Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1995, Blaðsíða 42
50 LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1995 AfmæH Úlfur Hjörvar Úlfur Hjörvar rithöfundur, Eg- ekrogen 10 d, Hareskovby, DK-3500 Værlse, er sextugur í dag. Starfsferill Úlfur fæddist í Fjalakettinum við Aðalstræti í Reykjavík. Eftir fjöl- breytilegt nám starfaði hann í Al- þingi í nokkur ár og var eftir það blaðamaður um skeið en hefur líka stundað margháttuð störf önnur til sjósoglands. Hann hefur lagt stund á bók- menntaþýðingar um langt skeið og hefur m.a. þýtt mikið af ljóðum, tugi leikrita og fjölda skáldsagna eftir m.a. Henrik Nordbrandt, Edward Bond, Ernst Bruun Olsen, Sam Shephard, Wilham Heinesen, Knut Hamsun og Toni Morrison. Auk þess hefur hann skrifað smá- sögur og leikrit, og hlotið verðlaun fyrir hvoru tveggja, og ort ljóð og samið kvikmyndahandrit. Úlfur starfaði í Heimdahi, seinna í Félagi ungra þjóðvarnarmanna, í Æskulýðsfylkingunni (gömlu) og Sósíalistaflokkinn og var m.a. fram- kvæmdastjóri Æ.F.R. um skeið og ritstjóri Neista. Hann var ritari Al- þýðubandalagsins á ísafirði 1969-70, formaður fyrstu menningarnefndar Alþýðubandalagsins, fulltrúi þess í Menntamálaráði og í stjórn Bókaút- gáfu Menningarsjóðs 1987-91. Hann tók ötulan þátt í verkalýðsbarátt- unni á sjötta og sjöunda áratugnum, var starfsmaður á mörgum ASÍ- þingum, starfsmaður og erindreki Samtaka hernámsandstæðinga og framkvæmdastjóri um tíma. Hann var einn af útgefendum Forspils, starfaði með leikfélaginu Grímu, og var framkvæmdastjóri þess 1968-69, átti sæti í stjórn Rithöfundasam- bands íslands 1981-83, var upphafs- maður að stofnum Bókasambands- ins og fulltrúi RSÍ í fyrstu stjórn Þýðingarsjóðs. Fjölskylda Úlfurkvæntist21.8.1964, Helgu Hjörvar, f. 2.7.1943, framkvæmda- stjóra Norrænu leik- og dansnefnd- arinnar í Kaupmannahöfn. Hún er dóttir Helga Vigfússonar kennara og Marsibilar Bernharðsdóttur hús- móður. Börn Helgu og Úlfs eru Helgi, f. 9.6.1967, framkvæmdastjóri Blindrafélagsins; Rósa María, f. 28.9. 1980, nemi. Sonur Úlfs með Hjördísi Björk Hákonardóttur borgardómara er Hákon, f. 5.5.1976, nemi. Fjögur systkina Úlfs eru á lífi: Guðrún Kjarval, f. 1918, nú búsett á Jótlandi; Gunnar, f. 1919, viðskipta- fræðingur; Solveig, f. 1921, húsmóð- ir; Tryggvi, f. 1932, kerfisfræöingur. Látnir eru Þormóður, f. 1922, d. 1970, loftsiglingafræðingur; Egill, f. 1923, d. 1965, vélstjóri; Daði, f. 1928, d. 1954, fréttamaður hjá SÞ. Foreldrar Úlfs voru Helgi Hjörvar, f. 20.8.1888, d. 25.12.1965, rithöfund- ur, og k.h., Rósa (Daðadóttir) Hjör- var, f. 14.3.1892, d. 5.1.1977, hús- freyja. Ætt Á meðal margra hálfsystkina Helga, samfeðra, voru Pétur Hoff- mann, faðir Harðar, föður Sigurðar Péturs útvarpsmanns; Lárus, faðir Ármanns glímukappa, ogHaraldur, faðir Auðar Haralds rithöfundar. Helgi var Salómonsson, b. í Drápu- hlíð Sigurðssonar, b. í Miklholti Horna-Salómonssonar, skálds ogb. í Háhóli í Álftaneshreppi á Mýrum Bjarnasonar. Móðir Helga var Guð- rún Sigurðardóttir, b. í Drápuhlíð, Þórðarsonar, b. á Gríshóli. Móðir Guðrúnar var Guðrún Bjarnadóttir, b.