Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
DV
ísland (plötur/diskar)
New York (lög)
Bandaríkin (piötur/diskar)
| 1. (1 ) Cracked RearView
Hootie and The Blowfish
| 2. ( 2 ) Throwing Copper
Live
J 3. ( 3 ) Friday
Ur kvikmynd
t 4. ( 7 ) II
Boyz II Men
t 5. ( 8 ) John Michael Montgomery
John Michael Montgomery
# 6. ( 4 ) Forrest Gump
Úr kvikmynd
t 7. ( 9 ) Astro Creep: 2000 Songs of Love
White Zombie
« 8. ( 6 ) Me against the World
2Pac
$ 9. ( 5 ) Hell Freezes over
The Eagles
t10. (Al) Crazysexycool
TLC
Greifarnir lifna við
Greifarnir saman á ný eftir fimm ára fjarveru úr danshúsum landsins. Þeir byrja á Hótel íslandi í kvöld. DV-mynd GVA
Hljómsveitin Greifarnir, sem
hætti fyrir tæpum frmm árum, er
komin saman að nýju - reyndar að-
eins um stundarsakir því að ekki
hafa verið fastákveðnir nema fjórir
dansleikir með henni. Hinn fyrsti er
í kvöld á Hótel íslandi. Annað kvöld
verða Greifamir á Húsavík og spila
í íþróttahúsinu þar. Þá leikur hljóm-
sveitin í Vestmannaeyjum helgina
sjöunda og áttunda júlí.
„Hugsanlega spiium við meira í
sumar. Það kemur í ljós á næstu dög-
um,“ segir Kristján Viðar Haralds-
son, hljómborðsleikari Greifanna.
Ásamt honum eru í hljómsveitinni
þeir Sveinbjöm Grétarsson gítarleik-
ari, Jón Ingi Valdimarsson bassaleik-
ari, Felix Bergsson söngvari og Rafn
Marteinsson trommuleikari. Hann
leysir af hólmi Gunnar Hrafn Gunn-
arsson sem ekki átti heimangengt.
Greifamir hafa lítið fengist við tón-
list síðan þeir slitu samstarfinu
haustið 1990. Þeir koma saman að
þessu sinni að áeggjan fjölda manna.
„Fólk var alltaf að spyrja af hverju
við hefðum hætt og hvort viö ætluð-
um ekki að koma saman aftur,“ seg-
ir Sveinbjöm. „Það var svo að beiðni
Radíus-bræðra sem við létum verða
af því að byrja aftur. Lokakvöld yfir-
reiðar þeirra um landið er einmitt á
Hótel íslandi í kvöld og þeir báðu okk-
ur að koma fram með sér.“
Felix Bergsson bætir því við að það
sé mjög gaman að koma saman aftur
eftir margra ára hlé ogbyrja aftur að
æfa upp prógramm. „Ég er líka ekki
frá því að það hafi vantað hljómsveit
eins og Greifana í tónlistarlífið hér -
að minnsta kosti til skamms tíma,“
segir hann. „Eftir að Greifarnir
hættu sinnti engin hljómsveit
svokölluðu gleðipoppi þar til Vinir
vors og blóma komu fram.“
Greifamir hafa æft upp fúllvaxið
danslagaprógramm. Á því em fjórt-
án lög sem hljómsveitin sendi frá sér
á plötum á sínum tíma. Fimmmenn-
ingunum telst til að það sé helming-
ur tónlistarinnar sem eftir hana ligg-
ur á plötum. Síðan er bætt við efni
annarra, þar á meðal ýmsu sem
hljómsveitin hafði á sínum snærum
meðan hún var og hét. En ef vel tekst
til um þessa helgi og í Eyjum, er þá
ekki freistandi að halda áfram?
„Við verðum bara að sjá til,“ svar-
ar Kristján. „Það hefur í raun og vem
ekki verið rætt í neinni alvöm svo
að það verður bara skoðað þegar þar
að kemur.“
Pink Floyd með tvö-
faldan tonleikadisk
Ein af best heppnuðu hljómleikaferðum síðasta árs var ferð Pink Floyd
um Bandaríkin og Evrópu. Ferðinni lauk í fyrrahaust en fyrr í vikunni sendi
hljómsveitin hins vegar frá sér sannkallaðan minjagrip frá ferðinni fyrir alla
þá sem komu, sáu og hlustuðu en langar að fá enn þá meira. Hljómleikaplata
Pink Floyd er komin út. Hún nefnist Pulse og er tvöfold. Á öðrum diskinum
er eingöngu hljómleikaútgáfa af Dark Side of the Moon-plötunni en á hinni
em lög frá ýmsiun tímum á ferli hljómsveitarinnar.
Mikið hefur verið lagt í þessa útgáfu eins og vænta má frá Pink Floyd.
Plötumar em í veglegu hulstri og það sem fyrst vekur athygli er að aftan á
því blikkar rautt ljós stöðugt og raflilaðan sem gefur því spennu á að endast
í hálft ár. Inni í hulstrinu er bók og hefur geislaplötunum verið komið fyr-
ir innan á bókarkápunum. í bókinni sjálfri em myndir frá hljómleikaferð
Pink Floyd og má glöggt af þeim sjá að við sem ekki komumst á einhvem
konsertanna í fyrra höfum misst af stórkostlegu sjónarspili.
Tónlist geislaplötunnar er eins og hún kom fyrir af skepnunni (risaeðl-
unni?!). Það er að segja: þeir David Gilmour, Rick Wright og Dave Mason
áttu ekkert við upptökumar í hljóðveri heldur leyfðu tónlistinni að halda
sér alveg eins og hún var leikin á sviði. Þrátt fyrir það er vart feilnótu að
heyra og gagnrýnendur hafa bent á að sum lög em betur spiluð að þessu
sinni heldur en í gamla daga þegar þau komu út í sínum upphaflegu útgáf-
um. Það er því sama hvar á er litið. Tvöfalda platan Pulse ber vott um mikla
vöravöndun, hvort sem litið er á umbúðimar eða innihaldið og sennilega
hefúr Pink Floyd á löngum ferli sínum aldrei sent frá sér annað eins hljóm-
fang - og prentgrip.