Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
27
Enn eykst hróður Bjarkar Guðmundsdóttur í útlöndum:
Post er prófsteinninn
á vel heppnaða byrjun
Björk hefur breytt um útlit með nýju plötunni. Litlu snúðarnir í hárinu, sem smástelpurnar féllu fyrir, eru horfnir.
En Björk breytist ekki - hún heldur áfram að heilla heiminn.
T
Dundee 6.7
SVIÞJOÐ
ÍRLAND y • GÍasgow 7.7 .. • Gautaborg 7.10
Dublin 12. og 13. 7 DANMORK
Cork 11.7 • * ?RET“ „ . - / aaiTa""'
( Rotterdam
Reading 26.8
Brussel 11.10'
París 17.10 ^
Montpellier 14.10 •
FRAKKLAND
Lyon 16.10 <
\ Milano
/ SPÁNN
Madria 15.9
7 ;
Granada 16.9
Barcelona 19.9
Aþena 2.9
Tónleikaferðir Bjarkar í sumar
ISRAEL: —
Rishon L’ezion 31.8
Hér má sjá tónleikaferð Bjarkar á næstu mánuðum.
Gert er ráð fyrir að Björk syngi á tónlistarhátíð á íslandi um verslunarmannahelgina.
Gísli Þór Guðmundsson, DV, London:
Post er platan sem beðið hefur ver-
ið eftir síðan Björk kom til Englands
fyrir tveimur árum. Hún sá og sigr-
aði með geisladiskinum Debut. Sóló-
ferill Bjarkar síðan hún fluttist utan
hefur verið vel heppnaður og hún
hefur vakið óskipta athygli fyrir
hæíileika sína á tónlistarsviðinu.
Hún er vinsælt viðtalsefni ijölmiðla
þar sem fyrirsagnir vitna oft til útlits
hennar eða uppruna. Hún þykir bæði
sérstök og skemmtileg. Prófsteinn-
inn á ferli popptónlistarmanna er
hins vegar oft talinn annar geisla-
diskurinn sem þeir senda frá sér og
greinilegt er að hans hefur verið beð-
ið með eftirvæntingu meðal tónhst-
arskríbenta.
Fær góðadóma
Ljóst er að Björk hefur komið
skemmtilega á óvart með nýja af-
kvæmið. Greinilegt er að menn líta
á það sem styrk að diskurinn skuli
ekki vera beint framhald af Debut
og samstarf hennar við aðra tónhst-
armenn mælist vel fyrir. í viðtali við
hana í NME fyrir nokkrum vikum
er fjailaö sérstaklega um samstarf
hennar og Bristol-mannsins Tricky
sem slegið hefur í gegn í Bretlandi á
undanfórnum misserum. Þar er tek-
ið fram að lögin sem hún gerði með
honum, Enjoy og Headphones, hafi
verið tekin upp í hljóðveri á íslandi
í byijun árs og gefur blaðamaður
þeim ummæli sem tvö af bestu lögum
disksins. í tímaritinu Q er sagt að
Nellee Hooper, framleiðanda disks-
ins, hafi tekist að forðast leiðinlegar
endurtekningar og viðskiptahugsun-
arháttinn sem oft einkennir fram-
haldið þegar fyrsti diskur popptón-
hstarmanna hefur slegið í gegn og
Post fær 4 af 5 stjörnum mögulegum.
Select kallar Björk þjóðarálfmn og
svarar spurningunni um hvernig
henni takist að glíma við erfiðleikana
sem fylgja útgáfu annars disksins á
ferlinum með einu orði: Auðveldlega.
