Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Síða 21
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1995
21
Skák
Lausnir á skákþrautum
Páskaþrautimar komu úr ýmsum
áttum en flestar mætti nefna sígild-
ar. Eldri lesendur hafa e.t.v. kannast
viö tvær fyrstu sem eru fengnar úr
bæklingnum „Nokkur skákdæmi og
tafllok eptir Samuel Loyd og fleirl“
sem prentaöur var fyrir Taflfélag
Reykjavíkur í Flórens árið 1901.
Fyrsta staðan er einfold og var
ætluð til upphitunar:
1. Joseph Potter
Hvítur mátar í 2. leik.
Eftir 1. Rc8! Kxc8 2. Da8 er svartur
mát.
2. Theodore M. Brown
Hjálparmát í 2. leik.
Já, hjálparmát, sem byggist á því
að knýja andstæðinginn til þess að
máta. I texta með þrautinni í áður-
nefndum blöðungi segir: „Hvítt leik-
ur og neyöir svart til að máta í 2.
leik.“
Lausnarleikurinn er 1. Dd6 og
áfram teflist 1. - Ke3 2. Hb3+ Bxb3
mát, eða 1. - Kc3 2. Hf3+ Bxf3 mát.
3. W. Holzhausen
Hvítur leikur og mátar í 4. leik.
Þessi þraut er eftir þekktan þýskan
skákdæmakóng, samin árið 1908.
Stefið, sem lausnin byggist á, hefur
verið nefnt eftir höfundinum: 1. Hf8!
Hxf8 2. Rdl Haf5 3. Rf2 + Hxf2 4. Rg5
mát.
4. G. Sonntag
Hvítur leikur og vinnur.
Hér strandar 1. h8 = D dl = D 2.
He5+ á 2. - Bc5! en með því að snúa
leikjunum við nær hvítur óstöðvandi
kóngssókn: 1. He5+! dxe5 Ef nú 1. -
Bc5, þá 2. Hd5 og vinnur. 2. h8=D
dl=D 3. Dxe5+ Kb6 4. Db8+ Kc6 5.
Dc8+ Kb6 6. a5+! Kxa5 7. Dc7+ Ka6
8. Dc6+ Ka5 9. Db5 mát.
5. V. Halberstadt
Hvitur leikur og vinnur.
Þótt riddarar séu á borðinu vinnur
hvítur eins og hann væri að tefla
peðsendatafl. Þetta er lærdómsríkt,
enda einkennir riddaraendatöfl að
ekki er hægt að „vinna leiki“.
Hvítur þarf bersýnilega að nálgast
frelsingjann á c7 með kóngnum en
kemst ekki beinustu leið. Ef 1. Kb4?
Rd5+ og peðið fellur. Eða 1. Kb3
Kxf3 2. Kc2 Ke2! og svartur nær and-
spæninu og hvítur kemst ekk'ert
áleiðis.
Lausnin er 1. Kb2! Kxf3 2. Kcl! Kf4
eða 2. - Ke3? 3. Rc4+! og vinnur,
eða 2. - Ke2 3. Kc2 (andspænið!) Kf3
4. Kd3 o.s.frv.
3. Kc2! Hins vegar ekki 3. Kd2? Ke5!
með jafntefli. 3. - Kg5 4. Kd3 KfB 5.
Kd4 Ke6 6. Kc5
Og hvitur vinnur létt.
Umsjón
Jón L. Árnason
6. A. Gurvits
Hvítur leikur og vinnur.
Þessi þraut er samin árið 1930 eins
og fimmta þrautin og var ein af eftir-
lætisþrautum Mikhails Tals, fyrr-
verandi heimsmeistara.
Fyrsti leikurinn er 1. R6c7! sem
hótar 2. Bb6 mát. Eftir 1. - al = R+
■2. Kb2 virðist öllu lokið því að ef ridd-
arinn í hominu fellur vinnur hvítur
með þremur léttum mönnum gegn
biskup. En nú lumar svartur á
snjallri leið: 2. - Rb3! 3. Kxb3 Be3!
