Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1995, Síða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAl 1995
Fegurðardísir vekja afbrýðisemi.
Þolum ekki fræg-
ar fegurðardísir
„Fegurðardísir, sem ná frægð,
fara í taugamar, jafnt á konum
sem körlum. Við erum afbrýði-
söm. Við þolum þær ekki fyrr en
þær eru komar á ævisögualdur-
inn.“
Gérard Lemarquis i DV.
Lifum á fiski, ekki æðar-
varpi
„Menn gleyma því að þjóðin lifir
á fiskveiðum en ekki æðarrækt."
Jóhannes Haraldsson,
grásleppukarl i DV.
Ummæli
nn
Biðst afsökunar
„Það var leiðinlegt að byija á
svona leik á heimavelli og vil ég
biðja stuðningsmenn okkar af-
sökunar en þetta kemur ekki fyr-
ir afitur.“
Óli Þór Magnússon,
leikmaður ÍBK i DV.
Notalegur níðingsháttur
„Annars er það aUtaf notalegast
að níðast á þeim sem njóta þess
að niðst sé á þeim.“
Flosi Ólafsson f Mánudagspóstinum.
160 milljóna tap á dag
„Mér reiknast svo til að þjóðar-
búið muni tapa 160 milljónum á
dag vegna verkfalls sjómanna.“
Svelnn Hjörtur Hjartarson i DV.
Styttist í þá albestu
„Nú er farið að styttast í þá al-
bestu í heiminum."
Jón Arnar Magnússon í DV.
Frakkland er vinsælasta ferða-
mannalandið.
Vinsælustu ferða-
mannalöndin
íslendingar eru alltaf að gæla
við þá hugmynd að gera landið
að miklu ferðamannalandi en
þótt einhver fjölgun ferðamanna
sé þá er langt í land með að ísland
geti talist vinsælt ferðamanna-
land. Vinsælasta ferðamanna-
landið er Frakkland og hefurþað
verið efst á blaði í mörg ár. Arið
1993 kom 61 milljón erlendra
ferðamanna þangað. í öðru sæti
eru Bandaríkin með 45 milljón
ferðmenn og Spánn er í þriðja
Blessuð veröldin
sæti með 40 milijón férðamenn. í
næstu sætum eru Ítalía, Ung-
veijaland, Stóra-Bretland, Aust-
urríki, Kína, Mexíkó og Þýska-
land.
Mestum peningum eytt
Ekki er alveg sama röð þegar htið
er á peningaeyðslu ferðamanna í
viðkomandi löndum. Þá eru
Bandaríkin efst á blaöi en áriö
1992 eyddu erlendir ferðamenn
40 milljón dollurum. Á þessum
lista hrapar Frakkland niður í
sjötta sæti með 14 milljónir doll-
ara. í öðru sæti er Þýskaland og
í því þriðja er Japan. í fjórða og
fimmta sæti eru Stóra-Bretland
og Ítalía. Má kannski til sanns
vegar færa að mun dýrara sé að
vera ferðamaður í þessum lönd-
um heldur en í Frakklandi.
Þurrt og víða léttskýjað
Hæg breytileg eða norðaustlæg átt í
dag. Víða þokuloft og súld viö norð-
ur- og austurströndina og í fyrstu
Veðriðídag
einnig við Reykjanes en annars þurrt
og víða léttskýjað sunnanlands. Hæg
breytileg eða suðlæg átt í nótt og
skýjað með köflum eða léttskýjað og
þurrt en víða þokuslæðingur. Hiti 1
til 6 stig norðanlands en 6 til 14 stig
syðra. Á höfuðborgarsvæðinu verð-
ur hæg breytileg átt, skýjað með köfl-
um og í fyrstu þoka. Hiti 7 til 11 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.24
Sólarupprás á morgun: 3.26
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.13
(Stórstreymi)
Árdegisflóð á morgun: 7.31
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri þokumóða 4
Akurnes alskýjað 7
Bergsstaöir alskýjað 3
Bolungarvík alskýjað 3
Keílavíkurflugvöllur þoka 8
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 7
Raufarhöfn þoka 3
Reykjavík þoka 7
Stórhöfði skýjað 7
Bergen þoka 10
Helsinki léttskýjað 21
Kaupmannahöfn þokumóða 14
Ósló rign/súld 13
Stokkhólmur léttskýjað 17
Þórshöfn súld 8
Amsterdam léttskýjað 13
Barcelona súld 16
Berlín skýjað 17
Chicago skýjað 14
Frankfurt þokumóða 15
Glasgow skúr 11
London þokumóða 11
LosAngeles þokumóða 14
Lúxemborg skýjað 12
Malaga léttskýjað 22
Mallorca skýjað 20
New York skýjað 19
Nuuk léttskýjað 0
Orlando skýjað 23
París skýjað 14
Róm þokumóða 17
Valencia þokumóða 17
Vín léttskýjað 20
Winnipeg léttskýjað 20
Þórey Friðbjömsdóttir rithöfundur:
„Ég var alveg óskaplega ánægð
þegar mér var sagt að ég hefði feng-
ið íslensku barnabókaverðlaunin
fyrir Eplasnepla. Ég hef ekki samíð
skáldsögu áður fyrir þennan ald-
urshóp svo það má segja að þetta
hafi verið tilraun hjá mér. Ég læt
söguhetjuna Breka Bollason vera
sögumann, fannst það vera besta
aðferðin viö að komast inn í hugar-
heim krakka á þessum aldri," segir
Þórey Friðbjömsdóttir en hún er
tíundi rithöfundurinn sem hlýtur
islensku barnabókaverðlaunin.
Þórey er enginn nýgræðingur á rit-
veilinum, hefur áöur sent frá sér
tvær unglingabækur, Aldrei aftur,
sem kom út 1993, og Þegar sálin
sér, árið 1994.
