Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
Vika í Eurovision-keppnina:
íslendingar með í tíunda sinn
- en Finnar fá ekki að vera með
Fertugasta Söngvakeppni evróp-
skra sjónvarpsstööva fer fram í Point
tónleikahöllinni í Dublin á írlandi
næstkomandi laugardag. Búist er við
aö um 300 milljónir manna muni
fylgjast meö keppninni í beinni út-
sendingu auk þeirra þrjú þúsund
sem verða í höllinni sjálfri. Bæði
Ástralar og íbúar Miö-Austurlanda
geta fylgst meö keppninni.
Þetta er í þriðja skiptið í röð sem
írar halda keppnina en þeir sigruðu
í Malmö árið 1992 þar sem Linda
Martin söng. Einnig í Millstreet á
írlandi árið 1993 en þar kom söngvar-
inn Niamh Kavanagh og söng sig inn
í hjörtu dómnefndarmanna, og loks
í Dubhn í fyrra en þá voru það þeir
Paul Harrington og Charhe McGett-
igan sem sigruðu.
Alls hafa Irar sigrað sex sinnum í
Eurovision keppninni. Þeir geta
ætlar að flytja þrjú hundruð milljönum manna lagið Núna i Söngvakeppni
Björgvin Halldórsson heitir nú Bo og
evrópskra sjónvarpsstöðva.
haldið upp á þetta árið að 25 ár eru
liðin frá því að Dana sigraði heiminn
meö laginu All Kinds of Everything
en það var árið 1970.
Reynslan hefur kennt írum að
halda keppni sem þessa og segja þeir
að sjaldan hafi hún verið glæsilegri
en nú enda stórafmæli. Kostnaður
við keppnina er áætlaður um 2,3
milljónir punda eða 230 milljónir ís-
lenskra króna. Stór hluti þess fram-
lags kemur frá Evrópusambandi
sjónvarpsstöðva en einnig eru fjöl-
margir kostendur sem styrkja
keppnina svo sem lottóið á írlandi.
Mikill
undirbúningur
Um þrjú hundruð manns hafa
starfað við undirbúning keppninnar
í nokkra mánuði enda þarf að mörgu
aö hyggja. Valið starfsfólk verður í
öhum störfum sjálfan útsendingar-
daginn. Kynnir kvöldsins verður
Mary Kennedy. Hún er sannur
Dyfhnarbúi og hefur starfað hjá
írsku sjónvarpsstöðinni RTE frá ár-
inu 1992. Áöur starfaði hún sem
kennari en hefur víðtæka reynslu í
sjónvarpsþáttagerð. Mary þykir hafa
mjög alúðlega framkomu og yfir-
stjómandi keppninnar, John
McHugh, er sannfærður um að hún
muni heilla áhorfendur.
Sjálfur er hann vel þekktur innan
írsks og bresks sjónvarpsheims.
Hann hefur starfað sem sjálfstæður
blaðamaður og hefur frá árinu 1983
stjórnað mörgum af vinsælustu sjón-
varpsþáttum írlands og Bretlands.
Árið 1988 flutti hann frá Dubhn til
London og starfaði fyrir Channel 4
og London Weekend Television. Áriö
1991 flutti hann aftur tii írlands og
hóf störf hjá írsku sjónvarpsstöðinni
RTE sem heldur söngvakeppnina.
Hann hefur áður séö um stjórn á
Eurovision.
Þaö eru 23 lönd sem taka þátt í
keppninni að þessu sinni og mun
Björgvin Halldórsson verða sá sjö-
undi i rööinni í flutningi laganna.
Þetta er í tíunda skiptið sem Islend-
ingar eru með í Söngvakeppni evróp-
skra sjónvarpsstöðva. Islendingar
hófu ferilinn í Bergen árið 1986 með
laginu Gleðibankanum eftir Magnús
Eiríksson. Besti árangur íslands til
þessa er Qórða sætið en það var lagiö
Eitt lag enn sem þau Sigríöur Bein-
teinsdóttir og Grétar Örvarsson
fluttu árið 1990.
Nokkur lönd duttu út
Vegna nýrra reglna í Eurovision,
sem teknar voru upp í fyrra, detta
þau lönd sem fæst stig hafa úr keppni
þetta árið og ný geta sótt um inn-
göngu. í fyrra urðu t.d. Danmörk,
Belgía, ísrael, Lúxemborg, Tyrkland
og Slóvenía að vera utan keppni. í
ár eru Belgía, ísrael, Danmörk, Sló-
venía og Tyrkland að nýju með en
þau lönd sem fæst stig höfðu í fyrra
eru dottin út. Þau eru Litháen, Hol-
iand, Rúmenía, Eistland, Swiss og
Finnland. Fyrir ári kepptu 25 lög til
úrslita en þau eru tveimur færri nú.
í fyrra keppti Sigríður Beinteins-
dóttir fyrir hönd íslands í þriðja
skiptið og söng hún lagið Nætur. Það
lag hafnaöi í tólfta sæti og Sigríður
var ákaflega óhress með það sæti
þegar hún kom heim. Haft var eftir
henni í blöðum að keppnin hefði ver-
ið óheiðarleg og stigin hefðu gengið
kaupum og sölum.
Tónleikahölhn, þar sem Eurovisi-
on fer fram í annað skiptið í röð, er
í miðborg Dyflinnar. Húsið var upp-
haflega byggt árið 1878 en gert upp
fyrir nokkrum árum. Helstu tónhst-
armenn heimsins hafa haldið tón-
leika í The Point Theater og þar hafa
frægir leikhópar troðið upp. Bolshoi
ballettinn hefur sýnt þar svo og tón-
listarstjörnur á borð viö Frank Sin-
atra og Diönu Ross. Síðastliöiö haust
fjölmenntu margir íslendingar í The
Point Theater til að sjá söngvarann
Phil Collins og einnig hafa margir
farið þangað til að sjá U2 og fleiri
hljómsveitir.
Búist við margmenni
Eftir helgina munu hótehn í Dublin
yfirfyilast því búist er við miklum
(
(
(
<
i
i
i
í
i