Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Page 11
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
11
DV
Spennanmagn-
Helgi Tómasson fær mikið lof 1 The New York Times:
Meiming
Þóra Jónsdóttir
astíTónvaka
Tveir afþremur hlutum tónllst-
arkeppninnar Tónvakans á veg-
um Ríkisútvarpsins eru að baki.
Sextán tónlistarmenn hófu leik-
inn en nú hafa veriö valdir sex
fyrir þriðja og síðasta hiutann
sem iram fer 31. júlí nk.
Tónlistarmennirnir sem eftir
eru í Tónvakanum eru Ármann
Helgason, Emil Friðfinnsson, Jón
Ragnar Ömólfsson, Jón R. Mýr-
dal, Júlíana Rún Indriðadóttir og
Siguröur Marteinsson.
Ólafurformaður
bókaútgefenda
Stórkostleg
uppsetning
- skipulagði alþjóðlega danssýningu með 13 balletthópum
meðnýjabók
Mýrarsel hef-
ur gefiðút nýja
ljóðabók eftir
Þóru Jónsdótt-
ur sem nefnist
Lesnætur.
Þetta er sjö-
unda ljóðabók
Þóru, auk þess
sem hún hefur þýtt ljóð eftir Agn-
etu Pleiel. Lesnætur innihalda 28
ljóð.
Áður út komnar bækur Þóru
eru Leit að tjaldstæði (1973), Leið-
in norður (1975), Horft í birtuna
(1978), Höfðalag að hraöbraut
(1983), Á hvítri verönd (1988) og
Línur í lófa (1991).
Á aðalfundi
Félags ís-
lenskra bókaút-
gefenda nýlega
var Ólafur
Ragnarsson,
forstjóri Vöku
Helgafells,
kjörinn for-
maður félagsins. Á fyrsta fundi
nýrrar stjómar var samþykkt
ályktun þess efhis að skora á
stjórnvöld að aflétta virðisauka-
skatti af islenskum bókum.
Úthlutaðúr
Þjóðhátíðarsjóði
Úthlutun úr Þjóðhátíðarsjóði
fyrir árið 1995 hefur farið fram.
AIls voru 6 milljónir til úthiutun-
ar. Þar af fóra 3 milljónir til Frið-
lýsingarsjóðs og Þjóðminjasafns
samkvæmt lögum sjóðsins. Þrjár
milljónir voru því til skiptanna
fyrir þær 78 umsóknir upp á 38
milljónir sem bárust um styrki.
Alls hlaut 21 aöili styrk.
Jákvætt viðhorf
tilíslenskra
kvikmynda
Félag kvikmyndagerðarmanna
lét nýlega gera könnun á viðhorfi
íslendinga til innlendrar kvik-
myndagerðar og ýmissa þátta
sem henni viðkoma. Helsta nið-
urstaðan var sú að jákvæðni ríkti
i garð íslenskrar kvikmynda-
geröar.
Ein niðurstaöa könnunarinnar
vekur nokkra athygli. Þátttak-
endur, um 400 manns, voru
spurðir hvort þeir teldu réttlæt-
anlegt að takmarka sýningar á
bandarískum kvikmyndum í bíó-
húsum hérlendis. Áf þeim sem
tóku afstöðu 'svöraðu 76,7%
spurningunni neitandi, þ.e. vildu
ekki takmarka sýningar á banda-
rískum kvikmyndum.
NorrænirÓrar
{næstu viku verður sýnt í Þjóð-
leikhúsinu leikritiö Órar sem er
afrakstur fmnsk-íslenskrar sam-
vinnu á sviði leiklistar. Verkið
verður fyrst frumsýnt í Finnlandi
um komandi helgi. Leikstjóri er
Finninn Kaisa Korhonen. Sex ís-
lenskir leikarar taka þátt, þau
Arnar Jónsson, Tinna Gunn-
Iaugsdóttir, Bára Lyngdal Magn-
úsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson,
Jóna Guörún Jónsdóttir og Ing-
var E. Sigurðsson.
-bjb
Finnsk-íslenski leikarahópurinn.
