Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Side 8
8
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
Vísnaþáttur_________
Því skal syngja
um sumarfrið
Nú hefur Vetur konungur von-
andi kvatt og vorið í garð gengiö,
þó að enn megi við öllu búast af
veðurguðunum. í þessum þætti
mun ég fagna vori með nokkrum
vísum því tileinkuðum.
Sigurður Snorrason, bóndi á
Gilsbakka í Hvítársíöu, orti svo til
hörpu er flytur okkur vorið og
bjartar nætur:
Harpa rjóð og hýr á brá,
hjartans góða barniö,
kysstu landið klætt í snjá,
komdu að anda á hjarnið.
Guðmundur Böðvarsson kveður
svo í vísnaflokki er ber fyrirsögn-
ina „Tveir mansöngvar úr þeim
rímum er brenndar voru“. Er ann-
ar mansöngurinn hugleiðing um
afdrif og atlæti þjóðararfsins og
hinn seinni til skáldsins Sigurðar
Breiðfjörð. Ein vísa þessa flokks er
á þennan veg:
Lambafjöldi léttu spori
leikur um hlíðarbrjóstin væn.
Ó, þið kvöld á ungu vori,
ó, þú víðibrekkan græn.
Öll þekkjum við þýðleik og þekk-
legheit Þorsteins skálds Erlings-
sonar og margan óð orti hann til
sumars og sólar. Hér fylgir vísa
hans um bjartar nætur:
Ekki er margt, sem foldar frið
fegur skarta lætur
eða hjartað unir við
eins og bjartar nætur.
Svo er það að söngur fossanna
veröur allur gjörvari og tilkomu-
meiri að vori og er næsta vísa Þor-
steins til þeirra kveðin. Þorsteinn
var á sinni tíð mikill baráttumaöur
fyrir auknu sjálfstæði íslands er
við þrættum forðum við frændur
okkar Dani.. Víst er að fossaflóra
þeirra er ekki eins rík og vor sök-
um flatlendis þar um slóðir. Svo
kvað Þorsteinn um tungu fossanna:
Hárra fjalla frægðaróð
fossarnir mínir sungu.
Það hefu- enginn þeirra ljóð
þýtt á danska tungu.
Hjá Braga Björnssyni á Surts-
stöðum í Jökulsárhlíð gerði vor-
hugurinn svo vart við sig:
Skuggar styttast, skýrist ljós,
skapiö þróttlaust mýkir,
vinir hittast, vaknar rós,
vorið nóttlaust ríkir.
í þessari vísu birtist þrenningar-
trú Guðmundar skólaskálds Guð-
mundssonar:
Stutt er æfin, stundar bið
stendur oss til boða,
því skal syngja um sumarfrið
sól og morgunroða.
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Næsta vísa er eftir Jón Magnússon
Bláskógaskáld og hljóðar svo:
Þó að fjötri frerabönd
frón á köldu vori,
áttu græn og gróin lönd
geisla í hveiju spori.
Eftir Klettafjallaskáldið Stephan
G. Stephansson er þessi vísa:
Meðan ís í útlegð fer,
en auðir rísa hjallar.
Sólskins vísur syngja þér
sumar dísir allar.
Jón S. Bergmann kvað eitt sinn
á sumardaginn fyrsta þessar vísur:
Vorið ég að vini kýs,
verður nótt að degi,
þegar glóhærð geisladís
gengur norðurvegi.
Og einnig þessa:
Aldrei hefur betra á beð
brugðið nætur friði,
en að vera vakinn með
vori og fuglakliði.
Sigurður Breiðfjörð kveður svo
til sólar:
Sunna háa höfin á
hvítum stráir dreglum.
Veröld má sinn vænleik sjá
í vatna bláum speglum.
ISPÓ - Góður og ódýr kostur!
Ispó er samskeytalaust akrýlmúrkerfi.
Gerum tilboð í efni
og vinnu, þér að
kostnaðarlausu.
Múrklæðning hf.
Smiðsbúð 3-210 Garðabæ - sími 658826
Yfir600 hús
klædd á síðast-
liðnum 14árum.
5ára ábyrgð.
Matgæðingur vikunnar
Hakk í ofni og
apríkósuterta
Sigrún Ólafsdóttir, kennari í
Ölduselsskóla, er matgæðingur
vikunnar aö þessu sinni. Sigrún
býður upp á hakk í ofni, sem hún
segir góðan hversdagsrétt, og einn-
ig ljúffenga apríkósu-tertu.
„Grunnuppskriftina fékk ég frá
tengdamóður minni en ég hef
breytt henni svolítið. Þetta er upp-
skrift sem misheppnast aldrei,"
tekur Sigrún fram.