Skríbent blaðsins segir Post stórkost-
legt flakk um ókortlagða skóga og
fahn vötn. Hjá Vox fær hún einkunn-
ina 8 af 10 mögulegum. Simon Wih-
iam hjá Melody Maker gefur plöt-
unni 7. Simon sagði í stuttu spjahi
við DV að honum þætti nýi diskurinn
mjög góður. Það hefði hins vegar tek-
ið tíma fyrir sig að venjast breyting-
unni frá Debut. „Að halda fram að
Post sé þægilegt framhald af Debut
væri lygi af þingmannagráðu." Hann
segir að útgáfa Post sýni styrk Bjark-
ar en spáir því þó að salan verði held-
ur dræmari en á Debut, einfaldlega
vegna þess að það séu ekki eins mörg
popplög á Post. Simon segir að Björk
sé tnns vegar orðin það þekkt að
diskurinn muni örugglega seljast vel
og spáir því að hann fari í tvær mihj-
ónir eintaka sem er hálfri mhljón
minna en Debut.
í gagnrýni sem poppstjarnan gaf
sjálf í Soundbite, tónlistarþætti á
BBC1, sagðist hún ánægð með disk-
inn en hann væri ekki það besta sem
hún hefði gert. Hún ætti eftir að gera
besta diskinn sinn og fólk yrði að
bíða í nokkur ár eftir honum.
Björk Fjörk
Það er mikil starfsemi sem fylgir
stórstjörnum eins og Björk. Fjöl-
miðlafulltrúar vinna hörðum hönd-
um að því að koma fréttatilkynning-
um í fjölmiðla og sjá um að halda
utan um viötöl við Björk og aðra
kynningu. Kynningarvélin er greini-
lega orðin vel smurð. Björk hefur
verið í tugum útvarpsþátta og prýtt
forsíður vikuritsins NME, tímarits-
ins the Face og forsíðu helgarblaðs
Observer, svo fátt eitt sé nefnt. Nýj-
asta uppátækið hennar var að blóta
í útsendingu á BBC sem þykir afar
óviðeigandi á þeirri stofnun eins og
DV hefur greint frá. Útsendingar-
stjórinn hló hins vegar að athæfmu
í samtali við DV og sagði að hér eftir
yrði hún kölluð Fjörk í herbúðum
þeirra í stíl við „Fuck“ - orðin sem
henni eru einkar töm. Augljóst er af
því sem hefur verið skrifað um hana
í breskum blöðum nú að áhersla er
lögð á feril hennar í fréttatilkynning-
um. Undantekningarlítið hefur kom-
ið fram að Björk hafi fyrst slegið í
gegn með Arabadrengnum þegar
hún var ellefu ára gömul, var pönk-
ari í Tappa tíkarrassi áður en hún
fór í Kuklið og vakti síðan heimsat-
hygli með Sykurmolunum.
Skyggnstá
bakviðtjöldin
Einn viðamikill þáttur útgáfustarf-
seminnar er hönnun disks og um-
slags og þess efnis sem tengist útgáf-
unni. Paul White er maðurinn á bak
við það og hefur fylgt Björk frá upp-
hafi. Hann var einn af aðstandendum
One Little Indian frá upphafi og
hannaði öll plötuumslög Sykurmol-
anna. Hann stofnaði hönnunarfyrir-
tæki sitt, Me-Company, fyrir 11
árum, þá 24 ára gamall, og hefur
vegur hans vaxið jafnt og þétt. Hann
hefur hannað fyrir hljómsveitir á
borð við Erasure, Swing out Sister
og The Shamen en er vanur að vinna
fyrir hljómsveitir sem eru með litla
peninga á milh handanna.
„Fyrir þá sem eiga litla peninga er
hönnunin á diskinum stundum það
eina sem vekur athygh á viðkomandi
tónlistarmanni og því mikilvægt að
hún sé grípandi og skeri sig úr öllum
þeim fjölda diska sem koma á mark-
aðinn, enda er um gífurlega sam-
keppni að ræða, og nota veröur áber-
andi letur og eða mynd sem fólk tek-
ur eftir.“
Einkunnarorð Me-Company er í
samræmi við það: „Látið ímyndina
fljúga hraðar en peninga." Sjálfur
kallar hann stíl sinn nýtískulegan en
forðast frekari skilgreiningar. Þegar
Paul var spurður hvort hann teldi
sig eiga þátt í velgengni Bjarkar svar-
aði hann neitandi. Hann segir
ákvörðun um útlit plötuumslaganna
vera sameiginlega og hún sé tekin
eftir umræðu um hvað eigi við. Paul
segir hönnunina á Debut og Post
ólíka þar sem um tvo ólíka diska sé
að ræða. Hann hefur nú nýlokið
hönnun á bók sem koma á út í haust
undir sama nafni og diskurinn. Paul
segist þar hafa átt gott samstarf við
ritstjórann Sjón.
