Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Side 48
64
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995
Bridge
Leikhús
Stef nan tekin
á Beijing
Fertugasta og annaö GENERALI
Evrópumeistaramótið í bridge hefst
á þjóðhátíðardaginn og að þessu
sir.ni er spilað í borginni Vilamoura
í Portúgal. Þrjátíu og tvær þjóðir
taka þátt í opna flokknum og tuttugu
og tvær í kvennaflokki. ísland sendir
sveitir í báða flokka og eru töluverð-
ar væntingar um árangur karlasveit-
arinnar.
Landsliðiö í opna flokknum er
skipað eftirtöldum spilurum:
Jón Baldursson, Sævar Þorbjöms-
son, Guömundur Páll Arnarson, Þor-
lákur Jónsson, Jakob Kristinsson og
Matthías Þorvaldsson. Fyrirhði
sveitarinnar er Karl Sigurhjartarson
og þjálfari Ragnar Hermannsson.
Og í kvennaflokki keppa fyrir ís-
lands hönd:
Esther Jakobsdóttir, Valgerður
Kristjónsdóttir, Gunnlaug Einars-
dóttir, Anna ívarsdóttir og Ljósbrá
Baldursdóttir. Fyrirliöi er Guö-
mundur Sv. Hermannsson.
Á síðasta Evrópumóti, sem haldið
var í Menton í Frakklandi, hafnaði
ísland í 6. sæti, sem er í sjálfu sér
ágætur árangur. Það eru hins vegar
aðeins fjögur efstu sætin sem veita
rétt til þátttöku í næsta heimsmeist-
aramóti sem haldið verður í Beijing
í október. Landsliöiö hefir sett stefn-
una á Beijing, sem þýðir a.m.k. fjórða
sætið. Vonandi rætist það.
Mótið stendur yfir frá 17. júní til
1. júlí og eru spilaðir 2 til 3 leikir á
Skátafélagið Vífill sér um hátíða-
höld í Garðabæ. Þar fer fram morg-
undagskrá um allan bæinn, viö höfn-
ina, við Garðaskóla, í Hofsstaða-
skóla, Skátaheimilinu og í Sandahlíð.
Skrúðganga leggur af stað frá Víd-
alínskirkju kl. 13.30 eftir hátíðar-
stund í kirkjunni. Hátíðin verður svo
Gestir Árbæjarsafns era hvattir til
að mæta í þjóðbúningum á safnið
þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Ljós-
myndir verða teknar við Árbæinn
og safnkirkjuna af þeim gestum er
þess óska. Hægt er að fá svarthvítar
myndir, brúntónaðar, eins og þær
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
dag. Það reynir því mikið á úthald
spilaranna en þar stendur landslið
okkar vel að vígi því mikil áhersla
hefur aö venju veriö lögð á líkamlega
þjálfun þeirra.
Hér fer á eftir dagskráin í opna
flokknum:
18. júní er spilað við Finnland
og Slóveníu.
19. júní er spilað við Danmörku
og Frakkland.
20. júní er spilað viö Litháen
og Belgíu.
21. júní er spilað við Ítalíu, Úkraínu
og Grikkland.
22. júní er spilað við San Marínó
og Svíþjóð.
23. júní er spilað við England
og Noreg.
24. júní er spilaö við Portúgal,
Króatíu og Rúmeníu.
25. júní er spilaö við Mónakó og
Pólland.
sett við Flataskóla kl. 14 og mikil
hátíðardagskrá fer fram þar og við
Garðaskóla til kl. 16. Þá hefst dagskrá
í íþróttamiðstöðinni og kl. 20.30 hefst
diskótek fyrir yngstu kynslóðina í
Garðalundi. Kynnir dagsins verður
Pálmi Gestsson leikari.
tíðkuðust um siðustu aldamót.
Kynning verður á þjóðbúningum
og búningasilfri í Kornhúsi.
Sunnudaginn 18. júní kl. 15 munu
hópar frá fimleikadeild Ármanns
sýna fimleika og dans.
