Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1995, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 25 Iþróttir Blikar sluppu með skrekkinn Þórðui Gidascsi skrilar Breiðablik tók á móti Grindvík- ingum á Kópavogsvelli í leik sera bæði lið heíðu þurft að vinna til að komast af mestahættusvæðinu. En leiksins verður seint minnst fyrir áferðarfagra eða skemmtilega knattspymu. Mikið var um langar og háar spyrnur og sendingar röt- uðu ilia á milli maima. Þó brá fyrir góðu spili annað veifið hjá Grind- víkingum. Þaö var ekki fyrr en á 28. mín. að eitthvað markvert gerðist en þá átti Tómas Ingi gott skot rétt fram- hjá. I kjölfariö fylgdi ágætur leik- kafli Blika og fékk Jón Stefánsson ákjósanlegt færi en skaut framhjá. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks spiluðu Grindvíkingar skemmti- lega í gegnum vöm Blika og fékk Þorsteinn Jónsson mjög gott færí einn á móti markmanni en Carda- clia varði vel. Síðari hálfleikurinn var mjög sviðaöur og sá fyrri. ekkert mark- vert gerðist fyrr en á síðasta stund- arfjórðungnum. Þá léku Grindvík- ingar vel. áttu miðjuna og stjóra- uðu leiknum en gekk illa að skapa sér færi. Á 85. mín. átti Þorsteinn Jónsson gott skot rétt framhjá stönginni og fimm min. síöar átti Grétar Einarsson skot yfir eftir góðan undirbúningÞórarins Ólafs- sonar. Sókn Grindvíkinga varþung í Iokin og mega Blikar þakka fyrir að ná stigi. Hjá Breiðabliki var Cardaclia góður í markinu. Úlfar Óttarsson var mjög sterkur i vörninni, Kjart- an Antonsson átti einnig góða spretti í fyrri hálfleik og lék þá af miklu öryggi. Á miðjunni fór allt spil í gegnum Arnar Grétarsson og gekk honum vel í fyrri hálfieik en náði sér ekki á strik í þeim síðari og við það datt botninn úr spili Blika. Antony Karl lék ekki með og greinilegt var að hans var sárt saknað í öllum sóknaraðgerðum. Hjá Grindvíkingum var vörnin traust meö Milan Jankovic í farar- broddi, á miðjunni var Zoran Lubicic mjög góður og Ólafur Ing- ólfsson öflugur. Sóknin var nokkuð bitlaus líkt og hjá Blikum og var slæmt aö missa Tómas Inga út af í fyrri hálfleik en hann var frískur meðan hans naut við. „Þetta var góður leikur af okkar hálfu, mikil barátta á kostnað knattspyrnunnar. Við áttum fylii- lega skilið að sigra hér í kvöld,“ sagði Lúkas Kostic, þjálfari Grind- víkinga, að leik loknum. Valur Valsson hefur betur gegn Þorbirni Atla Sveinssyni að Hlíðarenda í gærkvöldi. Valsmenn mættu ákveðnari til leiks en Framarar og unnu sinn fyrsta sigur í 1. deildinni í tæpar fimm vikur. DV-mynd ÞÖK BÚvi blvUt iLll udUlUJci VUUUbcÍi dU:icUv iUlUlUuL n^nn bbh BSSStý ií og flmm min. síöar átti mw Sanngjarn Langþráour sigur slgw KR-inga - á þreyttum Keflvíkingum, 0-1 Ægir Már Kárason, DV, Suðttmesjum; KR-ingar unnu sanngjarnan sigur á Keflvíkingum, 0-1, í 1. deildinni í Keílavík í gærkvöldi. KR-ingar styrktu þar með stöðu sína í 2. sæti deildarinnar en þeir eru 9 stigum á eftir Skagamönnum og hafa alla burði til að komast nær þeim með svona frammistöðu.. Keílvíkingar hafa leikið vel undanfarið í deildinni og Toto keppninni en virkuðu frekar þungir og eflaust situr mikil þreyta í leikmönnum eftir erfiöa dagskrá að undanfómu. „Þetta er lélegasti leikur okkar síð- an við tókum viö liðinu. Menn voru þreyttir og vom ekki heldur tilbúnir í