Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Page 46
62
FÖSTUDAGUR 16. JÚNl 1995
Afmæli
Guðjón Hjörleifsson
Guöjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, Ásavegi 26, Vest-
mannaeyjum, verður fertugur á
sunnudaginn.
Starfsferill
Guöjón fæddist í Vestmannaeyj-
urn og hefur ætíð átt þar heima.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Gagrifræðaskóla Vestmanneyja
1973, iðnskólaprófi frá Iðnskólanum
í Vestmanneyjum 1974 og hefur
meiraprófsréttindi og skipstjórnar-
réttindi fyrir þrjátíu tonna báta.
Guðjón stundaði versiunar- og
skrifstofustörf hjá versluninni
Tanganum í Vestmannaeyjum
1973-75, var gjaldkeri og skrifstofu-
stjóri hjá Sparisjóði Vestmannaeyja
1975-90 en hefur verið bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum frá 1990.
Guðjón hefur verið bæjarfulltrúi
í Vestmanneyjum frá 1994. Hann var
formaður Nemendafélags Gagn-
fræðaskólans í Vestmannaeyjum,
var formaður ungtemplarafélagsins
Flakkarans, formaður Bjargveiðifé-
lags Vestmannaeyja, formaöur Ey-
verja, félags ungra sjálfstæðis-
manna og sat í stjórn þess í tólf ár,
auk þess sem hann var formaður
bygginganefndar Vestmannaeyja-
bæjar og samninganefndar Vest-
mannaeyjabæjar. Hann er nú for-
maður stjórnar Bæjarveitna Vest-
mannaeyja og stjómar Lífeyrissjóðs
starfsmanna Vestmannaeyjabæjar.
Þá hefur Guðjón setið í stjórnum
íþróttafélagsins Þórs, Bridgefélags
Vestmannaeyja, Veiðifélags Elliða-
eyinga og félagsins Akóges í Vest-
mannaeyjum, auk þess sem hann
er félagi í Hrekkjalómafélaginu.
Fjölskylda
Guðjón kvæntist 16.6.1979 Rósu
Elísabetu Guðjónsdóttur, f. 26.7.
1959, húsmóður. Hún er dóttir Guð-
jóns Stefánssonar, húsasmíðameist-
ara í Vestmannaeyjum, og Ernu
Tómasdóttur húsmóður.
Börn Guðjóns og Rósu Elísabetar
eru Sæþór Orri, f. 27.11.1979, Silja
Rós, f. 24.7.1987; Sara Dögg, f. 9.12.
1990 og Sindri Freyr, f. 21.7.1994.
Systkini Guðjóns eru Lilja Dóra,
f. 7.10.1947, húsmóðir í Ólafsvík;
Guðmunda, f. 23.4.1949, húsmóðir í
Vestmannaeyjum; Guðni, f. 8.11.
1957, netagerðarmeistari í Vest-
mannaeyjum; Halldór, f. 9.11.1960,
trésmíðameistari í Vestmannaeyj-
um; Sigrún, f. 25.8.1962, húsmóðir í
Vestmannaeyjum; Jónína Björk, f.
24.5.1966, húsmóðir í Vestmanna-
eyjum.
Foreldrar Guðjóns eru Hjörleifur
Guðnason, f. 5.6.1925, fyrrv.
Guðjón Hjörleifsson.
múrarameisari og húsvörður við
Framhaldsskólann í Vestmannaeyj-
um, og Inga Jóhanna Halldórsdóttir,
f. 30.11.1927, húsmóðir.
Guðjón og Rósa taka á móti gest-
um í Akógeshúsinu í Vestmannaeyj-
um á afmælisdaginn frá kl. 20.00.
afmælið 16. júní
95 ára
50ára
Guðrún Helgadóttir,
Mávahlíð 38, Reykjavík.
90ára
Vilhelmína Vilhjálmsdóttir,
Hrafnistu við Kleppsveg, Reykja-
vík.
85 ára
Lára J. Sigurðardóttir,
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík.
80 ára
Ragnheiður Rögnvaldsdóttir,
Bólstaðarhlíö 45, Reykjavík.
Guðbjörg Bjarnadóttir,
Einibergi 3, Hafnarfirði.
Björg Baldvinsdóttir,
Lyngholti 14D, Akureyri.
Sigríður Helgadóttir,
Víöilundi 14F, Akureyri.
70 ára
Bryndís von Ancken,
Ásabraut9, Grindavík.
Karl H. Gunnlaugsson,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Guðlaug Rósa Friðgeirsdóttir,
Hólum 15, Vesturbyggð.
