ónefndum þingmanni Framsóknarflokksins í blaðinu að: ...það þyrfti að staðfesta að Framsóknarflokkurinn væri ekki lengur dreiíbýlisflokkur heldur væri hann búinn að ná fótfestu í Reykjavík og á Reykjanesi. Sú stað- festing fengist ekki með því að gera Pál Pétursson að ráðherra. Hann væri ekki fulltrúi hins nýja Fram- sóknarflokks og hans tími væri einfaldlega liðinn. Nú væri í raun tekist á um það hvort Framsóknar- flokkurinn væri áfram dreifbýlis- flokkur eða flokkur sem sækti styrk sinn í þéttbýlið.“ Menn hafa borið við reynsluleysi Sivjar sem nú kemur ný inn á þing. Því má hins vegar ekki gleyma að aðrir ágætir menn hafa farið beint í ráðherrastóla, nýhðar á þingi. Af þeim sem slíkt hafa gert síðustu ár má nefna Jón Sigurðsson, Guð- mund Árna Stefánsson, Össur Skarphéðinsson, sem varð ráð- herra á sínu fyrsta kjörtímabili, og síðast en ekki síst sjálfan forsætis- ráðherrann, Davíð Oddsson. Konur í skugganum En ræði menn vel heppnaða end- urnýjun Framsóknarflokksins og aukin áhrif kvenna í þeim flokki verður það varla sagt um sam- starfsflokkinn, Sjálfstæðisflokk- inn. Þar eru ágætir menn í þing- flokki en kon'ur sitja mjög í skugg- anum. í allri þeirri umræðu sem verið hefur um væntanlega ríkis- stjórn hefur varla verið á það minnst að kona komist í ráðherra- stól á vegum flokksins og engin kona sat fyrir hönd flokksins í frá- farandi ríkisstjórn. Þessu veldur að konur í Sjálfstæðisflokknum hafa ekki náð efst á lista flokksins í hinum einstöku kjördæmum. Það var að vísu fagnaðarefni aö kona komst á þing fyrir Sjálfstæðisflokk- inn í öðru sæti á lista flokksins á Austurlandi. En betur má ef duga skal. Það er til vansæmdar fyrir forystuflokk islenskra stjórnmála hve konur komast lítt áleiðis. Eng- inn efi er á að mikið er af frambæri- legum konum innan flokksins. Þær þurfa tækifæri. Þetta geta raunar fleiri flokkar tekið til sín nema Þjóðvaki. Þar eru konur í meirihluta, þrjár af fjórum þingmönnum flokksins. Kvenna- listinn er í lægð en kom þó þremur konum á þing eftir að hafa verið úti í heild um hríð, svo sem frægt varð á kosninganótt. Menn hafa spurt sig að því hvort hlutverki Kvennalistans sé lokiö í íslenskri póhtík. Enginn efi er á því að konur þar hafa haft áhrif á baráttumál annarra flokka og er það vel. Það verður þó tæpast annaö sagt en Kvennahstinn eigi enn erindi í stjórnmálum meðan konur á Al- þingi eru aðeins 16 af 63 þingmönn- um. Ný ríkisstjórn tekur við völdum um eða eftir helgina. Henni fylgja árnaöaróskir um farsæld í störfum. Bjartsýni manna hefur heldur ver- ið að aukast eftir langvarandi kreppu. Við þurfum á þeirri bjart- sýni aö halda, ekki síst eftir langan og harðan vetur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.