Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Qupperneq 50
58
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
Afmæli
Bjöm S. Lárusson
Björn Sigurður Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Gesthúsa hf. á Sel-
fossi, Austurvegi 55, Selfossi, verður
fertugurámorgun.
Starfsferill
Bjöm er fæddur á Akranesi og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1976, var við nám og
störf í Kaupmannahöfn 1977-79 og
nám í markaðs- og skipulagsmálum
ferðamála í Noregi 1981-83.
Bjöm starfaði í gestamóttöku Hót-
el Sögu 1979-81, var innkaupastjóri
Skrifstofuvéla hf. 1983-86, hótel-
stjóri á Hótel Selfossi 1986-87, ráð-
gjafi við ferðaþjónustufyrirtæki
1987-91, sölustjóri hjá Glerverk-
smiðjunni Samverk 1991-93 og
framkvæmdastjóri Gesthúsa hf. frá
þeim tíma. Hann hefur kennt ferða-
þjónustugreinar við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands frá 1990 og verið
fréttaritari og dagskrárgerðarmað-
ur á Suðurlandi fyrir Ríkisútvarpið
frá 1988.
Björn þýddi og staðfærði bókina
„Markáðssetning ferðaþjónustu" og
gerði fyrstu könnun og rannsóknir
á ferðavenjum útlendinga á íslandi
áárunum 1988-89.
Fjölskylda
Björn kvæntist 28.5.1982 Önnu
Kjartansdóttur, f. 12.7.1954, hús-
móður. Foreldrar hennar: Kjartan
Gissurarson, f. 1914, d. 1991, frá
Byggðarhorni í Flóa, fisksali í
Reykjavík, og Karen Gissurarson
Sloth.
Synir Björns og Önnu: Kjartan, f.
1.4.1983; Harald, f. 24.10.1984; Björn
Sigurður, f. 1992, látinn; Jóhann, f.
30.11.1993. Fósturdóttir Björns og
dóttir Önnu: Hanna Kristín Sigurö-
ardóttir, f. 18.2.1974.
Systkini Björns: Jóhann, f. 26.6.
1937, d. 1991, starfsmaður á Skatt-
stofu Vesturlands; Halldóra, f. 5.9.
1938, starfsmaður á Sjúkrahúsi
Akraness; Margrét, f. 29.11.1941,
starfsmaður í Laugardalslauginni;
Sigurður, f. 7.4.1945, vélstjóri hjá
Cargolux í Lúxemborg; Daniel, f.
22.12.1947, skrifstofustjóriMorgun-
blaðsins; Björn Sigurður, f. 23.9.
1949, d. 24.12.1951.
Foreldrar Björns: Lárus Þjóð-
björnsson, f. 1908, d. 1991, húsa-
smíðameistari, og Margrét Jó-
hannsdóttir Björnsson, f. 1911, d.
1983, húsmóðir. Þau bjuggu á Akra-
nesi.
Ætt
Systkini Lárusar voru Hannes,
faðir Guðbjarts, forseta bæjar-
stjórnar Akraness, Svavar, afi
Gunnars Sigurðssonar, formanns
bæjarráðs Akraness, og Vilborg,
móðir Valdimars Indriðasonar,
fyrrverandi alþingismanns. Lárus
var sonur Þjóðbjörns Björnssonar,
bónda á Neðra-Skarði í Leirársveit,
og Guðríðar konu hans. Föðurættin
er kennd við Grund í Skorradal.
Halldóra var dóttir Jóhanns
Björnssonar, hreppstjóra á Akra-
Björn S. Lárussort.
nesi, og Halldóru Sigurðardóttur. Á
meðal bræðra Jóhanns voru Guð-
mundur, sýslumaður í Borgarnesi,
og Jón, kaupmaður í Borgarnesi.
Móðurættin er kennd við Svarfhól
í Stafholtstungum.
Björn tekur á móti gestum í sal
Gesthúsa hf. á Selfossi frá kl. 16 í
dag, laugardaginn 6. maí.
Til hamingiu með
afmælið 6. maí
95 ára
Ólöflndriðadóttir,
Bjarmastíg 8, Akureyri.
90 ára
Árný Stefánsdóttir,
Hvammbóli, Mýrdalshreppi.
75 ára
Ólafur Bjarni Th. Pálsson,
Grundartanga 52, Mosfellsbæ.
70 ára
Ólafur Eggertsson,
Grandavegi 47, Reykjavík.
60 ára
Klara Styrkársdóttir,
Miklubraut 76, Reykjavík.
Kristjana Svavarsdóttir,
Huldugili9, Akureyri.
Olga Ragnarsdóttir,
Brekkubyggð27, Garðabæ.
50ára
Erla Karlsdóttir,
Hásteinsvegi 37, Stokkseyr
Þórunn Pálsdóttir,
Grundargeröi 6h, Akureyn
HafdísHafsteinsdóttir, sjúkraliöi
á Heilsuhæli NLFÍ í Hverageröi,
Lyngbergi 7, Þor-
lákshöfn.