Friðþjófur Kristjánsson,
Ejarðarstræti 6, Isafiröi.
IngibjÖrg Gísladóttir,
Sólbraut5, Seltjamarnesi.
Stefán Ólafsson,
Leirutanga9,
MosfeUsbæ.
Eiginkona
hanserBára
BjörkLárus-
dóttir.
Þautakaámóti
gestumáheim-
ili sínu á af-
mælisdaginn milli kl. 18.00 og 21.00.
Kristján
Grétar Jóns-
son,
Skipasundil2.
Reykjavík.
Hannerað
heiman.
Ragna Árnadóttir,
Ægisgötu 23, Akureyri.
Inga Hrönn Ingólfsdóttir,
Þverholti 17,Keflavik.
Bergur Jónsson,
Vesturbergi29, Reykjavík.
Pálína Karlsdóttir,
Urriðakvísl 1, Reykjavík.
40 ára
60ára
Katrín Aðalbergsdóttir,
Dalbakkal, Seyðisflrði.
Marsibil Hólm Agnarsdóttir,
Víðimýri 4, Sauðárkróki.
Halldóra Bjarnadóttir,
KvígindisfeUi, Tálknafirði.
Sigurlina Sigurgeirsdóttir,
Fögrubrekku 24, Kópavogi.
Sigurður Emil Pálsson,
Víðimel 39, Reykjavík.
Björk Baldursdóttir,
Miklubraut 44, Reykjavík.
Ásdís Hauksdóttir,
Brekkutanga 7, Mosfellsbæ.
Eiríkur Ottó Bragason,
Miðhúsum4, Reykjavík.
Vilbörg Þórarinsdóttir,
Sævarlandi 2, Reykjavík.
»»
OKUMENN
Athugið að til þess að við komumst ferða okkar þurfum við að losna
við bifreiðar af gangstéttum. Kærar þakkir.
Blindir og sjónskertir.
1
yUMFEROAR ®
Blindrafélagið
]
Ingibjörg Magnúsdóttir
Ingibjörg Magnúsdóttir húsmóðir,
Þorsteinsgötu 5, Borgamesi, verður
sjötíu og fimm ára á sunnudaginn.
Starfsferiil
Ingibjörg fæddist í Feigsdal við
Arnarfiörð og ólst þar upp. Hún var
í farskóla frá tíu ára til fiórtán ára
aldurs og lærði jafnframt hjá móður
sinni, stundaöi nokkuð sjálfsnám
með stuðningskennslu Ríkisút-
varpsins og sat í KÍ1940-42.
Eftir að Ingibjörg gifti sig var hún
húsfreyja að Grenjum í Álftanes-
hreppi í fiórtán ár en flutti í Borgar-
nes 1960 þar sem hún hefur átt
heima síðan. Þar stundaði hún
heimakennslu fyrir forskólabörn
um nokkurt skeið en hefur svo auk
heimilisstarfa stundað ýmis önnur
störfíBorgamesi.
Ingibjörg hefur starfað með Kven-
félagi Borgarness í nálega þrjátíu
ár, sat í stjórn Verkalýðsfélags Borg-
amess í tólf ár og í stjórn Félags
eldri borgara i Borgamesi í nálega
sex ár. Hún hefur í allmörg ár svar-
að spurningum Þjóðháttadeildar
Þjóðminjasafnsins.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 10.7.1946 Þiðrik
Baldvinssyni, f. 16.3.1911, bónda að
Grenjum og síðar verkamanni í
Borgarnesi. Hann er sonur Balcivins
Jónssonar og Benónýju Þiðriksdótt-
ur sem lengst af bjuggu að Grenjum.
Dóttir Ingibjargar og Þiðriks er
Rebekka Björk Þiðriksdóttir, f.
28.11.1955, húsmóðir og skrifstofu-
stúlka í Borgarnesi, gift Viðari Pét-
urssyni bakara og eru börn þeirra
Hjalti, f. 20.5.1977, Kári, f. 27.10.1979,
Ingibjörg, f. 12.10.1983 og Þiðrik, f.
1.8.1988.
Systkini Ingibjargar: Páll Magn-
ússon, f. 5.10.1921, verkamaður á
Bíldudal; Helgi Magnússon, f. 28.10.
1923, d. 24.7.1961; Magnús Magnús-
son, f. 21.1.1927, bílstjóri í Kópa-
vogi; Svanlaug Magnúsdóttir, f. 2.4.
1930. húsmóðirí Reykjavík; Skúli
Magnússon, f. 25.9.1934, yogakenn-
ari í Reykjavík.