leikinn. Það vantaði meiri stemmn- ingu í leikmennina. Þetta var slakt hjá okkur og við lendum ekki í svona leik aftur. Þetta kemur fyrir öll lið og það er bara að taka á þessu. Stuð- ið var ekki til staðar og það þýðir ekkert að dvelja á þessu,“ sagði Þor- steinn Bjamason, þjálfari Keílvík- inga, eftir leikinn. KR-ingar byrjuðu leikinn mjög vel og náðu að brjóta Keflvíkinga strax niður. Gestirnir voru mun beittari í fyrri hálfleik og létu boltann ganga mun betur á milli leikmanna sinna. KR-ingar fengu líka marktækifærin og það besta þegar Hilmar Björnsson átti skot aö marki sem Ólafur Gott- skálksson varöi strax á 3. mínútu. Sigurmark KR kom á 19. mínútu þeg- ar Mihajlo Bibercic rak endahnútinn á skemmtilega sókn. Keflvíkingar komust meira inn í leikinn eftir þaö en fengu engin af- gerandi færi nema þegar Róbert Sig- urðsson komst allt í einu inn í víta- teig KR en var of lengi að átta sig og sú sókn rann því út í sandinn eins og fleira hjá Uðinu. Síðari hálíleikur var mun rólegri en sá fyrri og fá marktækifæri litu dagsins ljós. KR-ingar duttu stund- um niður á sama plan og heimamenn og leikurinn jafnaðist töluvert. KR- ingar vom nálægt því að bæta öðru markinu við þegar Einar Þór Daní- elsson fékk tækifæri en Ólafur varði mjög vel. „Ég er mjög ánægður með að fá 3 stig. Fyrri hálíleikur var betri hjá okkur en stór hluti af síðari hálfleik var ekki góður. Ég átti von á þeim sterkari en það er búið að vera mikið álag á þeim. Við sluppum ágætlega frá þessu og það er mikilvægt að vera í 2. sæti þegar mótið er hálfn- að,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KR, eftir leikinn. Jón Kristján Sigurðsson skriiar: Enn einu sinni kom það berlega í ljós hvað baráttan getur komið mönnum langt. Þetta sýndu Valsmenn áþreifan- lega í leiknum gegn Fram aö Hlíðarenda í gærkvöldi. Fyrir Valsmenn var leikur- inn allt eða ekkert enda staða liðsins á botninum ekki vænleg. Liðið hafði ekki sigrað í deildinni síðan 15. júní og nú varö að bretta upp ermarnar. Það gerðu Valsmenn svo sannarlega og uppskeran var eftir því, sanngjarn sigur á máttlausu Framliði og kom Safamýrarliðið á óvart fyrir slakan leik. Að vísu vantaði nokkra leikmenn.sök- um meiðsla og mann misstu þeir út af í síðari hálfleik en það afsakar ekki slaka frammistöðu liðsins í gærkvöldi. Undir svona kringumstæðum eiga hð að þjappa sér saman en það gerðu Framarar ekki og fyrir vikið áttu þeir lengstum í vök að verjast. Máttu þeir kallast heppnir að fá ekki á sig fleiri mörk því Valsmenn voru ægilegir klaufar upp við mark Framara í fyrri hálfleik. Valsmenn fögnuðu kærkomnum sigri að vonum vel í leikslok. „Það var aðeins spurning um tíma hvenær við myndum springa út og sýna hvað í okkar liði býr. Við höfum sýnt góðan stíganda í undanfornum síöustu leikjum og veriö kannski óheppnir aö vera ekki búnir að vinna fyrr sigur. Sigurinn kom loks- ins og honum ætlum við svo sannarlega að fylgja eftir. Við vorum vel að þessum sigri komnir að mínu mati,“-sagöi Vals- maöurinn Valur Valsson við DV í leiks- lok. Valsmenn léku með vindinn í bakið í fyrri Kálfleik og sóttu látlaust en klaufa- skapurinn einn kom í veg fyrir að þeir skoruðu og eins það að Birkir Kristins- son varði í tvígang meistaralega. Framarinn Þorbjörn Atli Sveinsson fékk hins vegar færi á