Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
Fréttir
Klofningur innan Sjálfstæðisflokksins 1 Hafnarfirði er staðreynd:
A-f lokkar semja ef
særindin gleymast
- Jóhann Bergþórsson verður líklega í stjórnarandstöðu út kjörtímabilið
Hyldýpisgjá er komin milli Magn-
úsar Gunnarssonar. oddvita Sjálf-
stæðisflokksins i Hafnarfiröi, og
stuðningsmanna hans annars vegar
og Jóhanns G. Bergþórssonar, bæjar-
fulltrúa og fvrrverandi oddvita
flokksins. og félaga hans hins vegar
- eftir að Ellert Borgar Þorvaldsson
bæjarfulltrúi og Magnús Kjartans-
son varabæjarfulltrúi greiddu Jó-
hanni atkvæði sitt í stöðu forstöðu-
manns framkvæmda- og tæknisviðs
á bæjarstjórnarfundi síðdegis á
þriðjudag í trássi við vilja oddvitans.
Sjálfstæðismenn í innsta hring eru
heitir út af klofningnum en bæjarbú-
ar og margir flokksmenn eru þreytt-
ir á átökunum og hafa samúð með
Jóhanni vegna meints samnings-
brots.
Misvindasamt hefur verið í bæjar-
stjórn Hafnaríjarðar undanfarið ár
og hefur starf forystu flokksins geng-
ið út á það að halda óróamanninum
Jóhanni G. Bergþórssyni, fyrrum
forstjóra Hagvirkis-Kletts, góðum.
Varð frægt í vetur þegar Jóhann
sprengdi meirihlutann og fór í við-
ræður við krata. Meirihluti Alþýðu-
bandalags og Sjálfstæðisflokks hefur
lifað dag frá degi síðan og kom því
engum á óvart þegar meirihlutinn
sprakk í framhaldi af umsókn Jó-
hanns um stöðu forstöðumanns
framkvæmda- og tæknisviðs. Jóhann
byggði kröfu sína á upprunalegum
samningi meirihlutans um að hann
fengi starfið og héldi áfram sem bæj-
arfulltrúi.
A-flokkarnir styrkjast
Bæjarmálin í Hafnarfirði eru kom-
in í biðstöðu eftir að meirihlutasam-
starfi Aiþýðubandalags og Sjálfstæð-
isflokks var formlega slitið á eins árs
afmælisdegi meirihlutans síðdegis á
miðvikudag eftir stormasaman bæj-
arstjórnarfund á þriðjudag.
Flokksmenn í öllum flokkum hitt-
ust á miðvikudagskvöldið til að ræða
stöðuna. Sjálfstæðismenn sam-
þykktu stuðningsyfirlýsingu við odd-
vita sinn með 2/3 greiddra atkvæða
í fulltrúaráðinu og ávirðingar á þre-
menningana, en Alþýðuflokksmenn
og Alþýðubandalagsmenn reyndu aö
gera sér grein fyrir stöðunni.
Sjálfstæöismenn i Hafnarfirði fund-
uðu um stöðuna í flokknum eftir
klofninginn i vikunni og má hér sjá
Jóhann G. Bergþórsson koma af
fundinum. DV-myndir BG
Ljóst er aö klofningurinn innan
Sjálfstæðisflokksins kemur til með
að styrkja A-flokkana verulega á
næstu misserum og veikja stöðu
Sjálfstæðisflokksins innan bæjar-
stjómar og trúlega koma niður á
flokknum í næstu kosningum. Á
þessu stigi er erfitt að segja til um
það hvort Jóhann G. Bergþórsson
muni kljúfa sig formlega út. úr
flokknum með félögum sínum. Hann
Staða Magnúsar Gunnarssonar,
oddvita Sjálfstæðisflokksins, hefur
veikst eftir að tveir bæjarfulltrúar
flokksins greiddu atkvæði gegn vilja
hans á bæjarstjórnarfundi.
verður þó að öllum líkindum í stjórn-
arandstöðu út kjörtímabflið. Alþýöu-
flokksmenn meta samstarf við hann
varla fýsilegt eftir það sem á undan
er gengið.
Uppákoman með Jóhanni veikir
verulega stöðu Magnúsar Gunnars-
sonar í stöðu oddvita Sjálfstæðis-
flokksins. Magnús þykir atkvæðalít-
fll en vinsæll, drengur góður og
óvanur refskap í pólitík. Margir inn-
an flokksins styðja hann ákaft og
vilja hann áfram.
