Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Síða 17
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
17
Fréttir
Taílensk kona í árs fangelsi fyrir líkamsárás á Akureyri:
Stakk aðra konu
þrisvar sinnum
- níu mánuðir refsingarinnar skilyrtir
Héraðsdómur Norðurlands dæmdi
í gær 29 ára taílenska konu, Patc-
haree Srikongkaew, til heimiiis á
Akureyri, í árs fangelsi fyrir stór-
fellda líkamsárás. Skulu niu mánuð-
ir refsingarinnar vera skilyrtir.
Málið var höfðaö með ákæruskjah
á hendur Patcharee þar sem henni
var gefið að sök að hafa síðdegis 29.
nóvember síðastliðinn stungið aðra
taílenska konu, einnig búsetta á Ak-
ureyri, þremur hnifstungum. Ein
stungan kom í vinstri öxl og gekk inn
að upphandleggsbeini, önnur í
vinstra hné og hin þriða í vinstri
hönd með þeim afleiðingur aö sinar
og taugar fóru í sundur.
Gagnkvæm óvild
í dóminum segir að gagnkvæm
óvild hafi einkennt samskipti kvenn-
anna, sem unnu á sama vinnustað,
um margra missera skeið. Til orða-
hnippinga kom með Patcharee og
fórnarlambinu á vinnustað þeirra
daginn sem árásin átti sér stað, af
óverulegu tiiefni. Héldu vitni því
fram við yfirheyrslur í málinu að
fórnarlambið hefði haft sig meira í
frammi og lagt lykkju á leið sína til
að hitta Patcharee sem var á leið
heim. Átök hófust með þeim og bar
Patcharee staðfastlega, allt frá fyrstu
yfirheyrslu, að hún hefði átt hendur
sínar að verja og beitt hnifnum af
ótta vegna stöðugra barsmíða hinnar
konunnar. í þessu ljósi var ekki fall-
ist á kröfu saksóknara að Pathcaree
yrði dæmd fyrir manndrápstilraun.
Líklegt er talið, samkvæmt fram-
burði læknis, að snyrtihnífur, með
15 sentímetra löngu blaði, úr frysti-
húsi sem konurnar unnu í, hafi verið
notaður til verknaðarins en ekki
vasahnífur eins og ákærða hélt fram.
Fórnarlambið hefur að mestu jafn-
að sig af áverkum sem það hlaut í
árásinni en þarf á meðferð á næstu
vikum að halda til á ná meiri bata.
Læknir taldi trúlegt að hún hlyti ein-
hvem varanlegan skaða af vegna
sinaáverka á hendi. Ákærða undir-
gekkst geðskoðun í marsmánuði og
var niðurstaða geðlæknis að hún
væri með „nokkuð heilsteyptan per-
sónuleika".
Við uppkvaðningu dómsins var
tekið mið af því að Patcharee beitti
hættulegu vopni en var í mikilli geðs-
hræringu. Hún hefur ekki áður hlot-
ið refsidóm og gaf sig af sjálfsdáðum
fram við lögreglu. í ljósi þessa var
hæfileg refsing ákveðin árs fangelsi,
þar af 9 mánuðir skilorðsbundnir.
Þá var Patcharee dæmd til að greiða
fórnarlambinu tæplega 50 þúsund
krónur í skaðabætur.
-PP
Maðkasölutíminn hafinn af krafti:
Smáauglýsingar DV
gef ast best
- segir þrautreyndur maðkatínslumaður
Ánamaðkarnir eru margir hverjir gríðarlega stórir á þessum tima og sam-
keppnin um söluna á þeim er hörð. DV-mynd BG
„Þetta er gríðarmikil vinna en það
er hægt að hafa ágætt upp úr þess
ef maður nennir að vera við þetta.
Einstaklingar eru að kaupa þetta tvö
til þrjú hundruð maðka, en ég hef
verið að senda allt upp í tvö þúsund
stykki með fiugi út á land. Þegar
búið er að vera kalt, eins og víða úti
á landi að undanförnu, er lítið til af
ánamaðki. Aðalsölutíminn er aö fara
í hönd og mér hefur gefist best að
selja í gegnum smáauglýsingar DV.
Ég byijaði í verslunum en það gekk
ekki eins vel,“ sagði Runólfur Hjalti
Eggertsson, maðkasölumaður í
Reykjavík.
Fjöldi fólks sést nú úti í görðum
sínum um miöja nótt, bograndi með
fötur, hálffullar af ánamöðkum.
Runólfur sagði að verðið væri rokk-
andi, allt eftir framboði hverju sinni,
en sagðist þó telja að algengt verð
væri 25 krónur fyrir laxamaðk en 30
krónur fyrir silungsmaðkinn. Sá síð-
arnefndi er stærri.
„Það er alltaf talsvert af maökaaug-
lýsingum á þessum tíma hjá okkur
og ljóst er að samkeppnin er hörð.
Þegar svo er reyna menn oft að vera
frumlegir og það eru oft skemmtileg-
ustu auglýsingamar sem selja mest,“
sagði Ingibjörg Halldórsdóttir, deild-
arstjóri smáauglýsingadeildar DV.
-SV
vaskleg og hljóðlát
] Electrolu
upp|
• Hljóðlát.
• Tekur leirtau eftir 14 manns.
• Þrjár þvottagrindur.
• Þreföld lekavörn.
• Þriggja ára ábyrgð.
HÚSASMIÐJAN
Skútuvogi16