upphafsmínútu leiksins en Tómas Ingason varði frá honum. Flestir áttu von á því að dæmiö myndi snúast við í síðari hálfleik þegar Fram- arar höfðu vindinn í bakið. Það var öðru nær því Valsvörnin var ekki í neinum vandræðum með illa skipu- lagðar sóknir Framara. Valsmenn léku skynsamlega á móti vindinum, léku stutt á milh sín og uppskeran var eftir því. Vöm Vals var sterk með Bjarka Stef- ánsson sem besta mann. Sigþór Júlíus- son vann vel á miðjunni en annars á allt höið hrós skilið fyrir frammistöð- una. Framliðið náði ekki að fylgja eftir sigrinum gegn FH á dögunum og vant- aöi mikið upp á það. Liðið virtist vera að ná flugi en hrapaði jafnharðan aftur. Birkir Kristinsson stóð upp úr og bjarg- aði því sem bjargað varð. FHIoksáblad Akranes ...9 9 0 0 19-3 27 KR ...9 6 0 3 11-8 18 Leiftur ...8 4 1 3 15-12 13 Keflavík ...7 3 2 2 6-4 11 Grindavík.... ...9 3 2 4 12-12 11 Breiðablik... ...9 3 2 4 12-13 11 ÍBV ...9 3 1 5 19-14 10 Fram ...8 2 2 4 7-15 8 FH ...9 2 1 6 13-23 7 Valur ...9 2 1 6 9-19 7 Markahæstir: Rastislav Lazorik, Breiöabl...6 Ólafur Þóröarson, í A.........6 Mihajlo Bibercic, KR..........5 Tryggvi Guðmundsson, ÍBV......5 Guðmundur Hilmarsson skrifar: „Ljósi punkturinn í þessum leik var að við fengum stig eftir langa taphrinu. Það er alla vega veganesti í næstu leiki og gefur mönnum ákveðið sjálfstraust. Það er mikil vinna framundan og við erum í djúpriholu sem við þurfum að grafa okkur upp úr. Það gerir það enginn fyrir okkur. Það var allt annað að sjá til hðsins en við geram byrjenda- mistök í dekkningu í báðum mörk- unum sem viö fáum á okkur. Mér fannst jafntefli ósanngjörn úrslit því viö voram betri,“ sagöi Höröur Magnússon, leikmaður FH, eftir 2-2 jafntefli við Leiftur á Kaplakrika í gær. Þetta var langþráð stig, sem FH- ingar hlutu í gær, en þeir höíöu tap- að sex leikjum í röð í 1. deildinni og bikarleik að auki og höföu ekki hlot- ið stig frá því í sigrinum gegn Grinda- vík 27. maí í vor. FH-ingar komu mjög grimmir til leiks gegn Ólafsfirö- ingum og aldrei þessu vant voru þeir slegnir út af laginu hvað varöar bar- áttu alla vega framan af leiknum. Leikurinn var á köflum ágætlega leikinn úti á velhnum en opin færi voru fá í fyrri hálfleik. Síðari hálfleikur var með svipuðu sniði og sá fyrri. FH-ingar höfðu und- irtökin og vom sterkari aöihnn en eftir aö hafa komist yfir slökuðu þeir aðeins á og Leiftursmenn komu meira inn í leikinn. Eins og í fyrri hálfleik var fátt um opin marktæki- færi en mörkin tvö sem litu dagsins ljós í seinni hálíleik komu bæði eftir vel uppbyggðar sóknir. „Þetta var rosalega erfiður leikur. FH-ingamir börðust alveg eins og ljón en þaö kom okkur í sjálfu sér ekkert á óvart miðað við stöðu þeirra í deildinni. Viö vorum hins vegar hálfdaufir og það var greinilegt að fríið sem við fengum hefur farið eitt- hvað bjánalega í okkur. Þetta var fyrsta markið sem ég skora í Krikan- um. Ég var ekki viss um að ég myndi skora. Ég reyndi bara að henda mér inn á þennan bolta og það var gaman að sjá hann inni,“ sagði Gunnar Oddsson, besti leikmaður Leifturs, eftir leikinn. Eftir slaka leiki að undanfórnu vom mikil batamerki á leik FH-inga. Leikmenn liðsins vora baráttuglaðir og víst er að meira býr í hðinu held- ur en staða þess á stigatöflunni seg- ir. Stefan Toth og Jón