Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
Trimm
Marinó Freyr Sigurjónsson:
Hætti að hjóla
og fór að hlaupa
„Það eru þrjú ár síðan ég fór að
hlaupa fyrir alvöru. Fyrir þann tíma
voru hlaupin bara eitthvað sem maö-
ur gerði á veturnar til þess að halda
sér í þjálfun fyrir hjólreiðar sumars-
ins.“
Þetta segir Marinó Freyr Sigur-
jónsson, 22 ára viðskiptafræöinemi
og fyrrverandi íslandsmeistari í
fjallahjólreiðum, sem nú hefur end-
anlega hengt upp sinn hjólhest og
reimað á sig hlaupaskóna. Marinó
hefur vakið verðskuldaða athygli
meðal hlaupara og skokkara fyrir
góða frammistöðu í hlaupum sem
hann hefur tekið þátt í. Hann keppti
í hálfu maraþoni í Reykjavíkurmara-
þoni 1994 og fór á 1:21.
„Ég var fyrst hálfan vetur hjá
Námsflokkum Reykjavíkur hjá Jak-
Umsjón
Páll Asgeir Asgeirsson
obi Braga Hannessyni en frá haust-
inu 1993 hef ég hlaupiö hjá ÍR undir
handleiðslu og leiðsögn Gunnars
Páls Jóakimssonar."
Samkvæmt leiðbeiningum Gunn-
ars hleypur Marinó um 80 kílómetra
á viku um þessar mundir og fer út á
hverjum degi og heldur nákvæma
dagbók yfir hlaupin.
„Mér finnst betra að fara 5-6 km
mjög rólega frekar en að hvíla.“
Hann stefnir á að taka þátt í
Reykjavíkurmaraþoni og takast aft-
ur á við hálft maraþon. Stefnan er
sett á að fara leiðina á skemmri tíma
en 1:20. Marinó hefur einu sinni á
vorinu keppt í hálfu maraþoni og það
var í Húsasmiðjuhlaupinu þar sem
hann varö fyrstur af körlum skammt
á eftir Önnu Cosser sem sigraöi.
„Ég ætla ekki að hlaupa hálft aftur
fyrr en í Reykjavíkurmaraþoni.
Fram að því mun ég taka þátt í götu-
hlaupum en einbeita mér frekar að
10 kílómetrum sem er skemmtileg
vegalengd. Ég hef ekki verið alveg
nógu duglegur að hlaupa í vetur.
Próflesturinn tók mikinn tíma frá
hlaupunum.
Mér hefur gengið illa að hlaupa
hálft maraþon. Miðað við besta tím-
ann minn í 10 kílómetrum, sem er
35:26, er ég ekki að hlaupa hálft
marraþon nógu vel.“
Marinó upplýsir að ástæða þess að
hann ákvað að einbeita sér að hlaup-
unum frekar en að stunda hlaup og
hjólreiðar saman hafi veriö löngun
til þess aö ná betri árangri í hlaup-
um.
„Þetta er hvort tveggja mjög góð
þjálfun en ef þú vilt ná árangri í ann-
arri íþróttinni verðurðu að einbeita
þér að henni sérstaklega. Mér fannst
ég oft verða svolítið stiröur af hjól-
reiðunum og það passaði ekki nógu
vel við hlaupin.“
Ef Marinó væri að æfa hjólreiðar
með þátttöku í íslandsmóti í huga
segist hann myndu hjóla um 300 kíló-
metra á viku.
Sambýliskona Marinós er þekktur
hlaupagarpur, Gerður Rún Guð-
laugsdóttir, svo af sjálfu leiðir að
íþróttaiðkun er sameiginlegt áhuga-
mál þeirra. En hefur keppnisskapið
góð áhrif á samband þeirra.
„Við teljum að það hafi fyrst og
fremst góð áhrif. Við æfum mikið
saman og lífið snýst töluvert í kring-
um þetta og hlutir eins og mataræði
í heimilishaldinu taka mið af því,“
segir Marinó sem viöurkennir að
hann þurfi frekar að hugsa um að
borða nóg en of mikið.
Hann hefur stundum skokkað með
þekktum hlaupahópi sem kennir sig
við ÖL og hleypur á sunnudags-
morgnum. Þar hefur hann séð fram-
tíð sína.
„Þarna eru frábærir hlauparar og
ótrúlega harðir naglar sem eru
margir um og yfir fimmtugt. Það er
uppörvandi að sjá hvað þessi íþrótt
getur fylgt manni langt fram eftir
aldri. Spuröur um framtíðarmark-
mið viöurkennir hann að einhvern
tímann á æfinni langi hann til þess
að taka þátt í heimsfrægri þríþraut
á Hawai sem kennd er við Ironman.
Marinó segir að þríþraut sé afar
skemmtilegt viöfangsefni sem of fá
tækifæri gefist hérlendis til þess að
stunda. Ironman þríþrautin sam-
anstendur af hlaupi, sundi og hjól-
reiðum og hlaupið er heilt maraþon,
synt 3,8 km og hjólað 180 km.