íDrápuhlíð. Rósa var dóttir Daða, b. á Litla- Vatnshorni í Haukadal, Daðasonar, skálds og kennara á Bólstað, Magn- ússonar, hreppstjóra á Núpi í Haukadal, Arngrímssonar, hrepp- stjóra á Núpi, Amgrímssonar. Móð- ir Daða Daðasonar var Sigríður Er- lendsdóttir, Þórðarsonar, Skaga- Útfur Hjörvar. firði, en síðar að Kvennabrekku í Dölum Jónssonar, smiðs í Réttar- holti Óiafssonar. Móðir Rósu Hjörvar var Guðbjörg Sigríður Jóhannesdóttir, steinsmiðs í Kasthúsum í Reykjavík, Magnús- sonar, frá Torfastöðum í Núpsdal í Miðfirði. Móðir Guðbjargar var Ingibjörg Jensdóttir, beykis á Litlu- Háeyri, Ólafssonar. Móðir Ingi- bjargar var Gróa Gunnarsdóttir, hreppstjóra í Einarshöfn á Eyrar- bakka, Jónssonar, formanns og hreppstjóra á Stokkseyri, Eyjólfs- sonar. 100 ára: Sigrún R. Jónsdóttir Sigrún Ragnheiður Jónsdóttir, Reykholti, Brekkugötu 7, Hvamms- tanga, nú vistmaður á öldrunar- deild Sjúkrahússins á Hvamms- tanga, verður hundrað ára á morg- un. Starfsferiil Sigrún fæddist á Efra-Vatnshomi í Vestur-Húnavatnssýslu og ólst upp á Vatnshorni, Klömbrum í Vesturhópi og síðar á Vatnsnesi. Hún vann við hjúkmn í heima- húsum og við sauma, aðallega í Vestur-Húnavatnssýslu. Eftir stofnun hjónabands bjó hún alla tíð í Vestur-Húnavatnssýslu og lengst afáHvammstanga. Fjölskylda Sigrún giftist 1925 Birni Guð- mundi Björnssyni, f. 22.12.1882, d. 23.11.1961, b., trésmiði og kirkju- organleikara í Miðfirði og Hvammstanga. Foreldrar Björns voru Björn Guðmundsson, hús- maður á Búrfelli í Miðfirði, og k. h., Sesselja Sigurðardóttir, systir Ólafar frá Hlöðum. Börn Sigrúnar og Bjöms eru Jón- ína Þórey, f. 8.7.1930, húsmóðir í Reykjavík, gift Halldóri Sigurgeirs- syni lögfræðingi og eru börn þeirra Björn, Sigurgeir og Áslaug; Ragn- ar, f. 27.3.1926, tónlistarmaður í Reykjavík, kvæntur Sigrúnu Björnsdóttur leikara en dætur Ragnars eru Sigrún, Ólöf, Hrefna Hrönn, Guðríður og Birna. Systkini Sigrúnar: Þórunn, f. 10.1. 1897, gift Rósant Jónssyni á Akra- nesi; Sigurður, f. 1902, d. 1960, b. á Til hamingju með afmælió 23. apríl 90 ára 70 ára 50 ára Jón Haíldórsson, Kópavogsbraut 1, Kópavogi. 85 ára Kristján Sigurðsson, Austurgötu 8, Hofsósi. Helgi Simonarson, Kieppsvegi 136, Reykjavtk. Gunnar Þorbergsson, Skjólbraut 4, Köpavogi. Loftur Þprstcinsson, Álfheimum 58, Reykjavik. 60 ára 80 ára Fjóla Jónsdóttir, Skólastig 14A, Stykkishólmsbæ. 