Sveinsson voru einna bestir í jöfnu liði FH og Amar Viðarsson (Halldórssonar), sem var að leika sinn fyrsta leik í 1. defld, sýndi aö hann á framtíðina fyrir sér á knattspyrnuvellinum. í liði Leifturs var Gunnar Oddsson allt í öllu. Baldur Bragason átti góöa spretti og þeir Sigurbjöm Jakobsson og Júlíus Tryggvason voru sterkir. Hörður Magnússon kom FH-ingum á sporið gegn Leiftri á Kaplakrika í gær með marki úr vítaspyrnu. DV-mynd ÞÖK ÍBV-ÍA (1-1) 1-3 0-1 Stefán Þórðarson (16.) skallaði í netið eftir fallega fyrirgjöf frá Alexand- er Högnasyni. 1-1 Steingrímur Jóhannesson (17.) stökk hærra en Þórður Þórðarson, markvörður ÍA, sem kominn var í skógarferð, og skallaði í tómt markið. 1-2 Stefán Þóröarson (76.) eftir ótrú- leg mistök Friðriks Friörikssonar, markvarðar ÍBV, sem ætlaði að sparka í rólegheitunum frá marki sínu en bolt- inn fór beint í Stefán og í netið. 1-3 Haraldur Ingólfsson (80.) lyfti boltanum snyrtilega yflr Friðrik í markinu af um 20 metra færi. Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson - Frið- rik Sæbjömsson (Bjamólfur Lámssou 81.), Hermann HreiðarssonDragan Manjolovic ívar Bjarklind - Ingi Sigurðsson (Sumarliði Ámason 67.), Rútur Snorrason (Martin Eyjólfsson 77.), Jón Bragi Amarson Tryggvi Guðmundsson - Steingrimur Jóhann- esson Leifur Geir Hafsteinsson. Lið ÍA: Þórður Þórðarson (Ámi Gautur Ámason) - Sturlaugur Har- aldsson, Ólafur Adólfsson Sigur- stemn Gíslason Zoran Miíkovic - Kári Steinn Reynisson ;.'. (Pálmi Haraldsson 78.), Sigurður Jónsson Alexander HögnasonHaraldur Ing- ólfsson - Ólafur Þórðarson, Stefán Þórðarson ÍBV: 12 markskot, 7 hom. ÍA: 12 markskot, 5 hom. Gul spjöld: TYyggvi, Friðrik S., Ma- njolovic, Ingi (ÍBV), Milkovic (ÍA). Rautt spjald: Sturlaugur (ÍA). Dómari: Ólafur Ragnarsson, meðal- mennskan allsráðandi. Áhorfendur: 850. Skilyrði: Sól og blíöa framan af en svo bætti í vindinn eftir þvi sem á leið. Hásteinsvöllur frábær. Maður leiksins: Stefán Þórðarson, ÍA. Skoraði tvö mörk og átti þátt í því þriðja. Mjög atorkusamur og ógn- andi. Keflavík-KR (0-1) 0-1 0-1 Mihajlo Bibercic (19.) eftir send- ingu frá Einari Daníelssyni af vinstri kanti. Bibercic tók við boltanum inn- anfótar og lagði í markið frá markteig. Lið Keflavíkur: Ólafur Gottskálks- son - Helgi Björgvinsson, Kristinn Guðbrandsson, Karl Finnbogason - Jóhann B. Guðmundsson (Sverrir Þór Sverrisson 75.), Marko Tanasic Eysteinn Hauksson (Sigurgeir Kristj- ánsson 77.), Ragnar Steinarsson, Ró- bert Sigurðsson - Kjartan Einarsson, Ragnar Margeirsson (Georg Birgisson 35.). Lið KR: Kristján Finnbogason - Brynjar Gunnarsson Þormóður Egilsson, Sigurður Öm Jónsson, Daði Dervic - Hilmar Bjömsson, Salih Heimir Porcha, Heimir Guðjónsson Einar Þór Daníelsson - Mihajlo Bibercic, Guðmundur Benediktsson Keflavík: 6 markskot, 3 hom. KR: 10 markskot, 5 horn. Gul spjöld: Helgi, Karl, (Keflavík), Brynjar (KR). Rautt spjald: Enginn. Dómari: Bragi Bergmann, sæmileg- ur. Áhorfendur: Um 800. Skilyrði: Hæg norðaustan átt, smá gola og sterk sól. Völlurinn þokkalegur miðað við ástand hans í byrjun sum- ars. Maður leiksins: Heimir Guðjóns- son, KR. Var eins og skriðdreki x fyrri hálfleik og griðarlega sterkur í ná- vígi. Breiðablik-Grindavík (0-0) 0-0 Lið Brciðabliks: Hasrjudin Cardaklija - Úlfar Óttarsson Amarldur