í stórblaðinu The New York Times
mátti nýlega lesa mjög jákvæða
gagnrýni um alþjóðlega danssýningu
sem Helgi Tómasson hjá San Fran-
cisco ballettnum skipulagði í tilefni
af 50 ára afmæli Sameinuðu þjóð-
anna. Helgi bauð til borgarinnar 13
balletthópum úr 5 heimsálfum, auk
þess sem hann setti sjálfur upp dans-
sýningu með San Francisco ballettn-
um en þar hefur hann veriö listrænn
stjórnandi nokkur undanfarin ár.
í dómi blaðsins segir að Helgi hafi
tekið djarfa ákvörðun með að bjóða
svo mismunandi balletthópum til
Bandaríkjanna. Meðal þeirra voru
Leipzig ballettinn, Shanghai ballett-
inn, Kúbanski ballettinn, Konung-
legi danski ballettinn, Ballett óper-
unnar í París og Konunglegi breski
Helgi Tómasson er sem fyrr í sviðs-
Ijósinu í Bandarikjunum.
ballettinn. Margir þessara hópa
höfðu aldrei komið fyrir sjónir
bandarískra ballettunnenda. Helgi
lagði áherslu á að bjóða htlum og lítt
frægum balletthópum og segir blaðið
hann hafa tekið rétta ákvörðun þar.
New York Times segir uppsetningu
og skipulagningu Helga stórkostlega
og sönnun þess að ballettinn eigi sér
engin landamæri þrátt fyrir mis-
munandi hefðir eftir þjóðlöndum.
Framlag San Francisco ballettsins
var dúett eftir Helga Tómasson, Þeg-
ar við snertumst ei meir, sem íjallar
um samskipti móður við son sinn
sem hefur fengið hinn illvíga sjúk-
dóm alnæmi. Verkið hlýtur lof í blað-
inu enda búið að sýna það oft fyrir
fullu húsi í San Francisco í vetur.
-bjb
Bátasmiðurinn
í Óperudrauginn
- nýtt tilboð freistar að yfírgefa Konunglegu óperuna í Stokkhólmi
Páll Jóhannesson tenórsöngvari er staddur hér á landi i tónleikaferð ásamt
Lenu Tivelind messósópran. DV-mynd BG
Islendingar sem komu sér tíman-
lega fyrir framan sjónvarpsskjáinn
þegar landsleikurinn við Svía í
Stokkhólmi var sýndur í beinni út-
sendingu á dögunum fengu gæsahúð
þegar Páll Jóhannesson tenórsöngv-
ari kyrjaöi íslenska þjóðsönginn fyr-
ir framan tæplega 30 þúsund knatt-
spyrnuáhorfendur á Rásunda-vellin-
um. Flutningur Páls á þjóðsöngnum
var stórkostlegur og nú geta íslend-
ingar fengið að hlusta á Pál í eigin
persónu. Hann er staddur hér á landi
í tónleikaferð ásamt Lenu Tivelind
messósópran. Páll hefur undanfarin
5 ár verið fastráðinn hjá Konunglegu
óperunni í Stokkhólmi. í viötali við
DV kemur m.a. fram að Páll hefur
undir höndum tilboð frá óperuhús-
inu í Basel í Sviss um að taka þátt í
uppfærslu næsta vetur á söngleikn-
um Óperudraugnum eftir Andrew
Lloyd Webber.
Um sönginn á Rásunda-vellinum
sagði Páll að sendiráðið í Stokkhólmi
heföi bent Svíum á hann.
„Þetta var mjög gaman. Ég hef
sennilega aldrei sungið fyrir jafn
marga í einu því völlurinn var troð-
fullur. Þaö er krefiandi verkefni að
syngja íslenska þjóðsönginn því
hann stígur nærri því tvær áttund-
ir,“ sagði Páll.
Páll er enginn nýgræðingur í söng-
listinni. Hann er fæddur og uppalinn
í Eyjafirði og er lærður trésmiður
með bátasmíði sem sérgrein. Hann
fór fyrst í söngnám árið 1973 hjá Sig-
urði Demetz á Akureyri á sama tíma
og Kristján Jóhannsson sem þá kom
úr skipasmíðinni sem járnsmiður!
Árið 1976 lagði Páll bátasmíöina á
borðstokkinn og skellti sér í frekara
söngnám við Söngskólann í Reykja-
vík hjá Magnúsi Jónssyni til ársins
1981. Þá var komið að því að fara út
í heim. Páll fór í söngnám til Ítalíu
og var þar fram til ársins 1986, fyrst
í tvö ár hjá Erginio Ratti og síðan
hjá Pierre M. Ferraro. Árið 1986 kom
Páll til íslands og starfaði sem söng-
kennari á Akureyri næstu þrjú árin.