Eiginmaður
hentiarerGuö-
mundur Sigurös-
son, fyrrv. skrif-
stofustjóri.
Þaueruaöheim-
an.
Kristján Tryggvi Jónsson,
Kleppsvegil22, Reykjavík.
UnnurLoneNielsen,
Hátúni lOa, Reykjavík.
Dagur Herniannsson,
Þórunnarstræti 128, Akureyri.
Hjörvar Jóhan nsson,
Hofi, Lýtingsstaðahreppi.
Einar B. Guðlaugsson,
Skipasundi 50, Reykjavík.
40ára
Guðmundur Árnason,
Sóltúni 12, Keflavík.
Sigurlina Valgerður Áslaugsdótt-
ir>
Garði, Öxarfjarðarhreppi.
Kristín Jónsdóttir,
Krummahólum4, Reykjavík.
Eygló Bj arnþórsdóttir,
Vesturbergi 54, Reykjavík.
Þór Ingólfsson,
Glaðheimum 14,Reykjavik.
Hafrún Magnúsdóttir,
Nesvegi 64, Reykjavík,
Guðmann Þorvaldsson,
Bleiksárhlíð 27, Eskifirði.
Borghildur Ingvarsdóttir,
Brúarflöt 5, Garðabæ.
Benno G. Ægisson
Benno Georg Ægisson, listmálari og
verkamaður, Hásteinsvegi 34, Vest-
mannaeyjum, veröur fimmtugur á
morgun.
Fjölskylda
Benno er fæddur í Prag í Tékkó-
slóvákíu og ólst upp þar og í Reykja-
vík. Hann stundaði nám í Munchen
í Þýskalandi 1963. Benno hefur
starfaö við bílaviðgerðir og stundað
alla almenna verkamannavinnu.
Benno kvæntist 27.7.1974 Unni
Jónu Sigurjónsdóttur, f. 9.10.1951,
verslunarmanni. Foreldrar hennar:
Sigurjón V. Guðmundsson og Guö-
laug Sigurgeirsdóttir í Vestmanna-
eyjum:
Dóttir Bennos og Unnar er Sús-
anna Georgsdóttir, f. 4.3.1974, dans-
kennaranemi í Vestmannaeyjum.
Dóttir Bennos af fyrra hjónabandi
er Helga Georgsdóttir, f. 19.12.1965,
fóstra í Borgamesi.
Systkini Bennos: Marcela, Ólafur,
EvaogHonza.
Foreldrar Bennos: Benno Juza, f.
Benno G. Ægisson.
4.4.1923, listmálari í Prag, og Jar-
mila Lukesova, f. 8.11.1926, d. 20.3.
1991, sjúkraliöi. Hún var búsett í
Prag og í Reykjavík. Fósturfaðir
Bennos: Ægir Ólafsson, forstjóri á
Siglufirði og í Reykjavík.
JónV. Bjömsson
Jón Valdimar Björnsson frístunda-
bóndi, Grundarbraut 8 (Grund), Ól-
afsvík, er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Jón er fæddur í Ólafsvík og ólst
upp þar og í Fróðárhreppi en þar
var hann í sveit sem barn. Hann
lauk barnaskólaprófi og hefur sótt
nokkur vinnuvélanámskeið.
Jón fór til sjós 15 ára og var m.a,
eina vertíð á Hellissandi en vann
líka í landi þar til hann varð árs-
maður hjá Vegagerð ríkisins en hjá
henni starfaöi Jón í 56 ár. Framan
af var hann reyndar sumarmaöur
en Jón byrjaði þar fyrst í maí 1936
á Fróðárheiði hjá Stefáni Kristjáns-
syni, vegaverkstjóra i Ólafsvík.
Tuttugu árum síðar fór hann aö
starfa hjá Vegageröinni árið um
kring, þá með Hjörleifi Sigurðssyni,
vegaverkstjóra í Hrísdal, 1956.
Jón, sem hefur alltaf búið í Ólafs-
vík, hefur gegnt ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir verkalýðsfélagið.
Fjölskylda
Kona Jóns er Björg Viktoría Guð-
mundsdóttir, f. 14.7.1925, húsmóðir.
Foreldrar hennar: Guðmundur
Guðmundsson og Sigurlaug Sigurð-
ardóttir, bæði látin. Þau bjuggu á
Litla-Kambi í Breiðuvík.
Börn Jóns og Bjargar: Björn S.