Loftsson, Kjartan Antonsson, Guð- mundur Guðmundsson - Gústaf Óm- arsson (Gunnlaugur Einarsson 76.), Willum Þór Þórsson, Amar Grétars- son, Jón Þ. Stefánsson - Rastislav Lazorik, Þórhallur Hinriksason. Lið Grindavíkur: Albert Sævarsson - Bjöm Skiilason, Þorsteinn Guðjóns- son, Milan Jankovic Guðjón Ás- mundsson - Zoran Ljubicic Ólafur Bjamason, Ólafur Ingólfsson Þor- steinn Jónsson - Tómas Ingi Tómasson (Þórarinn Ólafsson 36.), Grétar Einars- son. Breiðablik: 9 markskot, 1 hom. Grindavík: 11 markskot, 4 hom. Gul spjöld: Guðjón (Grindavik) Rautt spjald: Enginn. Dómari: Kristinn Jakobsson, stóð sig vel í auðveldum leik. Áhorfendur: 436. Skilyrði: Sterkur hliðarvindur og sól, völlurinn góður. Maður leiksins: Úlfar Óttarsson, Breiðabliki. Barðist mjög vei allan tímann og reyndi að halda boltanum á jörðinni. Lék vel í þessum leik. Iþróttir Fullt hús hjá ÍA Þorsteinn Gunnarsson, DV, Eyjum: „Þetta var allt í járnum þar til viö misstum manninn út af og urðum einum færri. Þá fórum við loks að berjast. Ég verð auðvitað að nýta öll þau tækifæri sem ég fæ því það er valinn maður í hveiju rúmi,“ sagöi Stefán Þórðarson sem skoraði tvö mörk í 1-3 sigri Skagamanna gegn ÍBV í Eyjum. Leikur ÍBV og Skagamanna var bráðfjörugur enda mættust tvö skemmtilegustu lið landsins að margra mati. Skagamenn réðu gangi leiksins á miðjunni en skyndisóknir ÍBV voru stórhættulegar. Eftir tvö mörk með mínútu mfllibili í fyrri hálfleik, þar sem markverðir beggja liði voru úti á þekju, áttu Skagamenn nokkur hálfíæri en Eyjamenn áttu besta færi þegar Tryggvi Guðmunds- son komst einn inn fyrir en Þðrður markvörður varði mjög vel. Hann lenti svo í samstuði og meiddist á mjöðm og lék ekki seinni hálfleikinn Valur-Fram (0-B) 3-0 1- 0 Stuart Beards (56.) íir vítí. Guð- mundi Brynjólfssyni var brugðið innan vítateigs og vítaspyrna óumflýjanleg. 2- 0 Stuart Beards (89.) fékk stungu- sendingu inn fyrir vöm Fram og hafði nægan tíma til að skora framhjá Birki. 3- 0 Sigþór Júlíusson (90.). Hörður Már gaf laglega fyrir markið þar sem Sigþór var á auðum sjó og skoraði auðveldlega. Lið Vals: Tómas Ingason- Jón Grétar Jónsson, Bjarki Stefánsson;.'., Valur Valsson;.'., Kristján Halldórsson- ívar Ingimarsson, Guðmundur Brynjólfsson (Hörður Már Magnússon 87.), Hilmar Sighvatsson (Gunnar Einarsson 23.), Sigþór Jxiliusson- Kristinn Lárusson (Anton Bjöm Markússon 75.), Stuart Beards;.'., Lið Fram: Birkir Kristíns;.V Kristján Jónsson (Nökkvi Sveinsson 22.), Pétur Marteinsson, Valur Fannar Gíslason, Gauti Laxdal- Josip Dulic, Atli Helga- son, Hólmsteinn Jónass., Þórhallur Vík- ingsson (Haukur Pálmason 75.)- Þor- bjöm A. Sveinsson, Atli Einarsson. Valur: 11 markskot, 4 hom. Fram: 5 markskot, 3 horn. Gul spjöld: Sigþór (Valur), Beards (Valur), Nökkvi (Fram) Rautt spjald: Valur Fannar (Fram) Dómari: Eyjólfur Ólafsson, góður. Áhorfendur: Um 600. Skilyrði: Kröftugur norðan vindur, kalt í veðri og völlurinn ágætur. Maður leiksins: Bjarki Stefánsson, Val. FH-Leiftur (1-1) 2-2 1-0 Hörður Magnússon viti (24.). Há sending barst inn í vítateig Leifturs, bolttnn hrökk í hönd vamarmanns og víti dæmt. 1- 1 Gunnar Már Másson (26.) Baldur Bragason spólaði sig upp vinstri kant- inn, gaf fyrir markið og þar skoraði Gunnar af stuttu færi við flærstöng. 