Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 6. MAl 1995 Fréttir DV Fjárfestingar útlendinga í íslensku atvinnulífi: Megum ekki láta gleypa okkur - segir Finnur Ingólfsson, iðnaöar- og viðskiptaráðherra, í DV-yfirheyrslu DV-mynd GVA Sverrir Hermannsson, banka- stjóri Landsbankans, segir þig flón i umræðunni um vaxtamál? Vext- irnir hækkuðu þrátt fyrir að þú teldir tilefni til vaxtalækkunar. Er ekki eitthvað til í þessu hjá Sverri? „Þrýstingur á vextina hafði verið að aukast, einkum af pólitískum ástæðum. Tilboðum í spariskírteini ríkissjóðs haföi ekki verið tekið um nokkurra vikna skeið. Markaður- inn vildi ekki viðurkenna þau. mörk sem ríkisstjómin setti. Nú hefur allri óvissu verið eytt enda hefur tekið við völdum traust ríkis- stjóm sem hefur einsett sér að taka á ríkisútgjöldunum. Þá eru verð- lagsáhrif kjarasamninganna minni en spáð hafði verið fyrir um. í ljósi þessa hafa skapast forsendur fyrir minni verðbólgu, stöðugleika í efnahagsmálum og almennum vaxtalækkunum. Annars finnst mér ummæh Sverris dæma sig sjálf. Hann hefur tamið sér þetta samskiptaform, hvort sem það er innan bankakerf- isins eða við stjórmálamenn. Þó Sverrir kalU mig flón læt ég mér það í léttu rúmi liggja. Almennt séð finnst mér þó að menn eigi að temja sér kurteisi." Kemur til álita að reka eða áminna Sverri Hermannsson fyrir ummæli sín um þig sem yfirmann bankamála? „Ég held að það sé margt annað en þessi tilteknu ummæli sem væru ámæUsverðari hjá Sverri. Annars er það svo að viðskiptaráð- herra hefur ekkert boðvald yfir bankastjórum viðskiptabankanna. Það eru bankaráðin sem fara með þetta vald.“ f viðtali við DV skömmu fyrir mánaðamótin sagðir þú að vaxta- hækkanir banka og sparisjóða yrðu i þinni óþökk. Reyndin varð sú að vextir hækkuðu. Má búast við handaflsaðgerðum af þinni hálfu í vaxtamálum? „Um handafisaðgerðir þýðir ekki að tala því markaðurinn hlýtur að ákvarða vextina. Hins vegar geta ríkisstjóm og Seðlabanki haft handleiöslu á þessu sem sterkir aðilar á þessum markaði, til dæmis meö aðgerðum í peningamálum og ríkisfjármálum. í þessum málum þarf að fara hinn guUna meðalveg og í þeim efnum þurfa bankarnir að gæta sín ekkert síður en stjórn- völd. Bankamir hafa veriö að setja gríðarlega fjármuni í afskriftir á undanförnum árum. Með því að leggja auknar álögur á fyrirtækin og heimihn í formi hærri vaxta verða þau verr í stakk búin til að greiða sínar skuldir." í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að stefnt skuli að því að breyta ríkisbönkunum í hlutafélög. Mun þetta.ná fram að ganga á kjörtíma- bilinu? „Já, en þetta er töluvert verk. Ég tel að það þurfi að hraða þessu. Það er ekki gott fyrir viðskiptavini bankanna eða starfsfólkið að um þetta ríki einhver óvissa. Á næstu vikum mun ég leita samstarfs við bankaráð þessara banka, ráðfæra mig við starfsmannafélög þeirra og eftir þvi sem hægt er ræða við stærstu viðskiptavinina. Innan bankanna er einnig hafinn undir- búningur að þessari breytingu, bæði í Búnaðarbankanum og Landsbankanum.“ Er þörf á Seðlabankanum? „Já, það er þörf á honum. Seðla- bankinn gegnir mjög mikilvægu hlutverki sem hagstjórnarstofnun þó það séu skiptar skoðanir um hversu sjálfstæður hann eigi að vera.