Jónsson, f. 12.6.1948, smiöur og leið-
beinandi í Reykjavík, kvæntur
Steinunni Þórisdóttur gangaverði,
þau eiga þrjú börn, Jón Viðar, Hildi
og Þóri; Kristín Jónsdóttir Stackura,
f. 29.12.1950, fóstra i Skotlandi, gift
George Stackura kennara, þau eiga
tvo syni, Adam og Michael; Guð-
mundur Ó. Jónsson, f. 21.1.1953,
umboðsmaður Eimskips í Ólafsvík,
kvæntur Jónínu Kristjándsdóttur
skrifstofumanni, þau eiga tvö börn,
Björgu og Stefán Má, dóttir Guð-
mundar er Gerður; Sigurlaug Jóns-
dóttir, f. 21.3.1957, kennari í Olafs-
vík, gift Ingólfi Aðalbjömssyni sjó-
manni, þau eiga þrjú börn, Ólmu
Ýr, Atla Frey og Aldísi Rún; Reynir
Jónsson, f. 22.10.1962, rafvirki í Ól-
afsvík, kvæntur Margréti S. Ingi-
mundardóttur, þau eiga þrjú böm,
Styrmi, Örnu og Brynju. Barna-
barnabörnin eru þrjú.
Systkini Jóns: Bjarndís Inga
Björnsdóttir, f. 22.5.1918, d. 8.5.1919;
Fríða Jenný Björnsdóttir, f. 22.5.
1918, d. 20.7.1965, var gift Kristjáni
Jenssyni, þau skildu; Helgi Björns-
son, f. 4.10.1922, verkamaður í
Garðabæ, kvæntur Kristínu Petrínu
Gunnarsdóttur; Sigríður Guðrún
Jón V. Björnsson.
Björnsdóttir, f. 28.10.1925, húsmóðir
í Reykjavík, gift Jóni S. Bjarklind;
Þorgils Björnsson, f. 14.2.1928,
starfsmaöur hjá Vegagerð ríkisins í
Ólafsvík; KristbjörgBára Björns-
dóttir, f. 17.9.1930, d. 8.1.1985; Ing-
veldur Birna Bjömsdóttir, f. 27.1.
1936, húsmóðir í Reykjavík, gift
Marísi Gilsfjörð.
Foreldrar Jóns: Björn Jónsson, f.
1.10.1888, d. 29.3.1937, sjómaður, og
Kristín Bjarnadóttir, f. 17.6.1892, d.
21.31979, húsmóðir. Þau bjuggu í
Ólafsvík.
Jón er aö heiman á afmælisdag-
inn.
Til hamingju með afmælið 7. maí
95 ára
Anna P. Loftsdóttir,
áður til heimilis að Vegamóíum,
Seltjarnarnesi,
ennúHrafnistu,
Hafharfíröi.
Húntekurámóti
gestum síðdegis á
afmælisdaginn á
heimili sonar :
sínsogtengda
dóttur að Sæbraut 5 á Seltjarnar-
nesi.
Margrét Kristjánsdóttir,
Gagnvegi, hjúkrh. Eir, Reykjavík.
85ára
Steingrimur Björnsson,
Litlahvammi8b, Húsavlk.
80 ára
Guðrún Ágústsdóttir,
Hlíðarvegi 45, Síglufirði.
75ára
Steingrímur Eliasson,
Öldugötu 61, Reykjavik.
Guðrún Kristinsdóttir,
Lónabraut 5, Vopnafirði.
Þórunn Guðmundsdóttir,
Hólavegi 15, Siglufirði.
70ára
Dóra Guðbjörnsdóttir,
Háaleitisbraut22, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum í Sigtúni
9 frá kl. 15-18 á afmælisdaginn.
Ragnheiður Kj artansdóttir Busk,
Þelamörk 58, Hverageröí.
Hún tekur á móti gestum á afinæl-
isdaginn í Básum, Efstalandi í Ölf-
usi, frákl. 15-18.
Jónas Jónsson,
Bólstaðarhlíð 58, Reykjavík.
Guðmundur Jónsson,
Spítalastíg 8, Hvammstanga.
Guðjón Jónsson,
Austurbrún 2, Reykjavik.
60 ára
RannveigSigr. Guðmundsdóttir,
Bröttukinn 20, Hafnarfirði.
Unnur Jóhannsdóttir,
Laxárdal 3, Bæjarhreppí.
Hallgrimur Helgason,
Tröllagili 14, Akureyri.
Hannererlendis.
50 ára
Sigurgeir Jónsson,
Uppsalavegi 8, Sandgerði.
Karen Þorvaldsdóttir,
Vorsabæ 5, Reykjavík.
40ára
Ragna Halldórsdóttir,
Mýrarseli 1, Reykjavík.
Hermann G. Björgvinsson,
Lautasmára33, Kópavogi.
Kjartan Jóhannesson,
Selvogsgrunni 12, Reykjavík.
Guðbjörg Rannveig Jónsdóttir,
Logafold 80, Reykjavik.
Sigrún Ásta Bjarnadóttir,
Stóru-Mástungulb, Gnúpverja-
hreppi.
ívar Decarsta U. Webster,
Hvassaleiti 10, Reykjavík.
Margrét Magnúsdóttir,
Leifsgötu 6, Reykjavík.
Sigmundur Guðmundsson,
Heiðargarði 3, Keflavfk.
Guðmundur Ingi Gíslason,
Reyðarkvísl 14,Reykjavík.
I
I
I
I
I