26. júní er spilað við Holland,
Rússland og Hvíta-Rússland.
27. júní er spilað við Þýskaland
og írland.
28. júní er spilað við ísrael
og Ungveijaland.
29. júní er spilað við Líbanon
og Tyrkland.
30. júní er spilað við Tékkland,
Austurríki og Spán.
1. júlí er spilað við Sviss.
DV verður með daglegar fréttir frá
mótinu og ég reyni aö verða mér úti
um spil frá leikjum íslands sem birt-
ast næstu laugardaga.
Tilkyimingar
Tjaldstæði og hesta-
leiga í Viðey
Tjaldstæði eru nú leyfð í Viðey og eru
þau einkum ætluð íjölskyldufólki. Stað-
arhaldari og ráðsmaðurinn i Viöey taka
á móti pöntunum. Hestaleiga er nú tekin
til starfa og eru upplýsingar um hana
gefnar í síma 566 6197. Á laugardag kl.
14.15 verður hálfs annars tíma gönguferð
á norðurströnd Viðeyjar. Farið verður
frá kirkjunni. Á sunnudag verður staðar-
skoðun heima við kl. 15.15. Veitingar
verða seldar í Viðeyjarstofu. Bátsferðir
eru báða dagana frá kl. 13.
Amerískur djass á
Kaffi Reykjavík
í kvöld kl. 19 fa djassunnendur óvæntan
glaðning á Kafíi Reykjavík. Á leið sinni
til Ameríku, eftir tónleikaferð um Þýska-
land, ætlar hljómsveitin Shenandoah
Conservatory Jazz Ensemble að gera hér
stuttan stans. Á efnisskrá hljómsveitar-
innar eru lög eftir marga helstu laga-
smiði djassins.
Garnbúðin Tinna
með nýtt prjónagarn
Garnbúðin Tinna hefur hafið, sölu á
prjónagami frá spænska garnframleið-
andanum Lanas Katia. ísland er 44. land-
iö sem býður fram vörur frá honum en
Katia er eitt þekktasta fyrirtækið á þess-
um markaði í Suður-Evrópu. Auk þess
að bjóða garn frá Katia era á boðstólum
blöð og uppskriftir að peysum á böm og
fullorðna.
Gjöf til Borgarspítalans
í apríl sl. barst háls-, nef- og eymadeild
Borgarspítala A-5, gjöf frá Minningar-
sjóði Sóleyjar Eiríksdóttur. Gjöfin er
veggmynd úr steinleir sem heitir Æfing
og er unnin af Sóleyju árið 1987. Sóley
átti við erfið veikindi að stríða og þurfti
að dvelja langdvölum á deildinni á sl. ári.
Landslið íslands í opnum flokki. Talið frá vinstri: Sævar Þorbjörnsson, Jón
Baldursson, Guömundur Páll Arnarson, Jakob Kristinsson, Matthías Þor-
valdsson, Þorlákur Jónsson og Ragnar Hermannsson þjálfari. Sitjandi eru
fyrirliðinn Karl Sigurhjartarson og Bjarni i Útilifi.
Garðabær 17. júní:
Diskótek
Árbæjarsafn 17. júní
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200
Stóra sviðið
Söngleikurinn
WEST SIDE STORY
eftir Jerome Robbins og Arthur
Laurents við tónlist Leonards Bern
steins
kl. 20.00.
Sud. 18/6, örfá sæti laus, siðasta sýning.
Norræna rannsóknar-leiksmiðjan
ÓRAR
Samvinnuuppfærsla finnskra
og íslenskra leikara.
Frumsýning fim. 22/6 kl. 20.00, 2.
sýn.ld. 24/6 kl. 14.00.
Smíðaverkstæðið
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
kl. 20.00.
i kvöld, uppselt, föd. 23/6, örfá sæti laus, Id.
24/6, sud. 25/6, síðustu sýningar á þessu leik-
ári.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alia daga
nema mánudaga frá kl. 13 tíl 18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Einnig simaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga.