75 ára Auður Aspar, Skarðshlíð 12A, Akureyri. Ágústa Samúelsdöttir, Nönnustíg 12, Hafnarfiröi. Svavar Júlíusson, Álfaskeiðí 94, Hafnarfirði. Sigrún Sigurgeirsdóttir, Fjarðarstræti 4, ísahrði. Sigurbjörg Axelsdóttir, Hátúni 12, Vestmannaeyjum. Ágústa Erlendsdóttir, Birkiteigi 3, Keflavík. Pétur Már Jónsson, Langagerði 92, Reykjavik. Magnús Þorsteinsson, Hjallavegi 40, Reykjavik. Ingibjörg Jakobsdóttir, Kjarrvegi 9, Reykjavik. Soffía Stefánsdóttír, Grenimel 48, Reykjavík. Ásta Bjömsdóttir, Hafharbyggð 47, VopnaflrðL 40 ára Finnbogi Birgisson, Engjaseli 81, Reykjavík. Henry Már Ásgrímsson, Lækjarvegi 7, Þórshöfn. Jóna Kristín Ólafsdóttir Jóna Kristín Ólafsdóttir, húsmóðir og starfsstúlka við Sjúkrahúsið á Akranesi, til heimilis að Jörundar- holti 170, Akranesi, er sextug í dag. Starfsferill Jóna Kristín fæddist að Efra- Skaröi í Svínadal og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræðaprófi og lands- prófi við Héraðsskólann í Reykholti 1953. Auk húsmóðurstarfa stundaði Jóna Kristín fiskvinnslu og hefur unnið á Sjúkrahúsi Akraness frá 1985. Þá hefur hún séð um rekstur félagsheimilis um árabil og stundað ýmisfélagsstörf. Fjölskylda Eiginmaður Jónu Kristínar er Guðjón Þór Ólafsson, f. 2.7.1937, vélvirkjameistari. Þau hófu sambúð á ágúst 1956 en giftu sig 1.7.1961. Guðjón Þór er sonur Ólafs Bjarn- leifssonar og Brandísar Ámadóttur á Akranesi. Börn Jónu Kristínar og Guðjóns Þórs eru Ólafur Rúnar, f. 13.2.1955, vélvirkjameistari á Akranesi, kvæntur Hrafnhildi Geirsdóttur og eiga þau þrjú börn; Valur Þór, f. 11.2.1958, sjómaður á Akranesi, kvæntur Huldu B. Birgisdóttur og eiga þau fjögur þörn; Bryndís Ólöf, f. 16.8.1959, fiskvinnslukona á Akra- nesi, gift Júlíusi R. Ingólfssyni og eiga þau þrjú þörn; Smári Viöar, f. 17.9.1960, véltæknifræðingurá Akranesi, kvæntur Guðlaugu M. Sverrisdóttur og eiga þau tvö börn; Garðar Heimir, f. 18.4.1963, blaða- maður í Reykjavík, kvæntur Krist- ínu L. Hallbjörnsdóttur og eiga þau eitt bam; Hugrún Olga, f. 31.7.1964, skrifstofumaður á Akranesi, gift Haraldi Helgasyni og eiga þau tvö börn; Kristín Mjöll, f. 20.1.1973, nemi á Akranesi og á hún eitt barn. Systkini Jónu Kristínar eru Þor- gerður, f. 30.11.1930, húsmóðir á Grund í Vesturhópi; Ragnar, f. 1892, lést ungur. Foreldrar Sigrúnar: Jón Sigurðs- son, b. á Efra-Vatnshorni í Línakradal, og k. h., Ingibjörg Guð- mundsdóttir húsfreyja. Ætt Jón var sonur Sigurðar, b. og hreppstjóra á Kiömbram í Vestur- hópi, Sigurðssonar, b. á Grund á Álftanesi, Þorbergssonar. Móðir Jóns var Ragnhildur Snorradóttir, hreppstjóra á Klömbrum, Jónsson- ar, b. á Klömbram, Snorrasonar, prests á Hjaltastað, Bjömssonar. Móöir Jóns var Steinunn Sigurðar- dóttir, lögsagnara á Geitaskaröi, Einarssonar, biskups á Hólum, Þorsteinssonar. Móðir Ragnhildar var Árnadóttir, hreppstjóra á Klömbrum, Sigurðssonar, og k.h., Ragnhildar