Foreldrar Ingibjargar voru Magn-
ús G. Magnússon, f. 1891, d. 1959,
bóndi við Arnarfiörð, og Rebekka
Þiðriksdóttir, f. 1890, d. 1992, bónda-
konaog kennari.
Ætt
Foreldrar Magnúsar voru Magnús
Júlíus Jónsson, b. í Þiðriksvalladal
og Feigsdal, og k.h., Ingibjörg Magn-
úsdóttur.
Rebekka var dóttir Þiðriks, b. á
Háafelli í Hvítársiðu, Þorsteinsson-
ar, b. á Hurðarbaki í Reykholtsdal,
Þiðrikssonar. Móðir Þiðriks var
Steinunn Ásmundsdóttir, hrepp-
stjóra í Elínarhöföa, Jörgenssonar,
b. í Elínarhöföa, Hanssonar Kling-
enbergs, b. á Krossi á Akranesi,
ættföður Klingenbergsættarinnar.
Ingibjörg Magnúsdóttir.
Móðir Jörgens var Steinunn Ás-
mundsdóttir, systir Sigurðar í Ás-
garði, langafa Jóns forseta og Tóm-
asar Sæmundssonar Fjölnismanns.
Móðir Rebekku var Guðrún, systir
Helga, föður Jóns, prófessors og
skálds í Kaupmannahöfn, og Ingi-
bjargar, móður Helga Guðmunds-
sonar lektors í málfræði. Guðrún
var dóttir Sigurðar, b. á Háafelli í
Hvítársíðu, Guðmundssonar,
hreppstjóra á Háafelli, Hjálmars-
sonar, ættföður Háafellsættarinnar.
Móðir Guörúnar var Þuríöur Jóns-
dóttir, b. í Deildartungu, Jónssonar,
dbrm. og hreppstjóra í Deildartungu
og ættfööur Deildartunguættarinn-
ar, Þorvaldssonar.
lilja Stefánsdóttir
Lilja Stefánsdóttir garðyrkjumaöur,
Grensásvegi 58, Reykjavík, verður
sjötugámorgun.
Starfsferill
Lilja fæddist aö Merki í Jökuldal
í Norður-Múlasýslu og ólst þar upp.
Hún stundaði nám við Garðyrkju-
skóla rikisins 1947-49.
Lilja fór að vinna við garðyrkju-
störf 1966 og stundaði þau til 1993,
lengst af hjá Ræktunarstöð Reykja-
víkur í Laugardal. Hún starfaði hjá
Félagi garðyrkjumanna, sat í stjórn
þess um skeið, í stjórn Lífeyrissjóðs
garðyrkjumanna, samninganefnd
og gegndi fleiri trúnaðarstörfum.
Lilja var kjörin heiðursfélagi Félags
garðyrkjumanna 1993.
Fjölskylda
Liija giftist 12.8.1950 Sigurði Sæ-
munidssyni, f. 7.3.1916, verkstjóra.
Hann er sonur Sæmundar Einars-
sonar og Guöbjargar Jónsdóttur en
þau bjuggu að Stóru-Mörk undir
Vestur-Eyjafiöilum.
Börn Lilju og Sigurðar eru Jökull
Eyfells, f. 2.5.1950, vörubílstjóri í
Kópavogi, kvæntur Kristínu Hlíf
Andrésdóttur frá Berjanesi undir
Eyjafiöllum og eiga þau þrjú börn;
Stefán, f. 18.5.1952, matreiðslu-
meistari er rekur veitingastaðinn
Vitann í Sandgerði, kvæntur Bryn-
hildi Kristjánsdóttur og eiga þau
þijú börn; Trausti, f. 15.4.1957, raf-
virki á Keflavíkurflugvelli, kvæntur
Hönnu Dóru Magnúsdóttur og eiga
þau tvö syni; Sólveig, f. 8.5.1962,
aðstoðarstúlka hjá tannlækni, bú-
sett í Reykjavík, gift Gunnari Erni
Guðmundssyni og eiga þau tvær
dætur.
Lilja átti tíu systkini, þar af sjö
hálfsystkini samfeðra en hún á nú
fimmsystkiniálífi.
Foreldrar Lilju voru Stefán Bene-
Lilja Stefánsdóttir.
diktsson, f. 24.4.1974, d. 21.12.1954,
bóndi að Merki í Jökuldal, og s. k.
h„ Stefanía Óladóttir, f. 27.8.1886,
d. 4.2.1934, húsmóðir og sauma-
kona.
Lilja veröur að heiman á afmæhs-
daginn.'
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRflÐA A
VALDA ÞÉR SKABA!
RÁÐ