Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1995, Page 56
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRiFT ER 0PIN;
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL 6.SLAUGAft0ACS-0G MANUDAGSMOflG ÞJA
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995.
Heimsmeistarakeppnin í handknattleik hefst á morgun í Laugardalshöll. í gær mátuöu landsliðsmennirnir nýja
búninga sem leikið verður í á HM. Á myndinni eru þeir Gunnar Beinteinsson og Geir Sveinsson. Af svip þeirra
má ráða að ætlunin er að taka vel á í komandi leikjum íslenska liðsins. DV-mynd BG
Islenska landsliöiö endanlega valiö fyrir HM sem hefst á morgun:
Besta lið okkar í dag
- segir Þorbergur Aöalsteinsson landsliösþjálfari
„Þetta er besta lið okkar í dag, það
er engin spurning," sagði Þorbergur
Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, í gær en þá tilkynnti
hann endanlegan leikmannahóp ís-
lands á HM í handknattleik.
Leikmennirnir eru:
Markverðir: Bergsveinn Berg-
w—sveinsson, UMFA, Guömundur
Hrafnkelsson, Val, og Sigmar Þröst-
ur Óskarsson, KA.
Aðrir leikmenn: Bjarki Sigurðsson,
Víkingi, Dagur Sigurðsson, Val, Ein-
ar Gunnar Sigurðsson, Selfossi, Geir
Sveinsson, Val, Gunnar Beinteins-
son, FH, Gústaf Bjarnason, Haukum,
Jón Kristjánsson, Val, Júlíus Jónas-
son, Gummersbach, Konráð Olavs-
son, Stjörnunni, Ólafur Stefánsson,
Val, Patrekur Jóhannesson, KA, Sig-
urður Sveinsson, Víkingi, Valdimar
Grímsson, KA.
Landsliðið æfði í morgun en kl. 14
í dag heldur það Jjl Hótel Arkar í
Hveragerði þar sem hðið mun dvelja
meðan á keppninni stendur.
Fyrsti leikur íslendinga er gegn liði
Bandaríkjanna á morgun kl. 20 í
Laugardalshöll. Síðan eru leikir á
þriðjudag og miðvikudag.
Samningaviðræöur um samstarf Kringlu og Borgarkringlu:
Stef na að einni yf irstjórn
- viðræöumar langt komnar, segir Þorgils Óttar Mathiesen
„Það er takmark okkar að selja
húseignina. Með aukinni samvinnu
við Kringluna verður eignin sölu-
vænlegri. Við stöndum núna í við-
ræðum, sem eru langt komnar, um
aukna samvinnu við nágranna okk-
ar. Hugmyndin gengur út á að gera
þetta svæði að sameiginlegum versl-
unarkjarna með einni yfirstjórn og
ná þannig fram sparnaði og hagræð-
ingu,“ sagði Þorgils Óttar Mathiesen,
stjórnarformaður Kringlunnar 4-6,
sem á verslunarhæðir Borgarkringl-
unnar, í samtali við DV.
Verslunarhúsnæði Borgarkringl-
unnar á 1. og 2. hæð hefur verið til
sölu um nokkurt skeið eftir miklar
hremmingar í rekstri. Stærstu lánar-
drottnar - íslandsbanki, Iðnlánasjóð-
ur og Iönþróunarsjóður - eiga hús-
næðið og leigja það starfandi versl-
unum.
-PP
Scháferhundur réðst á tíkina Snoppu og drap hana:
Klippti á
hálsinn með
skoltunum
„Við hjónin vorum á gangi með tík-
ina okkar gegnum byggingarsvæði í
Mosahlíð þegar við komum auga á
stóran scháferhund. Þegar hann
varð var við okkur rauk hann á lapp-
ir, kom eins og elding niður eftir til
okkar og stökk beint á Snoppu. Hann
greip hana með framfótunum, sneri
henni við, klemmdi hana undir sig
og khppti á hálsinn á henni með
skoltunum. Hún var dauð á sek-
úndu,“ segir Elís Stefánsson.
Elís var ásamt konu sinni á heilsu-
bótargöngu á mánudaginn var í
Hafnarflrði þar sem þau búa. Heimil-
ishundurinn Snoppa, 11 ára tik af
Beagle-kyni, sem er minkahunda-
kyn, var með í fór og lýsir Elís viður-
eigninni svo:
„í öllum látunum stökk konan mín
á bak hundinum og reyndi að sveigja
hausinn á honum frá með því að toga
í ólina. Ég fór aftur fyrir hann og
reyndi að sparka í hann en við vorum
eins og flugur utan á honum og réð-
um ekkert við hann.“
Málið var kært til lögreglunnar í
Hafnarfirði. Eigandi scháferhunds-
ins féllst á að lóga honum enda ekki
í fyrsta skipti sem hann réðst á sér
smærri dýr, þó aldrei með slíkum
afleiðingum.
Elís segir greinilegt að scháferinn,
sem einnig var tík, 6 ára gömul, hafi
aðeins haft eitt markmið - að drepa
„bráðina" - hann hafi ekki sýnt
Snoppa var „dauð á sekúndu".
neina tilburði til að leika sér. Ekki
er ljóst hvort þarna var um blending
að ræða eða hreinræktaöan scháfer-
hund. Elís hvetur eigendur stórra
hunda til að gæta þeirra sérstaklega
með þetta í huga. Hann þakkar fyrir
að þarna hafi ekki barn orðið fyrir
barðinu á hundinum. -pp
Noröurá:
160 milljóna tilboði
Péturs haf nað
„Það er rétt að ég hef fengið bréf
frá stjóm veiðifélags Norðurár í
Borgarfirði og þar er mínu tilboði
í ána hafnað þó það gefi landeig-
endum við Norðurá miklu meira
en þeir hafa núna fyrir ána,“ sagði
Pétur Pétursson í samtali við DV.
Stjórn veiðifélags Norðurá hafn-
aði tilboði hans í ána sem átti að
færa landeigendum 160 milljónir
næstu fimm árin.
„Málið er ekki tapað ennþá. Það
verður haldinn fundur í veiðifélag-
inu næsta fimmtudag og það eru
42 eigendur við ána sem eiga rétt á
setu á fundinum. Á þeim fundi get-
ur allt gerst. Menn eru allt annað
en ánægðir í Norðurárdalnum meö
að stjórnin hafnaði tilboðinu,"
sagði Pétur.
LOKI
Áfram (hikk!) ísland!
Veðrið á sunnudag
ogmánudag:
Svalt í veðri
Á sunnudag og mánudag verð-
ur norðaustanátt, víðast kaldi.
Fremur svalt í veðri, einkum á
mánudag og má búast viö vægu
næturfrosti víða um land en hiti
verður á bilinu 1-6 stig yfir dag-
inn, mildast suðvestan til. Norð-
austanlands verða lítils háttar él
en víða bjart veður í öðrum
landshlutum.
Veðrið í dag er á bls. 61
TVÖFALDUR1. VINNINGUR
1 ANDSSAMBAM)
ÍSI.. RAF\ KUKTAKA