Sigfúsdóttur, systur Sigrún Ragnheiður Jónsdóttir. Sigfúsar Bergmanns, ættföður Bergmannsættarinnar. Ingibjörg var dóttir Guðmundar, b. í Kothvammi í Kirkjuhvamms- hreppi, Teitssonar, b. í Víðidals- tungu í Viðidal, Teitssonar. Móðir Guðmundar var Jóhanna Björns- dóttir, systir Guðmundar land- læknis. Móðir Ingibjargar var Mar- ía Halldórsdóttir. Sigrún ætlar aö taka á móti gest- um í Hvammstangakirkju á morg- un kl. 15.00. Þar munu aíkomendur Sigrúnar í þrjá ættliði halda henni og gestum hennar stutta tónleika. Karl Eyjólfsson Jóna Kristín Olafsdóttir. Akranesi; Sigríöur, f. 4.11.1932, hús- freyja að Sunnuhvoli í Bárðardal; Magnús, f. 14.3.1939, hrossa- og bleikjubóndi aö Efra-Skarði; Selma, f. 16.6.1940, húsfreyja að Neðra- Skarði. . Foreldrar Jónu Kristínar: Ólafur Magnússon, f. 14.3.1905, fyrrv. bóndi að Efra-Skarði, nú vistmaður á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi, og Hjörtína G. Jónsdóttir, f. 20.10. 1900, d. 6.1.1988, húsfreyja. Jóna Kristín er að heiman á af- mælisdaginn. Karl Eyjólfsson vélfræðingur, Þrastarlundi 18, Garðabæ, verður sextugur á mánudaginn. Starfsferill Karl fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaöi iðnnám í Hamri hf. 1954-57, lauk sveinsprófi og síðan prófi frá Vélskóla íslands 1960. Karl var vélstjóri á togurum Út- gerðarfélags Akureyringa nokkur ár, vann síðan hjá Mars hf. en hjá Hamri hf. 1965-91, lengst af sem verkstjóri. Hann starfar nú hjá 01- íufélaginu hf. Karl hefur átt heima íGarðabæfrál973. Fjölskylda Karl kvæntist 5.11.1961 Sigrúnu Einarsdóttur, f. 12.10.1936, húsmóð- ur. Hún er dóttir Einars G. Svein- bjömssonar, bifreiðastjóra í Reykja- vík, og Magneu Sigurðardóttur hús- móður. Börn Karls og Sigrúnar eru Ás- gerður Hulda Karlsdóttir, f. 31.10. 1965, húsmóðir í Grindavík, gift Óskari Jónssyni stýrimanni og eiga þau þrjú böm; Einar Guðmundur Karlsson, f. 16.7.1969, matsveinn í Ósló; Magnea Guðrún Karlsdóttir, f. 24.9.1974, húsmóöir á Eskifirði, gift SöM Sveinssyni vélstjóra. Systkini Karls eru Elín Björg Eyj- ólfsdóttir, f. 14.12.1936, húsmóðir á Akureyri; Einar Ómar Eyjólfsson, Karl Eyjólfsson. f. 14.8.1938, hárskerameistari í Reykjavík. Systur Karls, samfeðra, eru Ás- gerður Hulda Eyjólfsdóttir, f. 9.1. 1944, skrifstofustúlka og húsmóðir í Svíþjóð; Jónína Gunnhildur Eyjólfs- dóttir, f. 21.3.1945, húsmóðir á Alfta- nesi. Uppeldisbróðir Karls og sonur stjúpmóður Karls er Árni Vil- hjálmsson, f. 14.6.1937, rafvirkja- meistari á Húsavík. Foreldrar Karls voru Eyjólfur Júl- íus Einarsson, f. 16.7.1906, d. 18.8. 1986, vélstjóri í Reykjavík, og Ás- gerður Hulda Karlsdóttir, f. 13.9. 1910, d. 3.8.1940, húsmóðir. Karl tekur á móti gestum í Skút- unni í Hafnarfirði laugardaginn 22.4. kl. 19.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.