Jafnframt því að vinna fyrir tón-
listarmenn hefur Paul hannað lítils
háttar fyrir sjónvarp og „logo“ fyrir
fyrirtæki í tískuheiminum. Það verk
hans sem hefur þó án efa vakið mesta
athygli fjölmiðla er innanhússhönn-
un hans á Riki Tik-klúbbnum í Lon-
don. Þar fékk Paul, í samvinnu viö
félaga sinn hjá Me-Company Eckel,
tækifæri til þess að þróa nýtískuleg-
an stíl sinn á skemmtilegan hátt.
Klúbburinn var opnaður í desember
á síðasta ári í Soho í miðborg Lund-
úna, hann er á tveimur hæðum og
hefur átt miklum vinsældum að
fagna.
Einar Örn, fyrrum Sykurmoli, er
einkavinur Pauls og segir hann mjög
hugmyndaríkan. „Hann er mikill
nákvæmnismaður og það er mjög
gott að vinna með honum.“
Einar segir stíl hans módernískan
og mannlegan. „Þú fmnur alltaf fyrir
húmor í verkunum hans og það er
ekkert gert að ástæðulausu. Þegar
hann vann fyrir okkur í Sykurmol-
unum kom hann með hugmyndir,
síðan voru málin rædd og unnin
áfram í sameiningu. Það var alltaf
hægt að treysta honum og hönnun
hans er hluti af ímynd Sykurmol-
anna. Undir þetta tók Ási í Gramm-
inu og sagði að án efa hefði hann
verið Sykurmolunum mikill fengur.
Hönnun Pauls á Debut-diskinum
vakti athygli og almenna hrifningu
fyrir einfaldleika. Post-umslagið fær
hins vegar misjafnari dóma ef undan
er skilin forsíðan.
Babb í bátinn
Hjá One Little Indian er vonast eft-
ir að Post seljist í tveimur milljónum
eintaka. Talsmaður fyrirtpskisins
sagði söluna þó heldur dræmari nú
í byrjun en þau hefðu gert sér vonir
um. Sex hundruð þúsund eintök eru
farin í dreifingu, þar af 115 þúsund í
Bretlandi. Þegar er unniö að því aö
framleiða næsta upplag en það setti
hins vegar strik í reikninginn þegar
tónhstarmaðurinn Scanner sakaöi
Björk um að nota laglínu frá sér sem
meginuppistöðu í Possibly Maybe.
Um tíma leit út fyrir að kalla þyrfti
fyrsta upplag inn. Á miðvikudaginn
var hins vegar tekin ákvörðun um
að gera það ekki en hljóðblanda lagið
að nýju fyrir næsta upplag. Scanner
segist ósáttur við að fá ekki viður-
kenningu fyrir að vera einn af höf-
undum lagsins. Talsmaður One
Little Indian sagöi hins vegar að búið
væri að bjóða honum greiðsiu. Þar á
bæ vilja menn ekki gera mikið úr
þessu máli en ljóst er að það hefur
verið afar óþægilegt.
Þrátt fyrir mótbyrinn ríkir þó
bjartsýni í herbúðum Bjarkar og
nokkuð öruggt þykir að hún muni
verða ofarlega á breska vinsældalist-
anum sem kynntur verður á sunnu-
daginn (18. júní).
Blaðafulltrúi Bjarkar sagði að
Björk væri ánægð með diskinn því
eins og hún segði sjálf þá væri hún
að gera það sem hana langaði til.