Of snemmt er að segja hvort sundr-
ungin innan flokksins kemur niður
á honum í næstu kosningum en stað-
reyndin er sú að Magnúsi hefur ekki
tekist að halda flokknum saman eins
og hlýtur að vera lágmarkskrafa til
oddvita.
Brotiö blað?
Innan Sjálfstæðisflokksins eru
uppi raddir um aö bæjarfulltrúamir
Magnús Gunnarsson og Valgerður.
Sigurðardóttir fari í meirihlutasam-
starf með alþýðuflokksmönnum.
Magnús er sagður lipur í samstarfi
og taliö ólíklegt að hann leggi höfuð-
áherslu á að fá bæjarstjórastólinn
sem kratar gimast. Samstarf krata
Fréttaljós
Guðrún Helga Sigurðardóttir
og sjálfstæðismanna er þó ólíklegt í
bænum við fjörðinn þar sem alþýðu-
flokksmenn og og sjálfstæðismenn'
eru erkifjendur hefðinni samkvæmt.
Þaö yrði allavega til aö bijóta blað í
stjórnmálasögu bæjarins og kannski
færa Alþýðuflokknum sjötta bæjar-
fulltrúann í kosningunum eftir þrjú
ár. Og það vilja sjálfstæðismenn
varla.
Áhugamenn um hafnfirsk stjórn-
mál sem DV hefur rætt við telja lang-
líklegast aö Alþýðuflokkur og Al-
þýðubandalag nái samkomulagi í
meirihlutasamstarf í Firðinum þegar
viðræður hefjast af alvöru eftir helg-
ina, þrátt fyrir særindi innan Al-
þýðuflokksins eftir kærumál Magn-
úsanna á hendur krötum og Jóhanni
- enda eru þessir flokkar alvanir
samstarfi. Málefnalega séð ættu
flokkarnir að geta náð vel saman.
Alþýöuflokksmenn hljóta að velta
því fyrir sér hvort hægt sé að láta
særindin gleymd og grafin.
Þá er spurning hvort alþýðubanda-
lagsmenn einblíni á áframhaldandi
setu Magnúsar Jóns í bæjarstjóra-
stólnum og láti samninga brotna á
honum.
Hátt 1 milljón króna sekt fyrir stórfellda bruggstarfsemi:
H ver dagur í vara-
refsingu metinn á
10 þúsund krónur
Sjóli skiptir
umnafnoglit
Ákveðiö hefur verið aö frysti-
togarinn Sjóli HF, sém Fiskiðjan
Skagfirðingur á Sauöárkróki
keypti fyrir nokkru frá Hafnar-
firði, skipti um nafn og heiti
Málmey SK.
Gísli Svan Einarsson, útgeröar-
stjóri fyrirtækisins, sagöi viö DV
aö einnig heföi verið ákveðið aö
breyta um liti á skipum og húsum
fyrirtækisins. í stað dökkgræna
og hvíta litsins sem var ráöandi
verða nú teknir upp sægrænn og
sólgulur litur.
Fiskiöjan Skagfiröingur gerir
nú út fjögur skip, Skagfirðing,
Hegranes, Skafta og Sjóla. Þegar
er búið aö mála Hegranes SK í
þessum litum og gárungar segja
þetta vera feluiiti til aö komast
inn á Svalbarðasvæðið. Togarinn
Drangey, sem mikið kom viö sögu
á Svalbarðasvæðinu og í Smug-
unni í fyrrasumar, hefur veriö
seldur til Vopnafjarðar. -rt
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt 22 ára Hafnfirðing, búsettan í
Danmörku, til að greiða 800 þúsund
króna sekt fyrir framleiðslu á landa.
Maðurinn var með bruggstarfsemi
sina í verksmiöjuhúsnæði við Fiski-
slóð. Réðst lögreglan til inngöngu í
húsið í desember á síðasta ári. Viður-
kenndi maðurinn við yfirheyrslu
lögreglu aö hafa framleitt þar
gambra í þremur tunnum, samtals
600 lítra, og þremur dögum síðar eim-
að úr því um 150 lítra af sterku
áfengi. Enn fremur viðurkenndi
hann aö hafa framleitt 1936 lítra sem
úr áttu að koma um 450 lítrar af
sterku áfengi. Áður en til þess kom
lagði lögreglan hald á gambrann og
149 lítra af landa.
