Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 6. MAI 1995
Skák
19
Anand beitt-
ur brögðum
Garrí Kasparov og Viswanathan
Anand munu tefla um heimsmeist-
aratitil PCA í haust. Margir telja að
Anand geti hugsanlega veitt ofur-
menninu Kasparov verðuga keppni
og jafnvel haft betur ef heppnin er
meö.
Skák þeirra á minningarmótinu
um Mikhail Tal í Riga hlýtur þó að
vera sem reiðarslag fyrir aðdáendur
Indverjans. Kasparov gerði sér lítið
fyrir, beitti hinu forna Evans-bragði
og eftir aðeins 25 leiki fannst Anand
réttast að leggja niður vopn.
Þessi skák gæti orðið til þess að
endurvekja Evans-bragð sem enskur
skipstjóri kom fram með um 1825.
Bragðið naut mikilla vinsælda allt
fram á þessa öld en þá hafði tekist
að þróa sæmilega trausta varnará-
ætlun fyrir svartan. Fischer hafði
raunar dálæti á bragðinu þótt hann
hefði ekki beitt því í alvarlegri skák-
um. Tvær skáka Fischers með
Evans-bragði er þó að finna í bókinni
frægu „60 minnisstæðar skákir".
Með bragði Evans fann Kasparov
snöggan blett á kunnáttu Anands og
skömmu síðar tókst ungum Rússa,
Alexander Morosjévits, að snúa
hnífnum í sárinu með því að bregöa
fyrir sig öðru fornu bragði gegn An-
and, Kóngsbragði, og vinna glæsi-
lega. Þetta gerðist á atskákmóti PCA
í Moskvu sem fram fór strax að loknu
taflinu í Riga.
Rennum yfir þessar snotru skákir
sem vonandi eru upphafið að nýjum
og fjörmiklum gambit-stíl á stórmót-
um eins og tíðkaðist á kafflhúsunum
í París á nítjándu öld.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Viswanathan Anand
Evans-bragð.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. b4!
Upphafsleikur Evans-bragðs.
4. - Bxb4 5. c3 Be7 6. d4 Ra5 7. Be2!
Þannig hefur verið teflt í bréfskák-
um, í stað 7. Rxe5 Rxc4 9. Rxc4 d5,
eöa 7. Bd3. Nú fer Anand strax út af
sporinu, varlegra er 7. - d6.
7. - exd4?! 8. Dxd4 Rf6 9. e5 Rc6 10.
Dh4 Rd5 11. Dg3 g6 12. 0-0 Rb6 13. c4
d6 14. Hdl Rd7 15. Bh6 Rcxe5 16. Rxe5
Rxe5 17. Rc3!
Ef hins vegar 17. Bg7 Bf6 18. Bxh8
Bxh8 og svartur má vel við una.
17. - f6 18. c5 Rf7 19. cxd6 cxd6 20. De3
Rxh6 21. Dxh6 Bf8 22. De3+ Kf7 23.
Rd5 Be6 24. Rf4 De7
8
7
6
5
4
3
2
1
ABCDEFGH
I A I
A k W'ú A iiii
li
A jA A A A
1 S *
25. Hel!
- Og Anand gafst upp því að einu
gildir hvemig hann ber sig að, hann
tapar manni.
Hvítt: Alexander Morosjévits
Svart: Viswanathan Anand
Kóngsbragð.
1. e4 e5 2. f4 exf4 3. Bc4 Rfl6 4. Rc3
c6 5. Bb3 d5 6. exd5 cxd5 7. d4 Bb4 8.
Rf3 0-0 9. 0-0 Bxc3 10. bxc3 Dc7 11.
Del Rc6 12. Dh4 Re7 13. Bxf4 Dxc3 14.
Bd2 Dc7 15. Re5
Biskupaparið og hálfopin f-línan
gefa hvítum nú hættulegt frum-
kvæði.
15. - Rf5 16. Df4 Be6 17. Bb4 Hfc8 18.
g4! Rd6 19. Hael Rfe4 20. c4! dxc4 21.
Bc2 Rfl6 22. g5 Rh5 23. Df3 g6
24. Rxg6! hxg6 25. Bxg6 fxg6 26. Hxe6
Df7
Svartur á enga haldgóöa vörn en
reynir nú að blíðka goðin. Allt kemur
fyrir ekki.
27. Dd5! Rf5 28. Hxf5!
- Og Anand gafst upp. Ef 28. - gxf5
29. g6, eða 28. - Dxf5 29. Hxg6 með
tvískák og drottningin fellur.
Umsjón
Jón L. Árnason
Breiðagerðisskóli
efstur
Sveit Breiðagerðisskóla varð hlut-
skörpust á íslandsmóti barnaskóla
þar sem tefldu 160 keppendur í 33
sveitum. Breiðagerðisskóli var efstur
með 28 vinninga af 36 mögulegum,
Lundarskóli, Akureyri, fékk 24 v„
Kársnesskóli, Kópavogi 23,5, Hóla-
brekkuskóli og Melaskóli 23 og
Grandaskóli 22 v. Aðrar sveitir fengu
minna.
Sigursveitina skipuðu Davíð Kjart-
ansson, Þórir Júlíusson, Hlynur
Hafliðason, Jóhannes Ingi Árnason
og Einar Ágúst Árnason.
Veitt vora verðlaun fyrir bestan
árangur á einstökum borðum. Skúli
H. Sigurðsson, Flataskóla, Garðabæ,
vann allar 9 skákir sínar á 1. borði;
Hrafn Harðarson, Melaskóla, fékk 7
v. á 2. boröi og Magnús M. Magnús-
son, ísaksskóla, fékk 7 v. á 3. borði.
Atskák í Kópavogi
Taflfélag Kópavogs ætlar ekki að
láta sitt eftir liggja á fertugsafmæli
Kópavogskaupstaðar 11 maí nk. Þá
hefst veglegt atskákmót í Digranes-
skóla sem verður fram haldið 12. og
13. mai. Sterkustu skákmönnum
landsins verður boðin þátttaka auk
þess sem nokkrir félagsmenn úr TK
fá að spreyta sig. Keppendur verða
um þijátíu og tefla níu umferðir.
Verðlaun verða alls 200 þúsund krón-
ur, þar af 90 þúsund krónur fyrir 1.
sæti.
Samsung VX-306 tveggja hausa myndbandstœki
með aðgerðastýringum d skjá sjónvarps, sjálfvirkri
stafrœnni myndskerpu, upptökuminni, þœgilegri
fjarstýringu, Scart-tengi o.m.fl.
Samsung VX-356 fjögurra hausa myndbandstœki með
aðgerðastýringum ó skjá sjónvarps, sjálfvirkri stafrœnni
myndskerpu, upptökuminni, fjarstýringu, Jog-hjóli,
2 Scart-tengjum, tengi fyrir sjónvarpsmyndavél, Long
Play, hœgmynd og margtfleira.
RAÐCREIÐSLUR
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA TIL ALLT AO 24 MANAÐA
Hradþjónusta við landsbyggðina:
(Kostar innanbœjarsímtal og
vörumar eru sendar samdcegurs)
VA
S. Grensðsvegi 11
\>Sími: 5 886 886 Fax:5 886 888
mr m fisher
S FISHER MYNDBANDSTÆKI
Fi?i 1)4.111
/JUV'Jiœ r^DIH
SÍÐUMÚLA 2 - SÍMi 568 90 90
Nicam Stereo
íslenskt
textavarp
og margt
margt
fleira...
Þú sparar
18.878