Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
23
dv Svidsljós
Andreas og Dimitra Papandreou.
Andreas Papandreou:
Bleik villa
hneykslar
Grikki
Nú er verið að ljúka endurbótum á
umdeildri lúxusvillu Andreas Pap-
andreous, forsætisráðherra Grikkja.
Villuna, sem er í norðurhluta Aþenu
þar sem skipakóngar og iðnjöfrar
búa, keypti Papandreou fyrir þremur
árum handa seinni konu sinni, Dimi-
tru Liani. Papandreou, sem er 75 ára,
og Dimitra, sem er 41 árs fyrrverandi
flugfreyja, gengu í hjónaband 1989.
Þau áttu bæði hús sem þau seldu og
fengu að auki lánað fé hjá nokkrum
ráðherrum til að geta keypt nýja
húsið.
Þegar hjónakornin flytja inn verð-
ur hægt að meta húsið á um 63 millj-
ónir íslenskra króna, að því að talið
er. Þrír arkitektar auk 300 annarra
starfsmanna hafa verið viðriðnir
endurbæturnar.
Villan umtalaða er bleik og í henni
eru 14 svefnherbergi. Hæðirnir eru
þrjár og er lyfta í húsinu. Heimilis-
fólk getur dýft sér í tvær sundlaug-
ar, önnur er innilaug en hin útilaug.
Þar að auki er í húsinu gufubað,
nuddpottur, kapella og rafmagns-
stýrt píramítalagað sólarþak úr gleri
þaðan sem útsýni er til fjalla og sjáv-
ar.
Hjónaherbergið er á annarri hæð
með sérbaðherbergi og einkasvölum.
Á jarðhæð er skrifstofa húsbóndans
með bókasafni viö hliðina. í kjallar-
anum eru herbergi fyrir þjónustu-
fólk og öryggisverði og lífverði mikil-
vægra gesta.
Forsætisráðherrann hefur verið
gagnrýndur fyrir allan íburðinn á
sama tíma og stjórnvöld eru að herða
sultarólina. Þetta er reyndar ekki í
fyrsta sinn sem Papandreou hefur
hneykslað samlanda sína. Mikið var
fjallað um samband hans við Dimitru
og skilnáðinn við eiginkonuna á sín-
um tíma. En Papandreou tókst að ná
hylli á ný því hann vann í kosningun-
um fyrir tveimur árum með tcdsverð-
um yfirburðum.
Bleika höllin eins og gárungarnir !
kalla villu gríska forsætisráðherr- 1
ans.
Nú er hann tvöfaldur!
Er röðin komin að þér?
- ALLTAFÁ LAUGARDÖGUM
SÖLUKERFID LOKAR KL. 20.20