Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1995, Síða 25
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1995
25
Fréttir
Friðrik Þ. Stefánsson formaður og Ólafur H. Ólafsson, varaformaður Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur, kíkja eftir laxi í Elliðaánum í gærkvöldi. Enginn lax
sást en hann er líklega kominn. DV-mynd G.Bender
Norðurá og Laxá í Kjós:
Laxinn er
kominn
„Það verður spennandi að opna
Norðurá eftir rúma viku en um helg-
ina var kjörvatn í ánni. Það gæti vax-
ið verulega ef hlýnaði mikið næstu
daga,“ sagði Friðrik Þ. Stefánsson,
formaður Stangaveiðifélags Reykja-
víkur, í gærkvöldi en fyrstu laxamir
sáust í ánni um helgina. Norðurá
verður opnuð fyrst áa 1. júní.
„Við sáum ekki mikið af laxi fyrir
opnun í fyrra en samt veiddust 58
laxar þá. En fyrstu laxarnir sáust á
göngu inn Borgarfjörð kringum 10.
maí svo hann er örugglega kominn
í ámar,“ sagði Frirðik í lokin.
Laxinn er mættur í Laxá í Kjós en
hann sást í Laxfossinum fyrir fáum
dögum.
„Við höfum ekki séð lax í Elliðaán-
um enn þá en hann gæti hæglega
verið kominn, núna er hans tími að
koma,“ sagði Jakob Hafstein í gær-
kvöldi og bætti við: „Laxinn er ör-
ugglega komin í Norðurá og Þverá í
Borgarfirði."
„Við erum aðeins byrjuð að renna
en enginn lax hefur fengist enn þá.
Það er svo ákaflega kalt þessa dagana
enda frost á hverri nóttu," sagði Olaf-
ur Davíðsson á Hvítárvöllum í sam-
tali við DV í gærkvöldi. Stangaveiðin
hófst í Hvítá í Borgarfirði um helgina
en besti veiðistaður árinnar er við
Hvítárvelli, Þvottaklöppin. Stöngin
er seld á þúsund krónur eins og er.
Norðurland vestra:
Ekki mikil hætta
á kali í túnum
-ennrmkillsnjór
Þórhallur Ásmundsson, DV, Saudárkróld;
„Mér sýnist ekki mikil hætta á
kali í túnum meðan ekki er meiri
hitamismunur milli dags og nætur
þó alltaf sé hætta ef margar frost-
nætur gerir í röð,“ segir Guðbjart-
ur Guðmundsson, ráðunautur
Búnaðarsambands Austur-Hún-
vetninga.
Guðbjartur segir hættuna mesta
á kali þegar svell liggi lengi á, t.d.
frá því um áramót og fram á vor.
Snjóalög eru enn geysimikil í
Fljótum og á Skaga. Símon Gests-
son, bóndi á Barði í Fljótum, segir
að af þeim sökum verði sauðburð-
urinn erfiðari. „En við óttumst
ekki svo mikið kal hér. Snjórinn
hlífir þó jörðinni og þegar hann
leysir verður hitastig sjálfsagt orð-
iö það hátt að jörðinni er síður
hætt. Bændur hér um slóðir koma
frekar til með að óttast skemmdir
á túnum sínum vegna vatnavaxta
sem örugglega verða ef hlákan
verður skörp,“ segir Símon.
í Fljótum eru girðingar víðast
hvar á kafi enn þá og varla sér á
dökkan díl á láglendi. Símon efast
um að þetta sé nokkuð meiri snjór
núna en stundum áður.
Leikhús
WÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðlð
Söngleikurinn
WEST SIDE STORY
eftir Jerome Robbins og Arthur
Laurents við tónlist Leonards Bern-
steins
kl. 20.00
Á morgun, uppselt, föd. 26/5, nokkur sætl
laus, Id. 27/5, nokkur sæti laus, föd. 2/6,
méd. 5/6, föd. 9/6, ld.10/6.
Sýningum lýkur i júní.
íslenski dansflokkurinn:
HEITIR DANSAR
3. sýn. fid. 25/5 kl. 20.00,4. sýn. sud. 28/5
kl. 20.00.
Smiðaverkstæðið
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
kl. 20.00.
Fid. 25/5, föd. 26/5, Id. 27/5, mvd. 31/5, fid.
1/6, föd. 2/6, fid. 8/6, föd. 9/6, Id. 10/6, fid.
15/5, föd. 16/5, föd. 23/6, Id. 24/6, sud. 25/6,
fid. 29/6, föd. 30/6.
Norræna rannsóknar-
leiksmiðjan
ÓRAR
Samvinnuuppfærsla finnskra og ís-
lenskra leikara.
Frumsýning fid. 22/6,2. sýn. Id. 24/6. Aöeins
þessar 2sýningar.
Gjafakort i leikhús - sígild og
skemmtileg gjöf.
Miöasala Þjóöleikhússins er opin aila daga
nema mánudaga frá kl. 13 til 18 og fram aö
sýningu sýningardaga.
Einnig simaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga.
Grœna línan 99 61 60. Brófsimi 6112 00.
Sími 1 12 00-Greiöslukortaþjónusta.
Tapad fimdið
Hálsmen fannst
Hálsmen með festi og nafni áletruðu á
skjöld fannst á Snorrabraut. Upplýsingar
í síma 14706.