2- 1 Hrafnkell Kristjánsson (63.) Efttr vel útfærða sókn sendi Toth fallega sendingu á Hrafnkel sem skallaði í netið. 2-2 Gunnar Oddsson (85.). Laglegri sókn Leifturs lauk með því að Pétur B. Jónsson sendi fyrir markið og þar henti Gunnar sér fram og skallaði í netið. Lið FH: Stefán Amarson - Petr Mraz- ek, Ólafur H. Kristjánsson Auðunn Helgason - Jón Sveinsson V., Stefan Toth(Þorsteinn Halldórss. 79.), Amar Viðarsson (Ólafur B. Stephensen 75.), Hallsteinn Amarson Hrafnkell Kristjánsson - Hörður Magnússon Jón E. Ragnarsson (Hlynur Eiríkss. 68.) Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson - Júlíus Tryggvason Sigurbjörn Jak- obsson Nebojsa Sorovic - Sindri Bjamason (Matthias Sigvaldason 75.), Gunnar Oddsson Jón Þór Andrésson (Pétur B. Jónsson 23.), Sverrir Sverris- son, Baldur Bragason Páll Guð- mundsson (Steinn V. Gunriarsson 82.) - Gunnar Már Másson. FH: 6 markskot, 2 hom. Leiftur: 7 markskot, 4 horn. Gul spjöld: Toth (FH), Þorsteinn (FH), Sverrir (Leiftri). Rautt spjald: Engin. Dómari: Guðmundur S. Maríasson, ágætur. Áhorfendur: 350. Skilyrði: Norðan strekkingur, völlur- inn nokkuð góður. Maður leiksins: Gunnar Oddsson (Leiftri). Var prímusmótorinn í leik Leiftursmanna og kórónaði góöan leik sinn með þvi aö skora jöfnunarmarkið. og Árni Gautur tók stöðu hans. Ekki byrjaði Árni gæfulega því markspyrna hans misheppnaðist gjörsamlega á 56. mínútu, boltinn fór beint til Steingríms sem þakkaði pent fyrir sig. En Sturlaugur fefldi hann, vítaspyrna dæmd. Sturlaugur fékk að fjúka og Skagamenn léku einum færri það sem eftir var. Rútur tók vítaspyrnuna en Árni bætti fyrir mistökin með stórkostlegri mar- kvörslu. Við það færðust Skagamenn alhr í aukana en vendipunktur leiks- ins kom eftir herfileg mistök Friöriks markvarðar þegar hann ætlaöi að hreinsa frá markinu en skaut í Stef- án og í netið. Rothöggið kom svo 5 mín. síðar. „Þetta er sá leikur sem ég kveið hvað mest fyrir í fyrri umferðinni. ÍBV er með eitt skemmtilegasta sóknarlið landsins og alltaf þegar ég kem til Eyja eru spjöld, hasar og mikið fjör. Ég vildi helst spila alla mína útileiki í Eyjum,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari IA. „Þetta var alveg ótrúlegt, ekkert að gerast, engin hætta á ferðum og þeir skora tvö mörk upp úr engu. Ég hafði litið undan í bæði skiptin og missti því af báðum mörkunum. Það er erfitt að fá svona ódýr mörk á sig og það einum fleiri. En við megum ekki örvænta því leikurinn hjá okkur í dag var i lagi að Stórum hluta,“ sagði Atli Eðvaldsson, þjálf- ari ÍBV. Leggur Guðni fleiri mörk inn á markareikninginn? ísland - Sviss á Laugardalsvelli 16. ágúst O P IM A ATLANTAMÓTIÐ verður haldið að Hlíðarvelli, Mosfellsbæ, sunnudaginn 23. júlí. Leikin verður 18 holu höggleikur með og án forgjafar. Hámarkstími 434 tími. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. 1. VERÐLAUN MEÐ OG ÁN FORGJAFAR: HELGARFERÐ FYRIR TVO TIL DUBLÍIM 2. VERÐLAUN MEÐ OG ÁN FORGJAFAR: HELGARFERÐ FYRIR EINN TIL DUBLÍN 3. VERÐLAUN MEÐ OG ÁN FORGJAFAR: MATUR FYRIR TVO í PERLUNNI VERÐLAUN VERÐA VEITT FYRIR AÐ VERA NÆST HOLU Á 9. OG 18. BRAUT. Skráning í Golfskála og í síma 566 7415 og lýkur henni 22. júlí kl. 21:00 & Þátttökugjald 1800.- • •••••••••••••••••••••••• PRI NTPIOMMAN H F >•••••••< ■f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.