Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 11 Framkvæmdastjóri Fiskiðjusamlags Húsavikur: Erfiðleikaárin vonandi að baki Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: „Reksturinn hefur verið erfiður en erfiðleikaárin eru nú vonandi að baki og bjartara framundan," segir Tryggvi Finnsson, fram- kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Fyrirtækið hefur verið talsvert í kastljósi íjölmiðla að undanfomu vegna baráttu útflutningsrisanna SH og ÍS um viðskiptin með afurð- ir fyrirtækisins og hlutafjáraukn- ingar þess. Á sama tíma segist Tryggvi horfa til bjartari framtíðar í rekstri Fiskiðjusamlagsins. „Það má segja að það sé góður árangur út af fyrir sig að okkur hefur tekist að halda sjó á þeim erfiðleikaárum sem við höfum upp- lifað að undanfórnu. Nú tel ég hins vegar aö botninum sé náð og við erum hugsanlega aö horfast í augu við aukna þorskveiði á næstu árum,“ segir Tryggvi. Þessum erfiðleikaárum og minnkandi þorskkvótá hefur Fisk- iðjusamlagið m.a. mætt meö mjög aukinni rækuvinnslu sem hefur gengið mjög vel, enda hafa mark- aðsmál varöandi rækjusölu batnað mjög. „Við gerum okkur hins vegar grein fyrir því að ef þorskstofninn eflist þýðir það að öllum likindum að rækjan í sjónum minnkar en við erum tíibúnir að mæta því,“ segir Tryggvi. Fiskiðjusamlagiö skilaði í 8 mán- aöa uppgjöri um 30 milljóna króna hagnaði og Tryggvi segir að á árs- grundvelli megi ætla að hagnaður- inn af rekstrinum hafi verið um 55 milljónir. Fyrirtækið er stærsti vinnuveitandi á Húsavík en þar starfa 160-170 manns í um 145 störf- um. í haust munu útgerðarfyrirtækin tvö á Húsavík, Höfði og íshaf, sam- einast. Að ári mun það fyrirtæki sem þá verður til sameinast Fisk- iöjusamlaginu og Tryggvi segir þetta aðgerðir tíl hagræöingar sem án efa muni skila árangri. „Við náum fram hagræðingu og stjórn útgerðar og vinnslu hér á Húsavík verður markvissari á einni hendi," segir Tryggvi. Vesturbæjarhátíðinni lauk um helgina. Skrúðgöngur og hljómsveitir skemmtu vesturbæingum nánast stanslaust frá morgni fram á kvöld. Þessir eldspúar voru ósparir á að sýna vegfarendum listir sínar. DV-mynd TJ Fréttir Fagranesið i Stykkishólmshöfn. Ekki er langt siðan það sást í Vestmanna- eyjahöfn að leysa Herjólf af meöan hann var í slipp. DV-mynd Arnheiður BreiðaQ arðar ferj an í slipp: Fagranesið leysti Baldur af Amheiöar Ólafadóttir, DV, Stykkfahólmi: Breiðafjarðarferjan Baldur hefur verið í slipp undanfarna viku. Verið var að hressa upp á Baldur því sum- aráætlun hefst 1. júní. Farþegum fjölgar alltaf mikið á sumrin. Þá fer Baldur tvisvar á dag yfir Breiðafjörð. Alltaf er stoppað í Flatey og er vinsælt hjá ferðamönn- um aö hafa þar viðkomu. Fara þeir þá með fyrri ferð skipsins, fara af í Flatey, stoppa þar í nokkra klukku- tíma og halda svo áfram með seinni ferðinni yfir Breiðaljörð. Ferðir Baldurs féllu ekki niður meðan hann var í shpp því Fagranesiö hljóp í skarðið á meðan. Atvinnuréttindi f lug- kennarans í f ullu gildi DV hefur borist eftirfarandi at- hugasemd: „Vegna fréttar DV miðvikudaginn 24. maí sem blaðamaðurinn „pp“ skrifar vill undirritaður koma eftir- farandi athugasemdum á framfæri. Slysarannsóknardeild flugmála- stjómar hefur ekki sent frá sér loka- skýrslu um flugatvik er lítil tveggja hreyfla flugvél lentí á Reykjavíkur- flugvelli með hjól uppi. Því er ljóst að viðkomandi blaðamaður hefur ekki þær upplýsingar um atvikarás og meðvirkandi þætti í tilteknu flug- atviki til að efast um atvinnuréttindi flugkennarans sem var við sfjóm þeg- ar atvikið átti sér stað. Flugkennarinn hefur gengist imdir flughæfnispróf og staðist það og er í fullu starfi. Steinar Steinarsson, formaður öryggisnefndar FÍA.“ Athugasemd blaðamanns: Blaðamaður vill koma þeim at- hugasemdum á framfæri að þegar fréttin var skrifuð lá engin skýrsla fyrir um tildrög slyssins sem var á frumstígi rannsóknar. í fréttínni var einungis sagt að „ekki er enn ljóst hvort óhappið hafi áhrif á kennslu- réttíndi flugkennarans. Samkvæmt upplýsingum DV verður ákvörðun um slíkt tekin þegar skýrslan liggur fyrir. Hvað verður lagt til veltur á henni.“ Þessar upplýsingar fengust hjáflugyfirvöldum. Pétur Pétursson. Nýja áhorfendastúkan á Akranesi: Bærinn veitir tíu milljóna ábyrgð Daníel Ólafason, DV, Akranesú Bæjarráð Akraness samþykkti í síð- ustu viku að veita Knattspymufélagi Akraness 10 milljóna króna einfalda ábyrgð i samræmi við samning um byggingu nýju áhorfendastúkunnar við knattspymuvöll Skagamanna. Skattframtal lögaðila: Skilafrestur rennur út þann 31. maí Síðasti skiladagur skattframtals lögaðila er 31. maí. Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í viðkomandi umdæmi. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.