“ Landsvirkjun hefur safnað gríð- arlegum skuldum á undanförnum árum. Hafa stjórnendur stofnunar- innar brugðist eða bera stjórnmála- mennirnir ábyrgðina? „Vandamál Landsvirkjunar stafa ekki af stjórnendum, starfsfólki eða pólitískum ákvörðunum. Stofnunin er vissulega skuldug vegna mikilla fjárfestinga á und- anfömum áratugum. Markaðurinn fyrir orkuna hefur látið á sér standa. Um leið og markaðsmálin glæöast mun afkoman batna og skuldirnar minnka. Ég er ekki ugg- andi yfir þessari stöðu takist okkur að ná stórum orkusölusamning- um.“ Blönduvirkjun hefur safnað ryki frá því hún var reist og mikil um- framorka er i rafveitukerfinu. Er útflutningur á raforku um sæ- streng kostur í stöðunni? „Um það þarf að móta pólitíska stefnu. Spurningin er hversu mik- ill virðisauki yrði eftir í landinu við slíka sölu. Aðalatriðið er að hagur okkar íslendinga af raforku- sölunni verði sem mestur." Ertu bjartsýnn á að samningar náist um stækkun álversins í Straumsvik? „Þessi mál eru í jákvæðum far- vegi.“ Halldór Blöndal hefur háft allt frumkvæði að því að hér á landi Yfirheyrsla Kristján Ari Arason verði hugsanlega reist sinkverk- smiðja. Munt þú sem iðnaðarráð- herra taka þetta mál yfir? „Spurningin stendur um það hvort hagkvæmt sé að reisa sink- verksmiðju hér á landi. Að hluta til tengist þetta landbúnaðaráðu- neytinu vegna'Áburðarverksmiðj- unnar. Ég sé enga ástæðu til að togast á um þetta mál. Aðalatriðið er að menn vinni saman að þessu.“ Ýmsir af forystumönnum iönað- arins hafa gagnrýnt að sjávarút- vegurinn búi við hagsstæðari sam- keppnisskilyrði þar sem hann þurfi ekki að borga fyrir aðföngin. Styð- ur þú framkomnar hugmyndir um veiðileyfagjald? „Nei, ég er ekki talsmaður þess aö það verði tekið upp veiðileyfa- gjald. Með auknum hagvexti er hætt við því að raungengið fari að hækka og það væru alvarleg tíðindi fyrir íslenskan iðnað. Ástæðan fyr- ir því að iðnaðurinn býr við þolan- legar aöstæður um þessar mundir er að raungengiö er í sögulegu lág- marki. Samkeppnishæfni iðnaðar- ins samanborið við sjávarútveginn myndi skekkjast mjög ef raungeng- iö hækkar. Vegna þessa hefur ríkis- stjórnin ákveðið að beita sér fyrir ákveðinni sveiflujöfnun. Markmið- ið er að halda því innbyrðis jafn- vægi sem ríkir milli atvinnugreina. Ég sé ekki veiöileyfagjald fyrir mér í þeim efnum.“ Sighvatur Björgvinsson beitti sér fyrir sértækum aðgerðum til að bjarga skipasmíðaiðnaðinum í landinu. Voru aðgerðir hans full- nægjandi að þínu mati? „Sighvatur gerði vel við skipaiðn- aðinn og það ber að þakka enda um mikilvæga atvinnugrein að ræða fyrir þjóðarbúið. Ég treysti mér hins vegar ekki til að leggja mat á það hvort nóg hafi verið að gert. Ég á eftir að kynna mér þau mál.