Árið 1989 fór hann til Svíþjóðar og
fyrsta árið var hann í kór Stora Te-
atren í Stokkhólmi. Haustið 1990 fékk
Páll fastráðningu hjá Konunglegu
óperunni í Stokkhólmi og hefur
sungið þar síðan í fiölmörgiun hlut-
verkum.
Forráðamenn óperahússinns í
Basel heyrðu í Páli í vetur og heilluð-
ust af söng hans. í framhaldi af því
kom tilboð í apríl sl. um að syngja
eitt aðalhlutverkið í söngleiknum
Óperudraugnum.
í sínu besta formi
„Mér líst nokkuð vel á þetta tilboð
frá Basel. Þetta er miðsvæðis í Evr-
ópu og gæti gefið mér möguleika á
frekari tækifærum í sönglistinni. Ég
hef fullan hug á gera eitthvað nýtt
og meira því ég finn að ég er í minu
besta formi,“ sagði Páll.
Páll og Lena komu fram í Hafnar-
borg í fyrrakvöld og hlutu mjög góð-
ar viðtökur en þau hafa farið sigur-
fór um Noreg og Svíþjóð með söng-
dagskrána. Undirleikari með þeim á
íslandi er Ólafur Vignir Albertsson.
Næst verða þau með tónleika í Gler-
árkirkju 22. júní kl. 20.30 og í Safna-
húsi Dalvíkur kvöldið eftir. Að sögn
Páls era líkur á að tónleikar í Reykja-
vík verði endurteknir áður en þau
fara utan til Svíþjóðar í lok júní.
-bjb
Bók um list
Ásmundar
Ásmundarsafn og Listasafn
Reykjavikur hafa gefið út hsta-
verkabók um list Ásmundar
Sveinssonar myndhöggvara.
Bókin er jafhframt sýningarskrá,
gerð í tilefni af opnun sýningar-
innar Stillinn í list Ásmundar
Sveinssonar sem opnuð var 27.
maí sl. í bókinni er að finna fróð-
lega grein eftir Gunnar B. Kvar-
an, forstöðumann Listasafns
Reykjavíkur, og fiölda vandaðra
mynda af verkum Ásmundar.
Texti bókarinnar er bæði á ís-
lensku og ensku.
Ljóðfrámynd-
listarmanni
Bókaútgáfan
Bjartur hefur
gefið út ljóða-
bókina Stund-
um alitaf,
Harald Jónsson
myndlistar-
mann. Þetta er
fyrsta ljóðabók
Haralds en hann hefur getið sér
gott orð á myndlistarsviðinu.
Hann stundaði nám í MHÍ, í
Þýskalandi og Frakklandi og hef-
ur haldið fiölda einka- og samsýn-
inga á íslandi og erlendis. Ljóða-
bókin er 64 blaðsíöur að stærð,
prentuö i Gutenberg. Kápu hann-
aöi Snæbjörn Arngrímssson.
Nýtttímarit
Málsogmenn-
ingarkomiðút
Tímarit Máls og menningar, 2.
hefti 1995, er komið út. Heftið er
aö stórum hluta helgað skáldskap
Einars Más Guðmundssonar.
Birt er viðtal Silju Aðalsteins-
dóttur við hann, þakkarræða
Einars við afhendingu Bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs og ritdómur Páls Valssonar
um verölaunabókina, Engla al-
heimsins.
Að vanda birtir timaritið skáld-
skap eftir þekkt og óþekkt skáld
á ýmsum aldri og nokkrar fróð-
legar greinar. Ritstjóri tímarits-
ins er Friðrik Rafnsson.
einstakarfrá
Skjaldborg
Skjaldborg hefur sent frá sér
tvær nýjar bækur í smábóka-
flokknum „Tii gjafa - til að eiga“.
Þetta eru bækurnar Alveg ein-
stök amma og Alveg einstakur
sonur. Áður hafa komið út í sama
flokki: Alveg einstök dóttir, Alveg
einstök móðir, Alveg einstakur
vinur og Hlotnist þér hamingja.
í bókunum er safn tilvitnana um
afmarkað efni. Óskar Ingimars-
son íslenskaði. Baskumar eru
prentaðar í Ungverjalandi.
-bjb