Athugið að lokað verður Id. 17. júní.
Græna línan 99 61 60. Bréfsími 61 12 00.
Síml 1 12 00-Greiðslukortaþjónusta.
Sólbaðsstofa í Kópavogs-
kringlunni
Þann 13. maí opnuöu hjónin Hanna L.
Kristinsdóttir og Páll Ingvarsson sólbaðs-
stofuna Engihjalla á fyrstu hæðinni í
nýju Kópavogskringlunni í Engihjalla 8.
Þau em meö nýja og breiða bekki með
49 perum og einnig bjóða þau upp á gufu-
bað. Opið virka daga kl. 10-22 og um helg-
ar kl. 10-18.
Akstur SVR
Laugardaginn 17. júní aka vagnar SVR
eftir tímaáætlun helgidaga, þ.e. á 30. mín
tíðni (sjá leiðabók) þó þannig að auka-
vögnum verður bætt á leiðir eftir þörfum.
Frá kl. 12, þegar hátíðarhöldin hefjast í
Lækjargötu, er breytt frá venjulegri akst-
urleið vagnanna og nær breytingin til
þeirra leiða sem aka um Lækjargötu.
Vagnar á leiðum 2-3-4 og 5 á vesturleið
munu aka um Sæbraut, Geirsgötu, Póst-
hússtræti og Tryggvagötu með viðkomu
við tollstöð. Á austurleið hafa þessir
vagnar viðkomu í Hafnarstræti. Vagnar
á leiðum 6-7-111 og 112 sem venjulega
hafa endastöð í Hafnarstræti vestan Póst-
hússtrætis. Vagnarnir munu aka þar til
dagskrá lýkur og verða síðustu ferðir frá
miðborg kl. 2.05 eftir miðnætti.
Fermingar
Árneskirkja á Ströndum
Fermingarbörn 18. júní kl. 14. Prestur
sr. Jón Isleifsson
Páll Jens Reynlsson,
Hafdal, ísaifjaröardjúpi
Hafrún Guðmundsdóttir, Munaðarnesi
Kristjana María Ásbjömsd., Djúpuvik
Linda Björk Guömundsdóttir,
Finnbogastöðum
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins, Austurvegi 4, Hvols-
velli, þriðjudaginn 20. júní 1995
kl. 15.00 á eftirfarandi eignum:
Austurvegur 15, 59,94%, Hvolsvelli.
Þingl. eig. Guðíinnur Guðmannsson.
Gerðarbeiðandi er sýslumaður Rang-
árvallasýslu.
Stóra-Hof, Rangárvallahreppi. Þingl.
eig. Sigurbjöm Eiríksson. Gerðarbeið-
andi er Steingrímur Elíasson.
SÝSLUMAÐURINN í RANGÁRVALLASÝSLU
r
piii n
i^sÍWÍÍni
fWÆ
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.
li Fótbolti
2 j Handbolti
3 [ Körfubolti
4 Enski boltinn
5] ítalski boltinn
6 [ Þýski boltinn
7 I Önnur úrslit
8 NBA-deildin
m
1 Vikutilboð
stórmarkaðanna
21 Uppskriftir
1 j Læknavaktin
2J Apótek
31 Gengi
1 j Dagskrá Sjónvarps
2 Dagskrá Stöðvar 2
3j Dagskrá rásar 1
4 j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
5 j Myndbandagagnrýni
6 j ísl. listinn
-topp 40
7 [ Tónlistargagnrýni
81 Nýjustu myndböndin
9 1 Gervihnattardagskrá
5 53 mm
1} Krár
2 j Dansstaðir
3 [ Leikhús
4j Leikhúsgagnrýni
51 Bíó
6 Kvikmyndagagnrýni
lj Lottó
2 j Víkingalottó
3j Getraunir
«*■«**«-» S9
|=l
9 0 4 - 1 7 0 0
Verö aðeins 39,90 mín.