“ Sighvatur lét gera úttekt á því í hversu miklum mæli útlendingar hefðu fjárfest í islenskum sjávarút- vegi með óbeinum hætti. Ætlar þú að aðhafast eitthvað í málinu? „Lögin um fjárfestingar erlendra aöila hér á landi verða tekin til at- hugunar. Við þurfum á þessum fjárfestingum að halda en í því sambandi þarf að taka sérstaklega á málefnum sjávarútvegsins. Til staðar er óbein íjárfesting útlend- inga í vinnslunni en það er alveg ljóst að það er ekki veriö að ræða um að opna fyrir fjárfestingar þeirra í veiðunum." í skýrslu Samkeppnisstofnunar er bent á óeðlilega blokkamyndun í islensku viðskiptalífi. Sem fram- sóknarmann er nærtækast að tengja þig við Smokkfisinn. Mun halla á Kolkrabbann í ráðherratíð þinni? „Ég mun ekki ganga erinda eins eða neins í þeim efnum. Hins vegar hef ég áhuga á að taka þessa skýrslu til mjög rækilegrar athug- unar. í þessari skýrslu er meðal annars talað um lífeyrissjóðina sem þriðja aflið. Ég tel mjög mikil- vægt að lífeyrissjóðimir taki þátt í atvinnulífmu. Það eru hagsmunir þeirra sem eiga sjóðina. En þá þarf líka aö auka lýöræðiö innan þeirra." í tíð síðustu ríkisstjórnar talaðir þú gegn hækkun skólagjalda og mótmæltir þeirri breytingu á námslánakerfinu þegar eftirá- greiðslur voru innleiddar. Mennta- málaráðherra hefur lýst þvi yfir að skólagjöld verði ekki afnumin og ekkert er fast í hendi varðandi LÍN. Munt þú kyngja fyrri yfirlýsingum? „Það er ekki komið aö því að ég þurfi að kyngja einu né neinu í þessum efnum. Ég lagði áherslu á að skólagjöld yrðu ekki hækkuð til að mæta rekstrarkostnaði skól- anna. Ég sé ekki fyrir mér að það muni gerast. Varðandi lánasjóðinn liggur fyrir að ráðist verði í endur- skoðpn á lögunum. Ég veit ekki betur en að menntamálaráðherrá sé farinn að undirbúa slíka endur- skoðun og ég er mjög ánægður með þaö. í þessu sambandi eru menn fyrst og fremst að horfa til breyt- inga varðandi eftirágreiðslur lána og endurgreiðslur. lyiér finnst þaö eðlilegt að samtímagreiðslur verði teknar upp og minni á að um það var mjög breið pólitísk samstaða fyrir kosningarnar." Ýmsir forkólfar atvinnulífsins vilja að ísland sæki um aðild að ESB. Útilokar þú aðildarumsókn? „Ég útiloka aðildarumsókn við þær aðstæður sem núna eru. Innan ríkisstjórnarinnar er pólitísk sam- staða um að tryggja hagsmuni okk- ar í samskiptum viö Evrópusam- bandið í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Báðir stjórnarflokkarnir vilja sjá hvað kemur út úr ríkjaráðstefnunni á næsta ári. í ljósi þess hvernig Evr- ópusambandið mun þróast í kjölf- ariö eigum við að meta stöðuna. Ég sé hins vegar ekki fyrir mér eitt- hvert nýtt Evrópusamband á þessu kjörtímabili, en þó gæti það gerst. Þá hljóta menn að taka það til end- urmats hvernig hagsmunum ís- lands sé best borgið." Eftir að kanadíska olíufélagið Ir- ving Oil tilkynnti áform sín um að hefja starfsemi á íslandi hafa inn- lendu olíufélögin gripið til róttækra aðgerða. Hvaða augum lítur þú þessa þróun? „Ég ht samstarf íslensku olíufé- laganna jákvæðum augum. Ég tel að hún muni leiða til lægra vöru- verðs fyrir neytendur og aukinnar hagræðingar. Samkeppnin verður til staðar þannig aö ég hef ekki áhyggjur af þessari þróun. En þó við sækjumst eftir því að erlendir aðilar fjárfesti hér á landi þá verð- um við að passa okkur á því að láta ekki gleypa okkur. Viö erum lítil þjóð og verðum að standa vörð um hagsmuni okkar í því ljósi.“ -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.