Samkvæmt dómi voru umræddir
149 lítrar afRtnda geröir upptækir,
svo og tvö eimingartæki og annar
búnaður til áfengisgerðar. Maðurinn
hefur áður hlotið dóm fyrir brot á
áfengislögum og oftsinnis gerst brot-
legur við umferðarlög. Þótti dómin-
um hæffleg refsing mannsins 800
þúsund krónur.
Athygli vekur að i dóminum segir
að ef sektin sé ekki greidd innan fjög-
urra vikna skuli 80 daga varðhald
koma í stað hennar. Myndi maður-
inn þá „þéna“ 10 þúsund krónur á
dag í varðhaldinu ef hann ákvæði að
greiöa ekki sektina.
Sverrir Einarsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
-PP
Dietkók:
Röng blanda
ámarkað
„Við fengum ranga formúlu
senda frá Evrópu og blönduðum
eftir henni. Bragöið af þessum
drykk var ólíkt því bragöi sem
íslendingar eiga að venjast, en
þetta var samt engu aö síöur diet
kók,“ sagði Trausti Sigurðsson,
sölustjóri hjá Vífilfelli, en í rúma
viku hefur nýtt og breytt diet kók
verið til sölu í verslunum.
Glöggir neytendur gosdrykks-
ins tóku eftir mismuninum og
höfðu samband við DV vegna
hins nýja bragös. Að sögn kunn-
ugra var óvenju mikið kólabragö
af gosinu.
„Þetta voru mistök sem við gát-
um ekki ráðið viö. Það er verið
að leiðrétta þau og diet kókið sem
við þekkjum mun koma aftur á
markaðinn fyrir og um helgina,“
sagöiTrausti. -GMB
BreiöaQöröur:
Ýsa seldist
á metverði
„Ég man ekki eftir hærra verði
á ýsu hér. Þaö er lítið framboð
og marga vantar fisk,“ segir Sig-
uriaug Egilsdóttir hjá Fiskmark-
aði Breiðafjarðar þar sem ýsa
seldist á miðvikudag á metverði
eða allt að 225 krónur kilóið. Alls
voru seld um 550 kíló á 201 krónu
að meðaltali
Sigurlaug segir að verð á öörum
tegundum hafi einnig veriö gott
en þó ekkert í líkingu viö þetta.
Þorskur seldist á 108 krónur kíló-
ið og aðrar tegundir yfir meðal-
lagi. -rt
Fossvogur:
Nágranna-
varslan
ekki haf in
Nágrannavarsla í Fossvogsdal
er ekki enn hafin þrátt fyrir aö
foreldrar í hverfinu hafi ákveðið
á fundi sínum að hefja slíkt starf
í kjölfar þess að nokkur börn í
hverfinu urðu fyrir kynferðis-
legri áreitni.
Fyrirhugað var að nágranna-
varslan færi fram í samvinnu við
lögreglu. Hefur nefnd, sem kosin
var, fundað meö lögregiu. í sam-
einingu var gengið frá fyrir-
komulagi en nú er þess beðið að
það verði kynnt íbúum. Ætlunin
var að gera það í fréttabréfi sem
gefið er út af hálfu Bústaðakirkju.
Fréttabréfið var ekki komiö út
þegar síðast fréttist.
Ekki hefur borið á fleiri málum
af því tagi sem greint var frá í
DVfyrirskömmu. -pp
Aflvaki Reykjavíkur:
Starfsemin
útvíkkuð
Á fundi borgarráðs nýlega var
samþykkt að ganga frá samningi
Reykjavíkurborgar viö Aflvaka
Reykjavikur um útvíkkun á
starfsemi félagsins og flölgun
samstarfsaðila en viðreeður þessa
efnis hafa staðið yfir undanfarn-
ar vikur.
Meðal þeirra aðila sem lýst hafa
áhuga á að ganga tö samstarfs
viö Aflvaka Reykjavíkur er Hafn-
arfjarðarbær. Af því tflefni stend-
ur til að stækka athafnasvæöi
félagsins og miöa það við höfuð-
borgarsvæöið sem sameiginlegt
atvinnusvæði.
Borgarráö tók undir tfllögu Afl-
vaka um að samstarfssamningi
viö Reykjavikurborg yröi breytt
og samningstíminn lengdur ura 2
ár eða til ársloka 1999. -bjb