Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Page 13
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
13
Fréttir
Post fer vel af staö og er komin í fyrsta sæti söluvinsældalistans:
Plata Bjarkar söluhæst
- ný plata Michaels Jacksons gæti ógnaö fyrsta sætinu eftir helgi, segir umboösmaöur
„Björk er í fyrsta sæti á vinsælda-
listanum í Bretlandi. Nýja platan
hennar, Post, hefur selst best í vik-
unni. Við erum auðvitað mjög ham-
ingjusöm. Viö erum að vinna með
stórkostlegum listamanni sem er aö
gefa út frábæra plötu. Hlutirnir gætu
þó breyst því ný plata frá Michael
Jackson kemur út á morgun (íostu-
dag). Þaö er möguleiki á því að hún
seljist í stærra upplagi á næstu
tveimur dögum en Björk og allir hin-
ir til samans. Jackson gæti því verið
kominn fram úr okkur á vinsælda-
listanum á mánudaginn - það er
möguleiki," sagði JefT Muncey, hjá
Brave Managements, umboðsskrif-
stofu Bjarkar í London, við DV.
„Miðvikulisti", sem er byggður á
sölutölum plötuverslana í Bretlandi,
var birtur í gær. Geisladiskur Bjark-
ar, Post, var þá kominn í fyrsta sæti
- sú plata sem hefur selst mest í Bret-
landi í vikunni en hún kom út á
mánudag.
Jeff sagði að Post færi miklu betur
af stað en hin vinsæla Debut-plata
Bjarkar. Ástæðan væri þessi:
„Við dreifum miklu stærra upplagi
af plötu Bjarkar nú en áður. Þegar
Debut var dreift seldist hi'rn og seld-
ist á löngu tímabili, jafnt og þétt.
Salan fór vaxandi með tímanum.
Debut fór hins vegar ekki þetta hátt
á sölulistum í byrjun enda var Björk
þá ekki eins þekkt og hún er í dag.
Mér finnst nýja platan Post alveg
frábær og held að hún muni líka selj-
ast vel og lengi. Björk hefur nú unn-
ið sér sess og stekkur strax í fyrsta
sætið,“ sagöi Jeff.
Hann sagði jafnframt að mun
lengri tíma taki að fá upplýsingar frá
öðrum löndum en Bretlandi hvað
varðar sölutölur á nýju plötunni
hennar Bjarkar. Það muni þó koma
í ljós von bráðar.
Umræddur vinsældarlisti er
byggður á söiutölum frá verslunum
i Bretlandi þar sem sölukerfin eru
tengd talningu. Jeff sagði þetta vera
sama kerfið og notað er á sunnudög-
um þegar endanlegur vikulisti er
birtur í Bretlandi.
-Ótt
Veiðar 1 Smugunni:
Stakfellið
og Sólberg
fari strax
„Skipið fer beint norður í Smugu
um leið og verkfalli hefur verið af-
létt. Það verður einhver að fara
þarna norðureftir því öðruvísi fást
engar fréttir af slóðinni. Það getur
vel verið að við fáum lélegan túr en
það verður að hafa það,“ segir Jó-
hann A. Jónsson, útgerðarmaður
Stakfells ÞH frá Þórshöfn.
Margir útgerðarmenn eru tvístíg-
andi með að senda skip sín norður
eftir. Þorvaldur Jónsson hjá Sæbergi
hf. á Ólafsfirði segir ákveðið að einn
þriggja togara fyrirtækisins haldi til
Smuguveiða strax í lok verkfalls.
„Ég reikna meö að Sólbergið fari
strax af stað en hin skipin, Múlaberg
og Mánaberg, bíði átekta," segir Þor-
valdur.
Bíðum átekta
„Við bíöum bara átekta enn um
sinn. Ef veiðivon verður þarna norð-
ur frá erum við tilbúnir til að senda
skip norðureftir með skömmum fyr-
irvara," segir Friðrik Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Tanga hf. á
Vopnafirði.
Tangi gerir út tvo togara, Bretting
og Drangey, auk þess sem dótturfyr-
irtækið Úthaf hf. gerir út aöra tvo
togara, Hágangana sem frægir eru
orðnir af Smuguveiðum. Friðrik seg-
ir enn óljóst hvort og hvenær skipin
fari af stað.
„Veiðin þarna byrjaði ekki fyrir
alvöru fyrr en eftir fyrstu vikuna af
júlí þannig að ekkert hggur á,“ segir
Friðrik. -rt
Utanríkisráöuneytiö:
Guðmundur Ei-
ríksson tekur aft-
urviðstarfi sínu
Guömundur Ei-
ríksson þjóðréttar-
fræðingur hefur
tekið við starfi í
utanríkisráðuneyt-
inu á ný eftir hlé
síðan í fyrrasumar.
Guðmundur hætti
störfum í ráðherr-
atið Jóns Baldvins
Hannibalssonar en
fljótlega eftir að Guðmundur Ei-
Halldór Ásgríms- riksson þjóðrétt-
son arfræðingur.
tók við embættinu var Guðmundur
endurráðinn. í millitíðinni hefur
hann starfað innan Alþjóðalaga-
nefndarinnar en lætur af nefndar-
setu þar um miðjan júlí.
Benedikt Jónsson, staðgengill
ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneyt-
isins, segir að Magnús Hannesson
þjóðréttarfræðingur, sem ráöinn var
í stað Guðmundar, muni starfa
áfram við hlið Guðmundar. Guð-
mundur er væntanlegur til landsins
í byijun júlí. Haft var eftir Guð-
mundi í DV í fyrrasumar að hann
heföi þá lengi barist fyrir því að fá
annan mann sér við hlið og nú er
lj óst að það gengur eftir. -rt
JAPISS
BRAUTARHOLTI 2 OG KRINGLUNNI SÍMI 562 5200
PanasonU NVA V myndbandsupptökuvélin
er einstaklega féff
og meðfæríleg,
hún er einföld
i notkun og með
V O falda aðdráttarlinsu.
Panasonie TC T4SV sjónvarpstækið
er með 14" skjá,
allar aðgerðir
koma fram á skjánum,
tengingar fyrir
myndbandsupptökuvél
og beyrnatól eru að
framanverðu og með
tækinu fylgir inniloftnet,
tilvalið í fríið.