Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Qupperneq 33
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
49
„Martröö hvers tæknis er sjúklingur eins og Eysteinn sem ekki fer eftir einföldustu ráðleggingum heldur fer
sínar eigin leiðir, hvert svo sem þær liggja."
Æðaþrengsli
í fótum hjá
eldri manni
Eysteinn K. var maður kominn
af léttasta skeiði semreynt hafði
ýmislegt í lífinu; stundað erfiðis-
vinnu alla sína tíð, gengið gegnum
tvo hjónaskilnjði, drukkið talsvert
og reykt mikið. Auk þess hafði
hann flutt hálfnauðugur í Breið-
holtið fyrir þrábeiðni barna og
tangdabarna. Eysteinn þótti með
aíbrigðum þver og sérsinna og
hafði eigin skoðanir á flestu.
Verkurvið gang
Hann kvartaði eitt sinn við
Nökkva lækni undan slæmum
verkjum eöa krampa sem kom eftir
50-200 metra göngu í kálfana eða
lærin. Þá varð hann að stansa og
hvíla sig í nokkrar mínútur. Þegar
hann fór að ganga á nýjan leik gekk
verkurinn aftur á sama hátt og fyrr
en þó gat hann gengið ögn lengur.
Auk þess kvartaði hann undan fót-
kulda og fékk stundum smásár á
fætur sem greru illa. Eysteinn
hafði leitað til læknisins síns, sem
sagði þetta stafa af þrengslum í
slagæðum fótanna. Við skoðun
kom í ljós aö fæturnir voru óvenju
fólir og illa gekk að þreifa eftir
púlsum. Þessi einkenni eru býsna
algeng hjá karlmönnum um og yfir
sextugt. Oft tengist þetta sykursýki
sem eykur æðakölkun. Eysteinn
var sendur í æðamyndatöku sem
sýndi útbreiddar kalkanir í aðal-
æðum beggja vegna. Ekki var unnt
að gera aögerð á Eysteini en honum
var ráðlagt að gera róttækar breyt-
ingar á Mflnu. Læknirinn bannaði
honum að reykja en það tók Ey-
steinn ekki í mál. Hann hékk á
nikótín-naglanum af sömu þrjósku
og Þorgeir Hávarsson á hvönninni
forðum. „Mér leiðist þetta reyk-
ingakjaftæði,“ sagði hann stund-
um. „Já,“ en þú verður aö hætta
að reykja," svaraði læknirinn. „Ég
hef enga trú á því að reykingarnar
skipti máli,“ sagði Eysteinn og
hóstaði htillega. „Sögðu ekki lækn-
arnir að reykingar gætu valdið
Á laeknavaktmrii
getuleysi? Aldrei varð ég getulaus
þó að ég reykti ósleitilega bæði á
undan og eftir samfarir."
Aðrir áhættuþættir
Auk þess höfðu læknar fundið
hækkaðar blóðfitur og ráðlagt Ey-
steini að minnka viö sig feitmeti
og léttast. Hann blés á þessar ráð-
leggingar og hámaði áfram í sig
feitt saltkjöt og ómælt smjör.
Læknarnir vildu að hann færi út
að ganga til að auka þol og úthald
og þjálfa blóðrásina í fótunum. Þeg-
ar þetta var nefnt hélt hann ávallt
smáfyrirlestur um gönguleiðir í
Breiðholtinu. „Það voru ljótu mis-
tökin af flytja úr Þingholtunum,"
sagði hann. „En veistu," bætti
hann við, „það er til fólk í hverfinu
sem finnst gott að búa hér. Hjón
sem t.d. búa í mínum stigagangi
hafa búið í þremur íbúðum í þessu
hverfi og segjast hvergi annars
staðar vilja vera. Svona fólk heldur
að það sé gott aö búa í Breiðholtinu
enda þekkir það ekki sjarmann yfir
bárujárnshúsi í Þingholtum.“
Hann varð dreymandi á svipinn.
„Eiginlega blæs ég á allt svona
rnjólkurfjandsamlegt tal og þetta
líkamsræktar-gönguferðakjaftæði
er að ganga af þjóðinni dauðri."