Hakk í ofni
600 g nautahakk
1 blómkálshöfuð (meðalstórt)
1 hvítlauksrif
1 laukur
30 g smjör
300 g ferskir sveppir
2 msk. matarölía
10 til 15 cherry tómatar
3 msk. chilisósa
3 msk. tómatsósa
krydd
Sósa
50 g smjör
8 msk. hveiti
mjólk
blómkálssoð
5 msk. rifinn ostur (sterkur)
Blómkáliö er brytjað í stóra geira
og soðnir í léttsöltuðu vatni í um
þaö bil 5 mínútur. Gæta þarf þess
Sigrún Ólafsdóttir.
að þeir mauksjóði ekki. Blómkál-
inu er síðan raðað í smurt eldfast
mót. Laukurinn er saxaður og
sveppirnir sneiddir. Þetta er hitað
í smjöri þar til það er orðið mjúkt.
Hakkið er brúnað í olíu og kryddað
með salti, nýmöluðum pipar og
öðru kryddi eftir smekk. Chilisósa
og tómatsósa settar saman við og
að síðustu laukur og sveppir. Látið
malla í smástund. Hakkið er sett
yfir blómkáhð. Tómatamir skornir
í tvennt og dreift yfir hakkið.
Sósan er bökuð upp og krydduð
með aromati og nýmöluðum pipar.
Osturinn settur saman við og sós-
unni er síðan hellt yfir. Bakað í
ofni í 25 til 30 mínútur við 180 til
200 gráður. Borið fram með nýbök-
uðu brauði eða bollum.
Apríkósuterta
4 egg
250 g sykur
250 g smjör
250 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanillusykur
1 lítil dós apríkósur
valhnetur
rifið súkkulaði
Eggjahvíturnar eru þeyttar og
settar til hliðar. Smjör og sykur er
þeytt saman og eggjarauðum bætt
út í. Hveiti og lyftiduft hrært út í
og eggjahvítunum síðan blandað
varlega saman við. Deigið látið í
tvö, frekar lítil lausbotna hring-
form eða eitt stórt. Apríkósunum
raðað í hring ofan á. Brytjuðum
hnetum og súkkulaði stráð yfir.
Bakað viö 180 til 200 gráöur í 40 til
45 mínútur. Tertan er borin fram
heit með þeyttum rjóma eða ís.
Sigrún skorar á Vigfús Aðal-
steinsson viðskiptafræðing að vera
næsti matgæðingur. „Hann er mik-
ill matmaður og sérstakur grill-
meistari," segir Sigrún.
Eftir helgina má fá uppskriftina í
Símatorgi DV. Símanúmerið er 99
17 00.
Hinhliðin
Ásbjöm mágur
uppáhaldssöngvarinn
- segir Aðalsteinn Aðalsteinsson hárgreiðslumeistari
Hárgreiðslumeistarinn Aðal-
steinn Aðalsteinsson hjá Kompaní-
inu sýnir á sér hina hliðina að
þessu sinni. Aðalsteinn hefur verið
í bransanum í tólf ár og segir starf-
ið verða skemmtilegra með hverju
árinu sem líður.
„Það er gaman að öllum nýjung-
um. Nú er mikið um litanir og stytt-
ur í hárinu og heimsóknir á hár-
greiðslustofur því tíðari en stund-
um áður. Mér finnst ríkja bjartsýni
í stéttinni þessa dagana,“ segir
Aðalsteinn.
Fullt nafn: Aðalsteinn Aðalsteins-
son.
Fæðingardagur og ár: 18. október
1964.
Maki: Sigríður Sturludóttir.
Börn: Harpa Dögg, 12 ára, Tinna, 7
ára, og Aðalsteinn Emil, 1 árs.
Bifreið: Subaru, árgerð ’88.
Starf: Hárgreiðslumeistari.
Laun: Góð.
Áhugamál: Vinnan er númer eitt
en ég á mörg áhugamál þar að auki
eins og til dæmis líkamsrækt og
veiðiskap.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Ég vinn alltaf en kaupi aldr-
ei miða.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að vinna við hárgreiðsluna.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að hanga og gera ekkert.
Uppáhaldsmatur: Flestur ítalskur
matur og sérstaklega grænmetisla-
sagne konunnar minnar.
Aðalsteinn Aðalsteinsson.
Uppáhaldsdrykkur: Mér fmnst
koníak ofboðslega gott.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Handboltalandshð-
ið.
Uppáhaldstímarit: Ég skoða mikið
tískublöð eins og Vogue og Hello.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Það eru
svo margar konur gullfallegar að
það er erfitt að taka afstööu.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Nokkuð hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Eg hitti svo marga að ég get
ekki ímyndaö mér neina sem ég
þarf að hitta aukalega.
Uppáhaldsleikari: Ingvar Sigurðs-
son.
Uppáhaldsleikkona: Bridget Fonda.
Uppáhaldssöngvari: Ásbjörn mág-
ur minn sem er dýpsti bassinn í
Fóstbræðrum.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð er minn maöur.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hómer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Tísku-
þættir og góðar bíómyndir.
Uppáhaldsveitingahús: Hótel Borg.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Ég les sjaldan.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég hlusta mest á X-ið í vinn-
unni.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Enginn
sérstakur. Ég vil helst ekki heyra
í þeim heldur bara í tónlistinni.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Þeir
eru allir ágætir.
Uppáhaldsskemmtistaður: Hótel
Borg.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Fram.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefni alltaf hærra.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég fer í fjölskylduferð til Mall-
orca í ágúst.