Ef nú 4. Bxe3 er svartur patt og
skákin jafntefli.
4. Bh2! Bgl! 5. Bf4! Be3 6. Rb6!!
Rúsínan í pylsuendanum. Ef 6. -
Bxb6 7. Bd2 mát; ef 6. - Bxf4 7. Rc4
mát og loks ef 6. - Kxb6 7. Rd5+ og
næst 8. Rxe3 og síðan mátar hvítur
með biskup og riddara.
Úrslitakeppni
svæðamótsins
Um helgina lýkur úrslitakeppni
Norðurlanda- og svæðamótsins þar
sem Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafs-
son, Jonathan Tisdall, Rune Djurhu-
us, Lars Bo Hansen og Pia Cramling
tefla um þriðja sætið sem gefur þátt-
tökurétt á millisvæðamóti.
Keppnin fer fram á Grand Hótel
Reykjavík, sem áður var Holiday
Inn, en þar eru frábærar aðstæður
jafnt fyrir keppendur sem áhorfend-
ur.
Samhliða mótinu fer fram einvígi
Margeirs Péturssonar og skákfor-
ritsins „Chessica“frá TASC sem er
fyrsta opinbera einvígi íslensks stór-
meistara og skákforrits. Chessica er
öflugt Windows-forrit, þægilegt í
notkun og gefur það öflugustu PC-
skákforritum ekkert eftir.
Sprint símakortafyrirtækið, eitt af
þremur stærstu íjarskiptafyrirtækj-
um Bandaríkjanna og samstarfsaðili
VISA í VISAPhone þjónustukerfinu,
kostar mótið ásamt Grand Hótel
Reykjavík. Ástæða er til að hvetja
áhorfendur til þess að koma og fylg-
ast með skemmtilegri keppni. Næst-
síðasta umferðin hefst í dag, laugar-
dag, kl. 16 og lokaumferðin á morgun
kl. 13.
AÐALFUNDUR
MG-félag íslands heldur aðalfund laugardaginn 29. apríl kl. 14.00
í Gerðubergi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Talmeinafræðingurinn Þóra Másdóttir talar um kynningarörðug-
leika. MG-félag íslands er félag sjúklinga með Myasthenia Gravis
(vöðvaslensfár) sjúkdóminn svo og þeirra sem vilja leggja málefn-
inu lið.
Mjúkir - leðurfóðraðir - leðurskór.
BREIÐIR OG NORMAL
Kr. 4.495
Útsölustaðir: Reykjavík, Skóstofan Össur, Glæsiskórinn Glæsibæ, Innrömmun og
hannyrðir, Þönglabakka 6. Kópavogur: Skóbúð Kópavogs. Hafnarfjörður: Skóhöllin.
Keflavík: Skóbúð Keflavíkur. Akranes: Betri búðin. Borgarnes: Skób. Borg. Isafjörð-
ur: Skóhornið. Sauðárkrókur: Kf. Skagfirðinga. Akureyri: Skóhúsið. Húsavík: Skó-
búð Húsavíkur. Egilstaðir: Krummafótur, Kf. Héraðsbúa. Neskaupstaður: Kf. Fram.
Höfn Hornafirði: KASK.
Qkuskóli
Islands
MEIRAPRÓF
AUKIN ÖKURÉTTINDI
Síðasta námskeið vetrarins fyrir aukin ökuréttindi
hefst þriðjudaginn 2. maí kl. 18.00.
Staðgreiðsluverð er kr. 77.000, auk prófgjalds
til umferðarráðs kr. 18.000
Innritun stendur yfir. Nánari upplýsingar eru gefnar
í síma 5683841
Ökuskóli íslands
Dugguvogi 2, 104 Reykjavík, sími 5683841