Almennar
ráðleggingar
Þegar um veruleg æðaþrengsli í
fótum er að ræða óttast fólk stund-
um að nauðsynlegt kunni að reyn-
ast að taka af því fót. Það gerist þó
ákaflega sjaldan. Mestu skiptir að
sjúklingurinn leggi sitt af mörkum
svo að sjúkdómurinn versni ekki.
Þær ráðleggingar sem Nökkvi gef-
ur þessum sárafáu sjúkhngum sín-
um sem enn koma til hans eru:
Hætta að reykja strax. Ganga
a.m.k. 1 klst. á dag. Annast vel um
fætur og sinna öllum sárum og
blöðrum sem myndast geta. Forð-
ast mikinn hita eða kulda. Þeir sem
eru sykursjúkir eiga að gæta vel
að mataræöi og blóðsykurmagni.
Þeir sem eru of feitir eiga að grenna
sig til að minnka álagiö á fæturna.
Séu blóðfitur of háar verður að
gæta vel aö mataræði. Stundum er
gerð skurðaðgerð á þessum æðum
að vandlega yfirveguðu skurð-
læknissamráði eftir myndatöku.
Martröð hvers læknis er sjúkhngur
eins og Eysteinn sem ekki fer eftir
einfóldustu ráðleggingum heldur
fer sínar ei "in leiðir hvert svo sem
þærhggja.
r
Húsnæði fyrir námsmenn
við Háskóla íslands
Umsóknir um vist á stúdentagörðum fyrir skólaárið
'95-96 þurfa að hafa borist húsnæðisdeild Félags-
stofnunar stúdenta fyrir 20. júní 1995.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem liggja
frammi hjá húsnæðisdeild FS. Allar nánari upplýs-
ingar eru veittar í síma 561 -5959 á milli kl. 8.00 og
16.00 virka daga.
FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut, 101 Reykjavík
Auglýsing
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á húsnæði fyrir sam-
býli fatlaðra í Kópavogi, Garðabæ eða Hafnarftrði.
Um er að ræða a.m.k. 200-250 m2 einbýlishús í góðu
ásigkomulagi með rúmgóðum svefnherbergjum.
Nauðsynlegt er að húsnæðið sé á einni hæð og allt
aðgengi innan dyra sem utan í góðu lagi með tilliti til
fatlaðra.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og
-efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat, af-
hendingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjár-
málaráðuneytisins, Arnarhváli, 150 Reykjavík, fyrir
1. júlí .1995.
Fjármálaráðuneytið, 14. júní 1995
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Kópavogsbraut 99,1. hæð og bílskúr,
þingl. eig. Gylfi Pálsson og Rúna Soff-
ía Geirsdóttir, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsjóður ríkisins, Gjaldheimtan í
Reykjavík, húsbréfadeild Húsnæðis-
stofnunar ríkisins, sýslumaðurinn í
Kópavogi og tollstjórinn í Reykjavík,
20. júní 1995 kl. 14.00.
Lækjasmári 17,0101, þingl. eig. Bygg-
ingarfélagið Sólhof hf., gerðarbeið-
endur Bæjarsjóður Hafnarfjarðar, 20.
júní 1995 kl. 16.10.
Lækjasmári 17,0201, þingl. eig. Bygg-
ingarfélagið Sólhof hf., gerðarbeið-
endur Bæjarsjóður Hafnkrfiarðar, 20.
júní 1995 kl. 16.20.
Nýbýlavegur 14, 010202, þingl. eig.
Langförull, gerðarbeiðendur sýslu-
maðurinn í Kópavogi og íslandsbanki
hf„ 20. júní 1995 kl. 17.00.________
Sæbólsbraut 26,0201, þingl. eig. Óskar
Guðjónsson, gerðarbeiðandi Bygging-
arsjóður verkamanna, 20. júní 1995
kl. 17.45.__________________________
Þinghólsbraut 54, 02.01.01, þingl. eig.
Páll Helgason, Kreditkort hf. og
Svansprent hf„ 20. júní 1995 kl. 18.30.
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Subaru Inpreza
Sportbíll til sölu, einn sá kraftmesti á landinu.
Subaru Inpreza 4x4, sigurvegari i Monte Carlo, 211
hö., 4 cyl., álfelgur, sumar- og vetrardekk, intercool-
er, geislaspilari o.fl. o.fl.
BILA
HUSIÐ
s»v»rtittfð« a b2b 8020 i húsi Ingvars Helgasonar