Armbandsúr tapaðist
Kvenmannsarmbcmdsúr með gylltri
keðju tapaðist á leið frá Hótel Sögu
aö Neshaga á laugardagsmorguninn
sl. Finnandi vinsamlegast hringi í s.
20467.
Vitni óskast
Keyrt var á kyrrstæðan Nissan Sunny,
rauðan að lit, árg. ’94, á efri hæð bílastæð-
is Krmglunnar á fóstudaginn sl. kl.
15-16.30. Fram- og afturhurð bílstjóra-
megin skemmdust. Ef einhver getur gefið
upplýsingar um málið þá vinsamlegast
hringið í s. 654143.
TiBcyrtmngar
Kvenfélag Grensássóknar
fer í tveggja daga vorferð 27. og 28. maí.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir fimmtudag
í s. 27596 eða 30518. Lagt af stað frá Safn-
aðarheimilinu kl. 10 á laugardag.
Félagsstarf aldraðra
á vegum Reykjavíkurborgar. 3 daga ferð
með gistingu á Hótel Eddu, Kirkjubæjar-
klaustri. Fjöldi staða skoðaður. Ekið
austur að Skaftafelli og að Jökulsárlóni.
Nauösynlegt að bóka strax vegna hótels
í s. 517170 fyrir hádegi-
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið kl. 20.
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Föstud. 26/5, næstsiðasta sýning, laugard.
27/5, siöasta sýnlng.
Siöustu sýningar á leikárinu.
Munið gjafakortin okkar.
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13-20, auk þess er
tekið á móti pöntunum i síma frá kl.
10-12 alla virka daga.
Sími miðasölu 680680.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Leikfélag Akureyrar
DJÖFLAEYJAN
Mlðvd. 24/5 kl. 20.30, töstud. 26/5 kl. 20.30,
laugard. 27/5 kl. 20.30, fösd. 2/6 kl. 20.30,
Id. 3/6 kl. 20.30. Sióustu sýningar.
• • • • J.V.J. Dagsljós
Miðasalan i Samkomuhúsinu er opin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Simi 24073. Simsvari tekur við
miðapöntunum utan opnunartima.
Greiðslukortaþjónusta.
NEMENDALEIKHÚSIÐ
LINDARBÆ-SÍMI21971
MARÍUSÖGUR
i leikstjórn Þórs Tulinius
Nýtt islenskt lelkrit eftlr Þorvald
Þorsteinsson
Síóasta sýningarvika, sýn. miðv. 24/5 kl.
20, flmmtud. 25/5 kl. 20, laugd. 27/5 og
sunnud. 28/5 kl. 20. Allra síðasta sýnlng.
Miðapantanlrailan sólarhringinn.
Ný barnafataverslun á
Laugavegi
í dag, 18. maí, opnar ný verslun, Du pa-
reil au méme, á Laugavegi 17. Du pareil
au méme er frönsk bamafataverslunar-
keðja sem stofnuð var árið 1986. Vel-
gengni „DPAM“ byggist fyrst og fremst
á vönduöum og fallegum fótum sem seld
eru á lágu verði. Leitast er við að tryggja
viðskiptavininum falleg og vönduð
bamafót fyrir aldurshópinn 0-14 ára þar
sem saman fara lágt vöraverð og mikil
gæði. Útlit búðanna er einnig sérstakt og
er það samhæft um allan heim.
Nauðungaruppboð á lausafé
Eftir kröfu Hitaveitu Reykjavíkur fer fram nauðungaruppboð á eftirfarandi
lausafé, talið eign Pústþjónustunnar sf.:
Bílalyfta af tegundinni istobal og logsuðutæki.
Uppboðið fer fram þar sem lausaféð er staðsett að Skeifunni 5, Reykjavik,
miðvikudaginn 31. maí 1995 kl. 13.30.
SÝSLUMAÐURINN i REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð á lausafé
Eftir kröfu Landsbanka íslands fer fram nauðungaruppboð á eftirfarandi
lausafé, talið eign Kristins Kristinssonar:
Verkfæri, vélar, tæki, varahlutir, dekk og fleira.
Uppboðið fer fram þar sem lausaféð er staðsett í Gamla Miklagarðshúsinu
við Holtagarða, baka til, miðvikudaginn 31. maí 1995 kl. 14.30.
SÝSLUMAÐURINN I REYKJAVÍK
ftíim
''allslil’l
DV
9 9*17*00
Verö aöeins 39,90 mín
ÉJ
Fótbolti
2 j Handbolti
3 j Körfubolti
41 Enski boltinn
5| ítalski boltinn
61 Þýski boltinn
■ 7[ Önnur úrslit
8] NBA-deildin
ZEWMéBM
lj Vikutilboð
stórmarkaðanna
2j Uppskriftir
Læknavaktin
2; Apótek
H Gengi
11 Dagskrá Sjónv.
]2j Dagskrá St. 2
[3| Dagskrá rásar 1
4 j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5 j Myndbandagagnrýni
6 j ísl. listinn
- topp 40
J7j Tónlistargagnrýni
8 Nýjustu myndböndin
1} Krár
2 j Dansstaöir
3 [ Leikhús
4 j Leikhúsgagnrýni
| Bíó
c j Kvikmgagnrýni
mgsnmnB
: 1[ LottÓ
[2] Víkingalottó
I Getraunir
MBM
Dagskrá
líkamsræktar-
stöðvanna
99-17-00
Verð aöeins 39,90 mín.