Þórey hefur auk ritstarfanna
starfað sem kennari og þýðandi:
„Ég hef undanfarið kennt i Hliða-
skólanum þar sem ég hef kennt
Þórey Friðbjömsdóttir.
bömum, allt niöur í sex ára aldur,
og verið þýöandi í ein átta ár. Rit-
störfin hefég alltaf unnið meðfram
öllu og þegar ég er aö skrifa hefur
sólarhringurinn aldrei veriö nógu
langur enda legg ég nóttina við
daginn þegar ég vinn að bók.“
Þórey sagði að verðlaunin væru
henni mikil hvatning 'til aö halda
áfram ritsmíðum: „Eg held áfram
aö skrifa en spurningin er hvort
maður færir út kvíarnar eða heldur
áfram á þessari braut. Það er til að
mynda afekaplega freistandi að
halda áfram að skrifa um Breka
Bollason, efnið býður upp á það,
en það verður að koma í ljós síðar.“
Nafniö Eplasneplar hefur vákið
forvitni: „Þetta er oröaleikur auk
þess sem í því er viss merking sem
kemur í ljós við lestur bókarinnar.“
Þórey er fráskiiin og býr með
tveimur bömum sínum. Hún sagð-
ist vera svo heppin að geta samein-
að áhugamál og vinnu. „Það má
segja að allur minn aukatími fari í
skriftimar en ég er svo heppin að
fá að vinna viö þaö sem mér er
hvað hugleiknast og ég skemmti
mér alveg konunglega 1 vinnunnL
Að skrifa hefur verið áhugamál frá
því ég var bam. Ég fór mjög
snemma að skrifa sögur og yrkja
ljóð og hef aldrei misst áhugami á
ritstörfum en það dró að sjálfsögðu
úr siíku meðan á námi og bameign-
um stóð.“
Myndgátan
Málið þolir enga bið
Smáþjóða-
leikamir
Það er ekki núkið um aö vera í
íþróttum hér innanlands í dag,
knattspymumenh em i hvíld eft-
fr annasama helgi og boltinn
byijar ekki að rúlla fyrr en siðar
í vikunni. Það era aftur á móti
um það bii 180 íslenskir íþrótta-
menn í Lúxemborg þar sem Smá-
þjóðaleikamlr eru þetta árið.
Setningarathöfnin fór frara í gær,
en í dag hefst keppnin fyrir al-
vöru. Islendingar taka þátt í
nokkrum iþróttagreinum.
Landshð íslands í körfubolta er
komið til Lúxemborgar frá Sviss
þar sem það tók þátt í riölakeppni
Evrópumótsins, þá sendum við
hð í frjálsum iþróttum, borötenn-
isog sundioger flestokkar sterk-
asta íþróttafólk í þessum greiniun
með.
Skák
Bent Larsen deildi þriðja sæti meö
Rodriguez, Kúbu, á alþjóðlegu móti í San
Martin í Árgentínu fyrir skömmu - vann
funm skákir, gerði sex jafntefli en tapaði
tveimur.
Spangengberg, Argentínu, og Becerra,
Kúbu, deildu sigrinum, fengu hálfum
vinningi meira en Larsen og Rodriguez.
Larsen vann Becerra eftir spennandi
skák sem lauk svona; Larsen með hvítt
og á leikinn:
37. Dh6+ KgS 38. Be5! Dh7 39. Dxh7 +
Kxh7 40. Bc3 og svartur gaf því að hvítu
frelsingjamir eru óstöðvandi.
Jón L. Árnason
Bridge
Það er ekki alltaf best að spila úttekt
(game) í hálit í 4-4 tromplegunni, í sumum
tilfellum gefast þijú grönd betur - jafnvel
þó einn liturinn sé veikur. í leik Banda-
ríkjamanna og Pólveija á Rosenblum
heimsmeistarakeppninni í sveitakeppni
1994 græddu Bandaríkjamenn á því að
spila þijú grönd með 4-4 hjarta samlegu.
Þeir sátu í AV, austur opnaði á einu
grandi (12-14 punktar) og vestur stökk
beint í 3 grönd. Austur gjafari og AV á
hættu:
♦ A96
V D4
♦ D1062
+ 10962
* KD3
¥ KG52
♦ K985
+ 75
♦ 10742
V 963
♦ 74
♦ ÁK84
Zmudzinski, sem sat í suður, spilaði út
laufásnum, fékk talningu um jafna tölu
frá Balicki, félaga sínum í norður, og
spilaði næst laufafiarka. Sagnhafl, Chip
Martel, fékk slaginn á drottninguna, spil-
aði hjartaás og meira hjarta og þurfti nú
ekkert annað en að bijóta sér tvo slagi á
spaða úr því laufiö lá 4-4. Pólveijamir á
hinu borðinu vom svo óheppnir að finna
samlegima í hjarta. Sagnir gengu þannig:
Austur Suður Vestur Norður
Gawrys Kasle Lasocki Bates
1+ Pass 1* Pass
2* Pass 3 G Pass
4* p/h Lasocki bauð upp á 3 grönd en Gawrys
leist ekki á hundana sína tvo í trompi og
breytti í 4 hjörtu. Bates fann besta útspil-
ið, lauftvist, og Kasle tók tvo hæstu í litn-
um. Bates henti lauftíunni í öðrum slag
sem var kall í spaðalitnum og þriðja slag-
inn áttu þeir á spaðaásinn. Lasocki komst
síðan ekki hjá því að gefa slag á tígul og
Bandaríkjamenn græddu 12 impa þó að
það sé varla hægt að segja að það hafi
verið verðskulduð sveifia.
ísak örn Sigurðsson
f Á1087
♦ ÁG3