Cosser hljóp hratt
í Stokkhólmi
Anna Cosser, íslandsmeistari í um. Þetta er rúmlega einnar mín-
maraþonhlaupi í kvennahlaupi, útu betri timi en Anna fékk í
tók þátt í maraþonhlaupi í Stokk- Reykjavíkurmarþoni í fyrra. Gott
hólmi um síðustu helgi og hljóp hjá henni.
heílt maraþon á 2:55 klukkustund-
Marino Freyr stefnir á hálft maraþon i Reykjavikurmaraþoni i sumar.
DV-mynd GVA
Mætum
ímið-
hlaupið
Föstudaglnn 23. júní verður hiö
árlega miðnæturhlaup haldið í
þriðja sínn í Laugardalnum og
hefst það klukkan 23:00. Keppt
verður í 10 kílómetra hlaupi með
timatöku og flokkaskiptingu og í
3 kilómetra skemmtiskokki án
timatöku. Hlaupaleiðin liggur um
Laugardal frá Sundlaugunum og
inn Laugarásveg og Sunnuveg og
síðan eftir dalbotninum út að
skautasvellinu. Þar skilja leiðir
og skemmtiskokkarar skemmta
sér við að skokka áfram út að
sundlaug meðan 10 kílómetra
hlauparar fara upp að Suður-
landsbraut og út með henni aö
Reykjavegi. Síðan er fariö niður
Reykjaveg að Sundlaugunum og
þar hefst annar eins hringur.
Þátttökugjald er 800 krónur fyr-
ir fullorðna en 600 fyrir krakka
yngri en 12 ára. Aö vanda eru
vegleg þátttökuverðlaun. Allir
sem ljúka hlaupinu fá verðlauna-
pening, auk þess par af hinum
vönduöu Maraþon hlaupasokk-
um, Pantene sjampóflösku,
Sunquick svaladrykk og NewEn-
ergy orkusúkkulaöi. Alhr kepp-
endur fá frítt í sund að loknu
hlaupi. Þrír efstu í hverjum ald-
ursflokki karla og og kvenna í 10
km hlaupinu fá sérstakan pening
og sérstök útdráttarverðlaun
veröa veitt.
Skráning fer fram 19.-23. júní á
skrifstofu Reykjavíkurmaraþons
og í Sundlaugunum í Laugardal.
Þetta hlaup er jafnfram ólympiu-
hlaup ársins 1995. Miðnætur-
hlaupið hefur notið sívaxandi
vinsælda sem sést best á því að
fyrsta árið mættu 900 manns en
í fyrra 1.200. Verði svipuð fjölgun
milli árakoma 1.600 manns í ár.
Að lokum er rétt að minna á
hina fomu þjóðtrú að velti menn
sér naktir í dögginni á Jóns-
messunótt batni þeim flestir
kvillar sem sækja á þá og þeim
eflist orka og fjör.
Reykjavíkurmaraþon 20. ágúst:
Styrktaræfingar til
að fá alhliða styrk
-10 km, hálfmaraþon og maraþon
Mjög gott er að gera styrktaræfing-
ar samhliða skokkinu tvisvar til
þrisvar í viku. Magavöðva og bak-
vöðva þarf að styrkja samhliða
skokkinu. Jafnframt er mjög gott að
4. vika. 18/6-24/6
taka armbeyjur til að auka styrk efri
hluta líkamans. Þetta eru allt æfing-
ar sem hægt er að stunda heima í
stofu og þurfa ekki mikið pláss. Til
aö auka fótstyrk getur verið gott að
nota lóð en varast skyldi miklar
þyngdir. Mun gæfulegra er að gera
fleiri endurtekningar.
Jakob Bragi Hannesson
Styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons
10 km 21 km 42 km
Sunnudagur 8 km ról. 18kmról. 22 km
Mánudagur Hvild Hvíld Hvíld
Þriðjudagur 6km (hraðaleikur). 8km (hraðaleikur). 8km (hraðaleikur).
Fyrst 2 km ról. og síðan Fyrst 2 km ról. og síðan Fyrst 2 km ról. og síðan
2 km með stuttum sprettum 4 km með stuttum sprettum 4 km með stuttum sprettum
ogjoggiámilli. ogjoggi á milli. ogjoggiámilli.
Síðan 2 km í lokin Síðan 2 km ról. I lokin. Síðan2km ról.ilokin
Miðvikudagur 5km 12 km ról. 15 km ról.
Fimmtudagur Hvíld Hvíld 8kmról.
Föstudagur Jónsmessunæturhlaup Jónsmessunæturhlaup Jónsmessunæturhlaup
3 km 10km 10km
Laugardagur 4 km ról. 8 km ról. 8kmról.
Samt: 26 km 56 km 71 km
IDV er styrktaraðili r0§ flugleidirJSt Reykjavíkurmaraþonsins w ASiCS^ ^atolMflQ